Morgunblaðið - 14.03.2008, Síða 25
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 25
Skákhátíðin undanfarna daga meðReykjavíkurskákmóti, minning-
armóti um Bobby Fischer og sér-
staka hátíðardagskrá honum til heið-
urs og eflingar skákminjasafni vekja
upp minningar sem
Víkverji á frá þeim
stórkostlega tíma að
einvígi aldarinnar var
háð í Reykjavík. Saga
þeirra daga er hreint
ótrúleg og sannaðist
þar hvað eftir annað að
veruleikinn er ótrúlegri
en nokkur lygi. Og
spennan var oft og tíð-
um nær óbærileg.
Nú hlakkar Víkverji
til þess að sjá skák-
akademíu setta á stofn í
nafni Fischers og Frið-
riks Ólafssonar.
x x x
Víkverji man enneins og það hefði
gerzt í gær, þegar hann á mennta-
skólaárum sínum las fyrst Bréf til
Láru eftir Þórberg Þórðarson. Svo
heillaður var Víkverji að hann gekk
fram af vestfirzkri vinkonu sinni með
þórberskum tilburðum í sendibréfi.
En vináttan við Þórberg Þórðarsson
og verk hans hefur aftur á móti aukizt
jafnt og þétt með árunum.
Nú er mjög í tízku að halda svo-kallaða heiðurstónleika. Einir
slíkir voru auglýstir í Morgunblaðinu
á mánudag: „Eagles-heiðurs-
tónleikar“ með mynd af Eagles. Ekki
eru það þó þeir sem
ætla að koma fram á
tónleikunum, þótt
myndin gæti gefið það
til kynna, heldur ís-
lenzkir söngvarar með
Björgvin Halldórsson í
fararbroddi. Daginn
eftir var önnur auglýs-
ing í Morgunblaðinu um
„Meistaraverk Bítl-
anna“með teikningum
af þeim félögum. Vík-
verji veit vel að ein-
hverjir Bítlanna eru
farnir yfir móðuna
miklu og verða ekki í
Háskólabíói, nema þá í
anda. En þegar betur er
að gáð eru það íslenzkir
listamenn sem ætla að hlaupa í skarð-
ið fyrir Bítlana. Það tekur því ekki að
birta myndir af þeim!
Víkverji veltir því fyrir sér, hvort
íslenzkir óperusöngvarar héldu tón-
leika og birtu auglýsingamyndir af
Pavarotti eða Bryn Terfel af því að
þeir hefðu örugglega flutt eitthvað af
þeim verkum sem á tónleikunum
yrðu.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Á þorrablóti TilraunastöðvarHáskóla Íslands í meinafræði
að Keldum voru fyrripartar frá
Sigurði Sigurðarsyni dýralækni
bornir á borð. Sigríður
Guðmundsdóttir botnaði:
Í Húnabúð er haldið blót
og hampað skálum.
Gnögum bæði gump og fót
af gengnum fálum.
Páll Hersteinsson prófessor
botnaði:
Vakan okkur verður löng
vín um bekki flýtur.
Ómar stjórnar okkar söng
allra þakkir hlýtur.
Auður Aðalbjarnardóttir og
Bryndís Bjarnadóttir botnuðu sama
fyrripart:
Unum þessum yndis söng
uns allur mjöður þrýtur.
Sigurður Helgason búmaður lét
sig ekki muna um að botna
oddhent:
Sitja rjóð í sætum hljóð
sindrar glóð í augum.
Birtist óðum Braga glóð
botnast ljóð í haugum.
Árni Þór Sigurðsson, þingmaður
Vinstri grænna, átti
verðlaunabotnana. Þar á meðal við
ofangreindan fyrripart:
Eg svo móður elti fljóð
eins og stóðhross flaug um.
Einnig:
Hér er mikið mannaval
mætt í skeifugörnum.
fyrst þar nefna frægast skal
fólk í sauðfjárvörnum.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORN
Botnar á
þorrablóti
ÞAÐ getur reynst erfitt að missa
aukakílóin en það getur verið enn
erfiðara að viðhalda drauma-
þyngdinni að loknu átaki. Besta
lausnin, samkvæmt nýlegri banda-
rískri rannsókn sem greint var frá
í Berlingske Tidende, virðist felast
í því að láta einhvern annan vigta
sig reglulega.
Rannsóknin náði til 1.032 ein-
staklinga sem tekið höfðu þátt í
sama átakinu og misst í því meira
en fjögur kíló. Fólkinu var skipt
upp í þrjá hópa sem allir fengu
samskonar ráðleggingar um
hvernig best væri að viðhalda
þyngdinni.
Lítið gagn í netmælingu
Fyrsti hópurinn var því til við-
bótar látinn mæta mánaðarlega,
yfir tveggja og hálfs árs tímabil, á
heilsustofnun þar sem hver og einn
var alltaf vigtaður af sömu mann-
eskjunni sem auk þess gaf góð ráð
og stappaði í fólkið stálinu.
Annar hópurinn fékk aðgang að
gagnvirku vefforriti þar sem þátt-
takendur áttu að skrá reglulega
niður þyngd sína og gátu tekið
þátt í hópspjalli með öðrum þátt-
takendum en fengu engin persónu-
leg ráð.
Þriðji hópurinn átti hins vegar
að sjá að mestu leyti um sig sjálfur.
Allir þátttakendur í rannsókn-
inni voru léttari að rannsókn-
artímabilinu loknu en þeir voru áð-
ur en átakið hófst.
Fyrsti hópurinn stóð sig engu að
síður langbest í að viðhalda nýju
þyngdinni á meðan lítill munur var
á þyngdaraukningu í hinum hóp-
unum tveimur.
Eftirlit
með
þyngdinni
besta
lausnin
Morgunblaðið/Jóra
Aukakíló Það getur verið erfitt að viðhalda draumaþyngdinni að átaki
loknu og þá virðist gefast vel að láta aðra fylgjast með henni líka.
Fréttir
í tölvupósti
! "
# $ %
&
'
( )
* &
'
&
*(
+
%
%
,!
%
$
-
%
..
) %
#/01"
& '
/12,3+42/+#45 678 9:;; /1
2,<+42/"=>;+01?4"4+
>@
! " #
$%%&# '
(
>>
>:
$
>;
- kemur þér við
Sérblað um mat
fylgir blaðinu í dag
Pólitíkusar safnast
ekki upp í utan-
ríkisþjónustunni
Suðurlandsvegur
tvöfaldaður á
vitlausum stað?
Menningarleg sérviska
í Svarfaðardal
1,5 milljarða bótakrafa
á Akureyrarbæ
Rúnar Júl og
Bjartmar á Jamaíka
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Silvia cappuccinovélin frá Rancilio er
goðsögn meðal kaffiunnenda. Nú er þessi
frábæra vél komin í nýrri gerð sem notar
líka grisjur ( POD )auk malaðs kaffis. Lagar
espresso og cappuccino eins og á bestu
kaffibörum.
Skólavörðustíg 10
101 Reykjavík
Sími: 520 84 20