Morgunblaðið - 07.02.2008, Page 29

Morgunblaðið - 07.02.2008, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 29 Móðir mín var alþýðukona sem allt sitt líf laut hjartanu í ákvörðun- um og lét umhyggju fyrir öðrum ávallt sitja fyrir eigin hag. Á þeim stutta tíma sem hún glímdi við veik- indin, sem að lokum höfðu sigur, tal- aði hún meira um veikindi þeirra sem lágu á deildinni með henni en sín eigin veikindi þótt hún ætti augljós- lega í harðri baráttu sjálf. Þannig var hún. Hún og systkini hennar stóðu varla fram úr hnefa þegar þau átta til níu ára gömul stóðu uppi á bala og beittu fyrir útgerð föður síns í Hrís- ey. Þar með hófst starfsævin. Móðir mín vann mestan hluta ævinnar í rækju og fiskvinnslu, en um tíma einnig í skóbúðinni, á Hótel Mána- kaffi og í Björnsbúð á Ísafirði. En það skipti engu hvaða störfum hún gegndi, hún gekk til þeirra allra af dugnaði og samviskusemi og með ánægju. Ég er yngsti sonur hennar og mik- ill mömmudrengur. Fimm, sex ára undi ég mér ekki á leikskóla og strauk þaðan ítrekað. Það endaði með því að móðir mín samdi um að ég fengi að koma og standa við hlið hennar í Niðursuðuverksmiðjunni eftir að ég var vaknaður á morgnana. Vikum eða mánuðum saman pillaði ég með henni rækju og þvældist inn- an um konurnar í rækjunni. Mér finnst eins og þannig hafi það alltaf verið, að við stæðum saman hlið við hlið allt lífið. Og nú þegar hún er farin er ég eins og á berangri. Það er nánast óbærileg tilhugsun að eiga aldrei aftur að heyra röddina hennar, glaðlegan hláturinn, hnellnu svörin og allar sögurnar af öðrum meðlimum fjölskyldunnar og vinum hennar sem hún átti marga og ein- læga. Mamma átti marga skemmtilega takta og t.d. gaf hún okkur börnun- um sínum og barnabörnum flest ein- hver auknefni. Ég tel að af því ég var yngstur og alveg örugglega í uppá- haldi, hafi hún gefið mér tvö auk- nefni: Sextándi og Himneskur. Eng- inn veit hvaðan þessi nöfn komu, en ekkert var eins ljúft og að heyra mömmu segja þau, þótt stundum væri það pínlegt fyrir ungan snáða frammi fyrir öðrum. En ástin á bak- við þau leyndi sér aldrei og hún lifir. Mamma las blöðin og þá sérstak- lega minningargreinarnar í Morgun- blaðinu alltaf spjaldanna á milli. Það var algengt að hún hæfi sögu með þessum orðum: „Mikið er nú lagt á sumt fólk,“ og svo táraðist hún yfir örlögum sér alls ókunnugs fólks þannig að aðrir táruðust einnig. Hún grét yfir bíómyndum og bókum en hló líka innilega þegar henni fannst eitthvað vera kjánalegt og skemmti- legt. Það er á engan hallað þegar því er haldið til haga að hún og Hjördís systir hennar voru ákaflega sam- rýmdar. Það var henni því mikið áfall þegar þessi yngri systir hennar féll frá fyrir tæpum tveimur árum úr sama sjúkdómi og hún hefur nú lotið í lægra haldi fyrir. Þar missti hún sinn nánasta vin. Nú þegar hún er farin í faðminn á Drottni sínum, sem hún trúði stað- fastlega á, treysti ég því að þær syst- ur og allt þeirra fólk sem áður var gengið sitji saman yfir guðlegum kaffibolla og hlæi eins og þeim var einum lagið. Eftir sit ég eins og við öll sem elsk- uðum hana og finnst að hönd mín hafi nýlega runnið úr hennar, ráð- villtur og dapur. En hún hefur frá fyrsta augnabliki verið í öllum hirslum hjartans og verður þar uns kemur að því að einnig það stoppar og sameinast henni á ný. Guð blessi þig mamma mín og geymi. Þinn Heimir Már og Jean François. Til ömmu minnar. Vertu, góði Guð, hjá mér, gleði sönn er veitt af þér. Gjörðu bjart mitt bernskuvor, blessa, faðir, öll mín spor. Alltaf veist þú um minn veg, allt þú veist, sem tala ég, öll mín verk sér auga þitt, einnig hjartalagið mitt. (Höf. Einar Jónsson) Kveðja. Þinn Egill Ýmir. Amma mín var hetjan mín. Hún var umburðarlynd, góð, heiðarleg og ótrúlega skilningsrík á mannlegt eðli og margbreytileika fólks. ún vildi koma á sáttum og friði alls staðar og gerði alltaf allt sem í hennar valdi stóð til að fólki liði vel. Mér finnst orð mín fátækleg og skorta kraft en í mínum huga var amma hin full- komna fyrirmynd og allt það sem mig langar að vera í lífinu. Faðmur hennar var alltaf opinn og nóg til af ást, knúsi og þolinmæði. Amma sagði svo margt fallegt og viskufullt. Hún kenndi mér að reyna að vera þolin- móð og að stundum væri betra að sitja á sér, þótt maður vissi betur í deilum við aðra. Amma agaði mig blíðlega og kenndi mér að vilja verða betri manneskja. Ég verð henni æv- inlega þakklát fyrir að hafa alið mig upp þannig. Amma átti mikið af góðum vinum og enga óvildarmenn. Minningarnar eru margar og góðar en ég hefði samt viljað hafa ömmu miklu lengur hjá mér. Við töluðum saman á hverj- um degi og það verður erfitt að hafa hana ekki hjá sér framar. Amma var söngelsk og kunni endalaust af lögum. Afi spilaði oft á orgelið inni í stofu og við amma sung- um með og á ferðalögum sungum við mikið. Bekan yngsti sonur minn segist ætla að kasta síma hátt upp í loftið til guðs. Hann segir að hann geti það al- veg. Hann og bræður hans sakna langömmu sinnar sárlega. Enda var hún að minnsta kosti Íslandsmeistari í ömmuhlutverkinu. Amma kenndi mér að elda og baka og leyfði mér frá því ég man eftir mér að subba allt út í hveiti og búa til mis- ljótar kjötbollur. Hún brosti bara og sagði að æfingin skapaði meistarann. Í veikindum sínum stóð amma sig eins og hetja. Hún bar sig vel fyrir okkur hin eins og henni var einni lag- ið. Dugleg fram til síðustu stundar. Amma sagði að maður ætti aldrei að fara ósáttur við neinn að sofa. Mikið væri gott ef allir hefðu það viðhorf hennar að leiðarljósi. Synir mínir munu búa að hlýju og vináttu ömmu sinnar alla sína ævi. Systir þeirra er of ung til að muna en þeir eru staðráðnir í að vera góðir við hana og lofa að varðveita minning- arnar um ömmu sína fyrir hana. Og það eru einmitt góðar minningar sem eru það dýrmætasta sem amma skil- ur eftir sig hjá okkur öllum. Ég er þakklát guði fyrir að amma skuli ekki hafa þurft að þjást meira en hún gerði og að hún hafi fengið að deyja heima hjá afa sem hún elskaði svo mikið. Síðasta kvöldið fóruð þau saman með faðirvorið áður en hún sofnaði svefninum langa, nákvæm- lega eins og hún vildi hafa það. Elsku amma, takk fyrir þína styrku hönd sem hefur leitt mig í gegnum lífið. Ég mun alltaf elska þig, amma mín. Við munum sakna þín sárt en ég hlakka til að hitta þig á ný hjá guði. Að síðustu vil ég rifja upp textabrot sem við sungum svo oft saman: Ég horfi út á hafið sem hylur þokan grá og aldrei, aldrei framar ég þig fæ að sjá. Ég kveð þig kæri vinur svo klökk í hinsta sinn og guð og gæfan fylgi og greiði veginn þinn. (Höf. ók.) Þín alltaf, Ósk Norðfjörð, Brynjar Logi, Bjartur Freyr, Bekan Máni, Freyja Norðfjörð. Í dag kveðjum við Ósk Norðfjörð Óskarsdóttir eða Ósk ömmu eins og hún var kölluð á heimili okkar. Ósk kynntist ég þegar ég var ung- lingsstúlka því þau hjón voru vina- fólk foreldra minna. Ég hreifst strax af þessum hjónum fyrir það hvað þau voru meiriháttar hress og skemmtileg. Ósk var leikari af Guðs náð. Síðan átti það fyrir mér að liggja að verða tengdadóttir þeirra hjóna og eignuðumst við Ósk- ar elsti sonur þeirra tvo syni, þá Er- ling Arnar og Pétur Geir, sem sakna nú sárt ömmu sinnar. Okkar leiðir skildust svo þegar þeir voru 9 og 10 ára gamlir. Þau eiga heiður skilið, Ósk og Pét- ur, hvað þau stóðu þétt við bakið á okkur og studdu okkur í erfiðleikum. Ég er óumræðilega þakklát þeim hjónum Ósk og Pétri fyrir hvað þau hafa verið mér og sonum mínum góð. Ég kveð þig með söknuði, elsku Ósk, og þakka fyrir vináttu og hlý- hug. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Ég vil votta Pétri, Óskari, Rúnari, Guðmundu, Heimi og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð. Svanhildur Sörensen. Elsku Ósk mín, mér var mikið brugðið þegar Pétur hringdi og til- kynnti mér um fráfall þitt, en ég veit að þér líður vel núna og að þú ert laus við allar þjáningar. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku Pétur, Óskar, Rúnar, Munda, Heimir og fjölskyldur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð vegna fráfalls eiginkonu, móður og ömmu. Dalla. Elsku amma. Mikið rosalega tók þetta snöggt af. Þetta er ennþá svo óraunverulegt, þetta er svo sárt. Það verður tómlegt án þín. En það er eitt sem við vitum, að þú átt eftir að hafa það gott hjá englunum. Guð geymi þig, elsku amma. Elsku afi, við vottum þér okkar dýpstu samúð. Hjördís og Hafdís. HINSTA KVEÐJA ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, sonur, afi og langafi, ÞORVALDUR RAGNAR GUÐMUNDSSON, Funalind 13, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans, Landakoti, mánudaginn 28. janúar. Útförin fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi föstudaginn 8. febrúar kl. 13:00. Dóra Guðleifsdóttir, Leifur H. Þorvaldsson, Sigríður Karlsdóttir, Guðmundur R. Þorvaldsson, Jónína Sigrún Ólafsdóttir, Lára Sigvardsdóttir Hammer, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir mín og tengdamamma, amma og langamma, BRYNDÍS JÓNSDÓTTIR frá Siglufirði, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Siglufirði miðviku- daginn 30. janúar. Útför hennar fer fram frá Siglufjarðarkirkju laugar- daginn 9. febrúar kl. 14.00. Gunnar Trausti Guðbjörnsson, Halldóra Jónasdóttir, Edda Rósa Gunnarsdóttir, David Jarron, Bettý Gunnarsdóttir, Óðinn Gústavsson, Adam Jarron, Andri Jarron, Arna Mjöll Óðinsdóttir, Freyja Óðinsdóttir, Embla Óðinsdóttir. ✝ Bróðir okkar, mágur og frændi, HELGI ÞORVALDSSON, Gamla-Hrauni, Eyrarbakka, lést föstudaginn 1. febrúar. Útförin fer fram frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 9. febrúar kl. 14.00. Aðstandendur. ✝ Útför elskulegrar systur minnar, mágkonu og frænku, LILJU JÓNSDÓTTUR frá Ásmúla, sem lést á Elliheimilinu Grund 30. janúar, fer fram í Kálfholtskirkju föstudaginn 8. febrúar kl. 14.00. Dagbjört Jónsdóttir, María Guðbjartsdóttir og systkinabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGURVEIG MAGNÚSDÓTTIR, sem lést miðvikudaginn 30. janúar, verður jarðsungin frá Kálfatjarnarkirkju föstudaginn 8. febrúar kl. 13.00. Kristjana B. Leifsdóttir, Indriði Jóhannsson, Kristján H. Leifsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÖF ÞÓRARINSDÓTTIR, til heimilis að Brúnavegi 5, 105 Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 1. febrúar verður jarðsungin frá kirkju Óháða safnaðarins föstudaginn 8. febrúar kl. 15.00. Ólafur Hafþór Guðjónsson, Níels Ólafsson, Björg Ólafsdóttir, Magnús Magnússon, Daníel Ólafsson, Guðjón Hafþór Ólafsson, Þuríður Edda Skúladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður og ömmu, SIGRID ØSTERBY, Dunhaga 15, Reykjavík. Atli Konráðsson, Anne Berit Valnes, Sif Konráðsdóttir, Ólafur Valsson, Huld Konráðsdóttir, Sigurður Tómas Magnússon, Ari Konráðsson, Þóra Guðmundsdóttir, Andri Konráðsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.