Morgunblaðið - 14.03.2008, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 14.03.2008, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is FIMM íslenskir sérsveitarmenn fylgja Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra, sem held- ur á næstunni í heimsókn til Afganistans, á ferðum hennar þar í landi. Þetta staðfestir Urður Gunn- arsdóttir, fjölmiðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins. Sérsveitarmennirnir eru þegar komnir til Afgan- istans til að undirbúa öryggisgæslu vegna fyrir- hugaðrar ferðar ráðherrans. Urður segir það venju þegar háttsettir ráða- menn halda til Afganistans að ríki viðkomandi sjái um að útvega lífverði. NATO krefjist þess að líf- varsla sé til staðar í ferð sem þessari. Það þyki sjálfsagt mál hjá öðrum þjóðum að senda lífverði með háttsettu fólki og utanríkisráðherra falli þar undir. Hún segir nauðsynlegt fyrir sérsveitarmennina að kynna sér aðstæður í Afgan- istan, enda verði farið á marga staði meðan á ferð ráðherrans stendur. Hafa reynslu Urður segir íslensku sér- sveitarmennina hafa reynslu af gæsluverkefnum sem þessum. „Sérsveitin hefur meðal annars gert þetta á leiðtogafundi NATO sem var haldinn [hér] í fyrra,“ segir hún. Utanríkisráðuneytið vill af öryggisástæðum ekki veita frekari upplýsingar um ferð ráðherrans til Afganistans. „Við viljum fara varlega í að ræða einstök efnisatriði ferðarinnar þar til nær dreg- ur,“ segir Urður. Norðmaður lést í árás í janúar Í janúar á þessu ári lést norskur blaðamaður þegar árás var gerð á hótel í Kabúl, höfuðborg Afganistans, en Jonas Gahr Störe, utanríkisráð- herra Noregs, dvaldist þá á hótelinu meðan á heimsókn hans til Afganistans stóð. Ban Ki-Moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lét þau orð falla skömmu eftir árásina að hún hefði beinst sérstaklega að norska utanríkisráðherranum. Talsmaður SÞ í Afganistan sagði hins vegar eftir árásina að ekkert benti til þess að árásarmenn- irnir hefðu vitað að Störe var á hótelinu. Störe flýtti heimför sinni eftir atvikið. Sérsveitarmenn fylgja ráð- herra í ferð til Afganistans Fimm menn eru þegar komnir til Afganistans til þess að undirbúa öryggisgæslu Ingibjörg Sólrún Gísladóttir FIMM karlmönnum sem grunaðir voru um kynferðisbrot gegn rúmlega tvítugri konu um síðustu helgi hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Tveir þeirra hafa þó verið úrskurðaðir í far- bann. Konan, sem starfar fyrir ráð- gjafarfyrirtæki, kemur aðeins til með að dveljast hér á landi í nokkrar vik- ur. Einn mannanna kærði úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur frá 10. mars sl. um að hann skyldi sæta gæsluvarðhaldsvist. Hæstiréttur staðfesti þann úrskurð á miðvikudag og kemur m.a. fram í greinargerð lögreglustjórans á höfuðborgarsvæð- inu að einn mannanna hafi játað að hafa haft samræði við konuna. Það hafi hins vegar verið með samþykki hennar. Vaknaði á öðrum stað í íbúðinni Í greinargerðinni kemur jafnframt fram að konan hafi verið að skemmta sér í miðborginni aðfaranótt sunnu- dags og orðið viðskila við vini sína. Hún hafi farið að dvalarstað sínum en ekki komist inn þar sem vinur hennar hafi verið með lykilinn. Þá hafi borið að mann sem kvaðst vera kunningi konu sem hún hafði kynnst um kvöld- ið. Tjáði maðurinn konunni að hún yrði örugg á heimili hans. Konan lét til leiðast. Þegar þangað var komið dró mað- urinn fram dýnu og lagðist konan til svefns í öllum fötum. Eftir það brest- ur minni konunnar að miklu leyti, en hún man þó óljóst eftir því að mað- urinn sem bauð henni heim hafi lagst hjá henni og kysst hana á hálsinn. Hún hafi þá ýtt honum frá sér og sofnað aftur. Konan vaknaði svo við að annar maður hafði við hana samfarir – þá var hún annars staðar í íbúðinni og nakin að neðan. Við það stökk hún á fætur, klæddi sig og hljóp út úr íbúð- inni. Að sögn Sigurbjörns Víðis Egg- ertssonar aðstoðaryfirlögregluþjóns miðar rannsókn áfram. Búið sé að úti- loka að þrír mannanna hafi komið að meintu broti gegn konunni. Ekkert er hins vegar hægt að segja til um hvort henni hafi verið byrluð ólyfjan. Einn mann- anna játaði samræði við konuna Öllum grunuðum sleppt úr haldi FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokks- ins lögðu í gær fram tillögu í borg- arráði, þess efnis að umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar skuli falið að kanna hagkvæmni þess og fýsileika að koma á lest- arsamgöngum milli Keflavíkur- flugvallar og miðborgar Reykja- víkur annars vegar og léttlestakerfis í Reykjavík hins vegar, með tilliti til fjárhags-, um- hverfis- og skipulagslegra þátta. Tillagan stafaði m.a. af hækk- andi eldsneytisverði, þéttingu byggðar, umhverfisþáttum og áherslu á nýtingu innlendra orku- gjafa í samgöngum. Samkvæmt henni skal umhverfis- og sam- göngusvið leitast við um samstarf með samgönguráðuneytinu verk- efnið, auk þess að hafa samráð við Orkuveitu Reykjavíkur. Þá skyldi ýtarlegri verkefnalýs- ingu og kostnaðaráætlun vegna verksins skilað til borgarráðs eigi síðar en 1. júní næstkomandi. Af- greiðslu málsins var frestað. Vilja skoða lestakerfi í borginni Úttekt skuli lokið 1. júní næstkomandi HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr- skurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis að karlmaður, grunaður um umfangsmikinn innflutning á fíkni- efnum til landsins, sæti áframhald- andi gæsluvarðhaldi, til 18. apríl nk. Jafnframt hefur rétturinn staðfest úrskurð sama héraðsdóms yfir öðr- um karlmanni, sem talinn er eiga að- ild að málinu, um að hann afpláni 360 daga eftirstöðvar refsingar. Báðir eru mennirnir taldir viðriðn- ir fíkniefnamál sem upp kom á Kefla- víkurflugvelli í nóvember sl., þegar rúm fimm kíló af amfetamíni og kók- aíni fundust við eftirlit lögreglu í bif- reið á vegum hraðflutningafyrirtæk- is. Annar mannanna var starfsmaður fyrirtækisins og er talið að hann hafi komið að innflutningi mikils magns fíkniefna, sem hafi staðið a.m.k. frá vormánuðum 2005 – nokkuð reglu- lega. Sá hefur að mati lögreglu verið afar ósamvinnuþýður við yfir- heyrslur og er framburður hans afar ótrúverðugur. Maðurinn er talinn tengjast skipulagningu, milligöngu og móttöku fíkniefna og gegndi því lykilhlutverki. Hinn maðurinn, sem komst í frétt- irnar fyrir að strjúka úr haldi lög- reglunnar á höfuðborgarsvæðinu, er talinn hafa staðið að fjármögnun, skipulagningu og móttöku fíkniefna, en hann hefur staðfastlega neitað að- ild að málinu. Samkvæmt því sem kemur fram í greinargerð lögreglu hefur maðurinn orðið margsaga um einstök atvik málsins og er vísað í framburð annarra sakborninga og vitna. Þá hefur rannsóknin leitt það í ljós að maðurinn eigi fjölda eigna sem skráðar séu á aðra. Rannsókn málsins er enn í fullum gangi og hafa t.a.m. ekki öll gögn borist erlendis frá. Auk þess er verið að rannsaka tölvubúnað sem lagt var hald á og banka- og símagögn. Innflutningurinn hófst vorið 2005 HÉRAÐSDÓMUR Suðurlands hefur dæmt karlmann á fimmtugsaldri til tólf mánaða fangelsisvistar, en frest- að fullnustu níu mánaða refsingarinn- ar, fyrir frelsissviptingu, líkamsárás og kynferðisbrot gegn þáverandi unn- ustu sinni. Henni þarf maðurinn að greiða 600 þúsund krónur í miska- bætur auk þess að greiða allan sak- arkostnað, um 750 þúsund kr. Maðurinn viðurkenndi brot sitt að mestu leyti, meðal annars að hafa far- ið að íbúð á Laugarvatni þar sem kon- an var gestkomandi, leitt hana út og inn í bifreið. Frá Laugarvatni ók mað- urinn með konuna að Gjábakkavegi, þar dró hann konuna út úr bifreiðinni og sló hana í andlit og líkama. Í fram- haldinu ók hann með konuna aftur á Laugarvatn og dró hana inn í íbúð hennar – maðurinn neitaði að vísu að hafa dregið hana á hárinu, en í lækn- isvottorði kemur fram að eymsli hafi verið í öllum hársverði – eftir möl, gangstétt og upp stiga. Inni í íbúðinni veittist maðurinn að konunni með of- beldi, afklæddi hana og setti fingur inn í leggöng. Ofbeldið hélt áfram í nokkurn tíma og var konan slegin ítrekað í andlit og líkama, m.a. þannig að höfuð hennar skall utan í vegg. Átti barsmíðar skilið Fjórtán ára dóttir konunnar var heima þegar barsmíðarnar áttu sér stað. Samkvæmt skýrslu sem tekin var af henni í Barnahúsi, vaknaði hún við að maðurinn öskraði á móður hennar. Hún fór fram og spurði manninn hvað gengi á. Hann sagðist þá hafa kýlt móður hennar, þar sem hún hefði haldið fram hjá sér og ætti því skilið að vera barin. Maðurinn bannaði dótturinni þá að sjá móður sína. Í niðurstöðu héraðsdóms kemur fram að við ákvörðun refsingar sé litið til að maðurinn hafi að mestu játað brot sitt, en einnig að árásin var hrottafengin. ófyrirleitin og að hluta framin inni á heimili konunnar þar sem dóttir hennar var stödd. „Þá verður að líta til þess að um brota- samsteypu er að ræða og að ofbeldi ákærða stóð yfir í umtalsverðan tíma og var til þess fallið að niðurlægja unnustu hans og svipta hana mann- legri reisn,“ segir m.a. í dómnum. Ástríður Grímsdóttir héraðsdóm- ari kvað upp dóminn. Kolbrún Sæv- arsdóttir saksóknari flutti málið af hálfu ákæruvaldsins og Torfi Sigurðs- son hdl. varði manninn. Sekur um frelsissvipt- ingu og gróft ofbeldi Afplánar þrjá mánuði í fangelsi fyrir brot gegn unnustu sinni KRISTJÁN Gíslason náði sínum besta árangri í svo- nefndu Guðlaugssundi, þegar hann synti 6 km sundið í fyrradag á 1:40.43 klst. eða hvern km á 16 mínútum og 47 sekúndum að meðaltali. Kristján, sem er 52 ára, hef- ur tekið þátt í sundinu síðan árið 2000, þrisvar í Vest- mannaeyjum og fjórum sinnum á Seltjarnarnesi. Kristján segir að hann hafi alltaf verið mikið fyrir sund en aldrei keppt, þar sem hann hafi fengið brjósk- los í baki fyrir tæplega 30 árum. Jósep Blöndal, skurð- læknir í Stykkishólmi, hafi kennt sér að lifa með brjósklosinu og síðan hafi hann synt einn kílómetra á hverjum degi. Þátttaka í Guðlaugssundinu sé til að halda upp á þetta afrek, en fyrst og fremst til að lýsa yfir aðdáun á afreki Guðlaugs Friðþórssonar 12. mars 1984, sem hann telji eitt af merkilegustu afrekum ís- landssögunnar. Á myndinni eru frá vinstri Birgir Þór Jósafatsson, bræðurnir Baldur, Gísli og Árni Kristjáns- synir og Kristján Gíslason, faðir þeirra þriggja. Morgunblaðið/Árni Sæberg Persónulegt met í Guðlaugssundi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.