Morgunblaðið - 09.02.2008, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 49
Mannkynssagan vitrast manni oft skýr-ast í mistökum, misskilningi ogblekkingum, því það er oft fyrst þeg-
ar maður fer að leita að sannleikanum á bak
við blekkinguna sem maður áttar sig best á
hversu flókinn og þversagnakenndan vef sag-
an á það til að vefa.
Ágætis dæmi er nýlegt andlát ástralska leik-
arans Heath Ledgers. Það mætti skrifa lærða
ritgerð um hvernig misvísandi upplýsingar,
meinfýsnar tilgátur og slúðursögur sem
komnar voru á kreik áður en líkið var orðið
kalt séu ágætis birtingarmynd allra verstu eig-
inleika fjölmiðla samtímans (enda kom í ljós að
uppruna „fréttanna“ mátti í flestum tilfellum
rekja til hinnar alræmdu fréttastofu Fox
News). Enn merkilegri draugur birtist hins
vegar með ófáum vel meinandi minning-
arorðum margra bloggara og stöku fjölmiðla
– því í stað þess að birta mynd af Ledger með
fylgdi iðullega mynd af þýskum leikara sem
lést fyrir nærri 65 árum síðan, draugur sem
sannaði að kvikmyndasagan endurtekur sig
ekkert síður en mannkynssagan.
Rætur myndarinnar fölsuðu má rekja alltaftur til franska skáldsagnahöfundarins
Victor Hugo. Hann skrifaði skáldsöguna Mað-
urinn sem hlær (L’Homme qui rit) árið 1869,
en í henni er aðalsmaður sem er Englandskon-
ungi ekki að skapi tekinn af lífi og barnungur
sonur hans, Gwynplaine, færður í hendur
Comprachicos-læknis (en flökkusögur á tím-
um Hugos hermdu að barnasölumenn, Comp-
rachicos, afskræmdu börn til þess að þau yrðu
færari betlarar eða hægt væri að selja þau í
næsta sirkus) sem sá til þess að drengurinn
myndi bera trúðsglott um alla ævi – „svo hann
gæti hlegið til eilífðarnóns að flónsku föður
síns.“
Þegar sagan var kvikmynduð árið 1928 var
þýski leikarinn Conrad Veidt í hlutverki hins
síglottandi Gwynplaine og það var mynd af
honum sem Bob Kane og Bill Finger, skaparar
Batman, höfðu til hliðsjónar þegar þeir sköp-
uðu Jókerinn, illmennið sem mun verða síð-
asta hlutverk Heath Ledger. En áður en aug-
lýsingaherferð nýju Batman-myndarinnar fór
af stað, nokkru fyrir andlát leikarans, höfðu
birst veggspjöld á netinu þar sem búið er að
skeyta saman andliti Veidt og jókersins og
voru þau nógu vel gerð til þess að enn eru
menn að ruglast á raunverulegum stillum úr
myndinni sjálfri og gervimyndunum.
En Veidt átti fleira sameiginlegt með Led-
ger en stirðnað glott. Árið 1919 lék hann í
myndinni Öðruvísi en hinir (Anders als die
Andern), nokkurs konar Brokeback Mountain
Weimar-lýðveldisins og einhverri fyrstu bíó-
mynd mannkynssögunnar til þess að sýna sam-
kynhneigð í jákvæðu ljósi. En vitaskuld var
myndin bönnuð og aðeins aðgengileg læknum
og sálfræðingum þangað til Hitler komst til
valda og brenndi öll eintökin nema eitt.
Það var svo ári síðar sem Conrad Veidt sló ígegn í Das Cabinet des Dr. Caligari, einni
af lykilmyndum þýska expressjónismans, og
viðhélt frægðinni með myndum á borð við
Der Student von Prag (þar sem hann var of-
sóttur af eigin spegilmynd líkt og hans glott-
andi sjálf átti eftir að ofsækja minningu Led-
gers) og The Thief of Baghdad. En
nútímaáhorfendur hafa líklega ófáir aðeins
séð hann í síðustu mynd hans, Casablanca.
Þar leikur hann nasistaforingja sem er að
reyna að hafa hendur í hári andspyrnuleið-
togans Victors Laszlo. Laszlo var leikinn af
Paul Henreid, austurrískum gyðingi sem fá-
einum árum áður hafði átt að framselja til
Þýskalands frá Bretlandi. En Veidt, þá þegar
orðin stjarna í enskumælandi löndum, talaði
máli hans og kom í veg fyrir að hann yrði
sendur út í opinn dauðann – svo hann gæti of-
sótt hann seinna í bíó.
Brandarinn
Stirðnað glott Jókerinn tengir þá Conrad Veidt og Heath Ledger út fyrir gröf og dauða, en flestum ber saman um að miklir heiðursmenn hafi
verið á bak við bæði glottin.
AF LISTUM
Ásgeir H. Ingólfsson
» [Þ]að var mynd af [ConradVeidt] sem Bob Kane og
Bill Finger, skaparar Batman,
höfðu til hliðsjónar
þegar þeir sköpuðu
Jókerinn
asgeirhi@mbl.is
„Þau eru frábær, öll fjögur... Þetta er hörkugóð sýning...!“
SA, tmm.is 3. jan.
„Yasmina Reza skrifar sálfræðileg samtöl af eitruðum húmor og
orðfimi... Þórunn Lárusdóttir á oft og tíðum stórleik.” MK, Mbl. 27. jan.
„Leikhúsinu til sóma... Eitt af þremur bestu leikverkunum
á stórhöfuðborgarsvæðinu segir Jón Viðar.“ DV 28. jan.
„Litlu smáborgaralegu hjónin eru varla byrjuð að tala þegar salurinn
fer að veltast um af hlátri … mörg hlægileg atvik og smellin tilsvör
sem kitla hláturtaugarnar.“ EB, Fréttablaðið 29. jan.
„Baldur Trausti er stjarna sýningarinnar… Það er vel að þessu verki
staðið … og það skilar sér til áhorfenda í ánægjulegri kvöldstund.“
BG, Viðskiptablaðið 1. feb.
„Ég hef ekki áður séð Eddu Björg Eyjólfsdóttur í sambærilegu
hlutverki, en hún komst mjög vel frá því.“ AÞ, 24 stundir 6. feb.
„Friðrik …uppskar mikinn hlátur hjá áhorfendum … Vígaguðinn
er skemmtileg sýning og umhugsunarverð.“ ÞES, RÚV 28. jan.
Leikrit sem fær þig
til að hlæja - og hugsa!