Morgunblaðið - 14.03.2008, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 14.03.2008, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. MARS 2008 53 Lýstu eigin útliti Ljóshærð og skegglaus Hvaðan ertu? Reykjavík Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? (spyr síðasti aðals- maður, Ása Hauksdóttir, deild- arstjóri menningarmála hjá Hinu húsinu). Sashimi úr úrvals hráefni klikkar aldrei, ostar og möndlugrauturinn hennar mömmu á aðfangadagskvöld. Ertu í einhverjum samtökum? Ég er meðlimur í hinum virta TT-klúbb. Hvað ætlaðirðu að verða þeg- ar þú yrðir stór? Dýralæknir. Hvaða bók lastu síðast? Er að klára Blandað í svartan dauðann eftir Steinar Sig- urjónsson. Hvaða tónlist hlustarðu á þessa dagana? Grieg og Madeleine Peyroux eru í græjunum núna. Uppáhaldstónlistarmaður/ hljómsveit? Leonard Cohen, Pink Floyd, Maria Callas og Abba eru í miklu uppáhaldi. Áttu þér uppáhaldskvikmynd? Í dag er það Heiðin. Helstu áhugamál? Leikhús, ferðalög, tónlist, dans, matur og skemmtilegt og gott fólk. Eftirlætislið í ensku knattspyrn- unni? Huddersfield. Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálfa þig? Ég luma á ýmsu. Draumahlutverkið? Gunnar á Hlíðarenda Hver er þinn eftirlætisstaður á Vestfjörðum? Suðureyri við Súgandafjörð Hefurðu lesið Biblíuna? Aldrei í einum rykk. Hvernig manneskja er Rósa? Hún er á sínum stað og fylgist vel með sínu nánasta umhverfi Hvers viltu spyrja næsta viðmæl- anda? Hvernig er kærleikurinn á litinn? BIRNA HAFSTEIN AÐALSKONA VIKUNNAR ER ENN TILTÖLULEGA ÓÞEKKT LEIKKONA HÉR Á LANDI EN GERA MÁ RÁÐ FYRIR AÐ ÞAÐ ÁSTAND VARI EKKI MIKIÐ LENGUR. HÚN LEIKUR RÓSU Í KVIKMYNDINNI HEIÐINNI SEM FRUMSÝND ER Í KVÖLD Hetja Aðalskonu vikunnar dreymir um að leika Gunnar á Hlíðarenda áður en langt um líður. Morgunblaðið/Frikki Þjóðleikhúsið Á öllum sviðum lífsins Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga. Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is Ívanov e. Anton Tsjekhov sýn. sun 16/3 örfá sæti laus Baðstofan e. Hugleik Dagsson sýn. fös. 14/3, lau 15/3 Vígaguðinn e. Yasminu Reza sýn. lau. 15/3 örfá sæti laus Sólarferð e. Guðmund Steinsson sýn. fös. 14/3 uppselt, lau 15/3 örfá sæti laus „Í Baðstofunni leiða sex atvinnuleikarar og þrír tónlistarmenn okkur í gegnum róttæka endurskoðun á daglegu lífi á öldum áður … Þetta er sagan sem sögubækur segja okkur ekki...“ MR, MBL, 12/2 „Eitursnjallt leikrit”. Gerður Kristný, Mannamál/Stöð 2 Sýning sem fær þig til að hugsa - og hlæja! Allra síðasta sýning 16. mars ■ Á morgun kl. 17.00 Kristallinn – kammertónleikaröð í Þjóðmenningarhúsinu Eilífðartónar stríðsfangans Kvartett fyrir endalok tímans eitt áhrifaríkasta snilldarverk tuttug- ustu aldarinnar. Olivier Messiaen samdi þennan óð til eilífðarinnar í stríðsfangabúðum nasista og verðskuldaðar vinsældir þess hafa haldist alla tíð síðan. ■ Lau. 29. mars kl. 14.00 Maxímús Músíkús – Tónsprótatónleikar Músin Maxímús Músíkus villist inn á æfingu og tónleika hljóm- sveitarinnar. Tónleikar í tilefni af útkomu samnefndrar barnabókar Hallfríðar Ólafsdóttur flautuleikara með myndum eftir Þórarin Má aldursson víóluleikara. ■ Fim. 3. apríl kl. 19.30 Einstakur gestur Robert Levin er einhver merkasti tónlistarhugsuður okkar tíma. Hann leikur píanókonsert nr. 3 eftir Beethoven og spinnur sínar eigin kadensur.Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is Föstudagur <til fjár> Laugardalshöll Sálin hans Jóns míns Players Eurobandið Organ DJ KGB Hressó Dalton / DJ Maggi NASA Sálarpartí Sólon DJ Rikki G Vegamót DJ Símon Café Oliver PS Daði Laugardagur <til lukku> Gaukur á Stöng DJ Premier NASA DJ Páll Óskar Organ DJ Maggi Lego Café Oliver DJ Kvikindi & Co. Players Dalton Hressó Alexander og Örvar / DJ Bjarni Vegamót PS Daði Sólon DJ Rikki G ÞETTA HELST UM HELGINA » DJ Premier Heldur tónleika á Gauknum annað kvöld. Páll Óskar Þeytir skífum á NASA annað kvöld. Morgunblaðið/Ómar KEVIN Federline á að baki skraut- legan starfsferil sem dansari, rapp- ari og svo hafði hann það að at- vinnu á tímabili að vera giftur Britn- ey Spears. Nú er hann á milli starfa, en verður það kannski ekki mikið lengur, því honum hefur verið boðið hlutverk í söng- leiknum Legally Blonde, sem byggð- ur er á samnefndri kvikmynd. Reynd- ar mun hann fara með þrjár mismunandi rullur í leikverkinu ef af verður. Vinur hans sagði Federline mjög áhugasaman um starfið í viðtali við Us Weekly. „Þetta er tækifæri til þess að sýna öllum heiminum hvað í honum býr.“ Þetta verður þó ekki í fyrsta sinn sem Federline sýnir leik- listarhæfileika sína, því hann hefur farið með aukahlutverk í þáttaröð- unum CSI og One Tree Hill. „Þetta hefur verið draumur hans lengi og nú þegar hann er með fullt forræði yfir börnunum þá vill hann taka þau með sér til New York. Fyrr- verandi tengdaforeldrar hans hafa heitið því að styðja hann og hjálpa honum að láta drauminn rætast.“ Federline í söngleik Kevin Federline

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.