Morgunblaðið - 07.04.2008, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
ÁHUGI á hvers kyns gönguferðum
um Ísland hefur aukist mikið und-
anfarin ár og hratt hefur bókast í
ferðir Ferðafélagsins síðustu vikur.
Þetta segir Sigrún Valbergsdóttir,
varaforseti Ferðafélagsins. Færst
hefur í vöxt að fólk ferðist um há-
lendið allt árið.
Sigrún segir að mikill kippur
komi í bókanir hjá Ferðafélaginu í
apríl. „Þegar páskarnir eru liðnir
finnst fólki sólin hækka ört á lofti og
fær ferðafiðring. Þá kemur aftur
kippur í bókanirnar,“ segir Sigrún.
Sumar ferðir seljist fljótt upp. „Sem
dæmi má nefna að Haraldur Örn
Ólafsson ætlar með 100 manna hóp
á Hvannadalshnjúk um hvítasunn-
una og þar eru komnir sextíu manns
á biðlista,“ segir Sigrún.
Hún segir að það sé hlutverk
Ferðafélagsins að kynna allt landið
fyrir fólki og veita því möguleika á
að uppgötva nýjar slóðir. Þess
vegna sé þess gætt að bjóða reglu-
lega upp á nýjungar í ferðaáætl-
uninni. „Síðan eru leiðir sem eru
alltaf í boði, sem eru sígildar og fólk
vill gjarnan fara oftar en einu
sinni,“ segir Sigrún. Þar megi nefna
Laugavegsferðir, sem séu alltaf vin-
sælar. Hið sama gildi um ferðir á
Hornstrandir. „Nánast þriðjungur
allra ferða er á Vestfirði og Horn-
strandir.“
Afa- og ömmuferðir
Bryddað hafi verið upp á nýj-
ungum á vinsælum ferðaleiðum. Þar
megi nefna ömmu- og afaferðir.
„Þetta er ferð um Laugaveginn, þar
sem ömmur og afar eru hvött til að
ganga með barnabörnin,“ segir Sig-
rún og bætir við að þessar ferðir
henti börnum frá um það bil sex ára
aldri. „En börn hafa ótrúlega mikla
orku og þrek og sérstaklega þegar
fleiri börn eru með í ferð, en ferðin
er sniðin að þeirra þörfum.“
Meðal fleiri vinsælla ferða hjá
Ferðafélaginu eru svonefndar sögu-
ferðir, en Sigrún hefur m.a. verið
fararstjóri í slíkum ferðum. Fyrsta
sumarleyfisferð Ferðafélagsins
verður farin í fjóra daga um hvíta-
sunnuna, en þar verður gengið á
æsku- og örlagaslóðir Grettis Ás-
mundssonar. „Það hefur orðið al-
gjör sprengja í þessum ferðum, þær
seljast upp um leið og þær koma á
dagskrá. Það hefur aukist mjög
mikið áhugi á því að sögutengja
ferðir, að tengja ferðirnar við sér-
staka atburði, lifnaðarhætti eða
ákveðna kafla í sögu landsins. Það
eru til dæmis ferðir um byggðir og
búsetu á Hornströndum, sögu
stríðsminja og um sögu hvalveiða og
síldaráranna, sem víða er hægt að
sjá á Hornströndum.“
Sumar ferðannna á vegum félags-
ins eru þó á afar fáfarnar slóðir.
„Ég verð fararstjóri í ferð sem að-
eins örfáir Íslendingar hafa gengið,
ef frá eru taldir bændur og smala-
menn í uppsveitum Borgarfjarðar
og Húnavatnssýslu, en það er yfir
sunnan- og austanverða Arn-
arvatnsheiðina,“ nefnir Sigrún til
dæmis. Margir hafi farið slóða sem
hægt er að keyra yfir Arnarvatns-
heiði frá Norðlingafljóti og norður í
Arnarvatn. „En ferðin sem ég fer er
upp í Fljótsdrög og þaðan upp undir
Langjökul, upp í Jökulkrók. Þetta
er sex daga ferð sem farin verður
30. júlí,“ segir Sigrún. Núna í apríl
standi hins vegar til að bjóða upp á
fjallaskíðaferðir og fjallaskíða-
námskeið á Tröllaskaganum. „Nám-
skeiðin fara fram í Skíðadal, inn af
Svarfaðardal,“ segir Sigrún, en Jök-
ull Bergmann er fararstjóri og
kennari í ferðunum.
Félagar í Ferðafélaginu eru fleiri
en 7.000 talsins. Auk þess að vera
með starfsemi í Reykjavík eru
deildir á vegum þess á landsbyggð-
inni.
„Það eru mjög virkar deildir, t.d.
á Akureyri og fyrir austan hjá
Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs og
Fjarðamanna. Þar er boðið upp á
margar ferðir á þær slóðir sem eru
nær þeim heimamönnum.“
Skálavörður í Landmanna-
laugum yfir vetrartímann
Sigrún segir það hafa færst í vöxt
að fólk ferðist um hálendið allt árið
um kring. „Ferðaárið er orðið miklu
lengra en þessar átta björtu sum-
arvikur sem við eigum. Ferðamát-
inn er orðinn svo margvíslegur og
auðvelt að komast til fjalla með til-
komu allra fjallajeppanna,“ segir
hún.
Því hefur Ferðafélagið tekið upp
á þeirri nýbreytni að hafa starfandi
skálavörð í Landmannalaugum alla
vikuna yfir vetrartímann, en ekki
aðeins um helgar. Það er ekki van-
þörf á því. Fólk hefur gríðarlega
mikið verið á hálendinu í vetur,“
segir Sigrún. Nóg hafi verið að gera
hjá skálverðinum. „Það hefur verið
mikið bókað,“ segir Sigrún og bætir
við að allt að 60 manns hafi dvalist í
skálunum í vetur, þegar mest hefur
verið.
Hún segir það vera mikið örygg-
isatriði að hafa skálavörð í Land-
mannalaugum alla daga. Jafnframt
tryggi það góða umgengni á staðn-
um. „Þetta tryggir líka það að fólk
getur notið þess að vera í skála og
notið hvíldar og verið í öruggri um-
sjón skálavarðar.“
Skórnir nauðsynlegur grunnur
En þarf ekki heilmikinn búnað til
þess að geta stundað ferðalög eins
og Ferðafélagið býður upp á?
Sigrún segir að hið eina sem sé
alveg nauðsynlegt sé að eiga góða
skó. „Fólk þarf að byrja á skónum.
Þegar skórnir eru komnir er það
komið með grunninn að góðri
gönguferð. Ekki sakar að ganga
með stafi. Það veitir líkamanum
meiri alhliða þjálfun og hreyfingu,
en er samt ekki skilyrði. Annað get-
ur fólk tínt utan á sig, en fólk ætti
ekki að ganga í gallabuxum eða
bómullarbolum. Það er ekki gott,
því að svitna í bómull þýðir að hún
verður blaut og fólki getur orðið
kalt þegar stoppað er,“ segir hún.
Hún segir að fyrir allar lengri og
erfiðari ferðir á vegum félagsins séu
haldnir undirbúningsfundir. Það sé
mjög gagnlegt fyrir fólk að sækja
slíka fundi, sé það óvant gönguferð-
um. Hún segir alla geta gengið.
„Það er mín reynsla að fólk er miklu
öflugara en það heldur,“ segir hún.
Ferðafiðringurinn kominn
Ljósmynd/Gísli Már Gíslason
Páskaferð Um páskana fór hópur á vegum Ferðafélagsins til Hesteyrar í skíðaferð. Hér sést hópurinn skíða upp brekkurnar í átt að Dagmálaskarði.
Morgunblaðið/RAX
Áhugi Sigrún segir gönguáhuga landans hafi aukist mjög síðustu árin.
Kippur í bókanir hjá Ferðafélaginu eftir páska Meðal vinsælla ferða eru ömmu- og afaferðir og
ferðir á söguslóðir Fleiri ferðast allt árið og var skáli í Landmannalaugum opinn alla vikuna í vetur
FORNLEIFAUPPGRÖFTUR á Al-
þingisreitnum við Austurvöll hefur
verið boðinn út. Um er að ræða um
2.000 m2 svæði vestan við Alþingis-
húsið, sem ekki hefur þegar verið
kannað vegna bygginga. Meginhluti
svæðisins sem á að kanna er nú bíla-
stæði.
Grafa á eftir fornleifum í reit sem
afmarkast að austan af bílakjallara
Alþingis, sem nær til vesturs til móts
við miðja langhlið Skjaldbreiðar við
Kirkjustræti 8, að sunnan af Vonar-
stræti, að vestan af Tjarnargötu og
að norðan af Kirkjustræti. Forn-
leifagreftrinum á að vera að fullu
lokið 31. október næstkomandi.
Samkvæmt útboðslýsingu er mann-
vistar- og mannvirkjalagið sem á að
rannsaka um 1,2–1,5 m undir núver-
andi yfirborði. Þetta lag er áætlað
vera um eins metra þykkt. Því hefur
verið spillt að hluta, að því er fram
kemur í auglýsingu Ríkiskaupa.
Alþingi á einum stað
Eins og fram hefur komið er ætl-
unin að byggja yfir alla starfsemi Al-
þingis á Alþingisreitnum sem í heild
afmarkast af Kirkjustræti, Vonar-
stræti, Tjarnargötu og Templara-
sundi. Hugmyndin er m.a. að flytja
húsið Vonarstræti 12 á horn Tjarn-
argötu og Kirkjustrætis, gegnt Her-
kastalanum, að því er fram kemur í
verkefniskynningu Framkvæmda-
sýslu ríkisins. Bak við gömlu húsin
og meðfram Tjarnargötu og Vonar-
stræti er ætlunin að reisa 7.100 m2
nýbyggingu að flatarmáli. Tengja á
húsin á reitnum með 300 m2 glerbrú
á 2. hæð húsanna. Um leið verði
gerður 1.900 m2 bílakjallari sem
rúmi 75 bíla.
Miðað er við að þessar fram-
kvæmdir geri kleift að hafa alla
starfsemi Alþingis á Alþingisreitn-
um. Þá verður hægt að losa núver-
andi leiguhúsnæði þingsins við Aust-
urstræti og selja húseignina Þórs-
hamar við Templarasund.
Uppgröftur við
Alþingishúsið
Teikning/Framkvæmdasýsla
Alþingisreitur Stefnt er að því að öll starfsemi Alþingis rúmist á Alþingis-
reitnum þegar uppbyggingu þar verður lokið.