Morgunblaðið - 10.03.2008, Page 36
36 MÁNUDAGUR 10. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI/ ÁLFABAKKA
DARK FLOORS kl. 10:30 B.i.14 ára
UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl. 6 LEYFÐ
STEP UP 2 kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.7 ára
P.S. I LOVE YOU kl. 8 LEYFÐ
SÝND Í ÁLFABAKKA
THE BUCKET LIST kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára DIGITAL
AUGUST RUSH kl. 5:30 - 8 B.i.16 ára
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.16 ára LÚXUS VIP
THERE WILL BE BLOOD kl. 5:50 - 8 - 10:30 B.i.16 ára
THE BUCKET LIST kl. 6 - 8:20 - 10.30 B.i. 7 ára
JUNO kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 7 ára
UNDRAHUNDURINN m/ísl tali kl 6:10 LEYFÐ
STEP UP 2 kl. 8:20 - 10:30 B.i. 7 ára
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK SÝND Í KRINGLUNNI OG AKUREYRI
eeeee
Rás 2
eeee
- S.U.S. X-ið 97.7
eeee
- 24 Stundir
eeee
- V.J.V. Topp5.is/FBL
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
HLJÓMSVEITAKEPPNI Hins
hússins og Tónabæjar, Músíktil-
raunir, hefst í kvöld í Austurbæ og
er nú haldin í 26. skipti. Keppninni
verður svo fram haldið á hverju
kvöldi út vikuna og lýkur með úrslit-
um næstkomandi laugardag. Í kvöld
keppa tíu hljómsveitir um tvö sæti í
úrslitunum en alls taka 49 hljóm-
sveitir þátt í tilraununum að þessu
sinni. Undankeppnin verður í Aust-
urbæ og úrslitin haldin í Listasafni
Reykjavíkur – Hafnarhúsinu.
Til mikils er að vinna fyrir hljóm-
sveitirnar í Músíktilraunum. Hljóm-
sveitin sem hreppir fyrsta sætið fær
hljóðverstíma með hljóðmanni í
Sundlauginni, hljóðveri Sigur Rósar.
Annað sætið gefur hljóðverstíma
ásamt hljóðmanni í Stúdíó Sýrlandi
og þriðja sætið hljóðverstíma ásamt
hljóðmanni í Gróðurhúsinu. Að auki
fá sigursveitinar ýmis verðlaun önn-
ur en einnig eru efnilegustu hljóð-
færaleikarar verðlaunaðir með
hljóðfærum og ýmsum búnaði og
veitt verða verðlaun fyrir textagerð
á íslensku. Á undankvöldunum velur
salur eina hljómsveit áfram og sér-
stök dómnefnd eina, en úr-
slitakvöldið velur hún þrjár hljóm-
sveitir í verðlaunasæti, 1., 2. og 3.
sæti. Gestir í sal og áheyrendur Rás-
ar 2 um land allt velja svo eina
hljómsveit sem fær titilinn Hljóm-
sveit fólksins.
Í dómnefnd eru Árni Matthíasson,
Morgunblaðinu, Steinþór Helgi Arn-
steinsson, Fréttablaðinu, Ragnheið-
ur Eiríksdóttir, 24 stundum, Hildur
Maral Hamíðsdóttir, Monitor, Hild-
ur Guðný Þórhallsdóttir, FÍH, Arn-
ar Eggert Thoroddsen, Rás 2, og
Kristján Kristjánsson, sem er
fulltrúi fólksins.
Keppnin hefst kl. 19:00 í kvöld í
Austurbæ, eins og getið er.
Músíktilraunir í Austurbæ
Electronic Playground
Liðsmenn Electronic Playground eru Reykvíkingarnir Sindri Bergsson
gítarleikari, Nikulás Ari Hannigan bassaleikari, Hlynur Héðinsson söngv-
ari og Ægir Sindri Bjarnason trommuleikari. Þeir eru allir sextán nema
Ægir Sindri sem er fimmtán, og lýsa tónlistinni svo: „Við spilum svona
rokk sem er samt ekki eins og svona rokk, þú veist.“
Buxnaskjónar
Því skondna nafni Buxnaskjónar
heitir hljómsveit úr Eyjafjarð-
arsveit sem spilar eyfirskt pönk.
Sveitina skipa þeir Þorsteinn Kári
Guðmundsson gítarleikari og
söngvari og Almar Daði Krist-
jánsson bassaleikari, sem eru sex-
tán ára, og Þorsteinn Sindri Bald-
vinsson trommuleikari, sem er
fimmtán ára.
Hinir
Hinir eru þessi: Valbjörn Snær
Lilliendahl gítarleikari og söngv-
ari, Sunna Margrét Þórisdóttir
söngkona, Pétur Finnbogason
trommuleikari og bakraddasöngv-
ari, Jón Birgir Eiríksson hljóm-
borðsleikari, Sveinn Pálsson hljóm-
borðsleikari og Gunnar Örn
Freysson bassaleikari og bakradda-
söngvari. Jón Birkir er fjórtán ára,
Gunnar Örn sextán en hin eru
fimmtán. Þau eru úr Reykjavík og
spila framsækið rokk og popp.
No Practice
Hljómsveitin No Practice er úr
Kópavoginum og spilar pönk, rokk
eða eitthvað í þeim dúr. Sveitina
skipa Stefán Guðmundsson
trommuleikari, Guðbjartur Sig-
urbergsson gítarleikari og Herdís
Arngrímsdóttir bassaleikari. Þau
eru fjórtán og fimmtán ára.
Proxima
Úr Kópavogi kemur hljómsveitin Proxima sem skipuð er fimm ungmenn-
um sem öll eru fædd 1992. Þau eru Anna Hjördís Valgeirsdóttir Skagfjörð
söngkona, Ástvaldur Axel Þórisson 15 ára gítarleikari, Emil Svavarsson
trommuleikari, Oddur Steinn Einarsson bassaleikari og Smári Sig-
urgrímsson gítarleikari. Þau spila rokkblöndu af Muse, Sigur Rós, Klax-
ons, Oceansize og eigin frumleika.
Pink Rosewood
Reykjavíkursveitina Pink Rosewo-
od skipa Hallgrímur Hrafn Ein-
arsson gítarleikari og bakradda-
söngvari, Jakob Gunnarsson
píanóleikari og söngvari, Aron
Björn Bjarnarsson bassaleikari og
Einar Sigurðsson trommuleikari.
Þeir eru allir fæddir 1993 og spila
fjölbreytta tónlist.
Room 165
Í herbergi 165 eru Daníel Pálsson trommuleikari, Ólafur Bjarki Bogason
gítarleikari og söngvari, Sindri Bergsson gítarleikari og Þórir Bergsson
bassa- og píanóleikari. Daníel og Sindri eru sextán ára, Ólafur Bjarki
fimmtán og Þórir átján. Þeir segjast spila einhverskonar óljósa blöndu af
alternative-rokki (ef rokk skyldi kalla).
Spítala Alfreð
Reykvíkingarnir Andri Þórhalls-
son, Auðunn Haraldsson, Arnór
Pétur Marteinsson, Máni Dagsson
og Gunnar Páll Halldórsson skipa
hljómsveitina Spítala Alfreð. Þeir
eru allir sautján ára og spila „Har-
dcore Indie Rock“. Auðunn spilar á
gítar og syngur, Arnór Pétur á
hljómborð, Máni á gítar og Gunnar
Páll á bassa.
Óskar Axel og Karen Páls
Þau Óskar Axel Óskarsson, Karen
Pálsdóttir og Birgir Örn Magn-
ússon halda uppi merki hiphopsins
að þessu sinni. Þau eru úr Reykja-
vík, Óskar Axel er sextán ára, Kar-
en fimmtán ára og Birgir Örn sex-
tán ára. Þau flytja poppað hiphop.
Yggdrasill
Yggradsill er hljómsveit úr Kefla-
vík sem skipuð er þeim Pálmari
Sigurpálssyni, Kristni Bergssyni,
Davíð Má Antonssyni og Óla Baldri
Jakobssyni sem allir eru fimmtán
ára. Þeir spila heiðið svartmálms-
rokk.