Morgunblaðið - 09.02.2008, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 09.02.2008, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 2008 49 Mannkynssagan vitrast manni oft skýr-ast í mistökum, misskilningi ogblekkingum, því það er oft fyrst þeg- ar maður fer að leita að sannleikanum á bak við blekkinguna sem maður áttar sig best á hversu flókinn og þversagnakenndan vef sag- an á það til að vefa. Ágætis dæmi er nýlegt andlát ástralska leik- arans Heath Ledgers. Það mætti skrifa lærða ritgerð um hvernig misvísandi upplýsingar, meinfýsnar tilgátur og slúðursögur sem komnar voru á kreik áður en líkið var orðið kalt séu ágætis birtingarmynd allra verstu eig- inleika fjölmiðla samtímans (enda kom í ljós að uppruna „fréttanna“ mátti í flestum tilfellum rekja til hinnar alræmdu fréttastofu Fox News). Enn merkilegri draugur birtist hins vegar með ófáum vel meinandi minning- arorðum margra bloggara og stöku fjölmiðla – því í stað þess að birta mynd af Ledger með fylgdi iðullega mynd af þýskum leikara sem lést fyrir nærri 65 árum síðan, draugur sem sannaði að kvikmyndasagan endurtekur sig ekkert síður en mannkynssagan.    Rætur myndarinnar fölsuðu má rekja alltaftur til franska skáldsagnahöfundarins Victor Hugo. Hann skrifaði skáldsöguna Mað- urinn sem hlær (L’Homme qui rit) árið 1869, en í henni er aðalsmaður sem er Englandskon- ungi ekki að skapi tekinn af lífi og barnungur sonur hans, Gwynplaine, færður í hendur Comprachicos-læknis (en flökkusögur á tím- um Hugos hermdu að barnasölumenn, Comp- rachicos, afskræmdu börn til þess að þau yrðu færari betlarar eða hægt væri að selja þau í næsta sirkus) sem sá til þess að drengurinn myndi bera trúðsglott um alla ævi – „svo hann gæti hlegið til eilífðarnóns að flónsku föður síns.“ Þegar sagan var kvikmynduð árið 1928 var þýski leikarinn Conrad Veidt í hlutverki hins síglottandi Gwynplaine og það var mynd af honum sem Bob Kane og Bill Finger, skaparar Batman, höfðu til hliðsjónar þegar þeir sköp- uðu Jókerinn, illmennið sem mun verða síð- asta hlutverk Heath Ledger. En áður en aug- lýsingaherferð nýju Batman-myndarinnar fór af stað, nokkru fyrir andlát leikarans, höfðu birst veggspjöld á netinu þar sem búið er að skeyta saman andliti Veidt og jókersins og voru þau nógu vel gerð til þess að enn eru menn að ruglast á raunverulegum stillum úr myndinni sjálfri og gervimyndunum. En Veidt átti fleira sameiginlegt með Led- ger en stirðnað glott. Árið 1919 lék hann í myndinni Öðruvísi en hinir (Anders als die Andern), nokkurs konar Brokeback Mountain Weimar-lýðveldisins og einhverri fyrstu bíó- mynd mannkynssögunnar til þess að sýna sam- kynhneigð í jákvæðu ljósi. En vitaskuld var myndin bönnuð og aðeins aðgengileg læknum og sálfræðingum þangað til Hitler komst til valda og brenndi öll eintökin nema eitt.    Það var svo ári síðar sem Conrad Veidt sló ígegn í Das Cabinet des Dr. Caligari, einni af lykilmyndum þýska expressjónismans, og viðhélt frægðinni með myndum á borð við Der Student von Prag (þar sem hann var of- sóttur af eigin spegilmynd líkt og hans glott- andi sjálf átti eftir að ofsækja minningu Led- gers) og The Thief of Baghdad. En nútímaáhorfendur hafa líklega ófáir aðeins séð hann í síðustu mynd hans, Casablanca. Þar leikur hann nasistaforingja sem er að reyna að hafa hendur í hári andspyrnuleið- togans Victors Laszlo. Laszlo var leikinn af Paul Henreid, austurrískum gyðingi sem fá- einum árum áður hafði átt að framselja til Þýskalands frá Bretlandi. En Veidt, þá þegar orðin stjarna í enskumælandi löndum, talaði máli hans og kom í veg fyrir að hann yrði sendur út í opinn dauðann – svo hann gæti of- sótt hann seinna í bíó. Brandarinn Stirðnað glott Jókerinn tengir þá Conrad Veidt og Heath Ledger út fyrir gröf og dauða, en flestum ber saman um að miklir heiðursmenn hafi verið á bak við bæði glottin. AF LISTUM Ásgeir H. Ingólfsson » [Þ]að var mynd af [ConradVeidt] sem Bob Kane og Bill Finger, skaparar Batman, höfðu til hliðsjónar þegar þeir sköpuðu Jókerinn asgeirhi@mbl.is „Þau eru frábær, öll fjögur... Þetta er hörkugóð sýning...!“ SA, tmm.is 3. jan. „Yasmina Reza skrifar sálfræðileg samtöl af eitruðum húmor og orðfimi... Þórunn Lárusdóttir á oft og tíðum stórleik.” MK, Mbl. 27. jan. „Leikhúsinu til sóma... Eitt af þremur bestu leikverkunum á stórhöfuðborgarsvæðinu segir Jón Viðar.“ DV 28. jan. „Litlu smáborgaralegu hjónin eru varla byrjuð að tala þegar salurinn fer að veltast um af hlátri … mörg hlægileg atvik og smellin tilsvör sem kitla hláturtaugarnar.“ EB, Fréttablaðið 29. jan. „Baldur Trausti er stjarna sýningarinnar… Það er vel að þessu verki staðið … og það skilar sér til áhorfenda í ánægjulegri kvöldstund.“ BG, Viðskiptablaðið 1. feb. „Ég hef ekki áður séð Eddu Björg Eyjólfsdóttur í sambærilegu hlutverki, en hún komst mjög vel frá því.“ AÞ, 24 stundir 6. feb. „Friðrik …uppskar mikinn hlátur hjá áhorfendum … Vígaguðinn er skemmtileg sýning og umhugsunarverð.“ ÞES, RÚV 28. jan. Leikrit sem fær þig til að hlæja - og hugsa!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.