Morgunblaðið - 07.02.2008, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2008 47
ÞAÐ kemur líklega ekki á óvart að
David Beckham hefur verið kosinn
kynþokkafyllsti fótboltakappi í
heimi. Vefsíðan www.thepeoplesc-
lub.com stóð fyrir valinu og voru það
breskir kvenkyns fótboltaaðdáendur
sem kusu.
„Beckham hefur ekki misst kyn-
þokkann, hann er dáður fyrir útlit
sitt og boltahæfileika, þrátt fyrir að
hafa flutt til Los Angeles,“ sagði eig-
andi vefsíðunnar um niðurstöðuna
sem hann segir einnig sýna að
breskar konur horfi ekki aðeins á
breska fótboltamenn því þeir sem á
topp-tíu-listanum sitji komi víða að.
David er ekki sá eini í Beckham-
fjölskyldunni sem fær þann heiður
að vera kynþokkafyllstur því Vic-
toria var nýlega valin kynþokka-
fyllsta móðir í heimi af und-
irfatamerkinu Victoria Secret.
Tíu kynþokkafyllstu
fótboltamenn í heimi.
1. David Beckham (LA Galaxy,
England)
2. Thierry Henry (Barcelona,
Frakkland)
3. Freddie Ljungberg (West Ham
Utd, Svíþjóð)
4. Cristiano Ronaldo (Manchester
Utd, Portúgal)
5. Fernando Torres (Liverpool,
Spánn)
6. Paolo Maldini (AC Milan, Ítalía)
7. Kaka (AC Milan, Brasilía)
8. Michael Owen (Newcastle Utd,
England)
9. Andriy Shevchenko (Chelsea,
Úkraína)
10. Frank Lampard (Chelsea, Eng-
land)
Freddie Ljungberg
Thierry Henry
David Beckham
Kynþokka-
fyllsti fót-
boltakappinn
EINS og að blanda saman vatni og
olíu myndu sumir líklega segja, en
heyrst hefur að bandaríski popp-
arinn Justin Timberlake ætli að
vinna með breska indí-bandinu
Arctic Monkeys. Timberlake og
drengirnir í Arctic Monkeys hitt-
ust og ræddu mögulega samvinnu
á hóteli í London í síðustu viku.
„Þeir hittust eitt síðdegi og
ræddu mögulega samvinnu, það
yrði frábært að sjá þá vinna sam-
an,“ sagði heimildarmaður við dag-
blaðið The Sun. „Tónlistarsmekkur
Monkeys-manna er mjög breiður
sem og Justins. Þetta yrði ráða-
hagur gerður í tónlistarhimnaríki.“
Timberlake hefur áður unnið
með Duran Duran, Madonnu og 50
Cent, en Arctic Monkeys unnu ný-
lega með breska rapparanum Diz-
zee Rascal.
Meðlimir Arctic Monkeys, Alex
Turner, Jamie Cook, Matt Helders
og Nick O’Malley, þóttu tapa svo-
litlu af rokk og ról-„kúlinu“ nýver-
ið er þeir báðust afsökunar á að
hafa valdið smáskemmdum á hót-
elherbergi.
Bandið dvaldi á hóteli í Soho-
hverfinu í London og hellti óvart
pínu rauðvíni á einhvern skraut-
grip sem var í herberginu. „Þegar
þeir skráðu sig út sagði einn
hljómsveitarmeðlima að hann hefði
hellt smárauðvíni niður og bauðst
til að borga fyrir skemmdirnar.
Hann var mjög kurteis og baðst
margfalt afsökunar,“ sagði hót-
elstarfsmaður.
Ætla kannski að vinna saman
Borubrattir Arctic Monkeys er bresk indí-
rokksveit. Gaman verður að sjá hvort úr sam-
vinnu þeirra og Timberlake verður.
Sykursnúður Justin Tim-
berlake hefur mest verið í
danspoppinu.
JEREMY Clarkson einn umsjón-
armanna bílaþáttarins Top Gear
kemur til landsins í dag samkvæmt
vefmiðlinum visir.is. Clarkson kem-
ur hingað til að vera viðstaddur sér-
staka forsýningu á Top Gear þætti í
Laugarásbíói í kvöld. Umræddur
þáttur fjallar um ferð þáttastjórn-
endanna á norðurpólinn á jeppum
sem breytt var af íslenska fyrirtæk-
inu Arctic Trucks. Clarkson er hér á
vegum fyrirtækisins.
Þátturinn verður sýndur á Skjá-
Einum hinn 10. febrúar
Jeremy Clarkson
Top Gear-gaur
til landsins