Morgunblaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 31 - - síð- um u- ng- til r nið- a, u - sk- ð- rn yr- ti ún n erk ð á tið - á s- tri- m- þar er sta til t n og kja m a á m - ann ð ýtt a- til t að auka gjaldeyr- isvaraforða Seðla- bankans um allt að 80 milljarða króna og styrkja eigið fé hans þar til við- bótar um allt að 40 milljarða með inn- lendu skuldafjár- útboði. Þetta telj- um við nauðsynlega ráðstöfun, ekki síst til að styrkja stöðu krónunnar, draga úr gengissveiflum og til að fjármála- fyrirtæki og hagkerfið almennt hafi öflugan Seðlabanka að bak- hjarli. Á meðan við höfum sjálf- stæðan gjaldmiðil skiptir öllu máli að bak við hann sé sterkur og öflugur Seðlabanki, staðföst og ábyrg hagstjórn og þannig sé tryggt eins og kostur er að krón- an sé ekki ofurseld spákaup- mennsku á alþjóðlegum mörk- uðum. Til þess þarf aukinn gjaldeyrisvaraforða. Þá hvetjum við til aukins sparnaðar með því að leggja til að ríkisstjórninni verði heimilt, á þessu ári og hinu næsta, að bjóða út á innlendum markaði sérstök sparnaðar- skuldabréf til almennrar sölu að hámarki tvær milljónir króna á hvern einstakling til minnst fimm ára í senn og að vaxta- tekjur verði undanþegnar fjár- magnstekjuskatti. Við höfum bent á að þróunin á fjármálamarkaði hafi verið mun hraðari en nokkurn óraði fyrir og þess vegna hafi stjórnvöld í raun verið skrefinu eftir á þegar kem- ur að regluverki og eftirliti með fjármálageiranum. Þess vegna leggjum við til að á þessu ári og hinu næsta verði heimilt að verja úr ríkissjóði allt að 100 millj- ónum króna til að efla starfsemi Fjármálaeftirlitsins, einkum á sviði áhættugreiningar og áhættuprófana fjármálafyr- irtækja. Styrkjum sveitarfélög og eflum nýsköpun Margumtalaðar mótvæg- isaðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa verið gagnrýndar harðlega um land allt. Til að mæta erf- iðleikum byggðarlaga, sem horfa fram á tekjubrest vegna sam- dráttar í þorskveiðum eða erf- iðleika í landbúnaði, og til að bæta fjárhagsstöðu illa settra sveitarfélaga, leggjum við til að ríkisstjórninni verði heimilt að verja úr ríkissjóði á þessu ári og hinu næsta allt að fimm millj- örðum króna gegnum Jöfn- unarsjóð sveitarfélaga. Á sama tímabili verði tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga endurskoðuð með það að markmiði að breikka og styrkja tekjuöflunarmögu- leika sveitarfélaganna. Við Vinstri-græn höfum reyndar ítrekað lagt til að tekjuskipting ríkis og sveitarfélaga verði end- urskoðuð, t.d. með því að sveit- arfélögin fái hlutdeild í heildar- tekjum af greiddum fjármagnstekjuskatti, enda er staða margra sveitarfélaga veru- lega slæm og þau eru mjög skuldsett. Víða hafa sveitarfélög neyðst til að selja frá sér eignir til að geta staðið undir lögbundn- um verkefnum og má ljóst vera að tekjur hafa ekki fylgt öllum þeim verkefnum sem færð hafa verið til sveitarfélaga. Þá leggjum við til að heimilt verði að verja úr ríkissjóði auka- lega allt að fimm milljörðum króna á þessu ári og hinu næsta til sérstakra jöfnunaraðgerða í formi aukinna framkvæmda og aðstöðujöfnunar. Aðstoðin skal einkum beinast að þeim byggð- arlögum og landshlutum, sem að undanförnu hafa búið við, eða horfur eru á að muni búa við, neikvæðan hagvöxt. Sérstaklega teljum við mikilvægt að bæta að- stæður kvenna á viðkomandi svæðum og aðgerðirnar geti þannig nýst til að vinna gegn kynbundnum launamun og kyn- greindum búferlaflutningum. Í því skyni að örva nýsköpun og auka fjölbreytni í atvinnu- málum leggjum við til að á þessu ári og því næsta verði heimilt að verja aukalega úr ríkissjóði allt að einum milljarði króna til Ný- sköpunarsjóðs atvinnulífsins, allt að einum milljarði króna til Tækniþróunarsjóðs, allt að 500 milljónum króna til atvinnuþró- unarfélaga, allt að 250 milljónum króna til aukins markaðsstarfs á sviði ferðamála og allt að 250 milljónum króna til umhverf- isaðgerða og uppbyggingar þjóð- garða. Stóriðjuhlé Engum þarf að koma á óvart að við leggjum til frestun stór- iðjuframkvæmda. Í því samhengi má reyndar nefna það að í nýj- ustu ársskýrslu OECD segir: „Engar frekari fjárfestingar í orkufrekum stórverkefnum að meðtöldum þeim sem þegar eru í undirbúningi ættu að eiga sér stað fyrr en farið hefur fram gagnsæ og ítarleg arðsem- isgreining (e. transparent and comprehensive cost-benefit framework).“ Þó að við tökum ekki alltaf undir skoðanir OECD er ljóst að um þetta atriði er ekki deilt, ekki er hægt að ráðast í frekari stóriðjuframkvæmdir í blindni. Í frumvarpinu leggjum við til að ríkisstjórninni verði heimilt, á grundvelli samninga þar um, að greiða fyrirtækjum sem und- irbúið hafa stóriðju- eða stór- framkvæmdir hluta af útlögðum kostnaði falli þau frá fjárfesting- aráformum sem ekki eru talin rúmast innan hagkerfisins. Einn- ig að ríkisstjórninni verði heimilt í sama tilgangi að kaupa rann- sóknaniðurstöður af orkufyr- irtækjum. Sé talið nauðsynlegt til að endurheimta og viðhalda efnahagslegum stöðugleika verði ríkisstjórninni heimilt, þrátt fyr- ir ákvæði viðeigandi sérlaga, að stöðva innan tilgreindra tíma- marka og í allt að fjögur ár leyf- isveitingar þegar um leyf- isskyldan stóratvinnurekstur er að ræða. Samhliða þessu verði vinnu við gerð rammaáætlunar um nýtingu vatnsafls og jarð- varma hraðað sem kostur er, nauðsynlegum náttúruvernd- araðgerðum flýtt og lagður grunnur að sjálfbærri þróun í orkubúskap landsmanna. Til að ljúka gerð rammaáætlunar, til brýnna náttúruverndaraðgerða og til að leggja grunn að sjálf- bærri þróun í orkumálum verði heimilt að verja aukalega úr rík- issjóði allt að 200 milljónum króna á þessu ári og hinu næsta. Þjóðhagsráð Að lokum leggjum við til að sérstakt þjóðhagsráð verði skip- að með fulltrúum þingflokka, fulltrúum frá Samtökum at- vinnulífsins, Samtökum fjár- málafyrirtækja, ASÍ, BSRB og Sambandi lífeyrissjóða. Ráðið verði undir forystu formanns sem bankastjórn Seðlabanka Ís- lands skipar. Verkefni þessa ráðs verði að veita stjórnvöldum ráð- gjöf, meta framvindu og horfur í þjóðarbúskapnum og gefa mán- aðarlega álit um stöðu mála. Skal þjóðhagsráð einnig taka til skoð- unar hvort ástæða sé til að end- urreisa Þjóðhagsstofnun eða stofnun í hliðstæðri mynd sem sjálfstæða fagstofnun í skjóli Al- þingis. Einnig myndi ráðið skoða hvernig styrkur lífeyrissjóðanna megi best nýtast innan hagkerf- isins, t.d. í samhengi við framtíð- arskipan húsnæðismála og til að virkja innlendan skuldabréfa- markað, en þó þannig að lífeyr- issparnaður landsmanna sé ætíð tryggður eins og best er mögu- legt. Í reynd er hér lagt til að koma á einhvers konar þjóð- arsáttarvettvangi, samstarfsvett- vangi helstu aðila efnahagslífsins sem starfi að minnsta kosti næstu tvö árin á meðan þjóð- arskútan siglir gegnum brim- garð núverandi óstöðugleika og kemst á lygnari sjó. Norræn króna? Innganga í Evrópusambandið og upptaka evru svarar ekki kalli almennings eftir auknum stöð- ugleika og styrkari stjórn efna- hagsmála hér og nú. Ströng inn- tökuskilyrði í sambandið og fyrir upptöku evru kalla hvort eð er á stöðugt og gott efnahagsástand, lága verðbólgu, lítinn við- skiptahalla, traust ríkisfjármál og svo framvegis. Með öðrum orðum er það ljóst að við þurfum að taka til í okkar eigin garði hvað sem öllu evrutali líður og evran er engin töfralausn. Þegar til lengri tíma er litið er hins veg- ar rétt að íslenska krónan er lítill gjaldmiðill og í opnu hagkerfi eru slíkir gjaldmiðlar veikir fyrir íhlutun fjársterkra aðila. Þetta sjáum við á því hvernig spákaup- mennska á mörkuðum hefur í sumum tilfellum farið með krón- una. Ef íslensk stjórnvöld meta það sem svo að íslenska krónan sé of lítil til að lifa ein af í hagkerfi heimsins bendum við Vinstri- græn á nærtækara dæmi en svissneska frankann sem ein- hverjir hafa dregið upp í þessu samhengi og það er möguleikinn á því að þau Norðurlönd sem enn nota krónu sameinist um nor- ræna krónu. Í tilfelli Norðmanna og Svía gæti þetta verið fýsileg framkvæmd þar sem bæði ríkin hafa sjálfstæða krónu. Danir hafa bundið krónu sína við gengi evrunnar en kynnu þó að vilja skoða þennan möguleika. Fulltrúi Vinstri-grænna í Norð- urlandaráði mun á næsta fundi láta á það reyna að þessi mögu- leiki verði skoðaður en norræn króna myndi styrkja enn sam- starf Norðurlandanna og vænt- anlega auka stöðugleika í ís- lensku efnahagslífi. Ef ekki norræn króna, hlyti að vera nær- tækara að ræða við EES og grannþjóðina Norðmenn um samstarf í gjaldmiðlamálum ef slíkt yrði á einhverjum tíma- punkti talið nauðsynlegt. Slíkt er nærtækara en að fara suður í Alpa eftir svissneska frankanum, traustur sem hann auðvitað er. Vöndum til verka Þó að stjórnvöld hafi hingað til daufheyrst, jafnt við tillögum Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sem varnaðarorðum annarra, sjást þess loks merki á síðustu vikum að ríkisstjórnin sé að vakna. Þar tala stjórnarflokk- arnir hins vegar ekki eftir sömu nótum; Samfylkingarmenn benda á ESB sem hina einu mögulegu lausn, allsherjarlausn, en hafa ekkert fram að færa. Óljóst er hins vegar hvaða stefnu Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að taka. Nú skiptir miklu að vanda til verka þannig að sú lægð sem íslenskt efnahagslíf gengur í gegnum komi sem minnst niður á almenningi í landinu, komið verði á jafnvægi og stöðugleika að nýju og framvegis verði hag- stjórnin tekin styrkari tökum. Við leggjum fram okkar tillögur og vonum að þær verði skoðaðar hlutlægt og á þær verði hlustað, við lýsum eftir tillögum annarra, biðjum um málefnalega og upp- byggilega umræðu. Þjóðarsátt verður ekki til af engu en það er slíkt samstarf sem við þurfum nú, slíkt andrúmsloft, slíkt hug- arfar. Málið er of mikilvægt til að hafa það fast ofan í skot- gröfum pólitísks karps. fnahagsvandann ka n- t i á - - Steingrímur J. Sigfússon og Katr- ín Jakobsdóttir eru formaður og varaformaður Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs. ín bsdóttir FRAMKVÆMDIR við göng undir Vaðlaheiði og tvöföldun Suðurlandsvegar frá Litlu kaffistofu að Hveragerði hefjast á fyrri hluta næsta árs, en þetta kemur fram í viðauka við samgönguáætlun 2007- 2010. Kristján L. Möller samgöngu- ráðherra áætlar að kostnaður við tvöföld- un Suðurlandsvegar og jarðgöng undir Vaðlaheiði verði um 10 til 11 milljarðar, að því er fram kom á Fréttavef Morg- unblaðsins, mbl.is, í gær. Í tilkynningu vegna viðaukans segir að meginefni breytinga í vegagerð taki á ákvörðunum sem ríkisstjórnin tók á síð- astliðnu sumri um flýtingu vegafram- kvæmda víða um land. Ein þeirra breytingartillagna sem nú eru gerðar á áætluninni er um nýjan tengiveg að Bakkafjöruhöfn, en sam- kvæmt áætlunum sem nú eru uppi um hafnargerð þar þarf að leggja veginn á þessu ári. „Önnur breytingin varðar jarð- göng undir Vaðlaheiði og miðast við að framkvæmdir þar geti hafist á árinu 2009 og að framkvæmdir við Suðurlandsveg hefjist einnig árið 2009. Báðar þessar framkvæmdir verða í einkaframkvæmd. Hluti ríkisins verði greiddur með jöfnum árlegum greiðslum í 25 ár eftir að fram- kvæmdum lýkur,“ segir í tilkynningunni. Þar segir að lagt sé til mótframlag vegna endurbóta á ferjuhöfnum á Dal- vík og Brjánslæk. „Þá er sýnt að ekki verður unnt að vinna að nokkrum verk- efnum eins og fyrri áætlun gerði ráð fyrir þar eð undirbúningur hefur tekið lengri tíma en gert var ráð fyrir. Hluti af því svigrúmi sem við það myndast er notað til að auka framkvæmdir við tengivegi. Stofnkostnaður vegna Grímseyjarferju er tiltekinn sérstaklega en var áður inni- falinn í upphæðinni til ferja og flóabáta. Að lokum er lagt til að gerðar verði breytingar á fjárveitingum til almenn- ingssamgangna m.a. vegna fjölgunar ferða Herjólfs til Vestmannaeyja og styrkts flugs til Vestmannaeyja.“ Lengingu Akureyrar- flugvallar flýtt Hvað flugmál varðar eru helstu breyt- ingar á áætlun þær að lagt er til að leng- ingu Akureyrarflugvallar um 460 m auk ýmissa annarra tengdra aðgerða verði flýtt, sem og viðhaldsframkvæmdum á flugvellinum. Gert er ráð fyrir að gerð verði flughlöð við nýja samgöngumiðstöð á Reykjavík- urflugvelli og einnig verði gerð ný bráða- birgðaaðstaða fyrir innanlandsflug á vell- inum. Um siglingamál segir að liður í ákvörð- un ríkisstjórnar um mótvægisaðgerðir vegna samdráttar þorskveiðiheimilda hafi verið að fresta skyldi gildistöku ákvæða hafnalaga um breytingu á styrkj- um til hafnarframkvæmda um tvö ár eða til 1. janúar 2011. „Hafnir sem verða fyrir tekjusamdrætti og eru með verkefni inni á gildandi samgönguáætlun eiga því möguleika á að fresta framkvæmdum sem voru á áætlun árin 2007 eða 2008 til áranna 2009 og 2010.“ Nokkrar hafnir hafi þegar valið þennan kost í ár og fleiri bætist við á næsta ári. Í fjárlögum fyrir árið 2008 hafi því verið tekin ákvörðun um tímabundna frestun 200 m.kr. fram- lags til hafnarmannvirkja. Fram kemur í tilkynningunni að að- gerðir í fjarskiptamálum séu ekki hluti af viðauka við samgönguáætlun. Rík- isstjórnin hafi þó ákveðið að flýta fram- kvæmdum við uppbyggingu í fjarskipta- málum sem hluta af áðurnefndum mótvægisaðgerðum. Uppbyggingu á fyrsta hluta gsm- netsins, GSM I, sem nær til hringveg- arins og 5 fjallvega, sé nánast lokið. GSM II taki til stofnvega aðallega á Vest- fjörðum og NA-landi og tveggja þjóð- garða. „Áætlunin gerði ráð fyrir að þeirri uppbyggingu yrði lokið á árinu 2009 en samkomulag hefur náðst við aðilann sem fékk verkefnið um að þeirri uppbyggingu verði hraðað og gert er ráð fyrir að verk- efninu verði að mestu lokið á þessu ári. Stærsta hluta þess svæðis sem GSM II verkefnið náði til á N-Austurlandi verður þjónað á markaðsforsendum.“ Útboð á umfangsmesta verkefninu sem eru háhraðatengingar til allra lands- manna sé nú í gangi en verkefnið nær til tenginga á um 1.200 stöðum á lands- byggðinni. Útboðsferlið og val á tilboðs- aðila tekur um 5 mánuði og fram- kvæmdatími ráðist af tilboðum, en verði þó aldrei lengri en 22 mánuðir. Einnig hafi verið í undirbúningi að koma ljósleiðaraþráðum NATO í borg- araleg not og sé stefnt að útboði á afnot- um þeirra á vormánuðum. Þau meg- inmarkmið hafi verið höfð að leiðarljósi að stuðla að aukinni samkeppni í gagna- flutningum á innanlandsmarkaði og um leið að auka aðgengi almennings að há- hraðatengingum, einkum úti á landi, auk þess að draga úr kostnaði vegna viðhalds og reksturs ljósleiðaranna. „Talið er að aðgangur nýrra aðila að flutningsgetu út á land muni auka verulega samkeppni og hafa jákvæð áhrif á verð til neytenda (smásölu). “ Sundabraut Framkvæmdir við Sundabraut eiga að hefjast á fyrri hluta næsta árs. Göng og tvöföld braut á dagskrá Framkvæmdir við göng undir Vaðlaheiði og tvöföldun Sundabrautar hefjast á næsta ári Í HNOTSKURN »Í kjölfar niðurskurðar á þorsk-kvóta í fyrrasumar ákvað rík- isstjórnin að auka umfang fram- kvæmda í samgöngumálum til þess að draga úr áhrifum aflasamdráttar. »Ákveðið var að leggja 6.500 m.kr.í flýtingu framkvæmda. » Í ljósi breytinganna á samgöngu-áætlun þótti nauðsynlegt að gera viðauka við hana fyrir árin 2007- 2010, sem samþykkt var á Alþingi í mars í fyrra. »Viðaukinn verður lagður fyrir Al-þingi í formi þingsályktun- artillögu á vorþingi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.