Morgunblaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 41 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is „EIGENDURNIR vildu fara með blaðið í aðrar áttir, taka inn meira af svokölluðu lífstílsefni. Eftir að hafa hugsað minn gang ákvað ég að taka ekki þátt í því, enda á skjön við það sem ég hef verið að byggja upp,“ segir Birgir. Hann kveður blaðið í fullri sátt. „Ég var svekktur í svona þrjá tíma kannski. En svo pældi ég bara aðeins í þessu og komst að þeirri nið- urstöðu að það væri farsælast að ég færi úr stólnum.“ En var blaðið ekki að sigla vel? Af hverju þá að breyta? „Nú verður þú að spyrja einhverja aðra en mig,“ segir Biggi og brosir. Hann mun ritstýra næsta blaði, sem kemur út í maí, en svo er hann hætt- ur. „Það kemur svo bara í ljós hvað ég er að fara að gera. En eins og ég segi, ég geng í burtu glaður í bragði og ég kvíði ekki framtíðinni frekar en áður.“ Meiri broddur Atli Fannar Bjarkason hefur vak- ið eftirtekt á 24 stundum fyrir hvöss og skelegg skrif. Brotthvarf hans verður án efa blóðtaka eða hvað? „Þetta var hrikalega erfið ákvörð- un, ég neita því ekki,“ segir Atli. „Þegar ég afhenti Ólafi Stephensen ritstjóra uppsagnarbréfið var það eins og að hætta með góðri kærustu. Þetta er skemmtilegasti vinnustaður sem ég hef unnið á.“ Hann segir að sama skapi tæki- færið vera of gott til að sleppa því. „Að fá að ritstýra heilu blaði sem fjallar um það sem ég hef verið að fást við hér er stórkostlegt,“ segir Atli. „Það er líka gaman að vera að fást við skrif fyrir ungt fólk á meðan maður er enn ungur sjálfur. Ég segi sem minnst um áherslubreytingar á þessari stundu en ég hyggst þó færa meiri brodd inn í blaðið en áður hef- ur verið.“ Í öllu falli er hið góðlátlega grín, „gæti ég fengið meiri Bigga í móni- tor“ a.m.k. búið. Morgunblaðið/Sverrir Hættur Birgir Örn Steinarsson stendur upp úr ritstjórastólnum. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Hvað hef ég gert?! Atli Fannar á leiðinni úr Hádegismóum í gær. Biggi hættir með Monitor Atli Fannar Bjarkason, blaða- maður á 24 stund- um, tekur við LEIKKONAN Sarah Jessica Parker segir gáfurnar gera konur kyn- þokkafullar. Útlit og klæðaburður hafa að hennar mati lítið að segja um það hvernig þær koma fyrir, heldur segir hún fyrst og fremst klárar konur vekja eftirtekt. „Það er sjálfstraustið og gáfurnar sem skipta mestu máli. Sjálfs- traustið er líka lykilatriði, því það eru svo margar tegundir af kyn- þokka.“ Sarah Jessica Parker viðurkenndi nýlega að það hefði sært hana mikið þegar tímaritið Maxim útnefndi hana þá konu heims sem helst skorti kynþokka. „Er ég með stór brjóst, bótox í enninu og bólgnar varir? Nei. Uppfylli ég þá staðla sem einhverjir karlar sem skrifa tímarit finna upp? Kannski ekki. En er ég virkilega ógirnilegust allra kvenna í heimi? Það er svolítið áfall,“ sagði leikkonan. Klárar konur kynþokkafyllstar Reuters Fjórar fræknar Sarah Jessica Parker og stöllur hennar úr Beðmálum í borginni hafa bæði útlitið og sjálfstraustið í lagi. Tökum við umsóknum núna Kynntu þér námið á www.hr.is Námið er einkum ætlað þeim sem hafa lokið BSc-prófi í verkfræði eða tæknifræði með góðum árangri. Nemendur sem hafa annan bakgrunn úr BSc-námi sínu geta útskrifast með meistara- próf á tilteknum sérsviðum verkfræðinnar s.s. meistarapróf í framkvæmdastjórnun, umferðar- og skipulagsfræðum, heilbrigðisvísindum o.fl. TÆKNI- OG VERKFRÆÐIDEILD HR MEISTARANÁM VIÐ Tækni- og verkfræðideild HR býður meistaranám í • Byggingarverkfræði • Framkvæmdastjórnun • Umferðar- og skipulagsfræðum • Steinsteyputækni • Fjármálaverkfræði • Véla- og rafmagnsverkfræði • Heilbrigðisverkfræði • Heilbrigðisvísindi • Ákvarðanaverkfræði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.