Morgunblaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 23
Eftir Steingrím Sigurgeirsson
sts@mbl.is
Vín úr hinum stórkost-lega 2005-árgangi íbúðum eru nú farin aðsjást í vínbúðunum og
í fríhöfninni í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar, þar sem gera
má mjög góð kaup í vönd-
uðum vínum.
Þar eru nú til dæmis
komin í hillurnar vín frá
vínhúsum Jonathans Mal-
tus sem vakið hafa mikla
athygli á síðustu árum.
Bretinn Maltus er verk-
fræðingur að mennt en
ákvað við upphaf tíunda
áratugarins að skipta um
starfsvettvang. Hann leit-
aði um skeið að góðri
eign í Bordeaux og varð
Chateau Teyssier í St.
Emilion að lokum fyrir
valinu en hann festi kaup
á þeirri eign árið 1994.
Teyssier sameinaði það
tvennt að þarna var fal-
legt hús sem hann vildi
búa í og vínekrur sem
hann taldi búa yfir mikl-
um tækifærum.
Maltus framleiðir
nokkur vín í Bordeaux
og þekktast þeirra er of-
urvínið Le Dome sem
keppir við þau allra
bestu í Bordeaux.
Breska víntímaritið Dec-
anter valdi það besta vín
St. Emilion 2005 ásamt
Chateau Ausone. Einnig
framleiðir Maltus nokk-
ur önnur vín af nær-
liggjandi ekrum. Þau
eiga það flest sameig-
inlegt að vera ein-
staklega aðgengileg þótt
ung séu og sum 2005-
vínanna eru vel neyslu-
hæf nú þegar þótt þau
sé jafnframt hægt að
geyma í ansi mörg ár til
að ná meiri dýpt og
þroska.
Chateau Teyssier
2005 er dökkt með
björtum sólberja- og
kirsuberjaávexti sem
myndar þykkan hjúp
ásamt mildri eik og
blómatónum, vínið hefur
mýkt en jafnframt mjúk
tannín sem gefa því góða hryggja-
súlu og strúktúr. Umhellið 2-3
tímum áður en vínið er borið
fram. Mjög góð kaup á fríhafn-
arverðinu 1.819 krónur. 91/100
Chateau Grand-Destieu er eitt
vínanna frá Maltus sem er í miklu
uppáhaldi hjá mér. Gífurlega
neysluvænt strax frá upphafi og
með frábæra dýpt fyrir verð.
2004-vínið var einstaklega traust
og það glansar svo sannarlega í
2005-árganginum. Dökkt með
djúpum allt að því krydduðum
cassis-ávexti sem rennur saman
við þéttan en hófstilltan eikarvið.
Marg lagskipt með silkimjúkum
og fínum tannínum, klassískur
Bordeaux sem daðrar við Nýja-
heimsstílinn. Umhellið 2-3 tímum
áður en vínið er borið fram. Frí-
hafnarverð er 2.399 krónur. 92/
100
Það er hins vegar Le Dome sem
hefur vinninginn, sannkallað of-
urvín. Gífurlega þéttur, djúpur og
aflmikill ávöxtur af gömlum vínvið
með svörtum berjum og jörð. Stíl-
hreint og fágað en jafnframt ein-
staklega mjúkt miðað við afl og
stærð. Þetta er vín til að geyma í
einhver ár enn en ætti þó að verða
tilbúið fyrr en mörg önnur af risa-
vínum Bordeaux. Ég bragðaði á
Dome 2000 í kvöldverði með Mal-
tus á síðasta ári og það vín var í
fantaformi þá sex ára gamalt. Þar
sem 2000-árganginum svipar mik-
ið til 2005 má ætla að þetta vín
verði komið í góðan gír um 2010-
2011. Fríhafnarverð er 11.999
krónur. 95/100
Í vínbúðunum er síðan hægt að
nálgast hvítvínið Contre le Vent
2005 frá Maltus. Þetta er hvítvín
frá St. Emilion en minnir þó um
margt á Pessac-Léognan í stíln-
um. Feitur og sætur ávöxtur,
ferskjur, perur og ananas í mjúk-
um og sætum eikarhjúp en jafn-
framt ferskri sýru sem gerir þetta
að yndislegu neysluvíni. 1.990
krónur. 90/100
Einfaldara en huggulegt Bor-
deaux-vín í vínbúðunum er svo Le
Regalet Bordeaux 2005. Sólber og
krækiber ásamt kryddi í nefi, ör-
lítið grænt, með ágætlega mildum
tannínum. Umhellið snöggt rétt
áður en vínið er borið fram. 1.390
krónur. 85/100
Bordeaux í
vínbúðum
og fríhöfn
Morgunblaðið/Valdís Thor
vín
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 23
LITRÍK og glitofin klæði eru efa-
lítið það fyrsta sem mörgum dettur
í hug þegar talið berst að ind-
verskri fatatísku, enda hinn hefð-
bundni sarí enn vinsæll klæðnaður
hjá indversku kvenþjóðinni.
Því fer þó fjarri að indverskir
fatahönnuðir láti sníða sér svo
þröngan stakk. Líkt og myndirnar
hér til hliðar bera með sér þá kann
litríkið vissulega enn að vera á sín-
um stað, en lögun, sídd og stíll
fatnaðarins hefur ferðast á slóðir
fjarri þeim þjóðlega fatnaði sem
svo mikið ber á á götum ind-
verskra borga.
Reutes
Kjóll fyrir dívu Þessi kjóll Rohit Bal getur
sómt sér vel á rauða dreglinum í Bollywood.
Þjóðleg Nútímaleg en þjóð-
leg hönnun Kavita Bhartia.
Framúrstefna Bleikur fram-
úrstefnukjóll frá Rohit Bal.
Litrík
Indlands-
tíska
Senjoríta Rauður kjóll í spænskum
stíl frá Gauri og Nainika.
Gúmmívinnslan á Akureyri tók nýverið yfir allan
rekstur Alorku í Reykjavík, sem er ört vaxandi fyrir-
tæki sem hefur sérhæft sig í sölu á hjólbörðum og
flutningatækjum. Í kjölfarið var ákveðið að sameina
alla hjólbarðasölu og hjólbarðaþjónustu félagsins
undir nafni og vörumerki Alorku.
Með þessum breytingum verður til eitt öflugasta
félag landsins á sviði hjólbarðaþjónustu. Alorka er
með starfsstöðvar á Akureyri og í Reykjavík og
býður breiða vörulínu af hjólbörðum fyrir flestar
gerðir farartækja. Hjólbarðaverkstæði Alorku að Rétt-
arhvammi 1 á Akureyri og Tangarhöfða 15 í Reykja-
vík hafa á að skipa traustum fagmönnum með mikla
reynslu.
Gúmmívinnslan verður áfram í fullum rekstri en mun
fyrst og fremst sjá um framleiðslu á sóluðum hjól-
börðum og ýmsum vörum úr endurunnu gúmmíi.
Þessar breytingar gera okkur kleift að veita enn betri
þjónustu og meira vöruúrval á samkeppnishæfu
verði. Þannig viljum við styrkja tengsl okkar við
núverandi viðskiptavini ásamt því sem við bjóðum
nýja viðskiptavini velkomna í hópinn.
Réttarhvammi 1 • Akureyri • Sími 464 7900
Tangarhöfða 15 • Reykjavík • Sími 577 3080
Vagnhöfða 6 • Reykjavík • Sími 577 3080www.alorka.is
Alorka er nafnið á sameinuðum félögum Gúmmívinnslunnar
og Alorku á sviði hjólbarðaþjónustu
Alorka er umboðsaðili á Íslandi fyrir: