Morgunblaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is YFIRVÖLD í San Francisco voru með mikinn öryggisviðbúnað í gær- kvöldi þegar ólympíukyndillinn var borinn um götur borgarinnar. Þús- undir manna söfnuðust saman við leið kyndilsins, sumir til að mótmæla mannréttindabrotum kínverskra stjórnvalda í Tíbet, aðrir til að láta í ljós stuðning við Kína. San Francisco er eini bandaríski viðkomustaður ólympíukyndilsins. Borgin var valin vegna þess m.a. að margir íbúa hennar eru af kínversk- um uppruna. Til átaka kom milli stuðningsmanna Tíbeta, sem héldu á fána Tíbets til að mótmæla mann- réttindabrotum Kínverja, og stuðn- ingsmanna Kína sem héldu á kín- verska fánanum. „Ég er hér vegna þess að þótt ég sé hreykinn af því að vera Kínverji þá er ég á móti því sem er að gerast í Tíbet,“ sagði Xiao Tan, 32 ára lækna- nemi við Stanford-háskóla, sem hélt á fána Tíbets. Stuðningsmenn kín- verskra stjórnvalda reyndu að hrifsa fánann af honum og hrópuðu vígorð á borð við „Ólympíuleikarnir eru ekki pólitík“ og „CNN, lygarar“. „Ólympíuandinn sameinar allt mannkynið, ekki aðeins Kínverja – líka Bandaríkjamenn og alla heims- byggðina,“ sagði Hui Chen, 36 ára stuðningsmaður Ólympíuleikanna í Peking. Hann kvaðst hafa farið til San Francisco í einni af 50 rútum sem íþróttasamtök leigðu til að fagna því að Ólympíuleikarnir verða í fyrsta skipti haldnir í Kína. Aðrir í mannfjöldanum notuðu tækifærið til að mótmæla mannrétt- indabrotum almennt í Kína og stuðn- ingi þarlendra ráðamanna við stjórn- völd í Súdan og Búrma. Kyndillinn hvarf Áður en hlaupið hófst sögðust yf- irvöld vera staðráðin í að koma í veg fyrir að mótmælendur trufluðu það eins og í París á mánudaginn var þegar eldurinn var slökktur nokkr- um sinnum vegna mótmæla. „Við reynum að ná tveimur mark- miðum núna. Annað þeirra er að vernda málfrelsið og hitt að tryggja öryggi almennings, og hér í San Francisco erum við góð í hvoru tveggja,“ sagði Nathan Ballard, tals- maður borgarstjórans Gavins New- soms. Gert hafði verið ráð fyrir því að kyndillinn yrði borinn um tíu kíló- metra langa leið meðfram strönd San Francisco en lögreglan sagði að ákveðið hefði verið á síðustu stundu að stytta hana um tæpan helming vegna þess að mótmælendur hefðu lokað henni. Skömmu eftir að fyrsti kyndilber- inn hóf hlaupið fór hann inn í vöru- hús við höfnina og kyndillinn sást ekki í um hálfa klukkustund. Hann birtist síðan um einn og hálfan kíló- metra frá fyrirhugaðri leið hlaups- ins. Vegartálmar voru notaðir til að loka nálægum götum. Aðeins lög- regluþyrlum, sjúkraflutningavélum og þyrlum fjölmiðla var leyft að fljúga yfir borgina. Brown ekki við setninguna George W. Bush Bandaríkjafor- seti hvatti stjórn Kína til að hefja viðræður við Dalai Lama, leiðtoga Tíbeta, sem hann sagði „friðsaman mann“ er berðist ekki fyrir sjálf- stæði Tíbets, heldur fyrir því að Tíb- etar fengju að halda menningu sinni. Talsmaður Bush vildi ekki svara því hvort forsetinn hygðist vera við- staddur setningarathöfnina í Peking. Breska forsætisráðuneytið skýrði frá því í gær að Gordon Brown for- sætisráðherra yrði ekki viðstaddur setningarathöfnina. Ráðuneytið tók fram að það hefði aldrei verið ætlun Browns að vera við athöfnina. „Við höfum alltaf sagt að hann verði við lokaathöfnina,“ sagði talsmaður for- sætisráðuneytisins. Leið ólympíukyndilsins breytt vegna mótmæla Þúsundir mótmælenda trufluðu hlaup með ólympíueldinn í San Francisco Reuters Heitt í hamsi Stuðningsmenn Tíbeta karpa við stuðningsmenn Ólympíu- leikanna í Peking áður en hlaupið var með kyndilinn um San Francisco.           ! !"  #$%    &$  '(& ) * +    "+ $    (  "  -+ . $           /$    ! 0$1   "  #$!% & $& '('  )  ' *   2                       !"# $%  &   ' ( )  *     + *$  + &     3,  1 -+           4, +1 /"$"           !  "   , +1 2 #   "   ! " !    $   % " " "        5  $1  + %$  '+    2 , Í HNOTSKURN » Ólympíukyndillinn á að faratil 23 borga í fimm heims- álfum og síðan um Kína á 130 dögum. » Kyndillinn verður fluttur tilKína 4. maí. Eftir þriggja mánaða ferð um landið fer hann til Peking þar sem hann verður notaður til að kveikja ólympíu- eldinn við setningarathöfn Ól- ympíuleikanna 8. ágúst. » Alls á ólympíueldurinn aðfara 137.000 km leið, sem er sú lengsta í sögu Ólympíu- leikanna. BARACK Obama hefur náð mun betur til unga fólksins í Bandaríkjunum en keppinaut- urinn Hillary Clinton. Sex af hverjum tíu þátttakendum und- ir 30 ára aldri í forkosningum demókrata hafa stutt hann, seg- ir í grein á vefsíðu The New York Times. Og sumir foreldrar kveinka sér jafnvel undan áganginum, stanslausum áskorunum unga fólksins og rökræð- um. Enn aðrir finna fyrir vænum skammti af fortíð- arþrá og minnast þess þegar þeir voru ungir og fullir af eldmóði, til dæmis í baráttunni gegn Víet- namstríðinu. Ýmsum aðferðum er beitt. Megan Simpson er 22 ára og stundar nám við ríkisháskólann í Pennsylv- aníu. Hún hafði suðað lengi án árangurs í föður sín- um, Ralph E. Simpson yngri, sem er fimmtugur repúblikani, til að fá hann til að skipta um flokk og geta þá kosið Obama í forkosningunum 22. apríl. Loks tókst henni að bræða hann. „Ég skal ná í eyðublöðin fyrir þig strax daginn eftir forkosningarnar ef þú vilt gerast aftur repú- blikani,“ sagði hún. Faðirinn gafst upp. „Líklega skipti ég aftur um flokk,“ segir Simpson, „en ég er ekki búinn að ákveða hvern ég kýs í sjálfum for- setakosningunum. Ef Meg heldur áfram að róa í mér er aldrei að vita hvað gerist.“ Þekktir demókrataleiðtogar hafa lýst því hvernig börnin þrýsta á þá um að styðja Obama, þ. á m. Bob Casey, öldungadeildarþingmaður í Pennsylvaníu, Jim Doyle, ríkisstjóri í Wisconsin og Kathleen Sebelius, ríkisstjóri í Kansas. Fjórar dætur Caseys, frá 11-19 ára, festu upp plaköt með Obama í svefn- herberginu og hlusta nú þegjandi og með andagt í stofunni þegar frambjóðandinn flytur ræðu í sjón- varpinu. Þótt stjórnmálamenn geri yfirleitt mikið af því að vísa til þess að hafa beri í huga framtíð barnanna er það sögulega séð harla sjaldgæft að þeir láti skoð- anir barna sinna hafa umtalsverð áhrif á sig. „Börnin eru sennilega dýrmætari fyrir okkur en fyrri foreldrakynslóðir,“ segir Dan Kindlon, barna- sálfræðingur við Harvard-háskóla. „Við eigum færri börn, við erum full afstæðishyggju og auð- veldara fyrir þau að telja okkur hughvarf. Margir foreldrar eru dálítið hræddir við börnin sín.“ En sumir foreldrar eru líka stoltir af því að eiga börn sem sýna áhuga á pólitík en láta ekki duga að blaðra um sérhagsmuni sína og partí. Telja foreldrunum hughvarf Barack Obama Mikill áhugi er á framboði Baracks Obama meðal ungs fólks í Bandaríkjunum Í HNOTSKURN »Barack Obama er 46 ára, þrem árum eldrien John F. Kennedy var þegar hann var kjörinn forseti árið 1960. » Yngsti forseti landsins frá upphafi varTheodore Roosevelt. Hann var 42 ára þeg- ar hann tók við embætti 1901 eftir að William McKinley var myrtur. » Kjörsókn fólks undir þrítugu hefur að jafn-aði verið mun minni í forsetakosningum í Bandaríkjunum en gerist meðal eldra fólks. FORSETI Sam- bíu, Levy Mwanawasa, hef- ur boðað til neyð- arfundar sam- taka ríkja í sunnanverðri Afríku (SADC) næstkomandi laugardag vegna ástandsins í Sim- babve. Mwanawasa telur nauðsyn- legt að leiðtogar grannríkja Sim- babve komi saman til að leita lausnar á vandanum í Simbabve en niður- stöður forsetakosninga sem þar voru haldnar í lok mars síðastliðins hafa ekki enn verið birtar auk þess sem landið á við gríðarlegan efnahags- vanda að stríða. Biðin eftir kosninga- úrslitunum hefur valdið ólgu í land- inu og stjórnarandstaðan sakar yfirvöld um að undirbúa kosninga- svik. Mwanawasa er einn fárra leiðtoga í Afríku sem hafa tjáð sig opinber- lega um ástandið í Simbabve og hef- ur stjórnarandstaðan gagnrýnt af- skiptaleysi grannríkjanna. Formaður stærsta stjórnarand- stöðuflokksins, Morgarn Tsvangirai, hefur verið á ferð í grannríkjunum til að hvetja til afskipta leiðtoga þeirra og auka þannig þrýsting á að úrslit verði gerð kunn. Forseti Suður-Afr- íku, Thabo Mbeki, hefur hingað til ekki viljað aðhafast heldur hefur hann hvatt til þolinmæði. Boðar til neyðar- fundar Levy Mwanawasa TIL STENDUR að hanna nýtísku einkennisbúninga á foringja rúss- neska hersins og hefur tískuhönn- uðurinn Valentin Yudashkin verið fenginn til verksins. Efasemdir eru þó um að búning- arnir henti herforingjunum, þar sem tæplega fjórðungur þeirra er of þungur og í slæmu líkamlegu formi. Því hefur verið blásið til líkams- ræktarátaks meðal foringjanna svo útlit þeirra sæmi nýju búningunum og til stendur að reisa leikfimisali og sundlaugar til að koma patt- aralegum herforingjum í form á ný. Eftir ástandsmælingar þar sem foringjarnir voru prófaðir í sundi, hlaupum og skotfimi kom í ljós að mikil þörf er á frekari æfingum, sér- staklega þolæfingum. Sérstakt átak er einnig ráðgert til að efla þátt íþrótta innan hersins. Of feitir fyrir herbúningana ♦♦♦ ALYN Smith, sem á sæti í nefnd á þingi Evrópusambandsins um land- búnaðar- og sjávarútvegsmál, gagn- rýnir harðlega stefnu sambandsins í fiskveiðimálum. Kom þetta fram á ráðstefnu um loftslagsmál í Færeyj- um nýverið. Smith vill fá fulltrúa stjórnvalda í Noregi, Færeyjum og á Íslandi á fund til að ræða umbætur á stefnunni. Umræddur fundur um fiskveiði- stefnuna verður í maí. „Því betur sem menn eru kunnugir því hvernig koma má á umbótum þeim mun betri og hæfari eru þeir til að hjálpa bandamönnum sínum,“ sagði Smith. Meðal þeirra sem sóttu ráðstefn- una í Þórshöfn voru Al Gore, fyrr- verandi varaforseti Bandaríkjanna, og Einar Kristinn Guðfinnsson, sjáv- arútvegsráðherra Íslands. Markmið hennar var að vekja athygli á lofts- lagsbreytingum og leggja grunn að loftslagsstofnun í Færeyjum. Samstarf um breytta stefnu? ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.