Morgunblaðið - 14.03.2008, Blaðsíða 50
Hvað heitir Gillzeneg-
ger réttu nafn? 55 »
reykjavíkreykjavík
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
BÓNUSVÍDEÓLEIGURNAR eru
að skipta um ham. Í stað fjölda
rekka með DVD- og VHS-hylkjum
verða tölvuskjáir. Viðskiptavinir
munu geta skoðað alla titla sem í
boði eru hjá Bónusvídeói á þessum
skjám og brátt á Netinu einnig.
Vefsíða Bónusvídeó opnar um
mánaðmótin mars/apríl, www.bo-
nusvideo.is. Þar munu menn geta
valið sér myndir og pantað. Reyndar
þarf enn að gera sér ferð út á leigu
til að sækja myndirnar.
Bjarki Pétursson, framkvæmda-
stjóri Bónusvídeós, segir þessa
breytingu eðlilega þróun. Í stað þess
að nota nánast allt gólfpláss leig-
anna undir hylkin sé það nú notað
undir söluvarning, t.d. sælgæti.
Diskarnir taka enda lítið pláss þegar
þeir eru komnir í plast bakvið af-
greiðsluborð.
6.000 titlar
Bjarki segir þó nokkurn undir-
búning liggja að baki breytingunni.
,,Við höfum verið núna í átta mánuði
að búa til hugbúnað með auglýs-
ingastofunni Vatíkaninu,“ segir
hann.
Í nýja kerfinu verður hægt að
leita að myndum eftir flokkum, leik-
urum, komast að því í hvaða leigu
eða leigum myndin er fáanleg og
panta hana, svo eitthvað sé nefnt.
Sex þúsund titlar eru á skrá þannig
að úrvalið ætti að vera ágætt.
Bjarki segir tvær eða þrjár vikur í
vígslu nýju vefsíðunnar. Hægt verð-
ur að sjá allar myndir leiganna, hvar
þær eru inni, hægt að panta þær,
horfa á kynningar á myndum, vænt-
anlegar myndir o.fl. „Ef þú býrð úti
á landi þá sendum við þér myndina
en ef þú býrð í Reykjavík geturðu
skotist út á næstu leigu og sótt
hana,“ segir Bjarki um þjónustuna.
Verðið breytist ekki við tölvuvæð-
inguna, nýjar myndir á 650 krónur.
,,Þú færð eina nýja mynd í einn dag
og tvær eldri með í tvo daga, þrjár
myndir fyrir 650 krónur,“ segir
Bjarki. Leigur Bónusvídeós eru 21,
langflestar á Reykjavíkursvæðinu.
Bónusvídeó tölvuvætt
Morgunblaðið/Golli
Tölvuvæðing í Árbænum Einn af skjám Bónusvídeós í Hraunbæ. Sú leiga
er fullkláruð, allt orðið tölvuvætt og hvergi hylki að sjá.
Hægt verður að skoða alla titla á Netinu innan skamms
Tónleikar þar
sem meistaraverk
Bítlanna, Sgt.
Pepper’s Lonely
Hearts Club Band
verður flutt í
heild sinni, hafa
verið færðir í Háskólabíó. Upp-
haflega stóð til að halda tónleikana
í Laugardalshöll, en ekki tókst að
selja eins marga miða í forsölu og
reiknað hafði verið með og því var
brugðið á það ráð að færa tón-
leikana í Háskólabíó. Án þess að
menn vilji lesa of mikið í miðasöl-
una þykir ljóst að ekki sé það skort-
ur á vinsældum Bítlanna sem liggur
að baki dræmri miðasölu, en hvað
þá? Þá má einnig velta því fyrir sér
að ef Bítlarnir trekkja ekki að
hvernig skyldi miðasalan ganga á
Eagles heiðrunartónleikana í næstu
viku? Þar kostar miðinn litlar 5.900
krónur.
Íslendingar fúlsa við
meistaraverki
Hljómsveitin múm kom fram á
Mosaic-tónlistarhátíðinni í Singa-
púr í gærkvöldi og lék í Esplanade-
tónlistarhúsinu sem tekur um 1.600
manns í sæti. Hópnum hefur verið
vel tekið í Singapúr og vöktu tón-
leikarnir töluverða athygli en til
marks um það var sveitinni m.a.
boðið að koma fram í þættinum
Singapúr í bítið á Channel News
Asia. Að lokinni heimsókn sveit-
arinnar til Singapúr heldur múm
tónleikarferðalaginu áfram til
Ástralíu og kemur þar fram á fimm
tónleikum á fimm dögum, en í kjöl-
farið á því verður gert mánaðarhlé
á tónleikaferðum sveitarinnar sem
hafa staðið með hléum undanfarna
mánuði. Þá má geta þess í lokin að
Örvar Þóreyjarson Smárason og
Gunnar Tynes komu fram á loka-
hófi kvikmyndahátíðarinnar í Ist-
anbúl sem plötusnúðar.
Singapúr í bítið
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
SÍMINN hringir, blaðamaður svarar: „Helgi“.
„Ég er Juan,“ er svarað á móti, suðrænni og
seiðandi röddu. Kólumbíumaðurinn Juan Ca-
milo Román Estrada er á línunni, sá hinn sami
og leikur spænska þjóninn Manolo í leikriti
Guðmundar Steinssonar, Sólarferð, þjóninn
sem dregur hina harðgiftu Nínu á tálar. Juan
er hins vegar kvæntur íslenskri konu, býr og
starfar hér á landi og er alls enginn flagari.
Juan lagði stund á sálfræði við háskólann í
Antioquia í heimalandi sínu og fékkst þar einn-
ig við leiklist, kennslu og dans. Þá ferðaðist
hann einnig um margra mánaða skeið meðfram
strönd Kyrrahafsins, frá Kólumbíu til Chile.
Blaðamaður þykist kunna hrafl í spænsku og
ákveður í samráði við Juan að taka viðtalið á
því ágæta tungumáli, með því skilyrði að við-
mælandinn mæli sem allra hægast. Þjóðleik-
húsið auglýsti eftir spænskumælandi leikara í
hlutverk Manolos í Morgunblaðinu í fyrra og
ákvað Juan að slá til, mætti í leikprufu og
hreppti hluverkið. Hann lagðist þó ekki í rann-
sóknarvinnu fyrir hlutverk hins munúðarfulla
og síbrosandi Manolo.
– Hvernig finnst þér leikritið, Sólarferð?
„Mér líkar það mjög vel af því það er eins og
spegill á öfgakenndar aðstæður. Þá á ég við að
í hvert sinn sem við ferðumst, förum á stað
sem er ólíkur okkar heimaslóðum, þá komumst
við í kynni við eitthvað nýtt, opnum okkur fyr-
ir því og uppgötvum um leið nýjar hliðar á
okkur.“
Báðir lífsglaðir
– Sumir virðast hins vegar ekki læra neitt
nýtt, hvorki um sjálfa sig né annað og virðast
ekki vilja breyta eigin venjum, ekki satt?
„Jú, en samt sem áður held ég að við höfum
öll þörf fyrir að komast í annað andrúmsloft og
umhverfi, til að átta okkur á því hvort við
séum á réttri leið. Sumir breyta sínum háttum
og venjum, aðrir ekki.“
– Áttu eitthvað sameiginlegt með Manolo?
„Ég held að við eigum gleðina sameiginlega,
brosið, löngunina í að lifa lífinu fyrir augna-
blikið,“ svarar Juan. Manolo sé hins vegar ung-
ur og vilji njóta lífsins án nokkurrar ábyrgðar.
Juan segist kunna vel við Ísland, vilji gjarn-
an búa hér í nokkur ár með íslenskri fjölskyldu
sinni. Hann langi þó að snúa aftur til Kólumbíu
einn daginn. Nú sé hann hins vegar að læra ís-
lensku og það nám gangi mjög vel. Juan gefur
dæmi á íslensku: „Ég er að læra, smátt og
smátt.“ Spurður að því hvort til greina komi að
hann kenni íslenskum karlmönnum að táldraga
konur svarar Juan því til að menn verði bara
að skella sér á Sólarferð og læra af Manolo.
Funheitur flagari
Juan Camilo Román Estrada leikur sídaðrandi, spænskan þjón í Sólarferð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Brosmildur Juan Camilo er lífsglaður leikari og hefur hlotið mikið lof fyrir frammistöðu sína í leikritinu Sólarferð í Þjóðleikhúsinu.