Morgunblaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BJÖRN Bjarnason dómsmálaráðherra sat í vikunni ráð- herrafund Schengen-ríkjanna í Brdo í Slóveníu.Fund- urinn snerist um landamæravörslu á ytri landamærum Schengen-ríkjanna, þróun hennar og ný úrræði. Á fundinum voru kynntar hugmyndir framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins um að auka notkun tölvu- tækni og sjálfvirkni við landamæravörslu. Vegabréf og vegabréfsáritanir með lífkennum gera kleift að taka upp nýjar aðferðir við skráningu á ferðum yfir landamæri, auk þess sem varsla rafrænna lífkenna eins og fingra- fara tryggir öruggara eftirlit með dvöl þeirra, sem koma inn á Schengen-svæðið. Ráðherranir ræddu einnig störf landamærastofnunar Evrópu, FRON- TEX, og töldu reynslu af starfi hennar mjög góða. Rædd voru áform um að herða eftirlit á Miðjarðarhafi og sunnanverðu Atlantshafi til að sporna við ólöglegum innflytjendum og smygli á fólki og fíkniefnum. Talið var nauð- synlegt að hvert einstakt ríki efldi þetta eftirlit. Landamæravarsla á ytri landamærum Schengen-ríkja Björn Bjarnason BÆJARSTJÓRI Seltjarnarness undirritaði á dögunum samning við margmiðlunarfyrirtækið Gagarín um hönnun og uppsetningu marg- miðlunarstanda á Seltjarnarnesi. Standarnir munu innihalda margmiðlunarkynningu um nátt- úru, útivist og menningu á Sel- tjarnarnesi. Við hönnun á marg- miðlunarefninu verður áhersla lögð á að varpa ljósi á sérstöðu þessa bæjarfélags. Markmiðið er að gefa fólki lifandi og sanna inn- sýn í náttúruna, dýra- og fuglalíf, fjöruna og almenna útivist- araðstöðu sem bærinn býður upp á, segir í tilkynningu. Þá verður leitast við að fræða almenning um merkar minjar og örnefni á Nesinu og að gera útilistaverkum bæjarins skil. Undirritun Geir Borg og Jónmund- ur Guðmarsson bæjarstjóri. Margmiðlun á Seltjarnarnesi NIÐURSTÖÐUR þjónustukönnunar sem gerð var fyrir Barnavernd og þjónustumiðstöðvar Reykjavíkur sýna al- mennt ánægju hjá viðskiptavinum. 86% svarenda eru mjög eða frekar ánægð með þjónustu þjónustumiðstöðvar borgarinnar og rúm 58% eru mjög eða frekar ánægð með þjónustu Barnaverndar. Jafnframt eru 93% ánægðir með viðmót og framkomu starfsfólks á þjónustumiðstöðvum og 84% ánægð með viðmót og fram- komu starfsfólks Barnaverndar. Hlutfall mjög eða frekar ánægðra hefur aukist frá sambærilegri könnun sem fram- kvæmd var árið 2006 á þjónustumiðstöðvum borgarinnar. 69% kváðu mjög eða frekar auðvelt að nálgast upplýs- ingar um þjónustu þjónustumiðstöðvar og 65% Barnaverndar. Ánægja með þjónustumiðstöðvar BÚIST er við að margir útlend- ingar sem búsettir eru hér á landi leggi á miðvikudag í næstu viku leið sína í Alþjóðahús til að fá þar aðstoð við gerð skattframtals. Undanfarið eitt og hálft ár hafa laganemar úr Háskólanum í Reykjavík vikulega veitt útlend- ingum ókeypis lagaaðstoð í Al- þjóðahúsi og hefur starfið gefist vel, að sögn Einars Skúlasonar, framkvæmdastjóra Alþjóðahúss. Einar segir að aðstoðin við skattframtalsgerðina í næstu viku verði ókeypis. Hún verður veitt í 12 klukkustundir, frá kl. 9-21. Þeir nemendur sem taka þátt í að aðstoða útlendingana eru allir langt komnir í námi eða nýlega útskrifaðir. Spurður hvort algengt sé að út- lendingar sem unnið hafa hér á landi í einhvern tíma lendi í því að skattar og skyldur hafi ekki verið greidd segir Einar það koma fyrir, rétt eins og hjá Ís- lendingum. Í slíkum tilfellum geti Alþjóðahús aðstoðað fólkið, hafi það haldið launaseðlum sínum til haga. HR-nemar aðstoða útlendinga við gerð skattframtala Morgunblaðið/Ásdís Aðstoð Einar Skúlason framan við Alþjóðahúsið á Hverfisgötu. FRAMKVÆMDIR eru hafnar við ofanverðan Skólavörðustíg, en um er að ræða 2. áfanga í endurnýjun göt- unnar. Framkvæmdasvæðið nær frá Týsgötu upp að Njarðargötu og er áætlað að framkvæmdum verði lokið fyrir 31. júlí. Lokað er fyrir bílaum- ferð en haldið verður opinni göngu- leið um svæðið á verktímanum. Þetta er umfangsmikil fram- kvæmd, allt yfirborð götu og gang- stétta verður endurnýjað, skipt um jarðveg og snjóbræðsla sett í götu og gangstéttar. Akbrautir verða malbikaðar, en gangstéttir og upp- hækkanir á gatnamótum verða stein- og hellulagðar. Götunni lok- að að hluta STUTT VINNUMIÐLUN ungs fólks (VUF) opnaði fyrir umsóknir vegna sum- arstarfa hjá Reykjavíkurborg á þriðjudag. Þeir sem fæddir eru 1991 eða fyrr geta sótt um. Einungis er hægt að sækja um störf rafrænt og nánari upplýs- ingar um þau og umsóknir er að finna á www.vuf.is. Ef umsækj- endur hafa ekki aðgang að netinu eru þeir velkomnir í Hitt húsið í Pósthússtræti 3-5 til að nýta sér tölvur sem þar eru. Sumarstörf hjá borginni Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „ÁRANGURINN kom skemmtilega á óvart,“ segir stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson, sem hafn- aði í efsta sætinu ásamt tveimur kínverskum stór- meisturum á Alþjóðlega Opna Reykjavíkurmótinu í skák. Þetta er í þriðja skipti sem íslenski skákmað- urinn nær þessum árangri á Reykjavíkurmótinu, en hann deildi efsta sætinu með tveimur erlendum skák- mönnum 1994 og var einn í efsta sæti 2000. Mótið fór fram í Skákhöllinni og Ráðhúsinu dagana 3. til 11. mars og var verðlaunaafhending í fyrradag. Hannes Hlífar tefldi við þrjá stigahæstu menn móts- ins í þremur síðustu umferðunum og fékk tvo vinn- inga úr þeim viðureignum. Hann segist hafa vonast til að enda í hópi efstu manna og það hafi gengið eft- ir. Kaflaskipti Hannes Hlífar segir að síðustu skákirnar hafi verið erfiðastar og hann hafi komist yfir ákveðna hindrun með sigri á stórmeistaranum Victor Mikhalevski frá Ísrael í næstsíðustu umferð. Skákin hafi verið mjög flókin og spennandi, en hann hafi náð að stýra svörtu mönnunum til sigurs eftir mikla baráttu. „Ég var sér- staklega ánægður með byrjunina, því hann er mun stigahærri skákmaður,“ segir Hannes Hlífar, sem fékk frekar flókna stöðu í byrjun en tókst að vinna sig út úr henni. Í 7. umferð gerði Hannes Hlífar jafntefli við Yue Wang, stigahæsta mann mótsins. Í síðustu umferð tefldi hann við Hao Wang frá Kína, næststigahæsta mann mótsins, og var með svart. „Hann reyndi að tefla til sigurs og þetta var erfitt, því síðasta skákin reynir á taugarnar þegar svona mikið er í húfi, en ég náði að verjast.“ Kínverjarnir og Hannes Hlífar skiptu með sér verðlaunafénu fyrir 1. til 3. sæti, samtals 16.000 doll- urum. Hao Wang bætti við sig 6 stigum og Yue Wang 2 stigum, en Hannes Hlífar 19 stigum og er nú kominn með 2.583 Elo-stig. „Þetta er mjög gott og ég þarf bara eitt svona gott mót til að ná 2.600 stigum, sem er ákveðinn þröskuldur,“ segir hann. Hannes Hlífar bætir við að samt sé ekki hægt að gera ráð fyrir að ná yfir þröskuldinn í einni tilraun en vonandi takist það á næstu mótum. „En árangurinn gefur manni mikið sjálfstraust og segir mér að ég get ým- islegt enn þá.“ Næsta mót, Evrópumeistaramót einstaklinga, hefst í Búlgaríu 20. apríl og svo er líklegt að Hannes Hlífar verði með á móti í Lúxemborg í maí. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forseti Skák- sambandsins, er mjög ánægð með mótið og segir að allt hafi gengið upp. Keppendur hafi verið himinlif- andi og óskað eftir að koma aftur. Mjög margir hafi fylgst með skákunum á keppnisstað og ótrúlega margar flettingar hafi verið á vef Skáksambandsins þar sem skákirnar hafi verið sýndar beint. „Það var sprenging í aðsókn, allt upp í 113.000 flettingar á skömmum tíma á sunnudag og mótið vakti því mikla athygli í skákheiminum,“ segir hún. Árangurinn eykur sjálfstraustið Morgunblaðið/Ómar Góður Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson stóð sig vel á Alþjóða Reykjavíkurmótinu í skák.  Hannes Hlífar Stefánsson efstur í þriðja sinn  Bætti við sig 19 stigum og nálgast 2.600 stiga múrinn fermingargjöf Flott hugmynd að Kira 3 Frábært kúlutjald með stóru fortjaldi. ÍS L E N S K A /S IA .I S /U T I 41 32 7 02 /0 8 Fermingartilboð 9.990 kr. Verð áður 11.990 kr. Tjöld frá 6.990 kr. HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.