Morgunblaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Leiðir okkar og Ástu lágu fyrst saman þegar hún réð sig til starfa hjá Verkfræði- stofu Stefáns Ólafssonar, sem síðan varð að VSÓ Ráðgjöf, árið 1972. Ásta var traustur og góður starfs- maður VSÓ. Allir starfsmenn leit- uðu til Ástu þegar á móti blés og allir fengu leiðsögn gegn hörðum og miskunarlausum vindi og sú leið- sögn var veitt með ástúð sem ein- kenndi Ástu og allt hennar viðmót. Höfum við notið vináttu hennar, gestrisni, jákvæðni og hlýhugar í nær fjörutíu ár. Ásta var traustur vinur sem með virðulegri reisn tókst á við öll viðfangsefni sem henni bárust, hvort heldur það voru mótvindur eða gamanmál sem við var að etja. Í okkar huga var Ásta sannur höfðingi heim að sækja, glaðvær og umlukin áru sem allir fundu fyrir. Fórnfýsi, lífsvilji og baráttuhugur voru hennar aðals- merki og alltaf túlkuð með virðingu og hógværð og gjarnan með glettn- isívafi. Ásta var barnagæla og átti auð- velt með að ná til barna sem voru henni ókunn og náði fljótt trausti þeirra og áhuga. Ásta lét sig aldrei vanta á jólaböll. Þegar hennar börn voru vaxin upp úr barnaböllum og henni auðnaðist ekki að fá barna- börn þá fékk hún bara börn lánuð hjá fjölskyldu og vinum. Okkur leið alltaf vel í návist Ástu og heilluðumst af brosi hennar sem náði til alls andlitsins. Þremur dög- um fyrir andlát hennar voru kveðjuorðin þau að allt færi vel og Ásta Ingvarsdóttir ✝ Ásta Ingv-arsdóttir fædd- ist í Reykjavík 4. nóvember 1955. Hún andaðist á heimili sínu í Reykjavík 13. mars síðastliðinn og var jarðsungin frá Bú- staðakirkju 25. mars. svo kvaddi hún með brosinu sínu bjarta. Binni, börn og fjöl- skylda mega stolt minnast Ástu með ást og virðingu. Við send- um ykkur okkar inni- legustu samúðar- kveðjur. Jytte, Bjarni og dætur. Horfin er á braut frábær manneskja og góður vinur. Þegar mér verður hugsað til Ástu, hrann- ast upp minningar frá því á ung- lingsárunum en þá hófst óslitin vin- átta okkar Ástu. Þær minningar eru dýrmætar og gott að eiga. Ásta var mikil fjölskyldumanneskja og varla finnst eins samheldin stór- fjölskylda og hennar. Ég minnist brossins hennar Ástu, skemmtilega glettna augnaráðsins og dillandi hláturs hennar. Hún var alltaf svo jákvæð, vingjarnleg og hlý. Já, Ásta hafði sannarlega stórt hjarta. Öll börn löðuðust að henni, því fékk sonur okkar að kynnast. Það er mér minnisstætt þegar ég fór í fyrsta sinn í veislu með vin- konunum ásamt mökum í Réttar- selið til þeirra hjóna. Vinalegt við- mót, rausnar- og myndarskapur þeirra var með eindæmum. Það var eins og flokkur þjónustuliðs hefði séð um veisluhöldin. Eftir því sem árin liðu fór ég samt að átta mig á því að Ásta galdraði þessar veit- ingar fram á engri stundu, án nokk- urs fyrirvara og alltaf með bros á vör. Okkur er efst í huga af hve mikl- um hetjuskap og hugprýði Ásta tók veikindum sínum. Vel studd af Binna, börnunum og sínu nánasta fólki. Alltaf hafði hún nóg til að gefa öðrum. Sjálfur lenti ég í slysi, þar sem ég þurfti að stokka upp líf mitt. Ásta hefur eflaust ekki gert sér grein fyrir því hversu hvetjandi áhrif hún hafði á mig. Oft var mér hugsað til hennar og hvernig hún tókst á við sína erfiðleika af æðru- leysi. Ég þakkaði Ástu aldrei þenn- an stuðning. Haustið 2006 rákumst við á kunnuglega „drengi“ utan alfara- leiðar á strætum Kaupmannahafn- ar. Það voru þeir Ingvar og „synir“. Binni, Bjarni og Einar eru jú tengdasynir, en í þessari sam- heldnu fjölskyldu held ég að enginn munur sé þar á. Ingvar hafði gert sér ferð út fyrir landsteinana með hópinn sinn til að finna rétta tré- bæsinn, sem ekki var fáanlegur á Íslandi. Mamma og systurnar, höfðu annað þarfara að gera en að þræða byggingavöruverslanir. Um kvöldið snæddum við saman og nutum þess að vera til. Hver hefði trúað að einhver í þessum hóp væri að glíma við alvarlegan sjúk- dóm, slík var kátínan, jákvæðnin og stemningin við borðið. Hver hefði trúað því að nú rúmu ári síðar væru tveir af sessunautum okkar þetta kvöld ekki lengur á meðal okkar. Myndbrot frá þessu kvöldi eiga eft- ir að hlýja okkur um ókomna fram- tíð. Ásta var orðin þreytt í lokin og er nú búin að fá hvíldina. Okkur þótti öllum vænt um Ástu og þökk- um dýrmæt kynni við hana. Þau gerðu okkur ríkari. Við munum öll sakna hennar sárt. Guð geymi hana. Elsku Binni, Auður, Inga Lillý, Bjarni og tengdabörn, við sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. Einnig vottum við foreldrum Ástu, systkinum og öðrum aðstand- endum innilega samúð. Guð blessi ykkur öll og styrki. Þegar raunir þjaka mig þróttur andans dvínar þegar ég á aðeins þig einn með sorgir mínar gef mér kærleik, gef mér trú, gef mér skilning hér og nú. Ljúfi drottinn lýstu mér svo lífsins veg ég finni. Láttu ætíð ljós frá þér ljóma í sálu minni. (Gísli frá Uppsölum.) Ásta Birna, Gunnar og Þorgeir. Fallegir legsteinar á góðu verði Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 - www.englasteinar.is Sendum myndalista ✝ Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGURBJARGAR SIGURJÓNSDÓTTUR frá Flatey á Skjálfanda, Garðarsbraut 55, Húsavík. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Hvammi, heimili aldraðra á Húsavík. Vigdís Helga Guðmundsdóttir, Pálmi Sigfússon, Sigurjón Guðmundsson, Ása Grímsdóttir, Jóhanna Guðmundsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. Mig langar í örfáum orðum að minnast Imbu hans Ása sem nú er látin. Svo lengi sem ég hef munað voru Ási frændi og Imba í Sandgerði hluti af tilveru minni og tilheyrðu nánustu fjöl- skyldu, voru eiginlega eins og afi og amma. Samgangur var mikill milli okkar og þeirra, alltaf komið við suð- ur í Sandgerði ef leiðin lá suður á annað borð og á sumrin renndu Ási og Imba við í Víkinni og heimsóttu okkur. Í kringum þau hjón og börn þeirra var alltaf gleði og léttleiki, tal- að hátt og mikið og hlegið enn meira. Imba var einstaklega geðprúð, átti alltaf hlýleg orð og faðmlög handa okkur krökkunum og hún sýndi okk- ur og áhugamálum okkar áhuga, hafði hæfileika til að tala við börn þannig að um samtal á jafnréttis- grunni væri að ræða, en það er ekki öllum gefið. Ég minnist úr bernsku allra kræsinganna sem Imba töfraði fram í eldhúsinu á Vallargötunni, rjómatertur, pönnukökur, karmellu- kökur og svo voru það tíglakökurnar með bleika glassúrnum sem slógu allt út. Hvort sem um var að ræða mat eða kaffiveitingar, allt var gott og fallegt og borið fram með gleði, því gestrisni hennar var mikil. Hún bjó yfir jafnaðargeði og léttri lund og var alltaf jákvæð og brosmild. Það lengsta sem hún teygði sig í átt að pirringi var að hún sagðist stundum vera skúffuð. Þegar ég var 16 ára skvetta tók Imba mig inn á heimili sitt í nokkrar vikur því að sumarvinnan mín í Vík átti ekki að hefjast strax og ómögu- legt var að láta unglinginn slæpast í 3 vikur. Ég fékk vinnu í saltfiski þar sem unnið var frá morgni og langt fram á kvöld og skólastúlkan ég var gjörsamlega útkeyrð. Imba hugsaði um mig, sem ein úr fjölskyldunni væri, matur á borðum að morgni, í hádeginu og á kvöldin og ekki má gleyma kvöldkaffinu með kökum og kræsingum. Auk þess smurði hún nesti handa mér tvisvar á dag, sá um ✝ Guðný IngibjörgBjarnadóttir fæddist á Skeiðflöt í Sandgerði 21. apríl 1927. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 17. mars síðastliðinn og var jarðsungin frá Safn- aðarheimilinu í Sandgerði 28. mars. og hirti vinnufötin mín, auk þess að binda um auma úlnliði og sjá um að stúlkan fengi að hvíla sig um helgar. Ekki veit ég hvort ég þakkaði henni al- mennilega fyrir mig þegar dvölinni lauk, sennilega ekki, en ég hef oft minnst þessara vikna inni á heimili þeirra hjóna og hvern- ig var dekrað við mig, og hvað mér leið vel. Imba fylgdist vel með öllum í fjölskyldunni, og væru merk- isatburðir svo sem skírnir, ferming- ar, útskriftir og brúðkaup var öruggt að hún myndi eftir því og samgledd- ist viðkomandi með viðeigandi hætti. Ég þakka þér Imba samfylgdina í gegnum þetta líf og er sannfærð um að þú heldur áfram að starfa sem engill á nýjum vettvangi. Hvíl í friði. Aðalheiður Björk Olgudóttir. Imba frænka, eins og ég kallaði hana ævinlega þrátt fyrir að við vær- um ekki blóðskyldar, var einhver ljúfasta og örlátasta manneskja sem ég hef kynnst. Hún var öðlingur heim að sækja, skapstillt og viðræðu- góð. Hún var umburðarlynd og talaði jafnan vel um samborgara sína þótt hún hefði líka gaman af skrýtnum uppákomum og fyndnum tilsvörum. Þegar fólk hefur átt saman jafn- langan tíma og þau Imba og Ási, verða þau eitt í hugum þeirra sem til þekkja. Þegar maður talaði um ann- að þeirra fylgdi hitt gjarnan með: Imba og Ási var eitt orð, þau samofin heild og mér fannst erfitt að hugsa sér annað án hins. Enda fór það svo að þau voru ekki lengi hérna megin hvort án hins. Það eru ekki nema rúmir 5 mánuðir síðan Ási frændi kvaddi þennan heim og núna fer Imba lífsförunautur hans, sömu leið. Ég dvaldi einu sinni sumarlangt á heimili þeirra Imbu og Ása að Vall- argötu í Sandgerði í góðu yfirlæti enda höfðu þau einstakt lag á að láta manni finnast maður velkominn – alltaf. Þótt stundum liði langur tími á milli heimsókna var alltaf eins og við hefðum hist síðast í gær og viðmótið alltaf jafn hlýtt. Sér í lagi er mér of- arlega í huga heimsókn í Sandgerði í sól og blíðu síðasta sumar. Við Imba fórum í nokkuð langan bíltúr um bæ- inn og nágrenni hans og spjölluðum saman um heima og geima á leiðinni. Þetta var frábær dagur sem endaði með því (auðvitað) að ég var leyst út með gjöfum. Ég er þakklát fyrir allar þær stundir sem við áttum saman, vildi bara að þær hefðu verið fleiri. Það er með miklum söknuði að ég kveð Imbu frænku í dag en það er huggun harmi gegn að hugsa sér að hún sé þó komin til Ása. Það er mikið á börn þeirra og nánustu fjölskyldu lagt að kveðja ástvini með svona stuttu millibili. Elsku Nonni, Stína, Ragnheiður og fjölskyldur, ég sendi ykkur mínar dýpstu samúðarkveðj- ur. Minning þeirra Imbu og Ása lifir í hugum okkar allra. Kveðja, Helena frænka. Guðný Ingibjörg Bjarnadóttir ✝ Guðjón Sig-urðsson, smið- ur, fæddist á Krossi í Lundarreykjadal 29. mars 1913. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Skjóli 27. mars síð- astliðinn. For- eldrar hans voru Halldóra Jóels- dóttir og Sigurður Jónsson. Guðjón var þriðji í röð fjögurra systkina, þeirra Haraldar, Guðrúnar og Sesselju, en þau eru öll látin. Hinn 4. nóvember 1944 kvænt- ist Guðjón Oddnýju Þórunni Björnsdóttur frá Berunesi við Reyðarfjörð, f. 30. júlí 1911 d. 25. febrúar 1992. Börn Guðjóns og Oddnýjar eru: 1) Stúlka, f. og d. 1944. 2) Logi, f. 1949, maki Ingunn Lár- usdóttir, f. 1949, d. 2004. Börn þeirra eru Gylfi Már, f. 1972, Oddný Þóra, f. 1973 og Óskar, f. 1980, d. 1998. 3) Björn, f. 1954, maki Guðbjörg Gunnars- dóttir, f. 1953, son- ur þeirra Guðjón Örn, f. 1980, sam- býliskona Kristín Hulda Guðmunds- dóttir, f. 1978. Guðjón fluttist til Reykjavíkur 1939 og lærði smíð- ar. Hann vann við ýmiss konar smíðavinnu en lengst af sem smiður hjá Bæjarútgerð Reykja- víkur eða þar til hann lét af störfum vegna aldurs. Útför Guðjóns fer fram frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku afi, það er sárt að kveðja þig þó að ég viti að þú hafir verið saddur lífdaga. Það er sárt að kveðja þig þó að ég viti að þér líði betur núna. Þú varst einstaklega hraustur maður, fórst allra þinna ferða á hjóli eða gangandi, syntir reglulega og rækt- aðir líkama og sál. En öll munum við á endanum tapa glímunni við Elli og ég veit að þú laukst þínu lífi sáttur. Þú skilur eftir þig margar góðar minningar. Þú sóttir mig oft í leik- skólann á sínum tíma, ég náði oftar en ekki að plata þig til að stoppa í sjopp- unni á leiðinni heim, það komst oft upp um okkur því við áttum það til að gleyma bakpokanum mínum í sjopp- unni. Ég man að ég spurði þig einu sinni hvort þú ættir ekki einhverja vini og félaga, þú sagðist eiga fullt af vinum og að þeir sætu allir þarna á hillunni og bentir á bókasafnið þitt. Þessi vin- átta þín við bækurnar var mjög sterk því að þegar ég kom í heimsókn til þín og þú varst löngu hættur að þekkja mig drógum við stundum fram bókina „Íslenskir þjóðhættir“. Þar skoðuðum við myndirnar og þú gast sagt mér allt um forn verkfæri og gamlar vinnuaðferðir. Þú varst mjög handlaginn og með grænar fingur, ég man eftir að koma í Stóragerðið og sjá þig dunda þér í garðinum. Ég man líka eftir því þegar við byggðum húsið í Reyðarkvíslinni hvað þú varst hjálpsamur, iðjusamur og vandvirkur. Það hafði sterk áhrif á mig að sjá hversu áhugavert þér þótti það sem ég lærði í skólanum. Það að læra annað tungumál, fá tækifæri til að stunda nám erlendis og fleira fannst þér ekki sjálfsagt. Þú komst mér í skilning um að svo væri ekki og kenndir mér að meta gildi menntun- ar. Þú hafðir ekki þessi tækifæri á sín- um tíma og mig grunar að leið þín í gegnum lífið hefði verið önnur ef þú hefðir fengið tækifæri til að mennta þig betur. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Hvíl þú í friði afi minn. Guðjón Örn Björnsson. Guðjón Sigurðsson Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upp- lýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hef- ur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.