Morgunblaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 33
RÁÐSTEFNA á vegum fé- lagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst – náms í heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði (HHS) verður haldin föstudag- inn 11. apríl í Iðnó kl. 14-16. Geta háskólar í raun und- irbúið leiðtoga? Eru slíkir hæfileikar kannski meðfæddir - séu þeir þá til staðar yf- irleitt? Læra að vera forsætisráðherra? Ráðstefnan er haldin til vekja upp spurningar sem þessar í háskólanámi almennt, segir m.a. í fréttatilkynningu. Erindi flytja Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ut- anríkisráðherra, Þóranna Jónsdóttir hjá Auði Capital og Magnús Árni Magnússon hjá Capacent. Fundarstjóri verður Svanborg Sigmarsdóttir. SAMBAND íslenskra náms- manna erlendis efnir til mál- stofu um áhrif gengisþróunar fyrir kjör íslenskra námsmanna erlendis í dag, fimmtudag, í Norræna húsinu kl. 10. Fyrirlesarar verða: Garðar Stefánsson, framkvæmdastjóri Samtaka íslenskra námsmanna erlendis, Örn Arnarsson, blaða- Áhrif gengis á námsmenn maður hjá Viðskiptablaðinu, Helgi Snær Sigurðsson, blaða- maður hjá Morgunblaðinu, og Edda Rós Karlsdóttir, for- stöðumaður greiningardeildar Landsbankans. Aðgangur er ókeypis og eru námsmenn sérstaklega vel- komnir. Eftir fundarhöld verð- ur boðið upp á veitingar. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 33 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Árskógar 4 | Bað kl. 8.15, opin smíðastofa og handavinnustofa kl. 9-16.30, bocia kl. 9.30, helgistund kl. 10.30, leikfimi kl. 11 og myndlist kl. 13.30. Uppl. í síma 535-2700. Bólstaðarhlíð 43 | Bingó kl. 13.30, vinningar. Hárgreiðsla, böðun, lífsorkuleikfimi, almenn handavinna, myndlist, morgunkaffi, dagblöð, fótaaðgerð, hádegisverður, bókband, kaffi. Dalbraut 18-20 | Postulínsnámskeið kl. 13- 16, leiðb. Hafdís. Lýður og harmonikkan kl. 14, guðsþjónusta kl. 15.10. Sr. Bjarni Karlsson. Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13. Félag kennara á eftirlaunum | Bókmennta- hópurinn í Kennarahúsinu kl. 14. EKKÓ-kórinn æfir í KHÍ frá kl. 17. Nýjar raddir velkomnar. Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefnaður, almenn leikfimi og málm- og silfursmíði fyrir hádegi, róleg leikfimi og bókband kl. 13, myndlistarhópur kl. 16.30 og dönskukennsla kl. 17. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handavinna kl. 9, ganga kl. 10, hádegisverður, brids og handavinna kl. 13, jóga kl. 18.15. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Bók- band kl. 10, gönguhópur kl. 11, vatnsleikfimi kl. 12.40, karlaleikfimi kl. 13, boccía kl. 14, handavinnuhorn og námskeið í bútasaumi kl. 13. Listadagar í Garðabæ, sýning í Jónshúsi á verkum barna úr Sjálandsskóla og leikskól- anum Montessori-setrinu. Félagsstarf Gerðubergs | Helgistund kl. 10.30, umsj. sr. Guðmundur Karl Ágústsson. Frá hádegi eru vinnustofur opnar, m.a. perlu- saumur og myndlist. Laugard. 12. apríl kl. 14- 16 er samráðsfundur íbúa í Breiðholti og borgarsjóra í Seljaskóla, fjölbreytt dagskrá og veitingar í boði, nánar kynnt í fjölmiðlum og bréfi. S. 575-7720. Hraunbær 105 | Handavinna og postulíns- málun kl. 9, boccia kl. 10, leikfimi kl. 11, hádeg- ismatur, félagsvist kl. 14, kaffi. Námskeið í þurrburstun á keramik hefst 15. apríl og stendur til 27. maí (7 skipti), kl. 13-16, kennari Hulda Guðmundsdóttir. Skráning og upp. á skrifstofu eða í síma 411-2730. Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, leikfimi kl. 11.20, tréskurður kl. 13, opið hús. Aðalfundur FEBH kl. 14. Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir hjá Jóhönnu kl. 9-16, boccia kl. 10, hádegisverður, fé- lagsvist kl. 13.30, kaffiveitingar. Hársnyrting. Hæðargarður 31 | Fastir liðir eins og venju- lega. Listasmiðjan opin, félagsvist, skapandi skrif, Bör Börsson, Müllersæfingar, brids, þeg- ar amma var ung, leikfimi, sönghópur Hjördís- ar Geirs, Stefánsganga o.fl. Bókmenntaferð til Akureyrar 14.-16. maí. Uppl. 568-3132. Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er fagnað 10 ára starfasafmæli Korpúlfa með afmælis- fagnaði í Gullhömrum kl. 19. Einnig er sund- leikfimi í Grafarvogssundlaug kl. 9.30 og Listamiðjan á Korpúlfsstöðum er opin kl. 13- 16. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögustund og spjall kl. 9.45, boccia karlaklúbbur kl. 10.30, handverks- og bókastofa opin, postulíns- málun námskeið kl. 13, boccia, kvennaklúbbur kl. 13.30, kaffiveitingar. Hárgreiðslustofa, sími 552-2488. Norðurbrún 1 | Smíðastofan og vinnustofa í handmennt opin kl. 9-16, leiðb, Halldóra, leir- listarnámskeið leiðb. Hafdís kl. 9-12, boccia kl. 10. Sími 411-2760. Sjálfsbjörg | Skák kl. 19 í félagheimili Sjálfs- bjargar á höfuðborgarsvæðinu, Hátúni 12. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir kl. 9, boccia kl. 9.15-14, aðstoð v/böðun kl. 9.15-15.30, handavinna kl. 10, spænska framh. kl. 11.45, hádegisverður, kóræfing kl. 13, leik- fimi kl. 14.30, kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bókband, glervinnsla, morgunstund, boccia, handa- vinnustofan opin, hárgreiðslu- og fótaaðgerð- arstofan opin allan daginn, upplestur kl. 12.30, spilað kl. 13. Uppl. í síma 411-9450. Þórðarsveigur 3 | Bænastund og samvera kl. 10, salurinn opinn kl. 13, leikfimi kl. 13.15, bingó kl. 14.15, kaffiveitingar. Kirkjustarf Aglow | Aglow-kvöld í Skátaheimilinu kl. 20. Tískusýning frá versl. Belladonna. Rut Guð- mundsdóttir flytur Guðsorð. Tilbeiðsla og fyr- irbænir. Léttar veitingar kr. 700. Allar konur velkomnar. Áskirkja | Söngstund með organista kl. 14, kaffiveitingar á eftir. Bíófundur klúbbs 8 og 9 ára og TTT-starfsins eru báðir kl. 17. Áskirkja | Söngstund með organista kl. 14, kaffiveitingar á eftir. Bíófundur klúbbs 8 og 9 ára og TTT-starfsins kl. 17. Ath. báðir hópar mæta kl. 17. Digraneskirkja | Foreldramorgunn kl 10 12, leikfimi ÍAK kl. 11, bænastund kl. 12, 6-9 ára starf kl. 16-17. Meme junior kl. 19.30-21.30. digraneskirkja.is Dómkirkjan | Kvöldkirkjan er opin kl. 20-22. Bænastundir kl. 20.30 og 21.30. Prestur á staðnum. Hægt er að kveikja á bænarkerti og eigir kyrrláta stund. Opið hús í safnaðarheim- ilinu Lækjargötu 14a kl. 14-16, kaffi og spjall. Grafarvogskirkja | Foreldramorgunn kl.10-12, kaffi, djús og brauð fyrir börnin. TTT fyrir 10- 12 ára kl. 15-16 í Víkurskóla. Grensáskirkja | Hversdagsmessa með Þor- valdi Halldórssyni kl. 18-19. Bænin, orð Guðs og altarisganga, messan einkennist af kyrrð og einfaldleika. Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Org- elleikur, íhugun. Léttur málsverður í safn- aðarsal eftir stundina. KFUM og KFUK á Íslandi | Fundur í AD KFUM kl. 20. Trúboðarnir, samtök kristinna bifhjólamanna kynna starfsemi sína. Efni: Halldór Jónsson jr. Hugleiðing: Vörður Traustason. Kaffi eftir fundinn. Allir karlmenn velkomnir. Laugarneskirkja | Kyrrðarstund kl. 12, borð- samfélag á eftir. Samvera eldri borgara kl. 14, Katrín Anna Guðmundsdóttir, talskona Fem- inistafélagsins, svarar spurningunni: „Hvað er þessi feminismi?“ Kaffiveitingar í umsjá kirkjuvarðar og þjónustuhóps. Sóknarprestur stýrir samkomunni. Vídalínskirkja Garðasókn | Kyrrðar- og fyrir- bænastund kl. 22. Tekið er við bænarefnum af prestum og djákna. Boðið upp á kaffi í lok stundarinnar. Biblíulestur síðasta fimmtudag hvers mánuðaðar kl. 21, opin öllum. Bæn er lífsleikni. 90ára afmæli. Í dag, fimmtudaginn10. apríl, er níræður Ormur Ólafs- son, Safamýri 54, Reykjavík. Hann var einn af fyrstu starfsmönnum Flugfélags Íslands og vann þar alla tíð og síðar hjá Flugleiðum eftir sameiningu félaganna. Hann er virkur kvæðamaður og starfaði í Kvæðamannafélaginu Iðunni, lengst af í stjórn og formaður í áratugi. Heið- ursfélagi frá árinu 1995. Eiginkona Orms er Alfa Guðmundsdóttir. Ormur dvelst nú um stundarsakir á St. Franciscuspít- alanum í Stykkishólmi. 60árabrúð- kaupsafmæli. Miðvikudaginn 9. apríl fögnuðu hjónin Unnur og Jóhannes Proppé 60 ára brúðkaups- afmæli. Þau eru til heimilis að Hæðargarði 33, 108 Reykjavík. dagbók Í dag er fimmtudagur 10. apríl, 101. dagur ársins 2008 Orð dagsins: En hvert tré þekkist af ávexti sínum, enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af þyrnirunni. (Lúkas 6, 44.) Samtökin ’78 hafa á vormisseriefnt til fyrirlestraraðar í sam-starfi við deildir og stofnanirHáskóla Íslands. Á morgun, föstudag, er röðin komin að Önnudís G. Rúdólfsdóttur, dósent við University of the West of England, sem ætlar að að flytja erindið Sigrar ástin allt? – um ráðgjafar- og sjálfs- hjálparbækur fyrir fjölskyldur samkyn- hneigðra. Fyrirlesturinn byggir Annadís á rannsókn sem hún vann ásamt kollega sínum Viktoríu Clarke, þar sem sjálfs- hjálparbækur fyrir aðstandendur sam- kynhneigðra voru greindar: „Notað var þægindaúrtak af sjálfshjálparbókum og textinn greindur með feminískri texta- greiningu. Við höfðum áhuga á að skoða bækurnar með hliðsjón af hvers konar hugmyndir um samkynhneigð þær bjóða upp á og kryfja þau ráð sem les- andanum eru gefin til að hugsa um samkynhneigð og bregðast við. Um leið og við greindum þá möguleika sem fróðleikur bókanna opnaði fyrir höfðum við augun opin fyrir þeim möguleikum sem lokað var fyrir um leið,“ segir An- nadís. Sjálfshjálparbækur af þessu tagi fóru fyrst að líta dagsins ljós á seinnihluta áttunda áratugarins og segir Annadís þær hafa notið mikilla vinsælda: „Margar þessara bóka koma frá Banda- ríkjunum, og eru óneitanlega þannig gerðar að þær vilja styðja hefðbundnar hugmyndir um stöðu homma og lesbía, frekar en að þær reyni að opna fyrir róttækari leiðir til að líta á samkyn- hneigð,“ útskýrir Annadís. Í bókunum fundu þær Annadís og Viktoría nokkur meginstef: „Töluverð áhersla er lögð á að samkynhneigð sé meðfædd, hommar og lesbíur geti ekki að kynhneigðinni gert og verði þar af leiðandi að samþykkja kynhneigðina. Þannig er í raun gefið í skyn að gagn- kynhneigðin sé hið rétta norm og þurfi að sætta sig við samkynhneigðina sem frávik,“ segir Annadís. „Iðulega er áhersla á mikilvægi þess að finna hið sanna sjálf og þann persónulega vöxt og umbreytingu sem verður við að sætta sig við kynhneigð sína – en um leið er það eins og þversögn að í bókunum er lögð á það ofuráhersla að einstakling- urinn breytist ekkert við að koma út úr skápnum, sé enn sá sami og áður.“ Fyrirlesturinn á morgun fer fram í stofu 101 í Odda og hefst kl. 12.15. Samfélag | Misvísandi skilaboð sjálfshjálparbóka um samkynhneigð Ástin sigrar allt – eða hvað?  Annadís Rúd- ólfsdóttir fæddist í Reykjavík 1964. Hún lauk BA-prófi í sálfræði frá HÍ 1989 og meist- araprófi í fé- lagslegri sálfræði frá LSE 1990 og doktorsgráðu frá sama skóla 1997. Annadís kenndi við Háskóla Íslands 1997-1999, við LSE 1999-2000 og hefur frá 2000 verið lektor og síðan dósent í félagssálfræði við University of the West of England. Annadís er gift Boris Maksimov út- varpsmanni og eiga þau tvo syni. Tónlist Glætan bókakaffi | John Long frá Kanada, Magdalena frá Svíþjóð og Jasser frá Íslandi verða í Glætunni kl. 20-22 í kvöld. Ókeypis inn og ekkert aldurstakmark. KAUPMAÐUR raðar appelsínum á ávaxtamarkaði í indversku borginni Kolkata, sem áður hét Kalkútta. Að sögn forstöðumanns Matvælastofnunarinnar munu hátt matarverð og skortur verða viðvarandi á ákveðnum svæðum á komandi misserum og getur það valdið enn frekari baráttu um brauðið. Kaupmaður í Kolkata Reuters FRÉTTIR MORGUNBLAÐINU hefur borist samþykkt stjórnar starfsmannafélags Miðstöðvar og Suðvestursvæðis hjá Vega- gerðinni vegna auglýsingar í stöðu vegamálastjóra. Þar seg- ir m.a: „Þann 18. mars sl. auglýsti ráðuneytið lausa stöðu vega- málastjóra. Í auglýsingunni vakti tvennt athygli stjórnar starfsmannafélags Miðstöðvar og Suðvestursvæðis hjá Vega- gerðinni. Annars vegar eru menntunarkröfur fyrir starfið mjög þröngt skilgreindar. Hins vegar eru boðaðar skipulags- breytingar hjá Vegagerðinni. Hvað varðar menntunar- kröfur vegamálastjóra vill stjórn starfsmannafélagsins árétta að hjá Vegagerðinni eru starfsmenn með fjölbreytta há- skólamenntun og reynslu. Með auglýsingunni er verið að tak- marka mjög þann hóp sem get- ur sótt um stöðuna, bæði innan Vegagerðarinnar og utan. Stjórn starfsmannafélags Miðstöðvar og Suðvest- ursvæðis Vegagerðarinnar krefst þess að staða vega- málastjóra verði auglýst að nýju og aðrir hópar verði ekki útilokaðir frá starfinu. Síðar, þann 28. mars sl., barst tilkynning frá ráðuneyt- inu til starfsmanna Vegagerð- arinnar, þar sem kemur fram að ríkisendurskoðandi muni gera tillögur um breytingar á skipulagi verkefna hjá Vega- gerðinni og Siglingastofnun. Ráðuneytið muni síðan fara yf- ir þessar tillögur og taka ákvarðanir um breytingar í framhaldi af því. Sú vinna verði unnin í fullu samráði við starfsfólk Vegagerðarinnar. Stjórn starfsmannafélagsins óskar eftir því að ráðuneytið upplýsi með hvaða hætti það samráð muni fara fram og hvað hugmyndir ráðuneytið hafi um breytingar á skipulagi Vegagerðarinnar.“ Upplýst verði um skipulagsbreytingar Röng stofnun Ranghermt var í frétt um heil- borun við Kárahnjúkavirkjun í Morgunblaðinu í gær að Heil- brigðiseftirlit Austurlands hefði komið að málum vegna loft- mengunar í aðrennslisgöngum virkjunarinnar. Hið rétta er að Vinnueftirlit ríkisins lokaði göngunum tvívegis vegna loft- ræstingar- og öryggismála og krafðist úrbóta. Leiðréttist það hér með. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.