Morgunblaðið - 20.03.2008, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MARS 2008 51
ROKKSVEITIN Mínus hefur í dag
tónleikaferð sína um Bretland,
heldur sjö tónleika og lýkur túrnum
28. mars. Nýjasta plata sveit-
arinnar, The Great Northern
Whalekill, kom út í Bretlandi og
Evrópu 3. mars en platan er sú
fjórða sem sveitin sendir frá sér. Að
ferðalaginu loknu snúa Mínus-
menn aftur til landsins og halda
tónleika á Organ 4. apríl.
Aftur verður svo haldið í tón-
leikaferð um Evrópu í maí og júní
og komið við á öllum helstu tónlist-
arhátíðum í Evrópu í sumar, eins og
segir í tilkynningu.
The Great Northern Whalekill
var tekin upp í Los Angeles og sáu
Joe Barresi og S. Husky Höskulds
um upptökur og hljóðblöndun. Mín-
us ætlar að taka úrval laga af öllum
plötum sínum á Organ og því mikil
veisla fyrir aðdáendur sveitarinnar
í vændum. Hljómsveitirnar Skátar
og Celestine hita upp fyrir Mínus
og Frosti Gringo þeytir skífum að
loknum tónleikum.
Forsala á tónleika Mínuss á Org-
an hefst á þriðjudaginn, 25. mars,
kl. 10 á midi.is og afgreiðslustöðum
mida.is. Verð í forsölu er 1.200 kr.
og 1.500 kr. við hurð.
Engar sýningar eru á Jesus
Christ Superstar yfir páskana, en
sem kunnugt er fer Krummi með
hlutverk frelsarans. Það þarf því
enginn að hlaupa í skarðið fyrir
Krumma og syngja hlutverk Jesú
yfir páskahelgina.
Krummi Söngvari Mínuss er þekkt-
ur fyrir líflega sviðsframkomu.
Mínus á
ferð um
Bretland
Fyrir rúmum sextán árum sendi írskapopphljómsveitin U2 frá sér sína sjö-undu hljóðversplötu, Achtung Baby.
Platan er af mörgum talin besta breiðskífa
sveitarinnar og sem dæmi má nefna að
bandaríska tónlistartímaritið Rolling Stone
setti plötuna í 62. sæti yfir bestu plötur allra
tíma á lista sem það birti árið 2003. Skal eng-
an undra því þarna var mikið meistaraverk á
ferðinni, verk sem þeim sjálfum hefur ekki
enn tekist að toppa.
Nokkrum mánuðum eftir að platan komút, eða í mars árið 1992, kom út smá-
skífa með einu sterkasta lagi plötunnar, lag-
inu „One“ sem Bono samdi ógleymanlegan
texta við. Lagið nýtur ekki síðri virðingar í
poppsögunni en platan, en „One“ var til dæm-
is í 36. sæti á lista Rolling Stone yfir bestu lög
allra tíma sem birtur var í tímaritinu árið
2004.
Löngu áður en liðsmenn U2 fæddust, eðaárið 1936, samdi Halldór Laxness kvæð-
ið Maístjörnuna fyrir 1. maí-blað Rauða fán-
ans sem ungir kommúnistar gáfu út á sínum
tíma. Maístjarnan nýtur ekki síðri virðingar
en lag U2, þótt með gjörólíkum hætti sé, en til
að mynda er kvæðið nánast orðið að „þjóð-
söng“ íslenskra barna.
Ástæða þess að þessi tvö kvæði eru nefndhér í sömu andrá er sú að í þeim eru
textabrot sem eru glettilega lík. Í „One“ segir
á einum stað: „You gave me nothing – Now
it’s all I’ve got,“ sem gæti útlagst „Þú gafst
mér ekkert – það er allt sem ég hef“. Þetta
minnir óneitanlega á þekkt brot úr Maístjörn-
unni sem hefur eflaust framkallað marga
gæsahúðina: „Þetta eitt sem þú gafst mér –
það er allt sem ég hef.“
Því verður auðvitað ekki haldið fram hérað Bono hafi lesið þýðingu á kvæði
skáldsins, og þannig fengið innblástur sem
varð kveikjan að textabrotinu í lagi hans. Það
er að minnsta kosti ákaflega ólíklegt. En það
er gaman að skoða hvernig þessir tveir texta-
höfundar hugsa texta sína með svipuðum
hætti, en þó þannig að merkingin verður ólík.
Popparinn Bono er svartsýnn og dapur, hann
fær ekkert og á því ekkert, á meðan „klass-
íska“ skáldið Laxness fær eitthvað eitt sem
nægir honum, því það er það dýrmætasta sem
hann á.
Þótt þeir Bono og Halldór Laxness séuhvor af sinni kynslóðinni, hvor frá sínu
landinu og úr ólíkum geirum menningar-
innar, lýsa þeir báðir sama ástandi manns-
andans í þessum textabrotum – eins konar
þrá eftir einhverju sem annar fær en hinn
ekki. Og hvorugur þeirra segir beinum orð-
um hvað þetta er sem þeir þrá, þótt margir
geti vafalaust lesið á milli línanna og getið
sér til um hvað það er.
Þannig er þetta lítið dæmi um það hvernigtveir listamenn geta túlkað svipaðar til-
finningar með nánast sama hætti – jafnvel
þótt himinn og haf skilji þá að.
Þetta eitt sem þú gafst mér
AF LISTUM
Jóhann Bjarni Kolbeinsson
Morgunblaðið/Jim Smart
Halldór Laxness og Bono Ólíkir listamenn sem tjá tilfinningar sínar með svipuðum hætti.
Reuters
» Í „One“ segir á einum stað:„You gave me nothing –
Now it’s all I’ve got,“ sem gæti
útlagst „Þú gafst mér ekkert –
það er allt sem ég hef“.
jbk@mbl.is