Morgunblaðið - 15.02.2008, Side 18
18 FRIDAY 15. FEBRUARY 2008 MORGUNBLAÐIÐ
AUSTURLAND SUÐURNES
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Sandgerði | Bæjarstjórn Sand-
gerðis hefur samþykkt að ráðast í
lagfæringar á húsinu við Garðveg
3 sem er sambyggt Fræðasetrinu.
Tilgangurinn er að skapa aðstöðu
fyrir sýkingartilraunir á fiskum.
Garðvegur 3 er gamalt fisk-
vinnsluhús sem Sandgerðisbær
eignaðist fyrir nokkrum árum.
Sigurður Valur Ásbjarnarson bæj-
arstjóri segir að húsið sé illa farið
og nauðsynlegt að ráðast í miklar
endurbætur á því, nánast að end-
urbyggja það frá grunni. Til-
raunastöð Háskóla Íslands í meina-
fræðum hefur áhuga á að nýta
aðstöðuna í Fræðasetrinu, ekki síst
aðgang að hreinum sjó úr borhol-
um, til að byggja upp aðstöðu fyrir
sýkingartilraunir á fiskum. Bæj-
arstjórn var einhuga um að ráðast
í endurbyggingu hússins, sem er
um 800 fermetrar að stærð, og
áætlað er að verkið kosti allt að 33
milljónum kr.
BIOICE-verkefninu að ljúka
Sigurður Valur segir að þessi
ákvörðun sé tekin til að tryggja
áframhald þeirrar vísinda-
starfsemi sem stunduð er í Sand-
gerði og styðja við vísinda-
samfélagið í heild. Verkefninu
„Botndýrarannsóknir á Íslandi“
sem nýtir aðstöðuna í Fræðasetr-
inu lýkur á þessu ári með því að
lokið verður við greiningu á öllum
þeim sýnum sem safnað var. Við
það eru átta störf. Sigurður Valur
segir æskilegt að halda þessu
verkefni áfram enda séu aðstaða
og starfsfólk fyrir hendi – og verk-
efnin séu ónæg. Nefnir hann í því
sambandi rannsóknir á botndýra-
lífi á landgrunninu.
Morgunblaðið/Reynir Sveinsson
Nýtt hlutverk Gömlu fiskverkunarhúsin á Garðvegi 3 eru illa farin og
verða endurbyggð. Við endann á þeim sést í húsnæði Fræðasetursins.
Koma upp aðstöðu
fyrir rannsóknir
Reykjanesbær | Landsmót skóla-
lúðrasveita verður haldið í Reykja-
nesbæ um helgina. Mótið hefst í
kvöld. Að því loknu tekur við þema-
vika Tónlistarskóla Reykjanesbæj-
ar.
Þátttakendur í mótinu eru liðlega
300, flestir á aldrinum 14 til 20 ára,
og koma lúðrasveitirnar víða að.
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar er
gestgjafi.
Hópnum verður skipt upp í þrjár
stórar lúðrasveitir auk þess sem
slagverksnemendur æfa sérstaklega
undir stjórn Thom Hannum sem er
heimsþekktur bandarískur slag-
verksleikari. Stjórnendur hljóm-
sveitanna koma einnig gagngert frá
Bandaríkjunum til að æfa hljóm-
sveitirnar.
Spilað úti í bæ
Mótið verður sett í Íþróttahúsinu
við Sunnubraut í kvöld, kl. 21.
Landsmótstónleikarnir verða á
sama stað á sunnudag kl. 12.30, og að
þeim lokum verður mótinu slitið.
Á mánudag hefst svo hin árlega
þemavika Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar og stendur fram á föstudag.
Yfirskrift hennar er „Spilað úti í
bæ“. Eins og heitið gefur til kynna
munu nemendur á grunnskólaaldri
og kennarar skólans fara um bæinn
og halda tónleika í fyrirtækjum og
stofnunum.
300 taka þátt í móti
skólalúðrasveitanna
Reykjanesbær | Starfsmenn
Reykjanesbæjar geta fengið á bilinu
30 til 85 þúsund krónur aukalega á
þessu ári, í nokkurs konar hvata-
greiðslur. Bæjarráð Reykjanesbæj-
ar samþykkti samhljóða á fundi sín-
um í gær að verja liðlega 35
milljónum kr. til þessa.
Aukagreiðslur til starfsmanna
hafa verið til umfjöllunar hjá
Reykjanesbæ, meðal annars vegna
krafna Starfsmannafélags Suður-
nesja. Niðurstaðan var að taka upp
einskonar hvatagreiðslur sem
greiddar verða einu sinni eða tvisvar
á árinu, 1. maí og 1. nóvember.
Markmið er að koma til móts við
aukið álag starfsmannahópa vegna
örrar fjölgunar íbúa í bæjarfélaginu
og stuðla að stöðugum gæðum þjón-
ustunnar, lágmörkun starfsmanna-
veltu og veikindafjarvista, eins og
fram kemur í samþykktinni. For-
stöðumaður hverrar stofnunar skal
bera ábyrgð á úthlutun og hafa til
hliðsjónar mat á frammistöðu starfs-
manns á liðnu ári, fjarvistir vegna
veikinda, frumkvæði og gæði þjón-
ustu.
Miðað er við að ófaglærðir starfs-
menn, í lægri launaflokkunum, fái
samtals 70 þúsund kr. og aðrir
starfsmenn félaganna 30 þúsund.
Leikskólakennarar og grunnskóla-
kennarar fá 85 þúsund kr., sam-
kvæmt þessari viðmiðun.
Fá 30 til 85 þúsund
kr. í hvatagreiðslur
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Reyðarfjörður | Mjóeyrarhöfn, stór-
iðjuhöfnin við álver Alcoa Fjarðaáls
á Reyðarfirði, er nú önnur umsvifa-
mesta vöruhöfn landsins og talið að
árlega muni fara um hana upp undir
1,7 milljónir tonna af varningi. Þar af
tekur álverið um 815 þúsund tonn
inn, þ.á m. súrál og sendir 415 þús-
und tonn út af áli o.fl. Fjarðabyggð
áformar nú byggingu nýs 160 m
langs viðlegukants vestan álvers-
hafnarinnar, sem á að verða tilbúinn
fyrir árið 2011. Hann er ætlaður til
að taka við umferð annarra skipa en
þeirra sem tengjast vöruflutningum
álversins. Bæði Eimskip og Samskip
eru með stóra þjónustusamninga við
álverið, reglulegar skipakomur í
Mjóeyrarhöfn og munu byggja upp
aðstöðu og gámavelli við höfnina. Því
má reikna með að hluti almennra
vöruflutninga til og frá landinu geti
farið um stækkaða Mjóeyrarhöfn. Þá
telur Siglingastofnun auknar líkur á
alþjóðlegri umferð út af Austfjörðum
með tilkomu hafnarinnar, t.d. í formi
olíuflutninga milli Rússlands og
Norður-Ameríku. Nýr dráttarbátur
með 28 tonna togkraft kom í júní í
fyrra og þjónustar skip Mjóeyrar-
hafnar.
Skapar um og yfir 300 störf
Smári Geirsson, formaður hafnar-
stjórnar Fjarðabyggðar, segir Mjó-
eyrarhöfn gera Fjarðabyggðarhafn-
ir að einhverjum öflugasta
hafnarsjóði landsins. Skv. bráða-
birgðatölum voru tekjur þeirra um
300 milljónir króna í fyrra. „Fjarða-
byggðarhafnir taka á móti mestum
fiskafla allra hafna og nú bætist við
ein öflugasta vöruhöfn landsins,“
segir Smári. „Gríðarleg atvinnuupp-
bygging mun eiga sér stað á hafn-
arsvæði Mjóeyrarhafnar og miðað
við núverandi stöðu verða þar hátt í
300 störf og þeim getur fjölgað mik-
ið. Mjóeyrarhöfn er einhver helsti
vaxtarbroddur atvinnu- og efnahags-
lífsins á Austurlandi nú um stundir.
Sú þjónustustarfsemi sem er að
byggjast upp í Fjarðabyggð í
tengslum við álverið mun skapa
mörg sóknarfæri fyrir hafnirnar.
Slík þjónusta mun toga til sín marg-
vísleg verkefni, t.d. er ekki ósenni-
legt að þau fyrirtæki sem sinna
munu olíuleit á svonefndu Dreka-
svæði vilji notfæra sér þjónustuna.
Mjóeyrarhöfn gæti orðið einhver
helsta inn- og útflutningshöfn lands-
ins en það er löngu tímabært að
leggja niður þá hefð að nær allur inn-
flutningur fari á land á höfuðborg-
arsvæðinu,“ segir Smári.
Níu af tólf skipulögðum lóðum á
hafnarsvæðinu hefur verið úthlutað.
Ein af þeim er lóðin undir álverið,
sem er um 880 þúsund m2 að stærð.
Þjónustulóðasvæðið þess utan er um
120 þúsund m2. „Búið er að fjalla um
þær umsóknir sem komið hafa inn og
er töluverð ásókn í lóðir þarna,“ seg-
ir Steinþór Pétursson, framkvæmda-
stjóri Fjarðabyggðarhafna. „Hafn-
arstjórn hefur sett sér þá reglu að
það sem fer inn á þetta svæði þarf að
vera hafnartengt og þjónusta tengd
álverinu. Við höfum nóg af skipu-
lögðu rými fyrir iðnaðarstarfsemi,
t.d. í fjarðarbotninum í Reyðarfirði.“
Þau fyrirtæki sem byrjuð eru að
byggja við Mjóeyrarhöfn eða í und-
irbúningsvinnu að slíku eru Eimskip,
Samskip, Vélsmiðja Hjalta, Véla-
borg, Launafl og Alcoa Fjarðaál sem
á tvær lóðir auk álverslóðarinnar.
Gámaþjónustan verður væntanlega
á annarri þeirra lóða. Að auki er risin
á svæðinu öryggismiðstöð með
slökkviliði og sjúkraflutningafólki.
Skipafélögin tvö eru með stærstu
þjónustulóðirnar. „Auðnist mönnum
að gera höfnina að þeim vaxtar-
broddi og þeirri miðstöð flutninga
sem virðist vera hugur til hjá flutn-
ingaaðilunum, erum við að tala um
verulegan vöxt umfram umsvif ál-
versins. Eimskip og Samskip stefna
að því að fara með flutningana sem
farið hafa um Eskifjörð og Reyðar-
fjörð í Mjóeyrarhöfn svo þeir séu á
einum stað, þannig að einhver til-
færsla verður á flutningum líka,“
segir Steinþór.
Risavaxin Norður-Íshafshöfn
Núverandi hafnarkantur er hugs-
aður til að þjónusta álverið og þau
skip sem koma vegna afurða eða
flutninga til álversins hafa forgang.
Höfnin er nokkuð þétt setin vegna
álversins. Með byggingu nýs kants
aðeins innan við Mjóeyrarhöfn verð-
ur hægt að taka við annarri skipaum-
ferð. Önnur skip þurfa nú að sæta
færis til að komast að höfninni utan
skipakoma tengdum álverinu, en
vissulega eru Reyðarfjarðar- og
Eskifjarðarhafnir þá til taks. Um
það hvort ekki hafi verið fyrirsjáan-
legt að stærra hafnarrýmis væri þörf
frá upphafi, segir Steinþór svo ekki
vera. „Menn sáu þetta fyrir sér á
lengri tíma en ekki að uppbyggingin
myndi gerast alveg svona hratt.“
Fjarðabyggð hefur í skoðun að
kalla eftir viðkomu skemmtiferða-
skipa og möguleikum tengdum
Norður-Íshafssiglingum. Smári
Geirsson segir Mjóeyrarhöfn ekki
muni geta rúmað þá starfsemi sem
tengist væntanlegum Norður-Ís-
hafssiglingum. „Norður-Íshafshöfn
verður umskipunarhöfn sem þarf
gríðarlegt athafnarými á landi. Nú
er verið að hefja könnun á því hvar
unnt yrði að byggja slíka höfn í
Fjarðabyggð, en það yrði ný höfn.“
Miklar væntingar
til vöruhafnar
Árvakur/Steinunn Ásmundsdóttir
Erill Lengja á hafnarkant Mjóeyrarhafnar í Reyðarfirði um 160 m til að
taka við vaxandi skipaumferð. Skipakomur vegna álvers hafa nú forgang.
Mjóeyrarhöfn er
einn efnilegasti
vaxtarsproti Aust-
urlands og gæti
haft áhrif til breyt-
inga á flutninga-
mynstur í landinu
Í HNOTSKURN
»Mjóeyrarhöfn er önnurstærsta höfn landsins og er
talin hafa mikla möguleika sem
umskipunarhöfn fyrir varning
inn og út úr landinu.
»Byggja á nýjan 160 m langankant vestan Mjóeyrarhafnar
á næstu þremur árum. Höfnin er
ásetin af skipum tengdum ál-
verinu og mun nýr hafnarkantur
opna í auknum mæli fyrir skipa-
komur annarra aðila.
»Fjarðabyggð leitar hentugshafnarsvæðis fyrir Norður-
Íshafshöfn með risastóru um-
skipunarsvæði. Þá er stefnt að
því að fá skemmtiferðaskip í
hafnir Fjarðabyggðar.
ⓦ
Upplýsingar í síma
461 6011/ 840 6011
Helgamagrastræti
Oddeyrargötu
Huldugil
Innbæ
Eyrarlandsveg
Blaðburður verður
að hefjast um leið og
blöðin koma í bæinn.
Á AKUREYRI