Morgunblaðið - 19.01.2008, Blaðsíða 46
… en hann er með
alltof marga eyrna-
lokka fyrir minn smekk …48
»
reykjavíkreykjavík
Eins og fram
kom á þessum
stað í blaðinu á
dögunum hefur
sýningaréttur á
söngleiknum Ást
verið seldur í
Englandi en von er á því að sýn-
ingin fari á fjalir einhvers leikhúss-
ins í London í byrjun maí og þá með
enskum leikurum.
En velgengni Ástar einskorðast
ekki við erlenda sigra því hér á
landi hefur sýningin gengið fyrir
fullu húsi frá því verkið var frum-
sýnt haustið 2006. Nú hefur heyrst
að forráðamenn sýningarinnar
hyggist fjölga sætum á Nýja svið-
inu, þar sem verkið er sýnt, og bæta
við heilum 100 sætum. Aðsókn á
sýninguna er enn slík að auðvelt er
talið að selja í aukasætin en einnig
mun vera reynt að koma til móts
við mikinn kostnað við hverja sýn-
ingu en í henni taka þátt um 20 leik-
arar og söngvarar.
Ástin lætur ekki að sér hæða.
Ást nýtur vinsælda
hér sem ytra
Veitinga- og skemmtistaðurinn
Kaffibrennslan var lengi mjög vin-
sæll skemmtistaður en gullald-
artími staðarins var líklega um það
leyti sem Tómas Tómasson stýrði
staðnum undir lok tíunda áratugar
síðustu aldar. Nú hefur nýr staður
verið reistur á grunni Kaffibrennsl-
unnar og kallast sá Brons. Nafnið
tengist öðrum veitinga- og
skemmtistöðum sem staðsettir eru í
sömu húsalengju, þ.e. Gulli og Silfri
sem finna má í húsakynnum Hótel
Borgar en sömu rekstraraðilar
standa að öllum þremur stöðunum.
Nýi staðurinn hefur farið í gegnum
allmikla andlistlyftingu eins og
venja er þegar nýir eigendur taka
við og glænýr matseðill hefur verið
settur saman af kokkum staðarins.
Þá verður einnig boðið upp á
áfenga drykki þó bjórúrvalið verði
öllu fátækara en áður enda státaði
Kaffibrennslan af myndarlegasta
öl-úrvali norðan Alpafjalla.
Nýr staður, Brons
Þeir aðdá-
endur Sigur
Rósar sem ekki
urðu nógu
snöggir til þegar
viðhafnarútgáfa
af plötunni Takk
kom út fá nú tækifæri til að lappa
upp á safnið því um 100 eintök af
útgáfunni fundust nýverið í ótil-
greindri vöruskemmu og fást nú
keypt í netverslun sveitarinnar.
Platan kom út á sínum tíma í 3.000
eintökum en meðfylgjandi eru 48
síður af handmáluðum myndum eft-
ir hljómsveitarmeðlimi auk heim-
ildamyndar á mynddiski.
Týnd eintök af Takk
finnast í skemmu
DANSÞÁTTUR þjóðarinnar, eins og hann er kall-
aður, Party Zone á Rás 2, kynnir árslista sinn í
kvöld á milli kl. 19.30 og miðnættis. Síðar sama
kvöld verður svo árslistakvöldið svokallaða haldið
á NASA. Þar koma fram hinn þýski Marc Romboy
og hinn sænski Tomas Andersson. Morgunblaðið
lagði nokkrar laufléttar en um leið dúndrandi
hressar og stuðvænar spurningar fyrir kauða.
Marc
Marc Romboy hefur hrundið af stað fjölda raf-
tónlistarútgáfna en dagvinnan, ef svo má kalla,
snýst um Systematic-útgáfuna sem gerir út frá
Berlín. Tónlist Romboy er hústónlist, undir sterk-
um áhrifum frá Chicago-skólanum.
„Kannski er það vegna þess hversu iðnvætt
landið er,“ segir Marc þegar blaðamaður spyr
hann hvort hann hafi einhverjar skýringar á hinni
góðu heilsu sem þýsk raftónlist hefur notið í gegn-
um árin.
„Áhrif Kraftwerk eru þá mjög mikil en þýskar
útvarpstöðvar tóku að spila lög með henni strax í
upphafi áttunda áratugarins þannig að í huga
Þjóðverja hefur sú tónlist aldrei verið framandi.
Ég held líka að verðlag í borgum eins og Berlín og
Köln ýti undir þetta, sjáðu t.d. London sem er rán-
dýr.“
Marc segir danstónlistarsenuna vissulega afar
alþjóðlega. Tæknivæðingin hafi gert það að verk-
um að stutt sé á milli, en þó að teknó sé stundað
um allan heim er alltaf einhver blæbrigðamunur á
hljómi hvað einstök svæði varðar, einhverra hluta
vegna. Þetta heimsþorpslíkan er þá af hinu góða
að hans mati, t.a.m. gaf hann út plötu á dögunum
með brasilíska raf-/danstónlistarmanninum Gui
Boratto en þeir eiga enn eftir að hittast í eigin
persónu!
Marc sýtir að geta ekki sinnt tónlistinni meira,
en annir í kringum rekstur eru talsverðar. Og
hvað áhrifavalda í tónlist varðar tiltekur hann
ekki bara tónlistarmenn, heldur umhverfið sjálft;
útvarp, sjónvarp, göngutúr um lystigarð og bösk-
arann á götuhorninu.
„En til að svara þessu almennilega þá ólst ég
upp við Bítlana og Stones en fyrsta platan sem ég
keypti mér var The Robots með Kraftwerk. Þá er
ég mikill Kiss-aðdáandi (!). Svo var það nýbylgjan,
Joy Division, Smiths og svo varð ég mjög hrifinn
af Front 242. Svo komst ég í kynni við danstónlist-
ina í Chicaco og „acid-house“-bylgjuna og þá varð
ekki aftur snúið.“
Marc ætlar að gefa sér meiri tíma fyrir fjöl-
skyldu og vini í framtíðinni og hyggst hlaupa
meira um í skóginum (hann gefur ekki nánari
skýringar á því atferli). Önnur breiðskífa hans,
Contrast, kemur svo út í júní.
Tomas
Tomas Andersson er sænskur sveitadrengur
sem flutti í borgina (Stokkhólm) og fór að læra
lögfræði. Hann byrjaði ferilinn í hljómsveitum en
fór svo að þeyta skífum og skipuleggja uppá-
komur. Hann hefur gefið út tugi platna síðan
hann hóf raf-/danstónlistarferilinn (’99). Und-
anfarið hefur samstarf hans og útgáfunnar Bpitch
Control verið einkar farsælt en á vegum þess kom
tólftomman Washing Up út árið 2005 og sló í
gegn, var m.a. endurhljóðblönduð af hinum kan-
adíska Tiga.
„Þetta er alltaf að verða betra,“ segir Tomas
um raf-/danstónlistarsenuna í Svíþjóð. „Það eru
mestmegnis litlir klúbbar sem eru að sinna þessu
en það hefur verið ágætt streymi af þekktum er-
lendum nöfnum í gegnum borgina undanfarin ár.
Þeim sem eru að semja svona tónlist fjölgar þá
stöðugt.“
Tomas er sammála kollega sínum, Marc, um að
danstónlist í dag sé einkar „alþjóðleg“ en alltaf sé
hægt að greina ólíkan hljóm og ólíka nálgun, sem
sé skemmtilegt.
„Austur-Evrópubúarnir eru t.d. miklu harðari
einhvern veginn.“
Hann á ekki í erfiðleikum með að greina á milli
viðskiptahliðarinnar og þeirrar listrænu, segist
einbeita sér að því skemmtilega (þ.e. að skapa og
spila tónlist) og leyfa fólkinu með viðskiptanefið
að sjá um þau efni.
Tónlistaráhugi Tomasar beindist fljótt í átt að
tölvu- og hljóðgervlatónlist og hann tiltekur nöfn
á borð við Kraftwerk og Jean Michel Jarre og
einnig diskó frá áttunda áratugnum.
„Þá verð ég að nefna The Stooges og Velvet
Underground. Svo hefur Elvis alltaf verið til stað-
ar fyrir mig.“
Hann segist eiga erfitt með að sjá fyrir sér að
hann geri ekki tónlist í framtíðinni.
„Fyrir mig er þetta sálarhreinsandi ferli og ég
verð að gera þetta, hvort sem einhver er að hlusta
eða ekki.“
Meira
Auk þeirra Marcs og Tomasar mun sænska
snúðatvíeykið Super Diskant þeyta skífum og
fulltrúar Fróns verða DJ Casanova og DJ Lazer.
Party Zone gerir upp árið
Stuðbolti Marc Romboy hlustaði á Bítlana og Rolling Stones þegar hann var yngri en fyrsta platan sem hann keypti sér var The Robots með Kraftwerk.
Þrettánda árslistakvöld Party Zone fer fram á NASA í kvöld og er haldið í samvinnu við Jón Jónsson.
Sjóðheitir plötusnúðar frá Þýskalandi, Svíþjóð og, já, okkar ástkæra Íslandi þeyta skífum fram á nótt.
Arnar Eggert Thoroddsen tók tvo erlenda skífuþeytara tali í tilefni af dansveislunni.
Svíinn Tomas Andersson verður væntanlega
hress í kvöld þó myndin gefi það ekki til kynna.
arnart@mbl.is
Sjá nánar á www.pz.is og www.jon-jonsson.com