Morgunblaðið - 09.02.2008, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 09.02.2008, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 31 NÝLEGA birti Jakob Nielsen grein um tíu innri vefi sem valdir voru bestir árið 2008 í vikulega vef- tímaritinu sínu Alertbox, en und- anfarin ár hefur hann framvæmt ít- arlega úttekt og samanburð á innri vefjum fyrirtækja. Þrjú fjármálafyr- irtæki eru á listanum en þau verja óhemju fjármagni til þess að vinnulag og samskipti séu sem skilvirkust og hagkvæmust. Flest fyrirtækin á list- anum eru mjög stór, með að meðaltali 50.000 starfsmenn. Á listanum er þó er ein lítil stofnun, samgöngu- ráðuneyti Nýja-Sjálands, með 200 starfsmenn. Þetta eru áhugaverðar fréttir fyrir Ísland og sýnir að smærri fyrirtæki og opinberar stofnanir ættu að sjá tækifæri í góðum innri vefjum. Í samantekt Jakobs Nielsen koma fram atriði sem bestu innri vefirnir eiga sameiginleg. Flestir innri vefir á listanum notuðu mesta plássið á for- síðunni fyrir fréttir. Innri vefir eru kjörin leið til þess að koma á fram- færi ýmsum upplýsingum, fréttum og skilaboðum til starfsmanna. Þá eru myndskeið einnig að verða vinsælli á innri vefjum til þess að koma upplýs- ingum á framfæri, þau eru skemmti- leg viðbót við upplýsingar á texta- formi og hægt er að koma miklu efni til skila með stuttu myndskeiði. Vinsælasta virknin á innri vefjum er í stöðugri þróun og allt miðar að því að gera þá stöðugt öflugri og not- endavænni. Þessi virkni er ýmiss konar og þar má t.d. nefna starfs- mannaleitina, en hún er örugglega mest notaða tólið á innri vefjum í dag. Þá er ein innskráning þvert á öll kerfi (single sign on) á innri vefjum einnig að verða vinsælli og sífellt betri. Margir bestu innri vefirnir eiga það sameiginlegt að vera með sam- ræmda uppsetningu fyrir allan vefinn sem þýðir að þegar notendur hafa lært á einn hluta vefjarins eiga þeir auðvelt með að læra á annan. Þeir sem hafa umsjón með vefnum eiga auðvelt með að halda forminu sam- ræmdu með síðusniðmátum sem flest vefumsjónarkerfi bjóða upp á. Stöðugt meiri áhersla er lögð á að notendur geti klárað verkefni á innri vefnum í stað þess að þurfa að hringja í aðra innan fyrirtæksins, eins og t.d. þegar panta þarf fund- arherbergi, veitingar, o.s.frv. Þá þurfa form og eyðublöð að verða not- endavænni. En áherslan er einnig á að starfsmenn eigi auðvelt með að finna ákveðna kunnáttu innan fyr- irtækisins sem liggur hjá ákveðnum starfsmanni. Einn af sigurveg- urunum í ár stóð sig mjög vel með glæsilega sérfræðingaleit með fjölda virknieininga sem hjálpa starfs- mönnum að finna sérfræðikunnáttu innan fyrirtæksins. Í samantekt Jakobs Nielsen kemur fram að innri markaðssetning á innri vef er gríðarlega mikilvæg. Allt sem er nýtt þarf að innleiða og kynna sér- staklega fyrir starfsmönnum. Þú af- hendir ekki starfsmönnum verkfæri án leiðbeininga. Innri vefur er mjög gagnlegt vinnutæki sem í tímans rás er alltaf að verða betri og afkastameiri. Hins vegar hafa ekki mörg fyrirtæki lagt út í það að mæla ávöxtun á fjárfest- ingu þess að endurhanna innri vefinn sinn. Það er þó mikilvægt að geta séð tölurnar á bak við endurhönnun og setja sér mælanleg markmið. Ávinningur þess að bæta innri vefi er mikill. Fram kemur í niðurstöðum rannsókna NNGroup, en Jakob Niel- sen er í forsvari þess hóps, að fram- leiðsla eykst að meðaltali um 72% þegar farið er út í miklar lagfæringar á nytsemi innri vefja. Til þess að lag- færa innri vefi með nytsemi í huga þarf að þarfagreina þá og prófa á not- endum. Síðan eru þeir bættir í sam- ræmi við niðurstöður. Nokkur fyrirtæki á topp tíu listan- um mældu ávinning endurhönnunar. Hjá Bank of America var sá tími sem það tók starfsmenn að klára ellefu mismunandi verkefni á innri vefnum mældur. Eftir endurhönnun styttist meðaltími þess sem það tók starfs- menn að klára verkefni um helming, frá 43.6 sekúndum í 21.7 sekúndur. Eftir endurhönnun á innri vef Camp- bell jukust heimsóknir á innri vef um 727% daglega, en hins vegar fækkaði síðum sem notandi skoðaði í hvert skipti sem hann fór inn á innri vefinn frá rúmlega 9 í tæplega 1,5 að með- altali. Á heildina litið jókst fjöldi skoð- aðra síðna á innri vef Campbell ein- ungis um 30% og ef fólk rýnir ekki vel í tölfræðina mætti halda að end- urhönnunin hefði ekki skilað miklu. En þvert á móti heppnaðist hún mjög vel þar sem starfsmenn notuðu innri vefinn talsvert meira eins og 727% aukning á heimsóknum sýnir og voru auk þess miklu fljótari að komast að því efni sem þeir leituðu að í hvert skipti sem þeir notuðu innri vefinn. Eins og staðan er í dag er engin töfralausn eða töfrauppsetning á innri vefjum sem virkar fyrir öll fyr- irtæki. Það sem virkar er að byggja upp innri vefinn með því að setja nið- ur markmið hans og skoða vel þarfir fyrirtækisins og starfsmanna og þá hvernig hægt er að nota innri vefinn til þess að hjálpa þeim að klára vinnu- ferli á skilvirkari og hagkvæmari máta. Að lokum má nefna mikilvægi þess að prófa innri vefinn með raun- verulegum notendum. Ef fram kemur í prófunum að eitthvað virkar ekki fyrir notendur er nauðsynlegt að bæta það. Þeir innri vefir sem standa sig best eru þeir sem eru nytsamleg- astir starfsmönnum. www.useit.com www.sja.is Bestu innri vefirnir árið 2008 Hólmfríður Vilhjálmsdóttir fjallar um innri vefi fyrirtækja » Innri vefir geta gefið af sér mikla hag- ræðingu í vinnuferli starfsmanna. Á und- anförnum árum hefur átt sér stað mikil þróun í gerð og notkun þeirra. Hólmfríður Vilhjálmsdóttir Höfundur er Ráðgjafi hjá Sjá ehf. Drauma eldhu´s ...á drauma verði Innrettingar Dalvegi 10-14 • 200 Kópavogur Sími 577 1170 • Fax 533 1127 • www.innx.is 376.138,- m/vsk. Innifalið: Höldur, álsökklar, hillusam- stæða 90 x 217cm, hillur og plata undir efri skápum, hnífaparabakki, mjúklokun á skúffum og skápum. Ekki innifalið: Borðplötur, uppsetning, blöndunartæki, vaskur, eldhúsborð, rafmagnstæki, ljós og stólar. Mia innrétting I´talskt gaeðaeldhu´s XEINN IX 08 01 007 Allar innréttingar hjá Inn X eru smíðaðar úr fyrsta flokks hráefni. Lamir eru með mjúklokun í öllum uppsettum skápum og skúffur og skúffuskápar með fullum útdrætti og mjúklokun. Hafðu samband og fáðu okkur í heimsókn til þín gegn vægu gjaldi og við hönnum með þér draumaeldhúsið þitt, eða komdu í heimsókn í sýningarsal okkar að Dalvegi 10-14 og skoðaðu úrvalið. Við tökum vel á móti þér – barnahornið er á sínum stað. Opnunartími er 9-18 virka daga og 11-16 laugardaga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.