Morgunblaðið - 14.03.2008, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 11
FRÉTTIR
OPIÐ VIRKA DAGA 8-18
LAUGARDAGA 10-14
N1 VERSLUN BÍLDSHÖFÐA 9 - SÍMI 440 1200
REYKJAVÍK - AKUREYRI - AKRANES - HAFNARFJÖRÐUR - KEFLAVÍK - SELFOSS - HORNAFJÖRÐUR - EGILSSTAÐIR WWW.N1.IS
Ti
lb
o
ð
in
g
ild
a
út
m
ar
sm
án
uð
e
ð
a
m
eð
an
b
irg
ð
ir
e
nd
as
t
MARSTILBOÐ
Allt fyrir jeppaferðina í verslunum N1
820 731616
MontBlanc farangursbox, 340 l.
Lengd 150 cm, breidd 82 cm, hæð 34 cm.
Opnast hægra megin.
29.900,-
41.900,-
TILBOÐ
820 RF20
MontBlanc þverbogar
9.990,-
13.176,-
TILBOÐ
760 412960
Vasaljós, Dorcy
Gúmmíklætt, 2xD rafhlöður fylgja
990,-
1.448,-
TILBOÐ
202 PMC013
Loftdæla, 90 l.
11.900,-
14.990,-
TILBOÐ
708 TOG10
Dráttartóg, 10 m, 20 mm.
5.490,-
6.890,-
TILBOÐ
526 4918130
Fljótandi
snjókeðjur, 400 ml.
695,-
995,-
TILBOÐ
664 210 215
Dekkjaviðgerðarsett
4.900,-
6.988,-
TILBOÐ
LANDSFRAMLEIÐSLA jókst um
3,8% að raungildi á árinu 2007. Árið
2006 var 4,4% vöxtur en hann var
7,5% og 7,7% árin 2005 og 2004.
Þetta kemur fram í Hagtíðindum
Hagstofunnar. Vöxt síðasta árs má
helst rekja til 11% aukningar útflutn-
ings og 4% aukningar einkaneyslu
sem var 58,4% af landsframleiðslu.
Fjárfesting dróst hins vegar saman
um 14,9% og vöruinnflutningur um
1,4%. Fjárfesting var 27,5% af lands-
framleiðslu, hlutfallið hefur aðeins
tvisvar sinnum verið hærra frá árinu
1980. Í OECD-ríkjunum er hlutfallið
um eða undir 20%. Streymi launa- og
fjármagnstekna jókst mun meira frá
útlöndum heldur en úr landi.
Hagvöxtur dregst saman milli ára
BROT 137 ökumanna voru mynduð
í Hvalfjarðargöngum frá mánudegi
til fimmtudags í þessari viku eða á
rúmlega 68 klukkustundum. Vökt-
uð voru 5.927 ökutæki og því ók lít-
ill hluti ökumanna, eða 2%, of hratt
eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði
hinna brotlegu var rúmlega 84 km/
klst. en þarna er 70 km hámarks-
hraði. Fimmtán óku á 90 km hraða
eða meira en sá sem hraðast ók
mældist á 110 km.
Við vöktun á sama stað í janúar
árið 2007 óku hlutfallslega mun
fleiri ökumenn of hratt eða yfir af-
skiptahraða, eða 5%.
Aðeins 2%
óku af hratt
EKKI er brotið á eignarrétti land-
eigenda í frumvarpi félagsmálaráð-
herra um frístundabyggð, að mati
Runólfs Gunnlaugssonar, fasteigna-
sala og formanns Félags sumar-
húsaeigenda í Dagverðarnesi. Hann
segir það fjarri lagi að frumvarpið
gangi í berhögg við stjórnarskrána,
eins og stjórnarmaður í Landssam-
tökum landeigenda hefur haldið
fram.
„Megininntakið í frumvarpinu er
ekki hvort landeigendur hafi eign-
arrétt á löndum sínum heldur hvern-
ig þeir nota hann,“ sagði Runólfur.
Með frumvarpinu sé verið að færa
sumarhúsaeigendum samningsstöðu
sem ekki sé til í lagaumhverfinu nú.
„Það er auðvitað stórmál að stór
hópur fólks sé nú með hluta af heim-
ili sínu utan ramma laganna. Hver er
samningsstaða manns sem á sum-
arhús á leigulóð og er með útrunninn
leigusamning? Honum er boðin lóðin
áfram á margföldu markaðsverði
eða að fjarlægja húsið sitt ella!
Samningsstaða hans nú er nákvæm-
lega engin,“ sagði Runólfur.
Í frumvarpinu er lagt til að leigu-
taki lóðar fyrir frístundahús geti
framlengt lóðarleigusamning lóðar-
innar einhliða í 25 ár í senn. Run-
ólfur sagði að á móti eigi landeigand-
inn að fá innlausnarrétt á
mannvirkjum á lóðinni og eigi hann
að geta innleyst þau næstu tvö ár
eftir að leigusamningur er fram-
lengdur einhliða. Eins geti landeig-
andi tvöfaldað leigugjaldið við slíka
framlengingu. Runólfur kvaðst hafa
lagt til við félags- og tryggingamála-
nefnd Alþingis breytingu á þessu og
að innlausnarréttur landeiganda
yrði einnig virkur við eigendaskipti á
sumarhúsi. Með því yrði réttur land-
eigenda einnig bættur.
„Það er alls ekki verið að taka
eignarréttinn af bændum eða land-
eigendum,“ sagði Runólfur. „Ef eitt-
hvað er þá gengur þetta frumvarp of
skammt fyrir sumarhúsaeigendur.“
Frístunda-
húsafrum-
varp gengur
of skammt
Morgunblaið/RAX
Hús Frumvarp um frístundabyggð
er núna til umfjöllunar á þingi.
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing frá Félagi
fasteignasala:
„Í fjölmiðlum að undanförnu hefur
kveðið talsvert að því að brotið hafi
verið gróflega gegn lögum um fast-
eignasala þar sem aðilar hafa verið
titlaðir sem fasteignasalar án þess að
vera það. Lög vernda með skýrum
hætti að enginn megi kalla sig fast-
eignasala nema hafa til þess löggild-
ingu. Félag fasteignasala hefur
ítrekað leitast við að leiðréttingar
séu birtar en allajafnan án árangurs.
Rétt er að geta þess að nöfn allra
fasteignasala eru skráð inni á heima-
síðu Félags fasteignasala ff.is og því
með glöggum hætti hægt að sjá
hverjir eru raunverulega fasteigna-
salar og hafa tilskilin starfsréttindi.
Það er alvarleg blekking og varðar
sektum ef gegn þessu er brotið. FF
óskar eftir að fjölmiðlar gæti að því
að farið sé að lögum.“
Yfirlýsing
♦♦♦