Morgunblaðið - 14.03.2008, Page 37
sér í flottasta manninn og þig vildi
hún ekki missa. Svo að hún var bara
17 ára þegar þið giftust.
Nú er ég á leiðinni til heim til Ís-
lands til þess að kveðja þig í hinsta
sinn. Nú get ég ekki hitt þig lengur í
sundlaugunum, sem þú varst dugleg-
ur að heimsækja. Nú kemur þú ekki
lengur í heimsókn þegar ég kem til
Íslands. Það verður skrýtið og tóm-
legt.
Þótt það sé svo sárt að missa þig afi
þá getum við verið svo glöð að hafa
fengið að hafa þig svo lengi hjá okkur.
Ég á svo margar góðar minningar um
þig. Þú áttir svo stórt pláss í hjarta
mínu afi. Þú varst svo sprækur og
ungur í anda og líkama. Að fá svona
fallegan dauðdaga er yndislegt.
Ég mun alltaf minnast þín með
þakklæti og gleði, söknuði og með
bros á vör, elsku afi Elías!
Þín sonardóttir,
Helga Elín.
Elsku afi, langafi. Nú hefur þú
kvatt þennan heim og þótt þú hafir
verið 96 ára fannst manni að þinn tími
væri ekki kominn. Þú varst ennþá svo
rosalega hress, alltaf á þeytingi. Þú
komst oft til mömmu og pabba í mat
og þar hittum við þig reglulega. Þú
sást alveg um þig sjálfur, komst keyr-
andi og fórst allra þinna ferða eins og
þú vildir, aldurinn var ekki vandamál
hjá þér.
Þótt það sé erfitt að kveðja þig veit
maður að þú ert ábyggilega ánægður
að fá að kveðja á þennan hátt, stoltur,
sjálfstæður og hraustur. Þú naust síð-
ustu klukkustundanna vel og engan
óraði fyrir að þetta væri þitt síðasta.
Að vera búinn að fara í morgungöng-
una þína og kominn á þrekhjólið þeg-
ar þú sagðir bless er lýsandi fyrir
orkuna og kraftinn sem fylgdi þér.
Nú ert þú kominn til þinnar heitt-
elskuðu Helgu sem þú elskaðir svo
mikið og Hannesar sonar þíns sem
lést fyrir aldur fram.
Við söknum þín öll og minnumst
þín með hlýju í hug og hjarta.
Berglind Sigurðardóttir
og fjölskylda.
Þá er komið að því að kveðja hann
Elías langafa. Okkur fannst öllum að
hann mundi bara alltaf vera með okk-
ur, þrátt fyrir sín 96 ár. Svo ótrúlegur
maður hann Elías afi, við vorum svo
stolt af honum. Við gátum endalaust
sagt sögur af honum og vildum óska
þess að allir hefðu þessa heilsu og
þetta lífsviðhorf sem hann hafði.
Hann munaði ekki um að koma keyr-
andi norður til Húsavíkur, meðan við
bjuggum þar, að samfagna með lang-
afabörnum sínum við fermingu eða
útskrift eða bara kíkja í heimsókn.
Aldrei lét hann sig vanta. Alltaf fund-
um við þessa hlýju og væntumþykju í
okkar garð. Ég man þegar ég kynnt-
ist honum fyrst, þá var Helga amma
enn á lífi. Þá var hann í stuttbuxum og
bol að horfa á fótbolta, þetta þótti mér
sérstakur klæðnaður hjá manni sem
var á áttræðisaldri. En Elías var
íþróttamaður og fyrir honum var
þetta eðlilegasti klæðnaður í heimi.
Svo hafa afkomendurnir nákvæmlega
sama háttinn á og klæða sig gjarnan á
þennan hátt. Þannig að sjaldan fellur
eplið langt frá eikinni.
Elías fylgdist með öllum íþróttum
og fór oft á völlinn og þá gjarnan með
syni og sonarsyni sínum sem fór oftar
með Elíasi afa á völlinn en vinum sín-
um. Stundum fannst nú Helgu ömmu
einum of og hafði þá á orði að það
væri ekki nóg með að Elías færi á
völlinn heldur yrði hann líka að horfa
á sama leikinn þegar heim væri kom-
ið, í sjónvarpinu!
Elías stundaði heilsurækt alla sína
tíð og fór á hverjum degi í sund. Hann
þótti góður dansmaður og er nú sakn-
að sem dansfélaga á Dalbraut. Elías
hafði sterkar skoðanir og var meira
að segja frekar róttækur á yngri ár-
um og þótti ekki heppilegasta eigin-
mannsefnið fyrir unga blómarós sem
komin var af miklu sjálfstæðisfólki.
Helga og Elías voru ólík en kunnu að
meta hvort annað og getum við sem
yngri erum lært margt af þeim. Með
þessum orðum þökkum við honum
samfylgdina. Blessuð sé minning
hans.
Elsa, Sveinbjörn
og börn.
Elsku langafi. Það er svo margt
sem ég vil segja og rifja upp með þér
en sterkasta minningin mín mun allt-
af vera hversu hress og kátur þú
varst.
Ég man alltaf eftir okkur sem svo
góðum vinum þegar við sátum úti á
svölum hjá ykkur langömmu í Hraun-
bænum að borða harðfiskinn sem þú
áttir alltaf. Þú varst alltaf svo stoltur
af mér, labbaðir um með mig í Hraun-
bænum og kynntir mig fyrir öllum
þar: „Elín, langafastelpan mín.“ Ég
verð að segja að dæmið hefur snúist
við, nú er það ég sem segi svo stolt frá
langafa mínum, sem keyrði um á gula
bílnum sínum og hafði alltaf nóg að
gera. Hversu ótrúlegt er það að geta
sagt frá langafa sínum, að hann hafi
farið í sund og leikfimi á hverjum degi
96 ára gamall.
Elsku afi minn, ég mun sakna þín
sárt og erfitt að hugsa til þess að nú
mun enginn leiðrétta mig þegar ég
segi hæ en ekki halló eins og þú sagð-
ir alltaf, hvernig þú laumaðir alltaf til
okkar krakkanna peningum. Þú varst
alltaf svo blíður og góður elsku
langafi. Takk fyrir allar skemmtilegu
stundirnar sem við áttum saman.
Hvíldu í friði.
Þin langafastelpa
Elín Jónsdóttir.
Fallinn er nú frá öðlingsmaðurinn
Elías Valgeirsson á nítugasta og sjö-
unda ári, sem við fjölskyldan vorum
svo lánsöm að fá að vera til samfylgd-
ar við, um nokkurt skeið í lífinu.
Elías var föðurbróðir minn, báðir
voru þeir fæddir bræðurnir að Kjal-
veg í Neshreppi utan Ennis á Snæ-
fellsnesi.
Ég kom til Ólafsvíkur 1960 hafði þá
ráðið mig á vertíð og bjó þá hjá þeim
hjónum Helgu og Elíasi, hann var þá
rafveitustjóri við rafveitu Ólafsvíkur.
Þar leið mér vel og þau reyndust mér
sem bestu foreldrar, umhyggjusöm
og skemmtileg.
Elli, eins og hann var kallaður, var
dugnaðarforkur og lét sér ekki allt
fyrir brjósti brenna. Það var mikið
verk að byggja upp rafveitu á svona
afskekktu svæði eins og Ólafsvík var
á þessum tíma og því í mörg horn að
líta.
Starfið fólst í því að vera á vakt all-
an sólarhringinn, sökum þess að mik-
ið var um að rafmagnið rofnaði við svo
frumstæð skilyrði því bæði var vél-
búnaður og aðstaða bágborin.
Þá varð að drífa sig af stað og
redda málunum og finna hvar bilun
hafði orðið, sem gjarnan var uppi á
fjalli eða suður í sveit og oftast í vond-
um veðrum, og það gerði Elli með sín-
um mönnum. Annað sem mig langar
að minnast varðandi starfið var inn-
heimtan! Ganga þurfti í öll hús og lesa
á mælana. Það var yfir stórt svæði að
fara, allt útnesið og út fyrir Enni, en
til þess þurfti að sæta sjávarföllum
sökum vegleysu!
Elli var mjög félagslyndur og geð-
góður maður og lét sig allt varða,
bæði menn og málefni, enda mjög vin-
sæll og hrókur alls fagnaðar, hvar
sem hann kom.
Hann var um skeið formaður Leik-
félags Ólafsvíkur og var Helga konan
hans einnig í stjórn á sama tíma, und-
ir þeirra stjórn voru sett upp mörg
metnaðarfull verk, sambærileg við
þau sem verið var að setja upp á fjöl-
um Þjóðleikhússins. Má þar nefna
Mann og konu og Ævintýri á göngu-
för.
Elli söng líka í kirkjukór Ólafsvík-
ur um margra ára skeið. Hann var
mikill áhugamaður um íþróttir enda
spilaði hann fótbolta með K.R. á sín-
um yngri árum og er mér það minn-
isstætt þegar KR-ingar urðu Íslands-
meistarar í knattspyrnu eftir tæpl. 30
ára bið, hvað hann varð glaður. Eins
mætti nefna að Elli var góður sund-
maður og keppti í sundi út í Engey
hér áður fyrr.
Eftir að þau hjónin fluttu suður
komu þau gjarnan í heimsókn, enda
bar Elli alltaf sterkar tilfinningar
vestur.
Það voru gæðastundir sem við nut-
um í botn, og þá var spjallað um nútíð
og ekki síst fortíðina, sem gerði mér
svo gott þar sem ég fékk m.a. að
heyra um móður mína blessaða, sem
ég missti mjög ungur.
Við minnumst þeirra Elíasar og
Helgu með miklu þakklæti.
Ég þakka innilega fyrir að hafa
fengið að njóta samvista við svo gott
fólk. Guð blessi minningu þeirra.
Fjölskyldu Elíasar vottum við okk-
ar dýpstu samúð.
Gunnar
og Ester.
Elli er farinn úr þessu lífi, en minn-
ingin um hann mun lifa. Þrátt fyrir að
hann væri orðinn 96 ára þá hvarflaði
ekki að manni sú hugsun að hann færi
að kveðja. Allt hans viðmót fram á
síðasta dag var líkt og hann væri ára-
tugum yngri, hress og kátur í viðmóti
og félagslyndur. Hann starfaði um
langt árabil hjá RARIK, m.a. sem raf-
veitustjóri í Ólafsvík. Skömmu áður
en hann fór á eftirlaun var stofnaður
kór hjá fyrirtækinu og að sjálfsögðu
var Elli meðal stofnfélaga, enda tón-
elskur með afbrigðum.
Margir minnast hans úr ferðalög-
um með kórnum fyrir uppátæki sín,
alltaf iðinn við að koma öllum í gott
skap. Þrátt fyrir háan aldur og starfs-
lok fyrir aldarfjórðungi hélt Elli alltaf
tryggð við RARIK og mætti á árshá-
tíðir og flestar aðrar samkomur fram
til hins síðasta. Við kveðjum Ella með
söknuði og hlýju og vottum aðstand-
endum samúð okkar.
Kórfélagar og
samstarfsfólk hjá RARIK.
Hann Elías Valgeirsson er allur.
Hann mætir ekki aftur í heitu pottana
og útiskýlið. Hann hefur lokið sund-
inu. Hann er endanlega farinn upp úr
og er hættur, enda kominn í endahöfn
á slóðum þess mögulega á mannlegu
æviskeiði – 96 ára gamall. Söngrödd
Elíasar er þar með líka þögnuð og
þorrablót pottorma hafa misst sína
bestu rödd. Á slíkum tímamótum er
ekkert annað tilhlýðilegt en að rísa úr
sætum og bugta sig.
Elías Valgeirsson fæddist á utan-
verðu Snæfellsnesi árið 1912. Eftir
dvöl á Eskifirði um tíma fluttist hann
ungur til Reykjavíkur þar sem hann
eyddi bernsku- og unglingsárum sín-
um. Elías missti ungur föður sinn og
setti föðurmissirinn varanlegt mark á
unga manninn og reyndar fjölskyld-
una alla, sem barðist föðurlaus áfram
við kröpp kjör. Elías tók snemma þátt
í íþróttum. Hann stundaði sjósund við
Örfirisey, í Vatnagörðum og Naut-
hólsvík. Fyrstu sigurverðlaun sín í
sundi hlaut Elías í sundkeppni við Ör-
firisey. Þar voru 50 og 100 metra
keppnisbrautir merktar við bryggju
með staurum.
Á unglingsárunum hófst dagurinn
gjarnan með verkamannavinnu. Að
henni lokinni var hjólað út í Örfirisey
og farið í sjósund og æft fram að lok-
un kl. 19. Þá var hjólað heim til að fá
eitthvað í gogginn hjá mömmu áður
en farið var út á „Völl“ til að spila fót-
bolta fram að háttatíma. Þannig mót-
aðist Elías ungur. Byggði upp styrk
og seiglu sem entist í 96 ár. Elías hóf
nám í járnsmíði 1928. Hann sneri sér
að rafvirkjun síðar og lauk því námi
1933. Árið 1951 lauk Elías viðbótar-
prófi úr Vélskólanum og varð þannig
fær um að stjórna uppbyggingu raf-
línukerfa í dreifbýlinu. Elías varð
einn af frumkvöðlum rafvæðingar í
landinu og sá það til dæmis með eigin
augum þegar kona nokkur missti
agndofa fangfylli af eggjum í gólfið,
þegar kviknaði í fyrsta skipti á ljósa-
peru innanhúss.
Elías settist í helgan stein árið 1982
eftir glæsilegan starfsferil og átti því
að baki heil 26 ár sem ellilífeyrisþegi,
þegar kallið kom. Elías skilur eftir sig
þrjú uppkomin börn en ekkill varð
hann fyrir allmörgum árum. Sá sem
þetta skrifar á minningar um Elías
sem heimilislæknir hans til margra
ára en einnig sem félagi hans í hópi
pottorma í Laugardalslauginni. Svo
mikilvægur var Elías félagi pottorma
að hann var kosinn heiðursfélagi á
þorrablóti árið 2002. Eftirlifandi pott-
ormar minnast Elíasar með hlýju og
sakna vinar í stað. Tenórrödd Elíasar
mun ekki hljóma aftur á samkomum
pottorma, en góð minning um róttæk-
an og stoltan höfðingja og góðan fé-
laga mun fylgja pottormum um
ókomin ár. Pottormar bugta sig í dag
og þakka Elíasi liðnar samverustund-
ir.
Gunnar Ingi
Gunnarsson.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 37
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
ÞRÁINN SIGTRYGGSSON
skipstjóri og útgerðarmaður,
Grundarbraut 26,
Ólafsvík,
sem andaðist föstudaginn 7. mars. verður jarð-
sunginn frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn
15. mars kl. 14.00.
Sætaferðir verða frá umferðarmiðstöðinni (BSÍ) kl. 10.30.
Guðbjörg Elín Sveinsdóttir,
Egill Þráinsson, Hrefna Guðbjörnsdóttir,
Pálína Þráinsdóttir, Ingvar Sigurðsson,
Bryndís Þráinsdóttir, Valur Magnússon,
Sigurbjörg Þráinsdóttir, Þröstur Kristófersson,
Björk Þráinsdóttir, Lárus Einarsson,
Berglind Þráinsdóttir, Heimir Maríuson,
Sigtryggur Þráinsson, Margrét Helgadóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON,
Vesturvegi 4,
Vestmannaeyjum,
sem lést laugardaginn 1. mars, verður jarðsunginn
frá Landakirkju laugardaginn 15. mars kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim
sem vilja minnast hans er bent á Kvenfélagið Líkn,
Vestmannaeyjum.
Brynja Friðþórsdóttir,
Kolbrún Þorsteinsdóttir, Sverrir Gunnlaugsson,
Kristín Þorsteinsdóttir, Óskar Árnason,
Eiríkur Þorsteinsson, Karen Sigurgeirsdóttir,
Gunnar Þorsteinsson, Erna Ottósdóttir,
afa- og langafabörn.
Lokað
Z-brautir og gluggatjöld, Laura Ashley verður lokað í dag frá
kl. 14.00 vegna útfarar ELÍASAR VALGEIRSSONAR.
Z-brautir og gluggatjöld,
Laura Ashley.
✝
Elsku eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, bróðir,
afi og langafi,
BJÖRN ELÍAS INGIMARSSON
skipstjóri og útgerðarmaður,
Bakkavegi 13,
Hnífsdal,
verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn
15. mars kl. 11.00.
Theodóra Kristjánsdóttir,
Halldóra Elíasdóttir, Guðmundur Thoroddsen,
Sigríður Inga Elíasdóttir, Svavar Geir Ævarsson,
Finnbjörn Elíasson, Gyða Björg Jónsdóttir,
Guðmunda K. Elíasdóttir, Friðrik Ó. Friðriksson,
Margrét Ingimarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
VILBORG JÓNSDÓTTIR
frá Hrísum,
Norðurbraut 13,
Hvammstanga,
verður jarðsungin frá Hvammstangakirkju laugar-
daginn 15. mars kl. 14.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag
Íslands.
Magnús Helgi Sveinbjörnsson,
Friðbjörg Dröfn Magnúsdóttir, Birgir Jónsson,
Jón Heiðar Magnússon, Ása Kristín Knútsdóttir,
Kristín Magnúsdóttir, Hilmar Hjartarson,
Guðrún Birna Magnúsdóttir, Ómar Jónsson,
Sveinbjörn Ævar Magnússon, Ólína Kristín Austfjörð,
Aðalheiður Lilja Magnúsdóttir, Júlíus Bjarki Líndal
og barnabörn.