Morgunblaðið - 07.04.2008, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. APRÍL 2008 31
Krossgáta
Lárétt | 1 dyngja, 4
dæma, 7 steinn, 8 skrá, 9
pinni, 11 raddar, 13
dvöldust, 14 æviskeiðið,
15 verkfæri, 17 dútl, 20
elska, 22 loðskinns, 23
ljúkum, 24 híma, 25
lengdareining.
Lóðrétt | 1 tryggingafé, 2
mjúkum, 3 svelgurinn, 4
spilltan félagsskap, 5
hrúgan, 6 bardaganum,
10 hakan, 12 urmul, 13
sár, 15 lágfótan, 16 skart-
gripir, 18 snérum, 19
myrkur, 20 kvenfugl, 21
klæðleysi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 sjávardýr, 8 lækur, 9 kytra, 10 nýr, 11 turna, 13
afræð, 15 spors, 18 klára, 21 kol, 22 fatta, 23 Óttar, 24
sakamanns.
Lóðrétt: 2 jakar, 3 varna, 4 ríkra, 5 ýktur, 6 hlut, 7 gauð,
12 nær, 14 fól, 15 sófl, 16 ostra, 17 skaða, 18 klóra, 19 ást-
in, 20 aurs.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Til að fá allt það besta út úr sam-
bandi verður þú að kafa djúpt ofan í það.
Þú dregst að einhverjum dularfullum, en
hann er vel þess virði að skilja.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Hópvinna lætur ekki bara daginn
líða hraðar, hann verður líka skemmti-
legri. Svo jafnvel ef þú heldur að þú þurfir
ekki að spyrja, spurðu samt.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Athyglin sem þú veitir öðrum er
gjöf. Veldu viðtakanda sem kann að meta
hana. Í kvöld skálar þú fyrir einhverjum
sem þú lítur upp til. Hann mun seinna
skála fyrir þér.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Hefur einhver sömu skoðun og
þú? Þér er alveg sama. Þú ert samt
óhræddur við að segja þína skoðun. Haltu
áfram og fleiri komast á band með þér.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú leggur grunninn að vinskap og
hann reynist traustur. Hann er þó ekki
nóg til þess að þú getir lifað á honum ein-
um saman. Mundu það.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú getur ekki gefið þeim sem þú
elskar of mikið af tíma þínum. Fegurð
sambandsins felst í því að það verður
aldrei aftur eins og það er einmitt núna.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Í nokkrar dásamlegar stundir finnst
þér þú hafa öðlast stjórn á tímanum.
Mundu tilfinninguna þegar erillinn byrj-
ar. Það sem virðist áríðandi er kannski
alls ekki miklvægt.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú munt ekki beint njóta þín
í dag. Þú reynir þitt ýtrasta, mistekst og
reynir aftur. Lítið stuð í því. En þú ert að
gera það sem þarf til að slá í gegn.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú veist nákvæmlega hvernig
þú vilt hafa hlutina og allan heiminn. En
heimurinn veit ekkert um það, svo þú
verður að redda þessu. Taktu eitt fyrir í
einu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Einhver auðveldar þér að
fylgja duttlungum þínum. Ekki missa af
tækifærinu! Nú getur þú gert það sem
hefur þann eina tilgang að skemmta þér.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Vinnufélagar sem þú hefur
lengi unnið með halda þér á jörðinni. Og
þeir nýju setja smáfútt í hlutina. Reyndu
að umgangast alls konar fólk núna, líka
ókunnuga.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Stundum viltu að eftir þér sé tekið
og að á þig sé hlustað. Aðra daga viltu
frekar fela þig og horfa á aðra. Þú gerir
hvort tveggja í dag og nýtur mismun-
arins.
stjörnuspá
Holiday Mathis
1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 Bf5 4. c4 e6 5. Rc3
Rd7 6. Rge2 dxc4 7. Rg3 Bg6 8. Bxc4
Rb6 9. Bb3 Re7 10. Be3 Red5 11. Dd2
Be7 12. f4 h5 13. O–O–O a5 14. a3 Rxe3
15. Dxe3 Rd5 16. Rxd5 cxd5 17. Ba4+
Kf8 18. Bc2 Hc8 19. Hd2 Dc7 20. Df2
h4 21. Rf1
Staðan kom upp á Reykjavík-
urskákmótinu sem lauk fyrir skömmu.
Serbneski alþjóðlegi meistarinn Mio-
drag Perunovic (2440) hafði svart
gegn hinum unga indverska skák-
manni Sahaj Grover (2242). 21…
Bxa3! og hvítur gafst upp enda fátt til
varnar eftir 22. bxa3 Dc3.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.
Hugfanginn.
Norður
♠KD73
♥D3
♦K8
♣Á7653
Vestur Austur
♠98652 ♠G8
♥G102 ♥K7654
♦10976 ♦ÁDG4
♣2 ♣G8
Suður
♠Á4
♥Á98
♦532
♣KD1094
Suður spilar 5♣.
Austur vakti á 1♥ og suður kom inn
á 2♣. Norður hefði ef til vill átt að
þreifa eftir gröndunum þremur, en
hann taldi skiptinguna of mikla og
stökk beint í 5♣. Hvernig á að spila
með hjartagosa út?
Við borðið lét sagnhafi heillast af
♥98 og stakk upp drottningunni. Það
voru mistök, því vestur átti ♥10 og var
ekki í vandræðum með að nota þá inn-
komu til að þruma tígli í gegnum kóng-
inn: einn niður.
Réttu vinnubrögðin eru að láta
smátt hjarta úr blindum í fyrsta slag
og taka með ás. Eftir aftrompun er
hjarta hent í háspaða og fjórði spaðinn
trompaður. Síðan er austur sendur inn
á hjartakóng til að spila í tvöfalda eyðu
eða gefa ella slag á tígulkónginn í
borði.
Það væri mun auðveldara að rata
þessa leið ef sagnhafi ætti ♥Á32 heima.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 Frægur bandarískur lögmaður er hér á landi og segirstríðsátök kalla á nýjar reglur. Hver er lögmaðurinn?
2 Hverjir standa fyrir sölu á Rauðu fjöðrinni, en í árverður söfnunarfénu varið til verkefnisins „Leiðsögu-
hundar fyrir blinda og sjónskerta“?
3 Hvað heitir veitingastaðurinn sem var opnaður í síð-ustu viku á 19. hæð turnsins við Smáratorg í Kópa-
vogi?
4 Hvað heitir Íslendingurinn sem í liðinni viku var út-nefndur handboltaþjálfari ársins í Svíþjóð?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Nýtt skip íslensks útgerðarfyrirtækis hefur verið sjósett í Taív-
an. Hvert er útgerðarfyrirtækið? Svar: Ingimundur hf. 2. Selur hef-
ur gert sig heimakominn í höfninni í Grundarfirði. Af hvaða teg-
und? Svar: Hinganóri 3. Gamanleikur var frumsýndur í
Borgarleikhúsinu í gær. Hvað heitir hann? Svar: Gítarleikararnir.
4. Ný sjónvarpsþáttaröð í leikstjórn Silju Hauksdóttur verður tekin
til sýningar á Stöð 2 í haust. Hvað heitir þáttaröðin? Svar: Ríkið.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
FRÉTTIR
KVENNADEILD Reykjavík-
urdeildar Rauða Kross Íslands
hefur fært kvennasviði Landspít-
ala að gjöf nýjustu gerð fæðing-
arrúms með rafdrifnum stýr-
ingum. Með fjölgun fæðinga á
LSH er ljóst að aukin þörf er á
endurnýjun á fæðingarrúmum og
þessi gjöf kemur sér því mjög vel.
Kvennadeild Reykjavíkurdeildar
RKÍ hefur reyndar oftar en einu
sinni áður séð fæðingardeild
kvennasviðs á Landspítala fyrir
fæðingarrúmum og þannig reynst
henni traustur bakhjarl, segir í
fréttatilkynningu.
Góð gjöf Aukin þörf er á endurnýjun fæðingarrúma á Landspítalanum.
Fæðingarrúm frá
Rauða kross konum
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn er að
venju haldinn 7. apríl í aðildarríkjum
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar (WHO). Í tilefni af því verður
haldinn fundur í Norræna húsinu í
dag kl. 15–16.40.
Einkunnarorð dagsins í ár eru
Heilsuvernd á tímum loftslagsbreyt-
inga. Markmiðið er að beina athygl-
inni að áhrifum loftslagsbreytinga á
heilsufar í heiminum og búa aðild-
arríkin betur undir að mæta þeim
ógnunum sem þær kunna að hafa í för
með sér á komandi tímum.
Aðalforstjóri WHO, dr. Margaret
Chan, mælist til þess að alþjóða-
samfélagið láti heilsu fólks og velferð
ganga fyrir öðru í mótun stefnu sinn-
ar varðandi viðbrögð við loftslags-
breytingum. Jafnframt telur hún
mikilvægt að meiri kraftur verði sett-
ur í aðgerðir á sviði heilsuverndar í
samræmi við Þúsaldarmarkmið Sam-
einuðu þjóðanna. Með auknu sam-
starfi ættu ríkisstjórnir að geta búið
sig betur undir að fást við heilsufars-
vandamál sem tengjast loftslags-
breytingum staðbundið sem og á
heimsvísu. Dæmi um sameiginlegar
aðgerðir eru m.a. aukið eftirlit og
stjórnun sóttvarna og samþætting
aðgerða þegar lýðheilsu er ógnað.
Á þessari öld er því spáð að með-
alhiti á jörðinni geti hækkað um 1–
3,5°C vegna aukinna gróðurhúsa-
áhrifa. Þessi hitabreyting er mun
meiri en náttúrulegar breytingar sem
orðið hafa á loftslagi síðustu þúsund
árin. Þessar breytingar og ýmislegt
annað í umhverfinu munu áreið-
anlega hafa áhrif á heilsufar fólks
víða um heim. Spádómar varðandi Ís-
land gera ráð fyrir að áhrifin á heilsu-
far þjóðarinnar verði með minna
móti. Ýmislegt bendir þó til þess að
heilbrigðiskerfið verði að vera tilbúið
að mæta aukningu ákveðinna heilsu-
farsvandamála á komandi áratugum,
svo sem frjókornaofnæmi og öðrum
öndunarfærasjúkdómum.
Nánari upplýsingar um dagskrána
eru á heilbrigdisraduneyti.is
Heilsuvernd á tímum
loftslagsbreytinga