Morgunblaðið - 07.02.2008, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÆÐAÞING landbúnaðarins verð-
ur haldið í dag, fimmtudag, og á
morgun. Þingið hefst með athöfn í
húsakynnum Íslenskrar erfðagrein-
ingar kl. 9:00 Það mun síðan færast
yfir í fundarsali Hótel Sögu eftir há-
degi þann dag.
Að venju verður dagskráin fjöl-
breytt og fróðleg en í sameiginlegri
dagskrá við upphaf þingsins verður
áhersla lögð á alþjóðlega þróun í
landbúnaði. Nokkrar málstofur
verða haldnar um afmörkuð fagefni
þar sem umræður verða um land-
búnaðarhagfræði, umhverfi, heilsu,
skógrækt, landnýtingu, jarðrækt,
búfjárrækt, vistfræði lífríkis í fersku
vatni, kolefnisbindingu, ferðamál og
samfélagsgerð. Christian Anton
Smedshaug hjá norsku bænda-
samtökunum mun halda fyrsta fyr-
irlesturinn á þinginu og munu marg-
ir fleiri fyrirlestrar fylgja í kjölfarið.
Árvakur/RAX
Góði hirðirinn Meðal annars verð-
ur fjallað um úthagabeit sauðfjár.
Fræðaþing
ÍSLANDSMÓT grunnskólasveita,
stúlknaflokkur, fer fram á laug-
ardaginn í húsakynnum Skák-
sambands Íslands, Faxafeni 12.
Hver skóli má senda fleiri en eina
sveit, sem er skipuð 4 keppendum
(auk varamanna). Mótið hefst kl.
14.00 og tefldar verða 7 umferðir, 2
x 15 mín. eftir Monrad-kerfi.
Skráning fer fram á skrifstofu SÍ,
sími 568 9141 kl. 10-13 virka daga
og í tölvupósti: siks@simnet.is.
Íslandsmót - einstaklingskeppni -
fyrir stúlkur á grunnskólaaldri fer
fram sunnudaginn 10. febrúar í
húsakynnum SÍ og hefst kl. 13.
Teflt verður í tveimur flokkum:
Fæddar 1992-1994 og fæddar 1995
og síðar. Tefldar verða 15 mín.
skákir, umferðafjöldi fer eftir
fjölda þátttakenda.
Fjórar efstu stúlkurnar í yngri
flokki tefla síðan um þátttökurétt í
Norðurlandamóti stúlkna sem fram
fer í Noregi 18.- 20. apríl. Veitt
verða verðlaun í hverjum aldurs-
flokki og dregið í happdrætti.
Íslandsmót
stúlkna í skák
VINSTRI græn í
Reykjavík boða
til félagsfundar í
dag, fimmtudag-
inn 7. febrúar,
klukkan 17.30 á
Vesturgötu 7.
Svandís Svav-
arsdóttir borg-
arfulltrúi mætir
og kynnir REI-
skýrsluna. Í kjöl-
farið verður boðið upp á fyr-
irspurnir og umræður, segir í
fréttatilkynningu.
VG ræða um
REI-skýrslu
Svandís
Svavarsdóttir
STUTT
REYKJAVÍKURBORG hefur lagt
sérstaka áherslu á að efla þjónustu
við innflytjendur í borginni síðustu
misseri. Nýjasti áfanginn í þeirri
vinnu er upplýsingasíður á ensku,
pólsku og taílensku á vef Reykja-
víkur, www.reykjavik.is.
Sérstök áhersla er lögð á erlend-
ar barnafjölskyldur. Unnið er að
því að færa helstu umsóknir um
þjónustu borgarinnar á áðurnefnd-
um tungumálum inn á vefinn.
Fleiri tungumál
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
ÞEGAR sinueldarnir á Mýrum, sem
kviknuðu vorið 2006, voru í hámarki
nam orkulosunin yfir 200 MW. Til
samanburðar má nefna að afl
Blönduvirkjunar er 150 MW. Þetta
kom fram í fyrirlestri Þrastar Þor-
steinssonar jarðeðlisfræðings við
Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands,
en hann fjallaði um Mýraeldana í fyr-
irlestri hjá Náttúrufræðistofnun í
gær.
Sinubruninn á Mýrum er mesti
sinueldur sem þekktur er á Íslandi.
Þar brann svæði sem var um 73 fer-
kílómetrar að flatarmáli (Þingvalla-
vatn er um 82 ferkm. til sam-
anburðar) á þremur dögum; 30. mars
– 1. apríl.
Eftir að tekist hafði að slökkva eld-
ana vaknaði áhugi hjá vísindamönn-
um á að rannsaka áhrif þeirra á gróð-
urfar, dýralíf, vatnafar og fleira. Sett
var af stað rannsóknaráætlun sem
fyrirhugað er að standi í fimm ár.
Þeir sem standa að þessum verkefni
eru Náttúrufræðistofnun Íslands,
Landbúnaðarháskóli Íslands, Nátt-
úrufræðistofa Kópavogs og Háskóli
Íslands.
Gríðarlegur hraði á eldinum
Þröstur benti á að gróðureldar
væru algengir víða á jörðinni, en ár-
lega brenna nokkrar milljónir fer-
kílómetra lands af þeirra völdum.
Í fyrirlestri sínum sýndi Þröstur
myndir sem teknir voru úr gervi-
tunglum, en slíkar myndir hafa síð-
ustu ár hjálpað mjög við mælingar á
stærð og útbreiðslu gróðurelda.
Hann sagði að með úrvinnslu gervi-
tunglamynda og athugunum á jörðu
niðri væri hægt að rekja framvindu
eldanna á Mýrum og hversu mikil
orka losnaði í þeim.
Með aðstoð gervitunglamynda er
m.a. hægt að segja til um hvenær
eldarnir náðu til sjávar og þannig
meta útbreiðsluhraða þeirra í upp-
hafi. Þröstur sagði að meðalhraði
eldtungunnar, fyrstu 4-5 klukku-
stundirnar hefði verið um 3200 metr-
ar á klukkustund, en vindhraði á
þessum tíma var um 11 m/s. Þetta
þýðir að hraði eldsins var um 3,2 km
á klukkustund sem er gríðarlegur
hraði og skýrir að nokkru leyti hvers
vegna illa gekk að ráða við eldinn. Til
samanburðar má nefna að í bruna
sem varð á Miðdalsheiði í júní í fyrra
var meðalhraðinn 150 metrar á
klukkustund.
Þröstur sagði að samband veðurs
og elda væri mjög sterkt. Fyrirliggj-
andi gögn sýndu þetta vel.
Fram kom hjá Þresti að rannsókn
sem Jón Guðmundsson líffræðingur
gerði hefði leitt í ljós að í Mýraeld-
unum hefðu losnað um 27 þúsund
tonn af gróðurhúsalofttegundum.
Það er svipað og tókst að binda með
allri uppgræðslu og skógrækt árið
2003.
Orka sem losnaði í Mýraeldum
var yfir 200 MW þegar mest var
27 þúsund tonn af
gróðurhúsaloft-
tegundum losnuðu
í sinubrunanum
Árvakur/RAX
Sinueldur Mestu sinueldar Íslandssögunnar kviknuðu á Mýrum að morgni 30. mars. Eldurinn brann í þrjá dag.
Í HNOTSKURN
»Víst þykir að sinueldarnir áMýrum hafi kviknað af
mannavöldum, annaðhvort vilj-
andi eða vegna þess að sígarettu
var hent út úr bílglugga.
» Í sumar verður haldið áframað rannsaka gróður og dýra-
líf á svæðinu, en fyrstu nið-
urstöður benda til að bruninn
hafi haft slæm áhrif á sumar
jurtir en fuglalíf hafi aukist.