Morgunblaðið - 09.02.2008, Side 14

Morgunblaðið - 09.02.2008, Side 14
STJÓRN Ice- landic Group hef- ur skipað Finn- boga Baldvinsson nýjan forstjóra félagsins. Finn- bogi tekur við starfi Björgólfs Jóhannssonar sem hefur stýrt Icelandair síðan 15. janúar síðast- liðinn. Finnbogi tók við starfi forstöðu- manns Evrópusviðs Icelandic árið 2006, en hann nam sjávarútvegs- fræði við Háskólann í Tromsö. „Þetta verður krefjandi og spennandi,“ segir Finnbogi, sem hefur mikla reynslu í að starfa við sjávarútveg, allt frá veiðum til framleiðslu að fullunnum vörum. „Félagið hefur gengið í gegnum miklar breytingar og það er mitt hlutverk að sjá til þess að markmið náist. Ég hlakka ekki síst til að vinna með því góða og reynslumikla fólki sem starfar hjá félaginu. Mat- arvenjur eru sífellt að breytast og því eru mörg ný tækifæri í mat- væla- og fiskiðnaði.“ Finnbogi hefur verið búsettur í Þýskalandi, en kveðst aðspurður ekki munu flytja sig til Íslands með nýja starfinu, enda sé starfsemi fé- lagsins að miklu leyti erlendis. Nýr for- stjóri Ice- landic Finnbogi Baldvins- son tekur við Finnbogi Pétursson 14 LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF                                                         !!         !"#$ %& !"#$ '("#$ ) !"#$ *( (+ ("#$ ,#$(-(!#.*/0*  12 * ( !"#$ 3 !4( / "#$ ) + (0* "#$  *"#$ 56  - 7 89 :9#$+$"#$ ;-("#$ < "#$       =>"#$ *# 2"#$ * (2( ; * (25  * -5? ( ( */ !"#$ @ ;  12 * (2 !"#$ A" :("#$ ;//( /-(8&8( "#$ B( * &8( "#$      ! C  ;* -( - , ("#$ ,-!(8: "#$ "  # $ % &                                                                        B(8(!( /(  (*+ 8D*  /E 3 !* FF$>G>$F ==$G$GG >=$H>=$FI H$>==$IFG IG$=F$F F$=IG$> $>$HHF G$$FG=$HF III$H$>= $GG$I =$FG$== >F$FG$G= F$F>$G G$FI$G FI$>$ F$G>I$F  $H$I F$=$>FF $HG$G $F>$ =$=$F= 7 7 7 HH$=$ 7 7 HJG J JH GJ=G HJI =J> F>J HJ FIJ GGJ J> FJ JG GJG JHG >J=H IJ J =J JG FJ =JF> F=JF 7 7 =HFJ 7 7 HJG> J J> GJ= HJG =J F>J> H>J FIJH GGJG J> FJF JF GJI JI >JF I>J HJ J J =J =J= F=J 7 7 =HHJ J >J :&* ( %(8(! F F HG =I HG F  G >I F F >F G = F  7   >   7 7 7 H 7 7 /  ( / %(8$% 8 I$F$FI I$F$FI I$F$FI I$F$FI I$F$FI I$F$FI I$F$FI I$F$FI I$F$FI I$F$FI I$F$FI I$F$FI I$F$FI I$F$FI I$F$FI I$F$FI H$F$FI I$F$FI I$F$FI I$F$FI I$F$FI I$F$FI H$F$FI >$F$FH FF$I$FH I$F$FI F$$FI $$FI Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is VIÐ væntum þess ekki að Seðla- bankinn lækki vexti á fimmtudag- inn,“ segir Ragnhildur Jónsdóttir hjá Greiningu Glitnis. „Verðbólgan er enn langt yfir viðmiðunum og raunar talsvert hærri en Seðlabank- inn reiknaði með í síðustu spá sinni.“ Þrátt fyrir óróa á fjármálamörkuð- um og lækkun á eignaverði séu enn ekki komnar fram nógu sterkar vís- bendingar um samdrátt í einka- neyslu. Nýjar hagtölur um greiðslu- kortanotkun og atvinnuleysi muni birtast í næstu viku og kunni að varpa frekara ljósi þar á. Eins og fram kom í gær var slíkur samdráttur ein af ástæðum stýri- vaxtalækkunar Englandsbanka. „Það væri mjög erfitt fyrir Seðla- bankann að rökstyðja vaxtalækkun í næstu viku, verðbólguhorfurnar til meðallangs tíma eru einfaldlega ekki nógu góðar,“ segir Lúðvík Elíasson hjá greiningardeild Landsbankans. „Innflutningsverð er að hækka og krónan að veikjast. Þá mun bankinn eflaust bíða eftir niðurstöðum úr kjarasamningum, sem eru ókomn- ar.“ Lúðvík bendir á að viðsnúningur á fasteignaverði sé enn ekki sjáan- legur, verðið sé nánast óbreytt frá í október. „Þetta er lykilatriði því fasteignaverðið hefur keyrt upp verðbólguna.“ Nýjar tölur sýni hins vegar sam- drátt í fasteignalánum sem gefi til kynna að eftirspurnin sé að minnka, sem Seðlabankinn hafi einmitt verið að reyna að ná fram með háum vöxt- um undanfarin ár. „Við teljum því vaxandi líkur á stýrivaxtalækkun í apríl.“ Eðlilegt að hefja rólega lækkun Ef hagkerfið heldur áfram að kólna eins og hagvísar benda til gætu sein viðbrögð í aðhaldsstefnu Seðlabankans hins vegar kreppt of fast að atvinnulífinu. „Spurningin er bara hversu hratt þenslan minnkar, en seðlabankar verða að horfa fram á við,“ segir Ás- geir Jónsson, forstöðumaður grein- ingardeildar Kaupþings. „Ég tel ekki ólíklegt að stýrivextirnir fari að fikra sig varlega niður og finnst óskynsamlegt að bíða of lengi. Ef fasteignamarkaðurinn lækkar áfram eins og hann virðist ætla að gera þá er það akkeri fyrir verðbólguna. Núna er nokkuð ljóst að hún kemur frá gengi krónunnar og Seðlabank- inn hefur takmarkaða stjórn á því.“ Hröð lækkun stýrivaxta, sem Seðlabankinn hafði sjálfur gert ráð fyrir á árinu 2009, gæti verið áhættu- söm. Því sé ef til vill eðlilegra að hefja rólega lækkun og sjá hvernig framvindan verði. „Ef Seðlabankinn heldur sig við áætlanir um háa vexti langt fram eft- ir árinu má velta fyrir sér hvort þeir þurfi þá ekki að gera vel grein fyrir hættunni á harðri lendingu sem fylgir því. Þeir hljóta þó að taka mið af því sem gerist á næstunni.“ Sömu leið og evr- ópski seðlabankinn? Í HNOTSKURN »Bandaríska þingið hyggstveita 152 milljörðum dala, um 10.260 milljörðum króna, til efnahagsaðstoðar innanlands. Upphæðin svarar til 6% tekna bandaríska ríkisins. Óvíst er tal- ið hvort þetta muni bæta ástand- ið til langs tíma. »Vaxtadýfan í Bandaríkjunumá árunum 2001 til 2005 hefur stundum verið talin hafa mildað efnahagsaðstæður fram úr hófi. ' &(   ##) !) *+++,*++-   = F   G I H >   = F           !" #$%&'(        "#$%& % %& '!!& !$%& #!!&         ● CHINA Invest- ment Corpora- tion, CIC, og fjár- festingarfélagið JC Flowers hyggj- ast leggja fjóra milljarða Banda- ríkjadala í sjóð til kaupa í fjármála- fyrirtækjum, að því er fram kemur í Financial Times. CIC er fjárfestingarsjóður í eigu kín- verska alþýðulýðveldisins en hinn bandaríski JC Flowers er m.a. eig- andi NIBC. Undanfarið hefur borið nokkuð á slíkum innspýtingum frá sjóðum í ríkiseigu í Mið- og Austur- Asíu, m.a. til stórbankanna Merrill Lynch, UBS, Morgan Stanley og Citi. Ólíkt slíkum sjóðum hefur JC Flow- ers ekki lagt í vana sinn að fjárfesta í stórum nöfnum sem ofangreindum. Má því vænta nokkurra breytinga á kaupstefnu CIC, en stjórnvöld í Kína gagnrýndu CIC nýlega fyrir kaup í Blackstone þegar hlutabréf banda- ríska fjárfestingafélagsins féllu í verði. JC Flowers í samstarf við kínverskan sjóð ● LANDSVIRKJUN, LV, gaf í vikunni út tvö skuldabréf alls að andvirði um 6,3 milljarða króna, annars vegar í 75 milljónum dollara og hins vegar í 2 þúsund milljónum japanskra jena. Kjörin á bréfunum jafngilda USD Libor að viðbættu 15-20 punkta álagi. Bandaríska bréfið er til tíu ára en hið japanska til þriggja ára. Í tilkynningu Landsvirkjunar segir að þrátt fyrir óhagstæð ytri skilyrði á fjármálamörkuðum hafi fyrirtækið náð mjög hagstæðum kjörum og langt undir því skuldatryggingarálagi sem íslenskir bankar búi nú við á er- lendum lánamörkuðum. Heildarfjárþörf Landsvirkjunar á þessu ári er um 600 milljónir doll- ara, jafnvirði um 40 milljarða króna. Eftir lántökurnar hefur fyrirtækið öruggt lausafé út árið 2009 eða í 24 mánuði. LV með skuldabréf fyrir 6,3 milljarða ● SAMKVÆMT frétt í breska blaðinu Scunthorpe Telegraph í gær er Bakkavör að íhuga lokun á verk- smiðjunni Pasta Company í bænum Scunthorpe. Segir í fréttinni að 107 störf séu þar með í hættu. Ákvörðun um lokun hefur ekki verið tekin en viðræður munu fara fram næstu mánuðina við stjórnendur og starfs- menn verksmiðjunnar um fram- haldið. Bakkavör hefur verið aðaleig- andi verksmiðjunnar í nokkur ár en hún var hluti af samstæðu Geest. Hefur reksturinn verið erfiður und- anfarna mánuði vegna hækkandi framleiðslukostnaðar, einkum á hveiti og eggjum, og minnkandi eft- irspurnar á markaði. Í fréttinni er vitnað í þingmenn og fleiri af svæð- inu sem lýsa miklum áhyggjum af at- vinnuástandinu í Scunthorpe. Íhuga lokun pasta- verksmiðju í Bretlandi ÍSLENSKA krónan veiktist um 0,9% í gær og hefur ekki verið jafn- veik síðan í júlí 2006. Fram kemur í Hálffimmfréttum Kaupþings að krónan hafði þá veikst í sex mánuði, m.a. vegna breytinga á lánshæfis- mati ríkissjóðs, og fór gengisvísital- an þá hæst í rúm 134 stig. Í gær fór vísitalan yfir 130 stig innan dagsins, en 130 varð þó lokagildið. Velta á gjaldeyrismarkaði nam 42,5 millj- örðum króna. Evran er í sögulegri hámarki gegn krónunni, ein evra kostar nú rúmar 98 krónur. Gagnvart dollaranum hef- ur evran hins vegar ekki verið veik- ari í eitt og hálft ár, aðeins viku eftir að hún náði methæðum. Evran tók dýfu á þriðjudag þegar nýjar tölur bentu til samdráttar í þjónustugeir- anum á evrusvæðinu. Þá hafa vaxta- ákvarðanir þar og í Englandi haft neikvæð áhrif á evruna og pundið. Krónan í lægð ( )  * *  + .*/01 .2+0+ ..+0/ = FI F> F FF F I >  F  $: $FH(*I$# +$FI    K     *++/ 3+- ÞETTA HELST ... ● LOKAGILDI úrvalsvísitölu Kaup- hallarinnar var 4.999,7 stig eftir 1,34% í gær. Þetta er lægsta gildi vísitölunnar síðan í nóvember 2005. Mest lækkaði Exista, um 4,13%, en eina félagið sem hækkaði var hinn færeyski Eik Banki, um 3%. 9,4 milljarða króna viðskipti með bréf Kaupþings námu þremur fjórðu af hlutabréfaveltu dagsins, en heild- arvelta með bæði hlutabréf og skuldabréf nam nær 30 milljörðum. Skuldatryggingarálag bankanna hækkaði, Kaupþing fór úr 475 punkt- um í 495, Glitnir úr 435 í 445 og Landsbankinn úr 245 í 250 punkta. Lægsta gildi frá 2005 EYRIR Invest skilaði 797 milljóna króna hagnaði á árinu 2007 en það er tæplega helmingi minni hagnaður en af árinu áður. Hreinar rekstrartekjur félagsins námu 1,2 milljörðum króna og er það 42% samdráttur frá fyrra ári. Þar af dróst afkoma af verðbréfum og verð- bréfaafleiðum saman um 1,3 milljarða og fjármagnsliðir versnuðu um rúman hálfan milljarð en á móti jukust gengistekjur um hátt í milljarð. Rekstrarkostnaður jókst um 39% og nam 301 milljón króna en þess má geta að stöðugildum hjá félag- inu fjölgaði úr 5 í 10 á árinu. Hagnaður fyrir skatta var 908 milljónir króna. Efnahagur Eyris stækkaði um 84% á árinu og nam um áramót rúmum 48 milljörðum. Bókfært verð verðbréfa í eigu félagsins hækkaði um 15 milljarða, bæði vegna auk- innar hlutdeildar m.a. í Marel og Össuri en aðallega vegna kaupa í matvælafyrirtækinu Stork Food Systems. Hagnaður Eyris 800 milljónir Árni Oddur Þórðarson VINNSLUSTÖÐIN í Vest- mannaeyjum, VSV, skilaði 636 milljóna króna hagnaði af rekstri síðasta árs, borið saman við 207 milljóna hagnað árið áður. Heildar- tekjur drógust saman um 175 millj- ónir og námu 5,6 milljörðum króna. Tap varð á fjórða ársfjórðungi upp á 444 milljónir króna og í tilkynn- ingu til kauphallar segir að það skýrist fyrst og fremst af geng- istapi og aukafyrningum vegna nið- urrifs húsa. Rekstrarhorfur fyrir þetta ár eru sagðar í óvissu. Vinnslustöðin hafði óskað af- skráningar úr kauphöll, sem hefur svarað því til að afskráning verði ekki fyrr en í nóvember nk. en svo langur tími skýrist m.a. af andstöðu minnihluta hluthafa við afskrán- ingu félagsins. VSV afskráð í nóvember ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.