Morgunblaðið - 07.02.2008, Qupperneq 14
14 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
ARGENTÍSKI hljómsveitarstjórinn
og píanistinn Daniel Barenboim
hlýtur dönsku Léonie Sonning-
tónlistarverð-
launin á næsta
ári, samhliða
flutningi sínum á
tveimur píanó-
konsertum eftir
Beethoven með
Konunglegu
dönsku sinfón-
íuhljómsveitinni.
Barenboim fær
600.000 danskar
krónur að launum, tæpar 7,8 millj-
ónir íslenskra króna.
Dómnefnd sem valdi Barenboim
sagði hann einn merkasta listamann
heimsins á sviði sígildrar tónlistar
og hljómsveitarstjóra í heimsklassa.
Barenboim er ísraelskur ríkisborg-
ari en var fyrir skömmu gerður að
palestínskum heiðursborgara.
Hann var einn stofnenda Dív-
anhljómsveitarinnar 1999 í því skyni
að auka skilning milli Ísraela, Pal-
estínumanna og annarra araba, og
stuðla að friði. Hljómsveitin er skip-
uð ungmennum frá Ísrael, Palestínu
og öðrum arabalöndum.
Barenboim
heiðraður
Hlýtur Léonie
Sonning-verðlaunin
Daniel
Barenboim
DANMARKS Radio (DR), þ.e. rík-
isútvarp Danmerkur, hefur í hót-
unum við danska tónlistarmenn, að
því er danska dagblaðið Politiken
heldur fram. DR neiti tónlist-
armönnum um greiðslur fyrir flutn-
ing á sjónvarpsstöðvum sínum og
krefjist þess að þeir segi sig úr sam-
tökum danskra tónlistarmanna,
Dansk Musiker Forbund (DMF),
vilji þeir á annað borð koma fram á
stöðvum þess.
Lögmaður DMF, H.C. Tjellesen,
segir þetta ólögmæta kröfu. Reglur
DMF kveði á um að tónlistarmenn
megi ekki flytja tónlist á sjónvarps-
stöðvum án þess að fá greitt fyrir.
Tjellesen segir DMF íhuga hvort
lögsækja eigi DR fyrir vikið.
DR krafðist þess fyrir tveimur ár-
um að tónlistarmenn kæmu fram án
launa á sjónvarpsstöðvum fyrirtæk-
isins. Aðeins tíu tónlistarmenn hafa
til þessa gefið sig fram við DMF
vegna slíkra krafna en DMF segir
tónlistarmenn óttast að verða settir
á svartan lista hjá DR kvarti þeir
undan þessu fyrirkomulagi.
Vill ekki
borga
Í FORSAL vinda nefnist sýn-
ing Hrafnhildar Ingu Sigurð-
ardóttur sem opnuð verður í
START ART á Laugavegi 12b
í dag. Myndefnið sækir Hrafn-
hildur í haust- og vetrarlægðir
sem gengið hafa yfir landið
undanfarna mánuði.
„Ég fór suður með sjó og
stóð á brún Krýsuvíkurbjargs
og horfði á brimið í sortanum,
þá birtist sólin augnablik, rétt
gægðist yfir sjóndeildarhringinn, andartaks ljós-
brot eins og til að minna á að hún væri þarna
ennþá þrátt fyrir allt. Það er þetta augnablik sem
ég reyni að fanga í nýjustu myndum mínum,“ seg-
ir Hrafnhildur um verkin.
Myndlist
Haust- og vetrar-
lægðir Hrafnhildar
Hrafnhildur Inga
Sigurðardóttir
FJÓRTÁN laga ljóðaflokkur
eftir Önnu S. Þorvaldsdóttur
Almanaksljóð, verður frum-
fluttur í Norræna húsinu í dag
klukkan 12. Almanaksljóð eru
samin við ljóð sr. Bolla Gúst-
afssonar. Einnig verða flutt lög
þeirra Ingibjargar Þorbergs,
Atla Heimis Sveinssonar,
Hreiðars Inga Þorsteinssonar
og Tryggva M. Baldvinssonar
við ljóð fjögurra annarra
þekktra skálda. Flytjendur á tónleikunum eru
Gerður Bolladóttir sópran, Sophie Schoonjans
hörpuleikari og Pamela De Sensi flautuleikari.
Sunnudaginn 10. febrúar verður sama efnisskrá
flutt í Laugarborg í Eyjafirði kl. 15.
Tónlist
Ljóðrænir tónleikar
í Norræna húsinu
Gerður
Bolladóttir
FÉLAGIÐ Íslensk grafík opn-
ar á morgun árlega sýningu
Grafíkvina í sal félagsins, Graf-
íksafninu í Hafnarhúsi,
Tryggvagötu 17, hafnarmegin.
Þar verða til sýnis verk eftir
Georg Guðna, Ragnheiði Jóns-
dóttur og Einar Hákonarson.
Einar og Ragnheiður eru
þekktir grafíklistamenn en
Georg er þekktastur af draum-
kenndum landslagsmálverk-
um. Sýningin er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík
og verður opin til kl. 1 eftir miðnætti á morgun, á
Safnanótt. Sýningin verður opnuð kl. 14 á morg-
un. Frekari fróðleik um félagið má finna á vefsíðu
þess, www.islenskgrafik.is.
Myndlist
Einar, Georg Guðni
og Ragnheiður
Georg Guðni
Hauksson
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Í EINU atriða kvikmyndarinnar Raging Bull, þar
sem fjallað er um ævi bandaríska hnefaleikakapp-
ans og ofstopamannsins Jake LaMotta, ríkir
kynngimögnuð þögn áður en hann greiðir hnefa-
leikamanninum Sugar Ray Robinson rothögg.
Þessi þögn er myndlistarmanninum JBK Ransu
hugleikin, en hann er sýningarstjóri sýningarinnar
Þögn sem verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi, kl. 17 í dag.
Á sýningunni er ljósi varpað á það hversu þögn-
in er vanmetin og hvernig hún hefur að vissu leyti
snúist upp í áreiti í nútímasamfélagi. Ransu segist
hafa að hluta til fengið hugmyndina að sýningunni,
að vinna með þögnina, þegar hann horfði á Raging
Bull í New York. Myndin hafi haft mikil áhrif á þá
ákvörðun, en þá þögn í hinu nærtæka umhverfi. Í
sjálfu sér sé mikið þægilegra að fara einn út í skóg
eða út í sveit ef maður sé að leita að þögninni. En
það sé mun erfiðara í brjálæði hnefaleikahringsins
og því sé fyrrnefnt atriði í Raging Bull fyrir vikið
svo magnað.
Í texta á vef safnsins um sýninguna segir að hún
veki athygli á því hvað þögnin sé vanmetin og að
hún hafi að vissu leyti snúist upp í áreiti í okkar nú-
tímasamfélagi. Ransu segir þögn vissulega mikið
áreiti því fólk sé orðið vant annars konar áreiti, frá
öðru fólki, sjónvarpi og öðru. „Þannig áreiti erum
við vön, það er þessi orka sem við erum alltaf að
gefa frá okkur í samtöl og að horfa og tala og allt
þetta. En áreitið þegar þú ert einn, og það er jafn-
vel bara hljóð, kyrrð, það er mikið áreiti og það
kemur bara innan frá. Á einhverju stigi þykir okk-
ur það óþægilegt, við þurfum að horfast í augu við
okkur sjálf, jafnvel að hlusta á það sem við erum að
hugsa sem er í 80-90% tilfella bara tómt bull,“ seg-
ir Ransu. Það sé áreiti.
– Er þögnin ekki gullin, eins og segir í laginu?
„Hún er gull þegar við sjálf upplifum þögnina
því þegar þú ert að hlusta á það sem þú ert að
hugsa ertu ekki að upplifa þögn. Það er þögnin í
okkur sem kallar á þetta,“ segir Ransu. Á sínum
andlegu ferðalögum, þar sem hann hafi leitað
þagnarinnar í Mið-Ameríku, hafi honum þótt
óþægilegt að tala ekki við neinn og gera ekki neitt.
Þá hafi þögnin verið yfirgnæfandi. Á endanum hafi
hann þó náð algerri, innri þögn.
– Af hverju valdirðu þessa fjóra myndlist-
armenn á sýninguna, Finnboga Pétursson, Harald
Jónsson, Finn Arnar Arnarsson og Hörpu Árna-
dóttur?
„Það er áhrifameira að fá ólíkar nálganir á þögn-
ina og mér fannst í þeim verkum sem ég hafði séð
eftir þau áður vera einhver þögn en af ólíkum toga.
Það var ekkert fyrirfram ákveðið að það yrðu bara
fjögur en þegar við komum saman í salnum (í
Hafnarhúsinu) að skoða þetta þá einhvern veginn
fannst mér það nóg, að það þyrfti ekki að bæta við
hópinn og síst af öllu að gera einhverja kaótíska
sýningu.“
Ólík nálgun
Listamennirnir nálgast viðfangsefnið með ólík-
um hætti en þó með sama markmið í huga, þ.e. að
skapa vettvang þar sem þögn ríkir. Haraldur vinn-
ur verk úr hljóðeinangrandi efni út frá grunnfleti
hússins; Harpa tekst á við þögnina með ljóðrænu
og hæglátu verki; Finnbogi tekur fyrir þögnina
milli hljóðs og hreyfingar og Finnur skilur eftir sig
þögn af tilvistarlegum toga, flytur út úr safninu
fyrir opnun eftir að hafa búið í sýningarrýminu um
skeið.
Ransu segir Harald vinna með safnaþögnina,
þ.e. þögnina í safninu. „Mér finnst það svolítið
kómískt að á svona sýningu eins og Þögn sé það
ekki sýningunni í hag, eða upplifuninni af henni, að
það sé rosalega vel mætt á hana en það er safninu í
hag. Ef það eru alltaf 20-30 manns í salnum þá er
aldrei þögn. Þannig að það er togstreita og mót-
sögn í því.“ Ransu segist þó ekki ætla að ganga um
með skilti í Hafnarhúsi sem á standi „Þögn“ en úti-
lokar samt ekki að mæta í bol með slíkri áletrun.
Þar sem þögnin ríkir
JBK Ransu er sýningarstjóri myndlistarsýningarinnar Þagnar sem
verður opnuð í Hafnarhúsi í dag Fjórir listamenn takast þar á við þögnina
Árvakur/Ómar
Hljóðlaus Finnbogi, Haraldur, Ransu, Harpa og Finnur nutu þagnarinnar í Hafnarhúsinu í gær.
Í HNOTSKURN
» Önnur sýning verður opnuð í Hafnarhúsiá morgun á sama tíma, Erró – ofurhetjur.
Sýningunni er ætlað að höfða til efri bekkja í
grunnskólum og eru ofurhetjur í aðal-
hlutverki, eins og nafnið gefur til kynna. Á
sýningunni er m.a. stærsta verk Errós í eigu
Listasafns Reyrkjavíkur, 13 metra breitt.
» Á morgun verður Safnanótt sett í Hafn-arhúsi kl. 19 og stendur til kl. 1 eftir mið-
nætti. Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá
í öllum húsum Listasafns Reykjavíkur Nánari
upplýsingar verður hægt að finna á vef safns-
ins, www.listasafnreykjavikur.is
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
MYNDSTEF, samtök íslenskra
myndhöfunda á sviði höfund-
arréttar, frumsýna í Háskóla
Reykjavíkur í dag tvær stuttar
heimildarmyndir á þeirra vegum um
höfundarrétt. Myndirnar heita Hver
á þetta pensilfar? og Ég veit að þetta
má ekki en það gera það allir. Í
myndunum er fjallað um höfund-
arrétt og þá sérstaklega brot á hon-
um, t.d. með dreifingu höfundarrétt-
arvarins efnis á Netinu. Seinni
titillinn vísar til algengrar afstöðu
ungmenna sem annarra til niðurhals
og dreifingar á slíku efni en einnig
er fjallað um möguleika Netsins í
kynningu á höfundarréttarvörðu
efni og listamönnum. Í annarri
myndinni eru nokkur ungmenni tek-
in tali á förnum vegi en öll eiga þau
það sameiginlegt að hafa halað niður
af Netinu höfundarréttarvörðu efni
og þá oftast nær meðvituð um að þau
séu að brjóta á slíkum rétti. Minnt er
á að höfundarréttur sé yfir og allt
um kring í umhverfi okkar.
Fræða börn og unglinga
Formaður Myndstefs er Knútur
Bruun. Hann segir ungt fólk ekki al-
ið upp í því að virða höfundarrétt og
úr því verði að bæta, t.d. með
fræðslu í grunnskólum og víðar. „Í
fyrsta lagi ætlum við að nota þessar
myndir inn í fyrirtæki sem hafa með
vernduð verk að gera, og jafnframt
inn í háskóladeildir þar sem verið er
að fjalla um höfundarrétt og fram-
haldsskóla […] við ætlum að reyna í
gegnum menntamálaráðuneytið og
Námsgagnastofnun að koma þessu
jafnvel inn í grunnskóla. Þá erum við
kannski meira að ímynda okkur að
sú mynd sem fjallar um notkun á
Netinu höfði til þess aldursflokks,“
segir Knútur. Lögfræðingar geti
ekki elt uppi brotamenn á barnsaldri
en það sé hins vegar hægt að fræða
börn og unglinga um höfundarrétt,
að óheimilt sé að ná sér í hugverk
annarra án leyfis og endurgjalds.
Myndirnar snúast þó ekki aðeins
um það heldur er einnig vakin at-
hygli á því að ef meira höfundarrétt-
arvarið efni væri aðgengilegt á Net-
inu á sanngjörnu verði gæti það
dregið úr niðurhali og dreifingu.
Höfundarréttur yfir og allt um kring
Höfundarréttur Knútur Bruun er
formaður Myndstefs.
♦♦♦
Í DAG:
12.15 Norræna húsið
Gerður Bolladóttir, sópran,
Sophie Schoonans, harpa, og
Pamela De Senzi, flauta, flytja
Almanaksljóð eftir Bolla Gúst-
afsson við lag Önnu Þorvalds-
dóttur, auk laga eftir fleiri
tónskáld.
19.30 Háskólabíó
Sinfóníuhljómsveit Íslands
frumflytur Sinfóníu nr. 3 eftir
Atla Heimi Sveinsson og Sin-
fóníu nr. 4 eftir John Speight.
Einsöngur: Ágúst Ólafsson og
Gunnar Guðbjörnsson. Stjórn-
andi: Roland Kluttig.
20.30 Laugarborg, Eyjafirði
Sigurður Halldórsson, selló,
og Daníel Þorsteinsson, píanó.
Sérstakur gestur: Marta
Hrafnsdóttir, alt.
Flytja lög eftir Atla Heimi
Sveinsson, Úlfar Inga Har-
aldsson, Hjálmar H. Ragn-
arsson og Hafliða Hall-
grímsson.
Myrkir
músíkdagar