Morgunblaðið - 14.03.2008, Side 32
32 FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
ÞAÐ hafa ekki farið
hátt enn sem komið er
þær gríðarlegu skipu-
lagsbreytingar sem eru
fyrirhugaðar við Smár-
ann í Kópavogi.
Í Smáranum og
næsta nágrenni eru í
dag um 190 þús. ferm.
af verslunar- og þjón-
usturými. Þegar hefur
verið samþykkt viðbót
upp á 100 þús. ferm. og í
farvatninu eru ríflega
400 þús. ferm. því til við-
bótar, hátt í þrefalt það
sem komið er. Í dag
samsvarar verslunar- og
þjónusturými í Smár-
anum þremur Smára-
lindum en verði þetta að
veruleika verður það á
við 12-13 Smáralindir.
Munar þar mest um
hinn svokallaða Glað-
heimareit en þar eru
áform um að byggja
álíka mikið og þegar
hefur verið byggt í
Smáranum. Hugmyndir
eru um að byggðin verði
háreist og upp úr henni
skagi turnar svipaðir og
hærri en sá sem nú er risinn.
Svo viðamiklar breytingar á und-
antekningarlaust að vinna í samvinnu
og sátt við íbúa bæjarins. Þær verður
að skoða í samhengi og þá með því að
endurskoða að-
alskipulag eins og lög
gera ráð fyrir. Sam-
kvæmt lögum á að end-
urskoða aðalskipulag í
upphafi hvers kjör-
tímabils en í Kópavogi
hefur það ekki verið
gert tvö síðustu kjör-
tímabil. Núverandi að-
alskipulag er því orðið
úrelt enda margstagað
og bætt.
Það er einnig bundið í
lög að við gerð að-
alskipulags skuli hafa
samráð við íbúa og taka
tillit til sjónarmiða
þeirra, þetta er jú bær
okkar allra.
Staðreyndin er sú að
í Kópavogi er að-
alskipulag nánast
marklaust plagg. Því er
breytt svo oft sem lóð-
arhafar óska og þá vega
sérhagsmunir gjarnan
þyngra en hagsmunir
heildarinnar. Og það er
einmitt á kostnað al-
mannahagsmuna sem
bæjarstjórnarmeiri-
hluti Kópavogs ætlar að
reka í gegn svo fárán-
legt byggingamagn í Smáranum. Svo
mikil þétting byggðar á þessu svæði
mun vissulega skila Kópavogsbæ
tekjum í kassann í formi fast-
eignaskatta, en hversu þungt vega
þær krónur í huga íbúa í Smáranum,
Lindunum og suðurhlíðum Kópavogs
sem mega þola stóraukna loft- og
hljóðmengun? Engin umferðarlíkön
hafa sýnt með sannfærandi hætti að
svo þétt megi byggja við Reykjanes-
brautina, Fífuhvammsveg og Dalveg
án þess að sprengja gatnakerfið. Um-
hverfismatið bendir ekki á neinar
mótvægisaðgerðir gegn aukinni
mengun frá útblæstri bíla og svifryks.
Enda fátt hægt að gera.
Nú liggur tillaga að byggð í Glað-
heimum fyrir Samvinnunefnd um
svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins
en þar gefst fulltrúum hinna sveitarfé-
laganna tækifæri til þess að taka af-
stöðu til hennar. Tveir fulltrúar Kópa-
vogs sitja í þeirri nefnd og mun annar
þeirra ekki styðja tillöguna í óbreyttri
mynd. Hann hefur ítrekað bent á
nauðsyn þess að skoða skipulags-
breytingar í Glaðheimum í samhengi
við aðra fyrirhugaða byggð á Smára-
svæðinu. Einungis þannig getum við
metið af skynsemi áhrif þessara
breytinga á umhverfi og umferð.
Eins og í svo mörgu er aðferð-
arfræði meirihluta Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks í Kópavogi að
skjóta fyrst en spyrja svo. Bráðlæti og
flumbrugangur eru ólíðandi vinnu-
brögð þegar verið er að skipuleggja
byggð og umhverfi fólks fyrir margar
komandi kynslóðir. Samfylkingin í
Kópavogi hefur snúist hart gegn þess-
um hugmyndum og vinnulagi. Við vilj-
um fara miklu betur ofan í saumana á
skipulagi svæðisins alls, hafa íbúa með
og ná góðri sátt í bænum um hvernig
við viljum byggja upp í Smáranum.
Skipulagsslys við
Smárann í Kópavogi
Guðríður Arnardóttir skrifar
um þéttingu byggðar og
skipulagsmál í Kópavogi
» Svo mikil
þétting
byggðar mun
vissulega skila
Kópavogsbæ
tekjum í kass-
ann en hversu
þungt vega þær
krónur á móti
stóraukinni um-
ferð og meng-
un?
Guðríður Arnardóttir
Höfundur er oddviti Samfylking-
arinnar í Kópavogi.
HINN árlegi Evrópudagur neyt-
enda er í dag 14. mars. Þessi dagsetn-
ing var valin til þess að minnast þess
að þennan dag árið 1962 ávarpaði
John F. Kennedy forseti Bandaríkj-
anna þingheim þar í landi og setti
hann fram í fyrsta sinn yfirlýsingu um
grundavallarréttindi
neytenda. Sameinuðu
þjóðirnar lýstu síðar
yfir að á þessum degi
skuli minnast sértak-
lega baráttu fyrir rétt-
indum neytenda. Árið
1999 ákvað síðan Evr-
ópuþingið að árlega
skuli þessi dagur helg-
aður neytendum og um
leið er hvatt til þess
neytendur séu betur
upplýstir um neytenda-
mál og stefnu stjórn-
valda á sviði neytenda-
mála.
Ný stefnumótun í
neytendamálum
Í tilefni dagsins tel
ég því rétt að vekja at-
hygli á mikilvægi neyt-
endaverndar og þýð-
ingu hennar fyrir
almenning í landinu. Í
nóvember kynnti við-
skiptaráðuneytið nýja
stefnumótun og átak í
neytendamálum.
Fyrsta skref stefnu-
mótunarinnar byggist
á viðamikilli úttekt þriggja há-
skólastofnana á réttarstöðu neytenda
og úttekt á stöðu neytendamála á Ís-
landi. Á þeirri úttekt sem lýkur nú í
apríl munum við m.a. grundvalla fjöl-
þætta vinnu á mörgum sviðum neyt-
endamála. Ása Ólafsdóttir lektor, dr.
Þórólfur Matthíasson prófessor og dr.
Ragna Garðarsdóttir, sérfræðingur,
eru forsvarsfólk þeirrar úttektar og
vinnu við fyrirhugaðar skýrslur frá
Félagsvísindastofnun, Hag-
fræðistofnun og Lagastofnun.
Þessu tengt var skipaður starfs-
hópur til að skýra heimildir fjár-
málastofnana til gjaldtöku. Þeirri
vinnu lauk um áramót og hafa nið-
urstöður verið kynntar. Þá hafa nokk-
ur stór neytendamál komið til þings-
ins í vetur og fleiri á leiðinni. Má þar
nefna ný lög um innheimtur og ólög-
mæta viðskiptahætti.
Viðskiptaráðuneytið mun á kjör-
tímabilinu kappkosta að stuðla að góð-
um viðskiptaháttum í íslensku sam-
félagi og freista þess að skapa
samkeppnishæft við-
skiptaumhverfi, jafn-
framt því að styrkja
neytendarétt í landinu
með því að greiða götu
lagasetningar sem er
hliðstæð því sem þekkist
í nágrannalöndum.
Þekktu rétt þinn –
notaðu rétt þinn
Markmið ríkisstjórn-
arinnar er að skapa rétt-
indum og hagsmunum
neytenda verðugri sess í
samfélaginu. Ennfremur
að vinna gegn háu verð-
lagi á Íslandi; auðvelda
almenningi að takast á
við breytta heimilis- og
verslunarhætti; styrkja
og auka vitund neytenda
um rétt sinn; innleiða í
auknum mæli upplýs-
ingatækni í þágu neyt-
enda og styðja þá til að
taka virkari þátt til að
sinna hagsmunum sínum
á markaði.
Í Evrópu er kjörorð
dagsins til neytenda:
„Þekktu rétt þinn – not-
aðu rétt þinn“. Með samþykkt og aðild
Íslands að samningnum um Evrópska
efnahagssvæðið hefur orðið mikil
breyting á viðskiptaumhverfinu í átt
til aukins frelsis fyrir fyrirtækin en
samhliða hefur neytendavernd verið
styrkt svo um munar. Vöruframboð
hefur margfaldast og fyrirtækin
keppa um viðskipti við neytendur.
Þegar fyrirtækin keppa á markaði
leggjast markaðskraftar þeirra að
hluta á neytendur. Stöðu neytandans
– eða einstaklingsins – þarf að vernda
sérstaklega gagnvart sterkum fyr-
irtækjum sem oftar en ekki setja
neytendum einhliða samningsskilmála
sem gilda í viðskiptum við þau. Mark-
mið með neytendavernd er að setja
lög og reglur sem miða að því að
vernda hagsmuni neytenda gagnvart
sterkri stöðu fyrirtækja sem þeir eiga
í viðskiptum við. Nauðsynlegt er að
meta stöðugt hvort aðstæður á mark-
aðnum eða breyttir viðskiptahættir
krefjist annarra lausna eða nýrrar
lagasetningar til verndar neytendum.
Hlutverk Neytendastofu
Markvisst verður því að vinna að
því að fylgjast með viðskiptaháttum
og hefur Neytendastofa þar mik-
ilvægu hlutverki að gegna sem eft-
irlitsstofnun á sviði neytendaverndar.
Mikilvægt er einnig aðhald frjálsra
félagasamtaka svo sem Neytenda-
samtakanna svo og embætti tals-
manns neytenda sem hvoru tveggja
gegna mikilvægu hlutverki við hags-
munagæslu fyrir neytendur.
Brýnt er að neytendur kynni sér og
þekki réttindi sín samkvæmt gildandi
lögum. Jafnframt verður að styrkja
eftirlit á sviði neytendaverndar og
hvetja neytendur til þess að taka virk-
an þátt í því og nota rétt sinn lögum
samkvæmt þegar á reynir. Markaðs-
áreiti á neytendur eykst stöðugt en
samtímis gerir almenningur sífellt
meiri kröfur um neytendavernd.
Nýlega var þannig nauðsynlegt að
gefa út tilmæli til að stemma stigu við
töku seðilgjalda eftir vandlega skoðun
á viðskiptaháttum sem nú eru stund-
aðir á þessu sviði. Það er full ástæða
til að óska neytendum til hamingju
með margvísleg réttindi sem hafa
áunnist á undanförnum árum. Miklu
skiptir fyrir neytendur og hag heim-
ilanna í landinu að þau þekki þau rétt-
indi sem neytendur njóta lögum sam-
kvæmt og noti þau – en veiti
jafnframt markaðnum aðhald með því
koma á framfæri ábendingum sínum
til stjórnvalda þegar brotið er á lög-
bundnum réttindum neytenda. Ár-
angur verður aðeins tryggður með
markvissri uppbyggingu sem miðar
að því að efla eftirlit á sviði neyt-
endaverndar og styrkja eftirlitsstofn-
anir sem vinna að vernd neytenda hér
á landi. Betri neytendavernd er allra
hagur.
Evrópudagur neytenda
Björgvin G. Sigurðsson
skrifar um neytendamál
Björgvin G. Sigurðsson
»Markmið
ríkisstjórn-
arinnar er að
skapa rétt-
indum og hags-
munum neyt-
enda verðugri
sess í samfélag-
inu og vinna
gegn háu verð-
lagi á Íslandi.
Höfundur er viðskiptaráðherra.
LÍFTÓRAN er flestum sem enn
hafa hjartans mál. Á Íslandi er hún
lengri en víðast annars staðar og
eldri borgurum fjölgar. Fyrirtaks
heilbrigðisþjónusta á
sinn sess í þessari þró-
un og viðheldur eigin
tilvist með vaxandi
þörf. Hún einskorðast
þó ekki við ellina því
öndvert við það sem
margir héldu hefur
upplýsingaöldin ekki
fært okkur aukna
sjálfsbjörg, þvert á
móti. Flóðbylgja fram-
tíðarinnar sam-
anstendur því af öllum
aldurshópum, óháð
stað og stöðu. Boltinn
er reyndar þegar byrj-
aður að rúlla og vindur
hratt upp á sig.
Enn halda margir
stjórnmálamenn
dauðahaldi í rík-
isrekstur heilbrigð-
isþjónustunnar og sjá
fyrir sér deyjandi fá-
tæklinga á gluggum
verði því breytt. Telja
ójafnræði þegnanna
endurspeglast í einka-
rekstri sem hygli sér-
lega líftóru borg-
unarmanna. Samstiga
þessum sjónarmiðum
er nýjasta útspil heilbrigð-
isráðherra, ókeypis aðgangur barna
að heilsugæslustöðvum sem lýtur að
rétti allra óháð efnahag að sækja
börnum sínum læknisþjónustu.
Þessu skrefi er fagnað og telst til
góðverka ríkisstjórnarinnar. En er
það svo? Myndi einhver úthýsa bráð-
veiku barni eða útiloka frá nauðsyn-
legri læknishjálp? Ég sé það ekki
fyrir mér. Reynslan sýnir hinsvegar
að fjöldi manns notfærir sér ókeypis
þjónustu og gildir einu hvort um er
að ræða lækni eða almenningssal-
erni. Og þá erum við komin að kjarn-
anum: Neyðin spyr ekki um verð.
Þó aurar tryggi engum lengri líf-
tóru geta þeir aukið líkur og hæg-
indi. Fjallajeppi, einka-
þjálfari,
utanlandsferðir, heima-
hjúkrun, einkalæknir,
lífverðir, nudd, sund-
laug, sálfræðingur, frí-
tími, stuðtæki, lyf, lík-
amsrækt,
einkasjúkrahús, allt í
boði en ekki allra. Eig-
um við að banna auð-
mönnum að hafa hjarta-
stuðtæki heima til að
jafna lífslíkurnar?
Heilbrigðisþjónusta
er dýr. Málaflokkurinn
hefur lengi verið í viðj-
um en er nú að sprengja
af sér klakaböndin. Því
er mikilvægt að ráða-
menn nútíðarinnar taki
rétta ákvörðun fyrir
notendur framtíð-
arinnar. Hlaup er í ánni
og stíflan þarf að halda.
Skynsamlegast væri að
minnka rennslið og
veita allri þjónustu sem
ekki telst neyð í aðra,
markvissari farvegi.
Þannig skapast svig-
rúm sem tryggir jafnan
aðgang allra að neyð-
arþjónustu. Hin leiðin, sem kristall-
ast í nýju hátæknisjúkrahúsi, er
ófær og ekki bara vegna kostnaðar
og fyrirsjáanlegra rekstrarvand-
ræða heldur gengur hún gersamlega
á skjön við þarfir framtíðarinnar.
Umræðan um staðsetningu þessa
draugahúss er hlægileg en líkanið
flott. Látum þar staðar numið.
Neyðin spyr
ekki um verð
Lýður Árnason skrifar um heil-
brigðisþjónustu
Lýður Árnason
»Reynslan
sýnir hins-
vegar að fjöldi
manns notfærir
sér ókeypis
þjónustu og
gildir einu hvort
um er að ræða
lækni eða al-
menningssal-
erni.
Höfundur er heilbrigðisstarfsmaður.
ÞETTA er svar við
nýlegri Morgunblaðs-
grein formanns Ís-
landshreyfingarinnar
– lifandi lands.
Í greininni gagn-
rýnir Ómar harðlega
Morgunblaðsgrein
mína frá 4 mars sl.,
undir heitinu Virkjum
Skaftá heima í héraði.
Í greininni líkir
Ómar kröfum heima-
manna til að tryggja
sér Skaftá og nýtingu
árinnar við blinda
græðgi. Ómar vísar
síðan í áróðursvél
Landsvirkjunar og
segir: „hvergi sér
þess stað í áætlunum
um mögulegar virkj-
anir að þessi virkj-
unarkostur Ágústs
komi til greina, ein-
faldlega vegna þess
að Skaftárveita yfir
Langasjó hefur yfirburði hvað
snertir hagkvæmni og er því sóun
á fé og fyrirhöfn að skoða aðra
kosti“. Síðan byrjar Ómar að fjasa
um þrepavirkjun í Skaftá í farvegi,
eitthvað sem engum dettur í hug.
Forathugun á Skaftárvirkjun lof-
ar góðu hvað varðar umhverfismál
og arðsemi. Markmiðið er að sam-
nýta virkjun og uppgræðslu á af-
réttinum og um leið bæta þau gíf-
urlegu gróðurspjöll sem Skaftá
hefur valdið, með
framburði og síðan
áfoki er veldur gríð-
arlegu tjóni á gróðri
og náttúru í Skaft-
árhreppi.
Tillögurnar ganga
líka út á að jafna
rennsli árinnar,
minnka framburð og
með því bæta fiski-
gengd og sjóbirtings-
veiði í ánum í Land-
broti og víðar í héraði.
Hér er vitaskuld um
mjög flókið og krefj-
andi verkefni að ræða
og er því nauðsynlegt
að yfirgripsmiklar
rannsóknir færustu
vísindamanna eigi sér
stað áður en nokkuð
verði gert.
Að lokum vil ég taka
fram, að inntak grein-
ar minnar er að benda
á að einungis tveir
kostir séu í stöðunni. Skaftá verði
virkjuð í héraði eða ekkert átt við
hana.
Skaftfellingar, sameinumst um
að sópa áformun Landsvirkjunar
um Skaftárveitu út í hafsauga.
Er Ómar farinn að
mala í kjöltu
Landsvirkjunar?
Ágúst Thorstensen svarar ný-
legri grein Ómars Ragn-
arssonar
Ágúst Thorstensen
» Skaftfell-
ingar, sam-
einumst um að
sópa áformun
Landsvirkjunar
um Skaftárveitu
út í hafsauga.
Höfundur er matvælafræðingur.