Morgunblaðið - 10.04.2008, Page 2
2 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
TUTTUGU manna ráðgjafarhópur
hefur verið myndaður vegna und-
irbúnings fyrir hönnunarsamkeppni
nýja háskólasjúkrahússins. Koma
þar saman sérfræðingar úr ýmsum
áttum. Hafa fjórir íslenskir sér-
fræðingar, sem starfa við sjúkrahús
í öðrum löndum, fallist á að taka
sæti í hópnum. Þeir eru Björn
Flygenring, hjartasérfræðingur á
Minneapolis Heart Institute í
Bandaríkjunum, Kristján Tómas
Ragnarsson, yfirlæknir endurhæf-
ingardeildar Mount Sinai-sjúkra-
hússins í New York, Birgir Jak-
obsson, barnalæknir og forstjóri
Karólínska háskólasjúkrahússins í
Stokkhólmi, og Hulda Gunnlaugs-
dóttir, hjúkrunarfræðingur og for-
stjóri Aker-háskólasjúkrahússins í
Ósló.
„Það er mikill fengur að því að fá
sjónarmið þessa fólks,“ segir Inga
Jóna Þórðardóttir, formaður nefnd-
ar um byggingu háskólasjúkrahúss-
ins. Hópurinn gengur undir nafninu
lokarýnihópur og hefur það mark-
mið að skoða með gagnrýnum hætti
gögnin sem lögð verða til grund-
vallar í hönnunarsamkeppninni og
gefa álit sitt og ábendingar, sem
verða hafðar til hliðsjónar þegar
gengið verður frá samkeppnislýs-
ingunni.
Vanda allan undirbúning
Byggingarnefndin sem Inga Jóna
veitir forstöðu hefur það verkefni
að skrifa samkeppnislýsingu fyrir
hönnunarútboðið sem á að fara í
gang í sumar, að sögn hennar. Mikil
undirbúningsvinna hefur staðið frá
2005 vegna þessa mikla mannvirkis
og er búið að vinna öll grunngögn
inn í þá samkeppnislýsingu. C.F.
Möller, danska arkitektafyrirtækið,
sem bar sigur úr býtum í skipulags-
samkeppninni árið 2005, skilaði í
febrúar sl. frumáætlun og er hún
grunngagn við frágang samkeppn-
islýsingarinnar. „Markmið okkar á
þessum síðustu metrum áður en
samkeppnislýsing verður unnin er
að fá að borðinu með okkur fólk
sem býr að fjölbreyttri reynslu og
kemur víða að,“ segir Inga Jóna.
„Við leggjum líka áherslu á að
hönnun verði lokið eins og kostur
er áður en útboð verklegra fram-
kvæmda hefst. Það er mjög mik-
ilvægt að menn hafi glögga yfirsýn
yfir kostnaðinn því þetta er risavax-
ið verkefni og verklagsreglur verða
frá upphafi að taka mið af því að við
getum fylgst mjög grannt með öll-
um útgjöldum.“
Gefa ráð vegna há-
skólasjúkrahússins
Íslenskir sérfræðingar við erlend sjúkrahús í ráðgjafarhópi
Mikið mannvirki Líkanmynd af há-
skólasjúkrahúsinu við Hringbraut.
Í HNOTSKURN
»Fyrsti vinnufundur ráðgjaf-arhópsins er áætlaður 20.
apríl næstkomandi.
»Nefnd um byggingu nýs há-skólasjúkrahúss mun standa
fyrir samkeppni um hönnun.
»Stefnt er að því að kynnavinningstillögu í samkeppn-
inni í nóvember og jafnframt að
undirrita samning um hönnun
nýja háskólasjúkrahússins.
BIÐLISTAR á
Barna- og ung-
lingageðdeild
Landspítalans
(BUGL) hafa
styst og hafið er
fræðslustarf sem
er ætlað að efla
nærþjónustu við
börn og unglinga
með geðraskanir.
Guðrún Bryn-
dís Guðmundsdóttir, yfirlæknir
BUGL, sagði að lengi hefði verið
þörf á að auka og samhæfa þjónustu
deildarinnar. Hlustað hefði verið á
tillögur starfsfólks og í ágúst sl.
fékkst aukið fjármagn. Í kjölfarið
voru ráðnir fjórir nýir starfsmenn
auk fræðslustjóra.
Starfsfólk BUGL hefur aukið
vinnuálag undanfarna tvo mánuði og
m.a. sett upp svonefnda „laugar-
dagsklínik“. Þá hefur verið unnið ut-
an hefðbundins vinnutíma til þess að
taka við börnum af biðlista.
Á undanförnum tveimur mánuð-
um er búið að vinna um 22 mál af bið-
listum umfram það sem ella hefði
verið unnt að sinna. Um miðjan
ágúst 2007, þegar ákveðið var að
auka framlög til BUGL, voru 165
mál á biðlistanum en nú eru þau 107.
Á þessum tíma hafa borist um 100
nýjar tilvísanir. Af þeim hafa bæst
við um 80 ný mál á biðlistann. Í heild
hafa því verið unnin tæplega 140 mál
á rúmu hálfu ári. Guðrún sagði að
miðað væri við að bið eftir þjónustu á
borð við þá sem BUGL veitti væri
um þrír mánuðir. Hún sagði starfs-
fólk BUGL hafa leitað leiða til þess
að biðlistinn lengdist ekki aftur.
„Við höfum viljað leggja áherslu á
samvinnu við aðrar stofnanir, bæði
þjónustumiðstöðvar og heilsu-
gæslu,“ sagði Guðrún. „Við viljum
auka fræðslu til lækna í heilsugæslu
og eins annarra sem koma að þjón-
ustu við börn og unglinga með geð-
raskanir. Einnig kemur til greina að
flytja úrræði sem við höfum hér til
heilsugæslunnar þannig að hægt sé
að nálgast vandann í nærumhverfi
barnanna.“
Í janúar sl. fór af stað tilrauna-
verkefni þegar starfsfólk BUGL
veitti starfsfólki heilsugæslustöðvar-
innar á Egilsstöðum og öðrum þjón-
ustuaðilum þar fræðslu. Einnig var
haldið þjálfunarnámskeið fyrir for-
eldra barna með ofvirkni og athygl-
isbrest. Fyrirhuguð er aukin hand-
leiðsla og ráðgjöf. Markmiðið er að
heilsugæslustöðin verði þekkingar-
miðstöð í sínum landsfjórðungi varð-
andi börn með geðraskanir. Þá er
hafið samstarf við tvær heilsugæslu-
stöðvar í Reykjavík og hefur teym-
um heilsugæslustöðva og þjónustu-
miðstöðva sem tengjast einstökum
skólum verið veitt handleiðsla.
Biðlistar BUGL
hafa styst
Guðrún Bryndís
Guðmundsdóttir
Aukin samvinna við heilsugæslu
MAÐURINN sem lést í
slysi á Reykjavíkur-
flugvelli síðdegis á
þriðjudag hét Sigurjón
Daði Óskarsson, til
heimilis í Kambaseli 85 í
Reykjavík. Sigurjón
Daði var á 22. aldursári,
fæddur 11. maí 1986.
Hann lætur eftir sig
tveggja ára dóttur.
Sigurjón var að gera
við bifreið í húsnæði Fluggarða á Reykja-
víkurflugvelli, þegar hún féll ofan á hann.
Engin vitni voru að slysinu, sem lögreglan
á höfuðborgarsvæðinu er með til rann-
sóknar.
Lést á Reykja-
víkurflugvelli
Sigurjón Daði
Óskarsson
ÓTTAST var að ungur maður sem fór upp
á þak á fjölbýlishúsi við Kleppsveg í
Reykjavík í gærkvöldi myndi kasta sér
niður og voru lögregla og sjúkra- og
slökkvilið kvödd á vettvang. Er maðurinn
sá viðbúnaðinn fór hann af sjálfsdáðum
niður af þakinu. Að sögn lögreglu virtist
maðurinn vera í mjög annarlegu ástandi.
Viðbúnaður við
hús á Kleppsvegi
MAÐUR sem grunaður er um alvarlega lík-
amsárás á öryggisvörð verslunar 10-11 sl.
helgi sætir gæsluvarðhaldi til 23. apríl nk.
Maðurinn var upphaflega úrskurðaður í
varðhald til gærdagsins en síðdegis féllst
Héraðsdómur Reykjavíkur á kröfu lög-
reglustjóra höfuðborgarsvæðisins um
framlengingu.
Öryggisvörðurinn sem fyrir árásinni
varð er á batavegi. Hann hlaut heilablæð-
ingu í kjölfar þess að árásarmaðurinn lamdi
hann í höfuðið með glerflösku. Árásarmað-
urinn hefur játað fyrir lögreglu að hafa
veist að manninum. Hann kveðst hins vegar
ekki muna eftir að hafa beitt glerflöskunni.
Árásarmaður
áfram í gæsluÍSLENSKI matreiðslumeistarinn
Þráinn Freyr Vigfússon sigraði í
alþjóðlegri keppni á vegum
heimssamtaka matreiðslumanna
sem fram fór í Lýðveldinu Tar-
tastan í gær. Hlaut hann gull-
verðlaun fyrir fisk- og alifugla-
rétti sína og skoraði 211 stig, en
sá sem næstur kom fékk 196 stig.
Tveir matreiðslumenn frá sér-
hverri heimsálfu kepptu á
mótinu og var Þráinn annar
tveggja Evrópufulltrúanna.
Keppnin er haldin í Tartastan
þriðja árið í röð og segir Þráinn
að heimamenn hafi lagt sig mjög
fram um að hafa alla umgjörð
sem besta. „Við fengum fjórar
klukkustundir til að undirbúa
okkur og síðan 50 mínútur til að
framreiða réttina,“ segir Þráinn.
„Ég var með steiktan fisk, pike
pesch, úr Volgu með grænmeti
og sítrussósu og -safa. Í aðalrétt
var ég með gæsabringu með
graskersmauki og -teningum og
eplasoðssósu ásamt kartöflu-
köku. Það var öðruvísi að vinna
með þetta hráefni en maður er
vanur. Í eftirrétt var kotasæla og
þurfti hún að vera 20% af rétt-
inum.
Það var svolítið menning-
arsjokk að koma hingað, því það
var ekki allt tiltækt fyrir mats-
eldina og þurfti því að bjarga
ýmsu og laga sig að aðstæðum.“
Keppnin fór fram á stórri mat-
vælasýningu í Rússlandi og mætti
Þráinn til leiks með fjögurra
vikna fyrirvara, sem telst í
skemmra lagi.
Þráinn segir að meðal hinna
keppendanna hafi verið öndveg-
isfagfólk og sankaði hann að sér
áhugaverðum hugmyndum að
góðum réttum.
Á morgun, föstudag, stendur
til að blása til galakvöldverðar
sem stjórnmála- og embætt-
ismönnum verður boðið til.
Meistarakokkurinn Þráinn Freyr Vigfússon sigursæll
Morgunblaðið/RAX
Meistari Þráinn Freyr Vigfússon matreiðslumaður segir hráefnið í keppninni hafa verið framandi en það
kom ekki í veg fyrir að hann næði gullinu enda dálítil aðlögun og yfirvegun allt sem þarf.
Hlaut gullið fyrir fisk og gæs
Dregið
stórlega úr
sýkingum
HARALDUR
Briem sóttvarna-
læknir segir að
náðst hafi gríðar-
lega góður árang-
ur við að draga úr
kamfýlóbakter-
sýkingum í fólki
hér á landi og að-
gerðir innlendra
framleiðenda
fuglakjöts hafi skilað miklum
árangri.
Fram hafa komið áhyggjur af
hugsanlegri kamfýlóbakter í innflutt-
um kjúklingum þegar leyft verður að
flytja inn hrátt kjöt með væntanleg-
um breytingum á matvælalöggjöf-
inni. Haraldur segist hafa heyrt af
áhyggjum manna af þessu.
Kjúklingabændur
hafa lagt mikið á sig
„Við höfum verið með sérstakar
aðgerðir vegna kamfýlóbakter í
fuglakjöti og ég held að það séu ekki
viðhafðar sambærilegar aðgerðir í
Evrópusambandinu en þokkalegt
eftirlit sé með salmonellunni. Kjúk-
lingabændur hér á landi hafa lagt sig
mikið fram við að minnka líkurnar á
því að kamfýlóbakter komist út á
markaðinn og lagt í það mikinn
kostnað og ef síðan er hægt að flytja
inn kjöt sem ekki lýtur þeim ströngu
eftirlitsaðgerðum sem hér eru við-
hafðar, þá er komin einhver skekkja í
þetta,“ segir Haraldur.
Haraldur segir að menn þurfi að
skoða hvaða möguleikar verði í fram-
tíðinni á að fylgjast með kjöti sem
flutt er inn. „En þetta verður skoðað
þegar þar að kemur. Við erum með
auga á þessu.“
Aðgerðir hafa skilað
miklum árangri
Haraldur Briem