Morgunblaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. VERÐLAGSHÆKKANIR Um fátt er meira rætt um þess-ar mundir en verðlagshækk-anir. Fólki ofbýður verð á vörum og þjónustu og tekur eftir því hvað verð á einstökum vörum og þjónustu hækkar mikið frá viku til viku þótt vissulega séu dæmi um ann- að. Slíkar umræður fóru líka fram sumarið 2007. Þá komu fram upplýs- ingar sem bentu til þess að lækkun á virðisaukaskatti og vörugjöldum hefði ekki skilað sér til neytenda. Þá sagði Björgvin G. Sigurðsson við- skiptaráðherra: „Þessar vísbendingar eru það al- varlegar að ekki er hægt að sitja með hendur í skauti heldur þurfum við að komast að því hvað af þessum lækk- unum á virðisaukaskatti og vöru- gjöldum hafi skilað sér á sama tíma og krónan er að styrkjast. Það eru allar forsendur fyrir lækkun, engar fyrir hækkun.“ Í tilefni af þessum ummælum ráð- herrans sagði Morgunblaðið í for- ystugrein hinn 14. júlí 2007: „Nú hefur Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra tilkynnt að hann muni taka þetta mál til skoðunar síð- ar í þessum mánuði með þátttöku allra aðila sem hlut eiga að máli. Því frumkvæði ráðherrans ber að fagna. Stundum er sagt að neytendur á Ís- landi láti bjóða sér hvað sem er. En veruleikinn er sá að neytendur eiga ekki margra kosta völ. Þeir geta ekki ekið yfir næstu landamæri í leit að lægra vöruverði. Þeir eiga í raun allt undir því að gagnkvæmt traust ríki á milli þeirra og viðskiptaaðila, hvort sem það er á þessu sviði eða öðrum.“ Nú eru verðlagsmál til umræðu á ný þótt á öðrum forsendum sé en sumarið 2007. Hins vegar er nú tíma- bært að viðskiptaráðherrann geri ít- arlega grein fyrir afrakstri þeirrar vinnu sem hann efndi til síðla sumars 2007 og hverju sú vinna hefur skilað. Ekki verður dregið í efa í ljósi um- mæla viðskiptaráðherra fyrir tæpu ári að ötullega hafi verið unnið að þessum málum. Nú hefur fólk áhyggjur af því að miklar verðhækk- anir séu framundan og þá þarf að tjalda öllu sem til er til þess að verja hagsmuni neytenda. Það er löng reynzla fyrir því að sumir söluaðilar notfæra sér óvissuástand í verðlags- málum eins og nú ríkir til þess að koma fram verðhækkunum. Neytendur sjálfir geta auðvitað átt mestan þátt í því að aga söluaðila með því einfaldlega að kaupa ekki þá vöru eða þjónustu sem augljóslega er verið að verðleggja of hátt. En ráðamenn þjóðarinnar geta einnig átt hér mikinn hlut að máli. Í þeim efnum duga ekki orðin ein, yf- irlýsingar og loforð. Verkin verða að tala. Á þeim tímamótum sem nú eru í verðlagsmálum þarf viðskiptaráð- herra því að gera þjóðinni grein fyrir því sem unnið hefur verið á hans veg- um frá því að þessar umræður hófust fyrir tæpu ári. Þau verk munu áreið- anlega skipta máli á næstu mánuðum. MERKINGAR VEGNA FRAMKVÆMDA Merkingar við vegaframkvæmdireru mikilvægar. Það hefur kom- ið rækilega fram á Reykjanesbraut undanfarið. Framkvæmdir vegna tvö- földunar Reykjanesbrautar hafa legið niðri mánuðum saman. Í gær voru sex fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur skammt frá afleggjaranum við Voga og hafa fleiri slys átt sér stað á þessu svæði. Það er ekki nýtt að ófullnægjandi merkingar séu settar upp þar sem framkvæmdir eiga sér stað. Akreinar eru illa merktar og oft þurfa ökumenn að hafa sig alla við til að átta sig á því hvað er á seyði. Það getur verið nógu erfitt fyrir bílstjóra, sem þekkja til, en ókunnugir geta lent í verulegum erfiðleikum. Eins verður að gera ráð fyrir því að merkingar skiljist ekki að- eins við ákjósanlegustu aðstæður, heldur einnig í myrkri og slagveðri þegar bílstjórar þurfa að hafa sig alla við. Það hlýtur til dæmis að vera eðli- legt að þegar hraðbraut, þar sem tvær akreinar liggja í hvora átt og mön liggur á milli, breytist vegna fram- kvæmda í tveggja akreina veg þar sem bílar mætast séu akreinarnar rækilega merktar og aðgreindar þannig að ekki fari á milli mála hvers kyns er. Það er vinna að setja upp slíkar merkingar en nánast þarf að leiða bílstjóra áfram þar sem aðstæð- ur eru óvenjulegar. Í þessum efnum er ekki hægt að stytta sér leið, merk- ingarnar verða að vera rækilegar. Kaflinn þar sem framkvæmdirnar hafa legið niðri á Reykjanesvegi ligg- ur nokkurn veginn frá Vogaafleggjara vestur að Njarðvík. Frá ágúst 2004 til janúar 2005 urðu 24 umferðarslys á þessum vegarkafla. Það var áður en framkvæmdir hófust. Frá ágúst á síð- asta ári út janúar á þessu ári hafa orð- ið þar 55 umferðarslys. Samkvæmt áætlun fyrirtækisins Jarðvéla, sem í desember sagði sig frá verkinu, átti framkvæmdunum á þessum kafla að ljúka í ágúst. Þetta kemur fram í frétt í Morg- unblaðinu í dag. Þar segir Einar Magnús Einarsson, verkefnisstjóri hjá Umferðarstofu, að bæta verði ástandið á Reykjanesbraut hið snar- asta: „Það verður að búa svo um hnút- ana varðandi umferðarmannvirki, og ég tala nú ekki um framkvæmda- svæði, að ef og þegar við gerum mis- tök þá hljótist ekki alvarleg slys af. Við verðum að krefjast þess að það verði gerð einhver úrræði til þess að koma í veg fyrir svona lagað.“ Samkvæmt tilkynningu, sem Vega- gerðin sendi frá sér í gær, hefur „þrátt fyrir verulegar merkingar á svæðinu“ nú verið ákveðið að aðskilja akstursstefnurnar. Verður það gert með því að setja upp gátskilti milli ak- reina. „Verulegar merkingar“ duga greinilega ekki til. Varhugaverðir vegarkaflar þurfa greinilega að vera í gjörgæslu til þess að akandi vegfar- endur lendi ekki á gjörgæslu. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is Yfirstandandi kjörtímabilhefur ekki verið tímabilátaka við samninga-borðið, enda samningar löngu gerðir og við það að renna út. Það hefur hins vegar ekki farið fram hjá neinum að skólarnir hafa átt í vandræðum með að ráða til sín fólk og margur góður kenn- arinn hefur horfið til annarra og betur launaðra starfa. Skólarnir hafa orðið undir í samkeppni um vinnuafl og margt bendir til þess að þeir samningar sem nú standa yfir, eða eru framundan, muni skilja á milli feigs og ófeigs í starf- semi skóla á næstu árum,“ sagði Eiríkur Jónsson, formaður Kenn- arasambands Íslands (KÍ), í opn- unarávarpi sínu á þingi sambands- ins á Grand Hótel í Reykjavík í gær. Bjartsýnn þrátt fyrir allt Aðspurður segist Eiríkur þó vilja leyfa sér ákveðna bjartsýni fyrir komandi samninga. „Mér skilst að samskipti grunnskólakennara við sveitarfélögin, hingað til, gefi til kynna gagnkvæman vilja til að leysa málin í sameiningu. Ég held að menn séu búnir að upplifa svo mikið á undanförnum mánuðum og búnir að sjá á eftir svo mörgum kennurum úr þeirri stétt, að þessi gagnkvæmi vilji hafi skapast.“ Hann segir sömu lögmál gilda um aðstæður annarra hópa, bæði leik-, tónlistar- og framhaldsskóla- kennara. Mjög mikilvægt sé til dæmis að framhaldsskólinn komi vel út úr næstu samningum. „Það verður með einhverjum hætti að tryggja að kjaraþróun kennara haldi í við þróun annarra hópa hjá ríki og sveitarfélögum. Við hljótum að fagna ítrekuðum yfirlýsingum menntamálaráðherra um nauðsyn þess að bæta kjör kennara en harma um leið úrtölur annarra ráðamanna í því sam- bandi.,“ sagði Eiríkur í ávarpi sínu. Hann segir það hafa ein- kennt framhaldsskólana að þar hafi kennarar náð kjörum annarra rétt á meðan setið er við samn- ingaborðið en þeim svo hnignað í hlutfalli við kjör annarra eftir því sem frá líður. „Þetta er eitthvað sem menn þurfa að taka á,“ segir Eiríkur. Í ræðu sinni fór Eiríkur vítt og breitt yfir sviðið og lagði ekki síð- ur áherslu á jákvæða þætti. Til dæmis samstarf við mennta- málaráðuneyti í svonefndu skrefa samkomulagi og ni urstöður kannana sem sýn kennarastéttin nýtur miki ingar í þjóðfélaginu, að stó þjóðarinnar vill áhrif henn meiri. „Óskandi væri hins að sú stétt sem jafnan kem ast út í könnunum af þess þingmenn, tækju meira m þessum niðurstöðum og vi í störfum sínum,“ sagði Ei Grunnskólakennarar l Capacent Gallup kynnti þi fulltrúum niðurstöðu kjar unar sem gerð var fyrir K arasambandið. Helstu nið voru að grunnskólakennar lægstlaunaðir kennara í K algrunnlaun þeirra í októb voru rúmar 242 þúsund kr Næstu samninga milli feigs og ófeig Ræða Eiríkur Jónsson fór vítt og breitt yfir málefni kennara á þ Nú styttist í að kjara- samningar kennara verði lausir og eitt af öðru hefja félög við- ræður. Þing Kenn- arasambands Íslands hófst í gær. Suður-Afríkumaðurinn Thulas Wal-termade Nxesi er aðalritari Kenn-arasambands S-Afríku sem inni-heldur um 65% af kennurum í landinu á öllum skólastigum eða um 235.000 manns. Fjöldi félagsmanna í sam- tökunum hefur rúmlega sjöfaldast á síð- ustu 10 árum. Þá hefur barátta hans fyrir réttindum kennara og opinberra starfs- manna í heimalandinu m.a. orðið til þess að kennarar fóru inn í heildarsamtök op- inberra starfsmanna þar í landi. Einnig er hann forseti Alþjóðasambands kennara, Education International (EI), og er sem slíkur heiðursgestur þings Kenn- arasambands Íslands sem fram fer 9.-11. apríl í Reykjavík. EI inniheldur 394 kenn- arasamtök í 171 landi og eru félagsmenn alls um 30 milljónir, allt frá leikskólakenn- urum til háskólaprófessora. Þing samtak- anna er haldið á þriggja ára fresti. Í fyrra var það í Berlín en í Porto Alegre í Bras- ilíu árið 2004. AIDS eitt af viðfangsefnunum „Ég minni íslenska kollega mína á að þeg- ar við hittumst árið 2004 var mikið rætt um ógnina sem stafar af HIV-AIDS víða í heiminum, ekki síst í Afríkuríkjum, fyrir menntun og almenna framþróun. HIV tek- ur fjölda mannslífa á hverju ári. Kennarar um allan heim þurfa að tvöfalda átak sitt í fræðslu gegn þessum faraldri,“ segir Nxesi í samtali við Morgunblaðið og leggur þá ekki síður áherslu á kennara í þróuðum löndum, þar sem HIV sækir nú mjög á. Hann segir sjálfsmynd EI vera þá að þau séu í raun mannréttindasamtök sem berjist fyrir rétti alls fólks til þess að eiga aðgang að menntun, auk þess að berjast fyrir fé- lagafrelsi kennara, sem víða þrengi mjög að. Þess vegna berjist samtökin m.a. fyrir ákveðnum þúsaldarmarkmiðum, þ.e. að sem flest ríki geti veitt öllum börnum inn- an sinna vébanda grunnmenntun árið 2015. Hins vegar sé mjög langt í að sum ríki nái þessum markmiðum. Í menntun felast samgæði „Ein megináhersla samtakanna eru gæði opinberrar menntunar. Opinber menntun eru samgæði en það felast hættur í því að einkavæða menntakerfi landa. Það er lík- legt til að gagnast aðeins hinum efnaðri og leiða til meiri aðskilnaðar í samfélögum,“ segir hann og bætir við: „Við þurfum að líta á menntun sem fjárfestingu til fram- tíðar en ekki bara peningahít. Þá er það viðhorf viðskiptaheimsins, að meta alla hluti eftir því hvað er sett inn og hvað kemur út, algerlega óviðeigandi. Menntun gengur ekki út á að framleiða svo og svo mörg fagidjót fyrir mismunandi atvinnu- greinar. Um það snýst menntun ekki. Það Mannréttindasam Gestur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.