Morgunblaðið - 15.02.2008, Síða 20
mælt með . . .
20 FRIDAY 15. FEBRUARY 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Hlýtt í veðri og bráðnandi snjór
Hlýindi eru nú að gera vart við sig á landinu
og því er ekki úr vegi að hugsa helgina til úti-
vistar, hvort sem menn ráðast í gönguferðir
eða ætla að nota hratt bráðnandi snjóinn til
skíðaiðkunar. Samkvæmt helgarveðurspánni á
þó að vera fremur vindasamt sunnan heiða því
spáð er suðvestan 8-15 m/s og rigningu á laug-
ardag, einkum sunnan og vestan til, en úr-
komulítið verður á landinu norðaustanverðu
síðdegis. Hitastigið nær allt að tveggja stafa
tölu, gangi spáin eftir, því spáð er 4-10 stiga
hita. Áfram verður suðvestanátt og fremur
hlýtt á sunnudag. Rigning eða súld með köfl-
um, en þurrt að mestu norðaustan til og því
ættu skíðamenn á Norðurlandi helst að kæt-
ast.
Fimm hundruð námsleiðir
Fyrir þá sem ganga með menntamanninn í
maganum er upplagt að kynna sér það sem í
boði er á háskólastiginu á laugardaginn milli
kl. 11 og 16 því allir háskólar landsins ætla þá
að kynna námsframboðið sitt fyrir næsta vet-
ur. Kynningin fer fram á tveimur stöðum í
borginni. Háskóli Íslands og Kennaraháskóli
Íslands verða á Háskólatorgi HÍ og í Ráðhúsi
Reykjavíkur verða Háskólinn á Akureyri, Há-
skólinn á Bifröst, Háskólinn á Hólum, Háskól-
inn í Reykjavík, Landbúnaðarháskóli Íslands
og Listaháskóli Íslands. Á sama tíma verður
boðið upp á kynningu á framhaldsnámi í Dan-
mörku í Norræna húsinu. Á þessum sameig-
inlega kynningardegi gefst gott tækifæri til að
fara yfir námsflóruna því yfir fimm hundruð
mismunandi námsleiðir verða kynntar.
Afmæli í Kvennakirkjunni
Það gæti svo verið bæði kærkomið og ljúft
að ljúka helginni með því að fara til messu í
Neskirkju á sunnudagskvöldið kl. 20.30, en þar
ætlar Kvennakirkjan að halda upp á 15 ára af-
mæli sitt með hátíðlegum brag auk þess sem
tekið verður upp nýtt messuform. Séra Auður
Eir Vilhjálmsdóttir prédikar og búast má við
miklum söng og kaffiveitingum á eftir.
Sundmenn stinga sér í laugina
Allir bestu sundmenn Íslands ætla svo að
spreyta sig á Gullmóti KR í Laugardalslaug-
inni um helgina. Keppendur verða alls 510 auk
32 erlendra sundmanna, en viðhlítandi árang-
ur á mótinu gildir sem lágmark fyrir Ólympíu-
leikana í haust. Hin 21 árs gamla Sanja Jov-
anovic verður meðal keppanda, en hún vann 50
m baksund á EM í desember sl. á nýju heims-
meti, 26,58 sek., og er því bæði Evrópumeist-
ari og heimsmethafi. Sanja ætlar að keppa í 50,
100 og 200 m baksundi ásamt 50 m flugsundi.
Morgunblaðið/Kristján
Morgunblaðið/Kristinn
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Þau láta sér ekki leiðast í myrkrinu krakk-arnir í Menntaskólanum við Hamrahlíð.Frá því á miðvikudag hafa staðið yfir
hjá þeim svokallaðir Lagningardagar og lýkur
þeim seinni partinn í dag. Á Lagningardögum
er engin kennsla en aftur á móti er skylda að
mæta á vissan lágmarksfjölda þeirra skemmti-
legu viðburða, fyrirlestra og námskeiða sem í
boði eru. Tilgangur þessarar hefðar er fyrst og
fremst að brjóta upp hversdaginn, stytta
skammdegið og hafa gaman af. Ótrúleg fjöl-
breytni er í þeim dagskrárliðum sem finna má á
Lagningardögum þetta árið og má þar nefna
kennslu í að verða kapítalistasvín, fyrirlestur
um uppvakninga, kennslu í að strauja, spákonu,
tónlistarsnobb og jaðarrokk, allt um hryðju-
verk, femínisma, sirkusskóla, „riverdans“, og
rauðhærðasti maður skólans fræðir nemendur
um lífsstíl hvíts hyskis, svo fátt eitt sé nefnt.
Auk þess er boðið upp á þolsýningar, eða sýn-
ingarmaraþon, þar sem horft er á kvikmyndir
eða sjónvarpsþætti samfleytt í langan tíma.
Brynjar Guðnason, oddviti Lagningardag-
aráðs, segir að stemningin hafi verið góð.
„Sumt er vinsælla en annað, en við buðum til
dæmis upp á fría klippingu á kvennaklósettinu
og þá var röð út úr dyrum. Hin ýmsu dans-
námskeið hafa líka verið mjög vinsæl. Þegar
boðið var upp á magadanskennslu var hátíð-
arsalurinn sneisafullur af fólki sem vildi læra
þá danslist. Spunanámskeið með Gunnari
Hanssyni var líka mjög vinsælt og Ármann
Reynisson vinjettuhöfundur hafði mikið að-
dráttarafl. Einn af hápunktinum var glíma á
milli Pálma Magnússonar konrektors og Berg-
lindar Sunnu Stefánsdóttur sem er forseti nem-
endafélagsins. Það var gríðarleg stemning í
kringum hana og margir sem mættu til að
hvetja og verða vitni að þessum atburði þar
sem Berglind hafði sigur.“
Í dag verður meðal annars boðið upp á drag-
námskeið hjá dragdrottningu Íslands og gáfu-
mennskunámskeið hjá Gils N. Eggerz sem gaf
út Biblíu gáfaða fólksins á sínum tíma.
Tónlist Ragnar Árni Ágústsson blés af snilld í
saxófóninn á kaffihúsinu.
Klipping á klósetti
og magadans
Pókerkeppni Eins gott að halda kúlinu þeg-
ar tekið er í pókerspil.
Origami Einbeitingar er þörf við pappírslistina.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Grjónapungaspark Gríðarlega snerpu mátti sjá hjá sumum í þeirri íþrótt sem á ensku heitir Hacky Sack.
og setja hann í bollann, þann-
ig að honum fannst ekki hægt
að skila honum. Dýr myndi
Hafliði allur, hugsaði Vík-
verji, þegar hann sötraði rán-
dýra teið sitt.
x x x
Víkverji verður að fá útrásfyrir gremju sína út af
því hvernig ökumenn leggja
bílum sínum í tíð sem þeirri
sem hefur herjað borgarbúa.
Það er eins og hver og einn
ökumaður haldi að hann sé
einn í borginni, menn leggja
bílum sínum þvers og kruss
og oft svo nálægt öðrum að sá kemst ekki
inn í bíl sinn nema við illan leik. Þarf ekki
að spyrja að því að bílar nuddist eitthvað
saman, þegar svona stendur á. Reyndar er
þetta framferði sem kemur tíðarfarinu svo
sem ekkert við. Íslenzkir ökumenn leggja bíl-
um sínum eins og þeim dettur í hug og gildir
þá einu þótt stæði séu máluð í malbikið. Þær
línur eru í bezta falli til að hafa til hliðsjónar
eða horfa framhjá!
x x x
Hraði nútímans lætur ekki að sér hæða. ÍMorgunblaðinu í gær var sagt frá því
að varphæsn eru urðuð en voru áður seld í
matvöruverzlunum sem unghænur. Viðmæl-
andi blaðsins segir eftirspurnina hafa dottið
niður vegna þess að unghænur þurfa mun
meiri eldunartíma en kjúklingar og fólk gef-
ur sér ekki lengur tíma til þess að standa í
þessari eldamennsku.
Víkverji átti leið um Akureyri ádögunum og fékk sér þá m.a.
tebolla á kaffihúsi í bænum. Boll-
inn kostaði 150 krónur og þótti
Víkverja svo sem nóg um, en
greiddi tebollann möglunarlaust
og fjárfesti í kringlu með.
En þá tók nú steininn úr, þegar
Víkverji kvaddi höfuðstað Norð-
urlands. Flugvélin, sem Víkverji
átti far með suður, bilaði og
þurftu Víkverji og samferðamenn
hans að bíða röska klukkustund í
flugstöðinni eftir annarri flugvél.
Víkverji ákvað að splæsa á sig te-
bolla í tilefni dagsins, en dauðbrá
þegar afgreiðslustúlkan rukkaði
hann um 250 krónur fyrir tebollann. Því mið-
ur var Víkverji búinn að rífa upp tepokann
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is