Morgunblaðið - 07.02.2008, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 07.02.2008, Qupperneq 24
  D       > 9 9  9  9 ; 9     9  9 9  9 9  /! 602I!2'' J !0+64K 3'+L > 9 : <9 <B <B @; @B !L <      !  " # $%& '() *+, $%& '() *-, .(')#  /( 0 * /( 1 * /2 * /1  *  & (3) * 4( #* 4!5!65* -(  * 7 * # * ((* &  *  !655* 5 *  6* 5  * 8 *  9!* :1* %- 15 * ;1(  * <* =5 * >%>) * G60M C 50M3I/'2 ! E 4(5 6N0+2 ;0 !4  +  6!1 0 #.    @A $    .   $  456.75689: 'P ' +- G 6DG I4 D' +/ -+ -G 0/ < ' '( 4+ 0(+ 0' : #    $%#.  $ $  : FRÉTTASKÝRING Baldur Arnarson baldura@mbl.is D ramað í kringum hin endanlegu verðlaun stjórnmálanna, forseta- stól Bandaríkjanna, heldur áfram eftir að engum fram- bjóðanda demókrata og repúblik- ana tókst að ná afgerandi forystu í kapphlaupinu um útnefningu flokks síns í forkosningunum á þriðjudag, „Stóra þriðjudeginum“ sem svo er nefndur. Verða Bandríkjamenn að bíða enn um sinn eftir að sjá hinar end- anlegu víglínur fyrir forsetakosn- ingarnar í haust, sem þegar hafa tekið á sig sögulegan blæ tíma- mótaviðburðar, og eins og sjá má í rammanum hér til hliðar gæti for- skot meðal „ofurfulltrúa“ reynst Clinton afar dýrmætt. Spennan gæti vart verið meiri demókratamegin. Hillary Clinton vann fjölmennustu ríkin sem í boði voru, New York og Kaliforníu, um leið og Barack Obama undirstrik- aði hversu öflugur andstæðingur hann er með því að hljóta fleiri at- kvæði í fleiri ríkjum en hún. Obama nýtur þess jafnframt að eiga meira eftir í kosningasjóðn- um og gæti það vegið þungt næstu vikur en jafnvel er talið að barátta þeirra Clinton haldi áfram eftir forkosningarnar í Ohio og Texas 4. mars – ráðist jafnvel ekki fyrr en eftir kjörið í Pennsylvaníu 22. apr- íl – og kann að skipta máli að hún hefur haft nokkurt forskot í suð- urríkinu Texas. Því ríður á fyrir Obama að höfða til fólks af rómönskum uppruna í Texas til að styðja við fylgi sitt meðal blökkumanna en í her- búðum hans ríkir bjartsýni um að persónutöfrar hans muni ríða baggamuninn í návígi við kjós- endur í Virginíu, Maryland og í höfuðborginni Washington. Þá telja ráðgjafar Obama að hann hafi forskot fyrir forkosn- ingarnar í Louisiana og Nebraska 9. febrúar og flokkskjörið í Wash- ingtonríki þann tólfta (í sumum ríkjum velja flokksmenn fram- bjóðendur í lokuðum kosningum). Repúblikanamegin varð John McCain ekki að þeirri ósk sinni að fylgja eftir sigrinum á Flórída, sem gerði endanlega út um vonir Rudy Giulianis, með svo afgerandi sigri að helsti andstæðingur hans, Mitt Romney, yrði að játa sig sigr- aðan. McCain er engu að síður lang- líklegastur til að hljóta útnefningu þótt öflugur armur innan flokks- ins sé á þessu stigi honum andvíg- ur. Kapphlaupið hjá repúblikönum er um margt snúnara en hjá demókrötum. Stuðningsmenn Romneys hafa vænt Mike Hucka- bee um að efna til samsæris um að veikja framboð hans með sam- vinnu við McCain á bak við tjöldin. Kapallinn er því orðin flóknari eft- ir að Huckabee kom á óvart og náði sigri í sex ríkjum, þvert á spár um að hann yrði úr leik eftir þriðjudaginn, en upp frá því á bandi McCains, með augun á emb- ætti varaforseta. Sigurinn í Kaliforníu mikilvægur Alls kusu demókratar í 22 ríkjum og mátti ráða af ræðum Clinton á Manhattan og Obama í Chicago – hún er öldungadeildarþingmaður frá New York, hann í sömu þing- deild fyrir Illinois – að slagurinn væri farinn að harðna og að hvor- ugt þeirra gæti gert tilkall til að vera afgerandi frambjóðandi flokks síns. Jafnt var á metunum í mörgum ríkjum og skiptust þau á um að hafa forskot eftir því sem á taln- inguna leið og var lengi framan af óljóst hvort Clinton næði meiri- hluta atkvæða í Kaliforníu. Það tókst þó að lokum, sigur sem þykir einkar mikilvægur, líkt og sigur hennar í Massachusetts, þar sem Obama var spáð góðu gengi vegna stuðnings þeirra Edwards Kenne- dys og John Kerrys. Að mati fréttaskýranda New York Times sýndu úrslitin fram á styrk Obama og Clinton. Honum hefði gengið vel að ná til hvítra, blökkumanna og ungs fólks, henni að afla fylgis kvenna, fólks af róm- önskum uppruna og eldri kjós- enda. Raunar þykir hinn afgerandi munur sem er á fylgi Obama og Clinton eftir kjósendahópum bregða birtu á þann reginmun sem Í herbúðum repúblikanans McCains var þess vænst að forkosningar forsetaframbjóðanda flokksins. Líkt og Clinton þarf hann að bíða þe McCain skrefi næ magnast hjá dem AP Forsetahjón? Obama og kona hans Michelle fagna í Chicago. Í mannhafinu Clinton fagnar í New York á þriðjudagskvöld. Sigurteiti John og Cindy McCain fagna með sínu fólki í Phoenix. 24 FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Í ÞÁGU HVERRA? Í Morgunblaðinu í gær var skýrtfrá því, að Gildi lífeyrissjóður ogLífeyrissjóðir Bankastræti 7 hefðu keypt hlutabréf í FL Group fyrir um 2 milljarða á síðustu vikum. Í ljósi þess hvernig félaginu hefur farnast á hlutabréfamarkaðnum á undanförnum mánuðum hafa þessi kaup vakið athygli. Lífeyrissjóðir eru að ávaxta fjármuni félagsmanna sinna og yfirleitt er reynt að tak- marka áhættu þegar um er að ræða ávöxtun á lífeyri fólks. Í þessu tilviki hafa lífeyrissjóðirnir tveir ávaxtað fjármuni félagsmanna sinna í því fyr- irtæki sem reynzt hefur einna áhættusamast á íslenzka hlutabréfa- markaðnum. En vafalaust búa stjórn- endur lífeyrissjóðanna yfir upplýs- ingum sem aðrir hafa ekki undir höndum og byggja þessar fjárfest- ingar á traustum grunni. Hitt vekur athygli, að þegar Morg- unblaðið beindi þeirri spurningu til lífeyrissjóðanna, hvers vegna þeir hefðu fjárfest í þessum hlutabréfum var svarið það, að talsmenn sjóðanna tjái sig ekki um fjárfestingarstefnu þeirra. Hvers vegna ekki? Lífeyrissjóðirn- ir eru í eigu félagsmanna sinna, al- mennings í landinu. Hvers vegna er fjárfestingarstefna þeirra leyndar- mál? Þessi svör hljóta að verða til þess að umræður, sem fram fóru fyrir nokkrum árum um kjör stjórna líf- eyrissjóðanna, verði endurvaktar. Þá benti Morgunblaðið á, að fjármunir lífeyrissjóðanna eru eign fé- lagsmanna þeirra en ekki fé- lagsmanna og vinnuveitenda. Greiðslur vinnuveitenda í lífeyris- sjóði á móti framlögum félagsmanna sjálfra eru samningsbundnar í kjara- samningum launþega, hluti af þeirra kjörum. Það eru engin rök fyrir því nú á tímum, að vinnuveitendur eigi fulltrúa í stjórnum lífeyrissjóðanna. Það er úrelt fyrirkomulag sem á að afnema. Félagsmenn í lífeyrissjóðun- um eiga sjálfir að kjósa fulltrúa í stjórnir sjóðanna í stað þess, að þeir séu tilnefndir af stjórnum viðkom- andi launþegafélaga. Það er undarleg forræðishyggja á 21. öldinni að halda í þetta gamla fyr- irkomulag, sem engin rök eru fyrir í dag. Ekki er ósennilegt að með breyttu fyrirkomulagi við kjör á fulltrúum í stjórnir lífeyrissjóðanna verði ein- hver breyting á fjárfestingarstefnu þeirra. Og líklegt má telja, að þá yrði fjárfestingarstefna sjóðanna gagn- særri og ekki erfiðleikum bundið að fá upplýsingar um hver hún sé. Hvernig stendur á því að fulltrúar launþegafélaganna setja ekki fram þessa sjálfsögðu kröfu í viðræðum við vinnuveitendur, þá kröfu að gamalt og úrelt fyrirkomulag verði afnumið og sjálfsagt lýðræði innleitt í starf- semi sjóðanna? Varla er það orðið sameiginlegt hagsmunamál verkalýðsforingja og vinnuveitenda að halda óbreyttu fyr- irkomulagi í rekstri sjóðanna?! HÆTTULEGUR FARMUR Frágangur á farmi vörubíla er alltof oft ófullnægjandi. Ítrekað hef- ur það gerst að þungur farmur er ekki festur nógu tryggilega og hefur ekki mátt miklu muna að illa færi þegar þungir hlutið hafa dottið af vörubílum á götum úti. Á þriðjudag féllu nokkur átta hundruð kílóa rör af flutningabíl á mótum Strandgötu og Hringbraut- ar í Hafnarfirði og var mesta mildi að hvorki urðu slys á fólki né skemmdir á farartækjum. Í frétt í Morgunblaðinu í gær kem- ur fram að rörin hafi verið fest með keðjum og styttur notaðar til að hindra hliðarskrið. Engar skriðvarnir hafi hins vegar verið fyrir afturenda pallsins og ómögulegt hafi verið að koma þeim fyrir. Haft er eftir verk- stjóra, sem sá um að fjarlægja rörin, að þau hafi verið afar sleip og þau þurfi að festa betur næst. Vöruflutn- ingabíllinn var á vegum GG-flutninga. Guðfinnur Pálsson, framkvæmda- stjóri GG-flutninga, segir að fyrir- tækið hafi sínar verklagsreglur og þær taki mið af gildandi reglugerð. Sé miðað við að festingar varni einnig fram- og afturskriði. Hann ætlar að láta skoða hvers vegna það hafi ekki verið gert. Engin tvímæli eru um það í reglu- gerð um flutninga að ganga skuli þannig frá farmi að hann renni ekki aftur af palli og þar er einnig kveðið á um það hvernig eigi að bera sig að. Mikill munur er á fólksbíl og flutn- ingabíl í umferðinni. Umferðin er oft þung á Íslandi, hvort sem það er á þjóðvegum landsins eða í þéttbýli, og oft er bíll við bíl. Bifreiðar í þunga- flutningum eru hluti af umferðinni eins og aðrir bílar. Hvernig sem frá- gangi er almennt háttað á farmi á flutningabílum GG-flutninga er engin spurning um það að iðulega er illa gengið frá farmi flutningabíla. Í fyrra var sagt frá því í Morgun- blaðinu að lögreglan hefði í umferð- areftirliti á Suðurlandsvegi haft af- skipti af 20 bílum á einum degi vegna ófullnægjandi frágangs á farmi. Helmingur þeirra var kærður fyrir brot á reglugerð á frágangi farms og fjórir voru kyrrsettir vegna þess að ekki þótti forsvaranlegt að leyfa þeim að halda áfram. Ef þessi tölfræði er yfirfærð á landið allt er ljóst að á hverjum degi er lífshættulegt að vera á ferli í umferðinni. Glannalegur frá- gangur á bílfarmi er óforsvaranlegur og atvik eins og það, sem átti sér stað í Hafnarfirði í fyrradag, kemur óorði á alla stétt flutningabílstjóra. Hér hefur áður verið kallað eftir því að gert verði átak í öryggismálum í frá- gangi farms á vörubílum og fyllsta ástæða til að ítreka það. Allir, sem að greininni standa, þurfa að taka sér tak. Það er ekki hægt að bjóða al- menningi upp á að það sé lífshættu- legt að voga sér út á götu vegna þess að á flutningabílum er farmurinn laus. Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ BARACK Obama jók fylgi forkosningarnar í fyrrada er staðið. Alls voru 1.678 f megin þarf 2.025 til að try af útkomunni í forkosning hafa frjálst val um hvern þ hópnum. Samkvæmt talni 213 ofurfulltrúa, Obama 1 Clinton „ofurfull Í HNOTSKURN »Svo virðist sem fylgtil baka, séu líklegri »Romney fékk flest aVirginíu en í seinni stuðningsmenn McCain Pauls að samið hefði ve »Forkosningunum lýbraska 12. júlí og síð 25.-28.ágúst og landsþin »Kosningarnar fara fmunu Bandaríkjam

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.