Morgunblaðið - 07.04.2008, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
S
kólaþríþraut Frjáls-
íþróttasambands Íslands
(FRÍ) var endurvakin á
skólaárinu 2006-2007 eft-
ir að hafa legið í láginni
árum saman. Að sögn Egils Eiðs-
sonar, framkvæmdastjóra FRÍ,
tóku 40 skólar og 1.200 krakkar úr
skólum víðs vegar á landinu þátt í
þríþrautinni á sl. ári. Allir skólar
hafa getað tekið þátt í þríþrautinni
frá 15. febrúar en 15. maí lýkur
skráningunni og úrslit fyrir þetta
skólaár ráðast í Laugardalnum 31.
maí. Keppt er í kúluvarpi, hástökki
og 400 metra hlaupi.
Þríþrautin fer þannig fram að í
íþróttatímum viðkomandi skóla eru
skráðar niðurstöður í keppni á milli
nemanna sem síðan eru settar í for-
rit á heimasíðu Frjálsíþrótta-
sambandsins, fri.is. Eftir 15. maí
verður tekið saman hverjir hafa
lent í 16 efstu sætum í hverjum ár-
gangi og af báðum kynjum. Nem-
endur í 6. og 7. bekk hafa þátt-
tökurétt og fjórir sigurvegarar,
tvær stelpur og tveir strákar, munu
taka þátt í Gautaborgarleikunum
sem fara fram um mánaðamótin
júní-júlí í sumar.
Frjálsíþróttakonurnar Silja Úlf-
arsdóttir (FH) og Helga Margrét
Þorsteinsdóttir (Ármanni) aðstoð-
uðu við skráninguna í Setbergs-
skóla um daginn, ásamt Íslands-
methafanum í sleggjukasti, Bergi
Inga Péturssyni, og Heiði Ósk
Eggertsdóttur (bæði í FH). Berg
Inga vantar einn metra upp á að ná
ólympíulágmarki og Heiður Ósk
æfir spretthlaup og langstökk. Hún
er í afrekshópi ungmenna hjá FRÍ.
Ólympíulágmark framundan
Í raun má segja að Silja og
Helga Margrét endurspegli nútíð-
ina og framtíðina því Silja stefnir á
Ólympíuleikana í Peking í sumar og
Helga Margrét þykir mjög efnileg.
Silja tók þátt og sigraði í
skólaþríþrautinni árin 1994 og 1995.
Hún hafði fram að því stundað
handbolta og fótbolta og kom henni
því þessi góði árangur nokkuð á
óvart. Sjálf segir hún að þarna hafi
komið í ljós að hún gæti hlaupið
hratt og eftir þetta skipti hún yfir
og fór að æfa frjálsar íþróttir með
þeim árangri að nú vantar hana
einungis 12/100 úr sekúndu til að
ná ólympíulágmarki og hún stefnir
ótrauð á það.
„Ég vissi ekki að þetta væri
keppni [úrslitin í Laugardalnum],
íþróttakennarinn minn hafði skráð
mig,“ segir Silja. „Ég mætti í hand-
boltastuttbuxum og fótboltabol og
endaði með að vinna,“ bætir hún
við og hlæjandi lýsir hún undrun
sinni og hversu gaman þetta hafi
verið. „Ég byrjaði á því að hætta í
fótbolta en hélt áfram í handbolta.
Svo náði ég bronsi á Norð-
urlandamóti og hélt þá að ég væri
orðin svona góð og ákvað að leggja
handboltann á hilluna og einbeita
mér að þessu.“ Silja hefur verið í
spretthlaupi og stefnir á að ná ól-
ympíulágmarkinu í 400 metra grind
sem allra fyrst. Hún er núna 26 ára
gömul.
Helga Margrét Þorsteinsdóttir,
17 ára menntaskólamær, er í
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Hún er frá Reykjum í Hrútafirði en
er flutt í bæinn. Skólaþríþrautin
var ekki í gangi á þeim tíma sem
hún var í grunnskóla og aðkoma
hennar að frjálsum því kannski
ekki eins og óvænt og hjá Silju.
Helga Margrét fer hálfpartinn hjá
sér þegar blaðamaður varpar því að
henni að hún sé sögð mjög efnileg.
„Jaa,“ segir hún og hlær. „Við skul-
um segja það!“
Helga Margrét keppir í sjöþraut,
öllum þessum stökkum, hlaupi og
köstum, eins og hún segir sjálf og
bætir við til útskýringar: „Kúla,
spjót, langstökk, hástökk, 200 m,
100 grind og áttahundruð.“ Hún
segir að hún vilji aðstoða við
skólaþríþrautina því frjálsíþrótt-
irnar séu íþrótt sem virki „… ekk-
ert rosalega spennandi utan frá“.
Frjálsíþróttir séu þannig að til að
fá krakka til að vera með þurfi
gjarnan að uppgötva þá. Ástæðan
sé að ungir krakkar halli sér gjarn-
an að boltaíþróttum en svolítið
þurfi að hafa fyrir því að finna
íþróttamennina sem hæfileikana
hafa í frjálsum. Skólaþríþrautin
snýst um að gefa krökkunum tæki-
færi til að finna sig í einhverri
íþróttagrein. „Þetta er líka svo
sniðugt fyrir sigurvegarana; að fá
að fara til Svíþjóðar á Gautaborg-
arleikana,“ segir Helga Margrét.
„Það er alveg rosalega skemmtilegt
mót. Þegar maður er búinn að
prófa það verður ekkert aftur snú-
ið.“
Ekkert skemmtilegra
en að uppskera
Helga Margrét segir að það sé
um að gera fyrir krakkana að halda
áfram þó að æfingar virki stundum
ekkert of skemmtilegar. „Maður
uppsker eins og maður sáir og mér
finnst það aðalmálið. Oft er það
þannig að maður er latur og nennir
ekki á æfingu, en þá er bara að
drífa sig. Fara á æfingu og gera
það sem til þarf. Það mun bera ár-
angur. Og það er ekkert skemmti-
legra en að uppskera, ekkert sem
jafnast á við það.“
Þær stöllur Silja og Helga Mar-
grét eru sammála um að skólaþrí-
þrautin sé mjög gott framtak og
gaman fyrir krakkana að prófa
þetta. „Við íþróttamenn viljum
hvetja alla íþróttakennara, alla
skóla og alla krakka til að taka þátt
í þríþrautinni,“ segir Silja og Helga
Margrét tekur undir það. „Og
krakkarnir eiga bara að ýta á
íþróttakennarana að taka þátt í
skráningunni. Og ef kennararnir
vilja hjálp er alltaf hægt að fá
íþróttamenn til að koma og hjálpa
til við að mæla,“ segir Silja hvetj-
andi.
sia@mbl.is
Skólaþríþraut kveikir
áhuga á frjálsum íþróttum
Morgunblaðið/Valdís Thor
Kúluvarp Vilmar Breki Jóhannsson kastar kúlunni og til aðstoðar er Bergur Ingi Pétursson, Íslandsmethafi í
sleggjukasti. Félagar Vilmars Breka bíða spenntir eftir að fá að reyna á sig í kúluvarpinu.
Framtíð og nútíð Afrekskonurnar Helga Margrét Þorsteinsdóttir og Silja
Úlfarsdóttir aðstoða við skráningu í skólaþríþraut grunnskólanna.
Efnilegur „Hann er mjög efnilegur,“ sagði Silja um Darra Tryggvason,
sem stökk hæst í hástökkinu. Einnig er keppt í kúluvarpi og 400 m hlaupi.
Skólaþríþraut á vegum
Frjálsíþróttasambands
Íslands er í fullum
gangi. Sigrún
Ásmundsdóttir fór í
íþróttatíma í Setbergs-
skóla í síðustu viku og
fylgdist með hressum
krökkum spreyta sig á
þrautunum.
STAÐAN á Íslandi gæti verið Skot-
um víti til varnaðar í baráttu þeirra
fyrir sjálfstæði frá Bretlandi. Þetta
kom fram í grein í blaðinu Sunday
Herald um helgina.
Þar er stöðu mála í íslenzku efna-
hagslífi lýst og bent á að landið sé
ríkt og efnahagurinn traustur og
byggist á endurnýjanlegum orku-
lindum, fiski, ferðamennsku og fjár-
málastofnunum. Engu að síður sé
landið of lítið til þess að geta varizt
atlögum mjög stórra aðila úti í heimi
á efnahaginn, meðal annars með því
að taka svokallaðar skortstöður. Ís-
lendingar hafi lifað of hátt í góðær-
inu og gjaldi þess nú.
Þá segir í greininni að efnahagur
Skotlands sé á vissan hátt líkur hin-
um íslenzka og byggist á svipuðum
grunni. Munurinn sé reyndar sá að
ekki ríki góðæri í Skotlandi eins og á
Íslandi áður en gengi krónunnar fór
að falla. Hins vegar megi búast við
góðæri samfara sjálfstæði og þá
verði að fara varlega. Annars sé
helsti lærdómurinn að draga af Ís-
lendingum sá að vera ekki of háðir
bönkunum.
Er Ísland
víti til
varnaðar?
Skotar íhuga sjálf-
stæði frá Bretlandi
STJÓRN Landssamtaka landeig-
enda á Íslandi telur nýjustu þjóð-
lendukröfur ríkisvaldsins, sem ný-
lega voru birtar vegna svæðisins
frá Fnjóská að Blöndu, ekki vera í
neinu samræmi við yfirlýsingar
Árna M. Mathiesen, fjármálaráð-
herra, á aðalfundi samtakanna fyrr
í vetur.
„Stjórnin fjallaði um málið fyrir
helgina og furðar sig yfir því að
ríkisvaldið skuli enn ætla sér að
vaða freklega inn á þinglýstar
landareignir sveitarfélaga og ein-
staklinga og hirða þær af lögmæt-
um eigendum sínum. Ætli Akur-
eyringar hafi til dæmis trúað því
að óreyndu að þeirra biði það
verkefni að verja sitt ágæta Hlíð-
arfjall gagnvart ásælni ríkisvalds-
ins, eins og nú er orðin raunin,“
segir meðal annars til tilkynningu
frá samtökunum.
Þá segir þar að fjármálaráð-
herra hafi gert eigin orð marklaus,
þegar hann sagði að ríkið myndi
nú fara að nokkru leyti hægar í
sakirnar en hingað til hefði verið
stefnt að.
Segja orð
ráðherra
marklaus
♦♦♦
♦♦♦
KVIKMYNDAHÚSIN hafa hækkað
verð aðgöngumiða eða eru að íhuga
hækkun. Talsmenn þeirra nefndu
15–18% launahækkun starfsfólks
sem helstu ástæðu hækkunar.
Björn Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Senu, sem rekur m.a. Smára-
bíó, Regnbogann, Borgarbíó Akur-
eyri og Háskólabíó, sagði að verð
bíómiða fullorðinna hjá þeim hafi
hækkað um 50 kr. og sé nú 950 kr. í
netsölu en 1.000 kr. í miðaafgreiðslu.
Alfreð Árnason, framkvæmda-
stjóri hjá Samfélaginu, sem m.a. rek-
ur Sambíó í Álfabakka og Kringlunni
í Reykjavík og Sambíó á Akureyri,
Selfossi og í Keflavík, sagði að þeir
hefðu hækkað verð ódýrustu miða
um 100 kr. og kostar nú fyrir yngstu
börnin 550 kr. og eldri börnin 650 kr.
Sparibíómiðar hækkuðu einnig í 650
kr. Sambíóin ætla að skoða nú í vik-
unni hækkun á miðum fullorðinna.
Verð bíómiða
að hækka