Morgunblaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
gbergmann.is
15.-17.feb. í Reykjavík
Helgarnámskeið með Guðjóni Bergmann sem fjallar um það
hvernig hugurinn starfar og hverju þú getur stjórnað, hvernig þú
getur að nýtt þér streitu til framdráttar, byggt upp sjálfstraust og eflt
jákvætt hugarfar, komið lífinu í betra jafnvægi með því að skilja hinar
sjö mannlegu þarfir og þjálfað upp einbeitingu og aukið afköst.
Kenndar eru einfaldar öndunar-, slökunar- og hugleiðsluæfingar.
Samnefnd bók fylgir með ásamt geisladiski.
Næsta námskeið í Reykjavík helgina 15.-17.febrúar.
Kennt föstudag frá 20:00-22:30, laugardag og sunnudag frá 9:00-17:00.
Verð 32.900 kr., skráning og nánari upplýsingar á www.gbergmann.is.
Eitt vinsælasta sjálfseflingarnámskeið síðustu ára.
Þú
ert það
sem þú
hugsar
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
MEIRIHLUTI
borgarstjórnar
vill bæta hag
grunnskólakenn-
ara í Reykjavík
með umtalsverðu
framlagi til þeirra
til að bæta upp
manneklu og mik-
ið álag í sumum
skólum borgar-
innar.
Þetta kom fram í ávarpi Júlíusar
Vífils Ingvarssonar, borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins og formanns
menntaráðs, á árlegri öskudagsráð-
stefnu reykvískra kennara, sem fór
fram á Hilton Nordica Hotel í
Reykjavík í gær.
Að ráðstefnunni standa mennta-
svið Reykjavíkurborgar, Kennara-
félag Reykjavíkur og Skólastjóra-
félag Reykjavíkur og var fullbókað á
hana og tæplega 700 manns mættu.
Júlíus Vífill Ingvarsson segir að
vegna mikils fjölda kennara á ráð-
stefnunni hafi sér þótt við hæfi að
greina frá hugmyndum um aukið
framlag til grunnskólakennara vegna
manneklu í skólum. Margir grunn-
skólakennarar hafi á líðandi starfsári
þurft að leggja á sig mikla aukavinnu
og sýna fórnfýsi í starfi til þess að
halda uppi lögbundinni kennslu og til
þess að kennsla gæti verið sem best.
Meirihluti borgarstjórnar kunni vel
að meta það sem þeir hafi lagt af
mörkum við þessar erfiðu aðstæður
og vilji koma til móts við kennara
með fyrrgreindum hætti. Stefnt sé að
því að borgarstjóri leggi fram tillögu
þess efnis fyrir borgarráð í dag.
Aukið framlag
Að sögn Júlíusar Vífils var unnið
að því að ganga frá tillögunum í gær
með það í huga að kynna útfærsluna
nánar á borgarráðsfundi í dag. Hann
segir að fyrri meirihluti borgarinnar
hafi lagt 180 milljónir króna til hliðar
til aðgerða í starfsmannamálum
borgarinnar, það er til kennara, leik-
skólakennara og annarra starfs-
manna á velferðarsviði og víðar, en
samkvæmt nýju tillögunni sé gert ráð
fyrir að meiri peningar verði settir í
verkefnið. Aðalatriðið sé að nú sé ver-
ið að takast á við stöðuna í skólunum,
sem ekki hafi verið gert til þessa.
Verið sé að umbuna kennurum vegna
álagsins, starfsmannaveltu, þjálfunar
nýrra starfsmanna og undirbúnings
utan vinnutíma. Með þessu sé verið
að viðurkenna ríkjandi ástand og
koma til móts við grunnskólakenn-
ara, eins og sum önnur sveitarfélög
hafi gert. „Við viljum halda í okkar
góðu kennara í Reykjavík,“ segir
hann.
Aukið framlag til
grunnskólakennara
Júlíus Vífill
Ingvarsson
Á að bæta upp mikið álag og aukavinnu vegna manneklu
MIKIÐ álag var á slökkviliði höfuð-
borgarsvæðisins í gær. Fyrir utan
tvo bruna samtímis voru 73 sjúkra-
flutningar á dagvaktinni.
Slökkviliðið var kallað í Borgartún
í Reykjavík síðdegis, en þar hafði
kviknað í bílkrana. Kranamanninum
tókst að forða sér þegar eldurinn
gaus upp og slökkviliðinu gekk vel
að slökkva eldinn og ganga frá á
vettvangi til að koma í veg fyrir um-
hverfisslys. Eldsupptök eru ókunn.
Á sama tíma voru tveir bílar send-
ir að nýbyggingu við Hlíðarhjalla í
Kópavogi og var slökkviliðið í um tvo
tíma á staðnum.
Tveir brun-
ar samtímis
Álag á slökkviliði höf-
uðborgarsvæðisins
Árvakur/KGA
Eldur Mikil olía og glussi voru í
bílkrananum og því mikið í húfi.
VIÐRÆÐUR um kjaramál héldu
áfram hjá sáttasemjara í gær. Gylfi
Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri
Alþýðusambands Íslands, segir að
fyrst og fremst hafi verið farið yfir
þau sameiginlegu mál sem séu á
borði ASÍ og sáttasemjari hafi gefið
skýrslu um stöðu mála. Margt hafi
þokast í rétta átt en enn vanti skýr
svör við ýmsum atriðum. Hann
áréttar að launaliðurinn sé ekki hjá
ASÍ heldur hjá hverju sambandi fyr-
ir sig og nefndar tölur í því sambandi
hafi ekki verið samþykktar.
Gylfi Arnbjörnsson segir að enn sé
ágreiningur um nokkur atriði, m.a.
þau sem snúi að uppsagnarákvæð-
um. Samkeppnishamlandi ákvæði
séu í ráðningarsamningum og verið
sé að setja inn alls konar kvaðir á al-
menna starfsmenn um að þeir megi
ekki vinna hjá samkeppnisaðila inn-
an ákveðins tíma. Atvinnurekendur
séu farnir að ganga ansi langt í þessu
og þetta geti útilokað fólk frá vinnu í
tvö til þrjú ár. Ennfremur sé deilt
um útreikning á kaupi, vaktavinnu-
fyrirkomulag, slysa- og veikinda-
tryggingar og fleira. Gylfi segir að í
sambandi við stórframkvæmdir vilji
ASÍ sjá samning sem tryggi að hægt
verði að halda utan um þær.
Gylfi segir að mörg atriði hafi
skýrst en lokafasann vanti til að
ljúka vinnunni og vilji sé til að setja
kraft í málin næstu daga.
Formenn meta stöðuna í dag
Formenn landssambanda og
stærri aðildarfélaga innan ASÍ koma
saman fyrir hádegi í dag til að fara
yfir stöðuna í viðræðunum við SA um
launahækkanir. Samkvæmt heimild-
um Morgunblaðsins á að ræða hvort
áhugi sé á að reyna áfram viðræður
við atvinnurekendur á grundvelli
þeirra tillagna um launabreytingar
sem SA hafa sett fram. Miklar efa-
semdir eru þó uppi um þessar til-
lögur, ekki síst í röðum Samiðnar og
Rafiðnaðarsambandsins, sem telja
félagsmenn sína fá lítið út úr þeim.
Þannig fái t.d. starfsmenn í bygging-
ariðnaði, sem skipta ört um starf, lít-
ið sem ekkert út úr því fyrirkomu-
lagi, sem útfært hefur verið um
launahækkanir til þeirra sem setið
hafa eftir í launaskriði, svonefndum
,,baksýnisspegli“. Verslunarmenn,
Starfsgreinasambandið og Flóa-
félögin eru hins vegar reiðubúin að
láta reyna á hvort hægt er að ná
samningum á þessum nótum.
Verði samstaða innan ASÍ um að
halda viðræðum áfram á grundvelli
þessara hugmynda er talið að þær
gætu gengið nokkuð hratt fyrir sig á
næstu dögum. Samhliða yrði þá
fundað um sameiginlegar kröfur á
hendur SA og fljótlega yrði einnig
„bankað upp á hjá ríkisstjórninni“,
eins og einn viðmælandi orðaði það.
Margt í kjaraviðræðun-
um þokast í rétta átt
LÖGREGLAN kom í veg fyrir að
umtalsvert magn af þýfi yrði sent úr
landi í vikubyrjun og voru fimm
manns handteknir vegna málsins.
Fréttavefur Morgunblaðsins
greindi frá því í gær að lögreglan
hefði komist á snoðir um 12 pakka
sem samtals vógu um 130 kg og átti
að senda til Póllands.
Þrír menn voru handteknir á póst-
húsi á Suðurnesjum og í kjölfarið
voru tveir til viðbótar færðir til yf-
irheyrslu. Lögreglan tók skýrslur af
mönnunum en þeim var síðan sleppt.
Lögreglan vinnur að rannsókn
málsins en megnið af þýfinu mun
hafa verið fatnaður og merkjavara,
meðal annars úr innbroti í íþrótta-
vöruverslun í Hafnarfirði.
Þýfið átti
að senda
til Póllands
♦♦♦
SEX ær hafa verið í sjálfheldu í
Ólafsvíkurenni á Snæfellsnesi síðan í
haust og hefur ekki enn tekist að
bjarga þeim þrátt fyrir nokkrar til-
raunir.
Ennið er um 411 metra hátt og til
þessa hafa ærnar haldið sig frekar
ofarlega en í gær voru þær komnar
niður í um 350 m hæð. Þá gerði eig-
andinn tilraun til að bjarga þeim en
þegar björgunarmenn og hundur
nálguðust féð brást það hið versta
við og færði sig ofar þar sem óger-
legt var að komast að því. Talsverð-
ur vindur var á norðanverðu Snæ-
fellsnesi í gær og gekk á með byl auk
þess sem Ólafsvíkurenni var snævi
þakið og mjög hált. Færðin var því
erfið og urðu menn frá að hverfa, en
ær án ætis héldu sínu striki.
Sex ær í sjálfheldu í Ólafsvíkurenni á Snæfellsnesi síðan í haust
Morgunblaðið/Alfons
Kindurnar
styggar og
björgun
mistókst
SVANDÍS Svavarsdóttir, formaður
stýrihóps um málefni Orkuveitu
Reykjavíkur, skilar lokaskýrslu
hópsins á fundi borgarráðs klukkan
9 í dag og verða niðurstöðurnar í
framhaldi af því kynntar fjölmiðlum.
Ljóst er að niðurstaða stýrihópsins
er sú að skýrari reglur þurfi um
starfsemi Orkuveitunnar og heim-
ildir stjórnenda þar til að taka af-
drifaríkar ákvarðanir. Einnig verð-
ur litið á REI-málið sem lærdóm
fyrir stjórnkerfi borgarinnar og
komið er inn á hlut forstjóra Orku-
veitunnar og forstjóra REI í málinu.
Mikil áhersla var lögð á að ná sátt
á milli borgarfulltrúa í stýrihópnum
og annarra á listum flokkanna. Fyr-
ir vikið standa allir flokkar að nið-
urstöðunni, og er það áfangi út af
fyrir sig, þótt það þýði að um mála-
miðlun sé að ræða. Mikil vinna fór í
það í gær og fyrradag hjá sjálfstæð-
ismönnum að tryggja að allir borg-
arfulltrúar innan raða borgarstjórn-
arflokksins væru sáttir við
niðurstöðuna, enda höfðu þeir ólíka
aðkomu að málinu.
Sameiginleg
niðurstaða
stýrihópsins