Morgunblaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Andra Karl andri@mbl.is SEX VORU fluttir á slysadeild Landspítalans eftir harðan árekst- ur tveggja bifreiða á Reykjanes- braut í gærmorgun. Síðdegis í gær lágu enn þrír á gjörgæsludeild – allir þó með meðvitund – en aðrir slösuðust minna. Slysið varð skammt hjá Vogaaf- leggjara, við hjáleið sem lögð var vegna framkvæmda við tvöföldun brautarinnar. Framkvæmdir hafa legið niðri svo mánuðum skiptir og fjöldi slysa átt sér stað á svæðinu. Einar Magnús Einarsson, verkefn- isstjóri hjá Umferðarstofu, segir að bæta verði ástandið hið snar- asta. „Það verður að búa svo um hnútana varðandi umferðarmann- virki, og ég tala nú ekki um fram- kvæmdasvæði, að ef og þegar við gerum mistök þá hljótist ekki al- varleg slys af. Við verðum að krefj- ast þess að þarna verði bætt úr til þess að koma í veg fyrir svona lag- að.“ Vegagerðin sendi frá sér til- kynningu í gær þar sem fram kom að „þrátt fyrir verulegar merking- ar á svæðinu hefur Vegagerðin nú ákveðið að aðskilja akstursstefn- urnar“. Verður það gert með gát- skiltum milli akreina. G. Pétur Matthíasson, upplýs- ingafulltrúi Vegagerðarinnar, sagði í samtali við fréttavef Morg- unblaðsins, mbl.is, að Vegagerðin firrti sig ekki ábyrgð á því sem af- laga hefði farið við framkvæmdirn- ar, aðstæður hefðu þó ekki verið fyrirsjáanlegar og alltaf væri auð- velt að vera vitur eftir á. Þá hefði Vegagerðin ítrekað varað vegfar- endur við að svæðið gæti verið var- hugavert. Umferðarslys á þeim kafla sem unnið hafði verið við, þ.e. rétt aust- an við vegamót Vogaafleggjara og vestur að Njarðvík, hefur fjölgað mikið. Þannig urðu 24 slys á veg- arkaflanum frá ágúst 2004 til jan- úar 2005 – fyrir framkvæmdir – en þau voru 55 frá ágúst á síðasta ári og til janúarloka sl. Áætlanir Jarð- véla ehf., sem sögðu sig frá verkinu í desember, gerðu ráð fyrir að tvö- földun kaflans yrði lokið í ágúst sl. Farþegum brugðið Annað umferðarslys varð í gær- morgun, á Vesturlandsvegi rétt norðan við Grundarhverfi á Kjal- arnesi. Þar rákust saman strætis- vagn og vörubifreið í fljúgandi hálku. Engan sakaði en að sögn ökumanns strætisvagnsins var far- þegum eðlilega brugðið. Hann seg- ist ósáttur við að ekki hafi verið bú- ið að salta veginn þegar vagninn átti leið hjá, en það hafi verið meg- inorsök slyssins. Þrír á gjörgæslu eftir alvar- legt slys á Reykjanesbraut Nauðsynlegar úr- bætur boðaðar Ljósmynd/Víkurfréttir Hætta Umferðarslys hafa verið tíð við Vogaafleggjara að undanförnu. NEMENDUR í Menntaskólanum í Reykjavík hafa í ár unnið hverja þá keppi sem þeir hafa tekið þátt í. Þessu var fagnað með athöfn við skólann í gær. „Hugmyndin á bak við þessa athöfn var að þakka okkar af- reksfólki fyrir það sem það hefur gert fyrir skólann,“ segir Gísli Baldur Gíslason, scriba scholaris í MR. Viðureignirnar sem skólinn hefur unnið í vetur eru Morfís, Gettu betur, keppnisdagur MR og Verslunarskóla Íslands og námsgreinakeppnir en í þeim var keppt í eðlisfræði, efnafræði, stærðfræði, þýsku og frönsku. Gísli Baldur segir skólann styðja vel við hæfileikafólkið sem keppir í hans nafni. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Unnið hverja keppni Góður árangur hæfileikaríkra nemenda í MR í vetur Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is ÞORGERÐUR Katrín Gunn- arsdóttir menntamála- ráðherra ætlar að öllu óbreyttu að vera viðstödd opnunarhátíð Ólympíuleik- anna í Bejing í ágúst. Vel verði fylgst með þró- un mála en ef aðstæður breytist til hins verra, komi til greina að fara ekki. „Það er alveg ljóst að við fordæm- um öll þau mannréttindabrot sem eru viðhöfð af hálfu kínverskra stjórnvalda, bara þannig að það sé skýrt,“ sagði Þorgerður Katrín. Að öllu óbreyttu yrði hún við opnun- arhátíðina í Bejing líkt og hún var viðstödd opnunarhátíðina í Aþenu árið 2004. „Þar var ég ekki í boði grískra stjórnvalda, heldur í boði íþróttahreyfingarinnar sem fór fram á að ég yrði viðstödd og það sama á við núna. Ég verð fyrst og fremst þarna til að styðja við bakið á okkar íþróttafólki og hvetja það til dáða en ekki til að strjúka Kínverj- um. En að sjálfsögðu er það þannig að maður fylgist náið með hvernig mál þróast,“ sagði hún. SUS vill ekki senda Þorgerður Katrín sagði að mik- ilvægt væri að alþjóðaólympíu- nefndin stæði í lappirnar gagnvart kröfum stjórnvalda, kínverskra sem annarra. Hún bætti við að hún teldi að það hefði hingað til ekki skilað árangri að sniðganga Ólympíuleika, t.d. þegar Bandaríkin og sumir bandamenn þeirra sóttu ekki Ól- ympíuleikana í Moskvu árið 1980 en Austurblokkin galt í sömu mynt í Los Angeles árið 1984. Samband ungra sjálfstæðis- manna er meðal þeirra sem hafa hvatt íslenska stjórnmálamenn til að sniðganga opnunar- og lokahátíð Ólympíuleikanna og sýna með þeim hætti andstöðu við meðferð kín- verskra stjórnvalda á þegnum sín- um. Ungir sjálfstæðismenn telja sjálfsagt að senda íslenska íþrótta- menn en segja að það sé „algjör óþarfi að íslensk stjórnvöld sendi sína fulltrúa á leikana. Slíkar heim- sóknir verða að áróðursvopni í höndum þarlendra stjórnvalda. Þegnar Kína, sem beittir eru harð- ræði og sviptir mannréttindum, eiga ekki að fá þau skilaboð að kúg- arar þeirra njóti sérstakrar virðing- ar og velvilja leiðtoga lýðfrjálsra þjóða,“ segir í tilkynningu SUS.  Mennamálaráðherra fer í boði íþróttahreyfingarinnar en ekki stjórnvalda Fer á opnunarhátíðina en ekki til að strjúka Kínverjum Í HNOTSKURN » Hefð er fyrir því aðmenntamálaráðherra, sem jafnframt er ráðherra íþrótta- mála, fari á opnunarhátíð Ól- ympíuleika og hitti íslensku keppendurna. » Björn Bjarnason, þámenntamálaráðherra, var viðstaddur opnunarhátíðir Ól- ympíuleikanna í Atlanta 1996 og Sydney 2000 og Þorgerður Katrín var viðstödd opn- unarhátíðina í Aþenu árið 2004. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ÞRJÚ ungmenni slösuðust í bílveltu á Ak- ureyri í hádeginu í gær. Ekkert þeirra er í lífshættu en að sögn lækningaforstjóra Sjúkrahússins á Akureyri eru þau öll bein- brotin og tognuð. Tveir karlar, ökumaður og farþegi í framsæti, köstuðust út úr bílnum en hvor- ugur var með bílbelti spennt. Stúlka var föst í aftursætinu eftir slysið en sjúkra- flutningamenn náðu henni út um það bil klukkustund eftir óhappið. Slysið varð með þeim hætti að bílnum var ekið niður Borgarbraut á miklum hraða að sögn sjónarvotta. Rétt neðan við gatnamótin við Dalsbraut missti ökumað- ur stjórn á bílnum sem rásaði um stund, lenti því næst á ljósastaur og kastaðist á hlaðinn grjótgarð sem liggur upp með götunni. Þaðan þeyttist bíllinn áfram og staðnæmdist á gangstíg við Borgarbraut- ina. Mildi var að enginn var þar á ferð og engin umferð á móti. Þrír á sjúkrahús eftir bílveltu Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson MÁL ákæruvaldsins gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra Baugs, Tryggva Jónssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Baugs, og Jóni Geraldi Sullenberger, fyrrverandi viðskiptafélaga Baugsmanna, betur þekkt sem Baugsmálið, er á dag- skrá Hæstaréttar 14. og 15. maí næst- komandi. Settur ríkissaksóknari í þessu máli er Sigurður Tómas Magnússon og verj- endur eru hinir sömu og þegar málið var flutt í héraði, þ.e. Gestur Jónsson fyrir Jón Ásgeir, Jakob R. Möller fyrir Tryggva Jónsson og Brynjar Níelsson fyrir Jón Gerald. Garðar Gíslason, Gunnlaugur Claessen, Hjördís Hákonardóttir, Markús Sig- urbjörnsson og Páll Hreinsson dæma málið í Hæstarétti. Baugsmálið flutt í Hæstarétti SÍMINN og Vodafone hafa fallist á til- mæli talsmanns neytenda þess efnis að tilkynna framvegis öllum neytendum fyrirfram um verðhækkanir og aðrar breytingar á skilmálum, neytendum í óhag. Fresturinn, sem neytendur eiga að hafa til þess að bregðast við, er einn mánuður. Þetta kemur fram á vef tals- manns neytenda (www.talsmadur.is). Þar kemur fram að talsmaðurinn, Gísli Tryggvason, hafi sent fjarskipta- fyrirtækjunum Símanum og Vodafone almenn tilmæli um að tilkynna við- skiptavinum sínum framvegis persónu- lega og með mánaðarfyrirvara um hækkanir á verðskrá. Fram að þessu hafi slíkar breytingar aðeins verið kunngjörðar með fréttum og upplýs- ingum á vefsíðum fyrirtækjanna auk til- kynningar til Póst- og fjarskiptastofn- unar (PFS). Tilefni tilmælanna er að fyrirtækin hafa frá áramótum breytt verðskrá sinni til hækkunar án þess að tilkynna neytendum hverjum og einum um breyt- inguna með bréfi, tölvuskeyti eða öðr- um hætti eins og talsmaður neytenda telur rétt að gera. Nova, sem einnig fékk tilmælin, kveðst hafa fylgt þessari aðferð nýlega þegar fyrirtækið breytti verðskrá sinni þó að sú breyting hafi verið til lækk- unar. Hive fékk einnig afrit af tilmæl- unum svo og PFS. Fallast á til- mæli talsmanns neytenda

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.