Morgunblaðið - 10.04.2008, Side 11

Morgunblaðið - 10.04.2008, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 11 ALÞINGI UTANRÍKISRÁÐHERRA virðist hafa tekið þá eindregnu stefnu að auka umsvif Íslands í Afganistan frekar en hitt. Þetta sagði Stein- grímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, í umræðum um skýrslu utanríkisráðherra á Alþingi í fyrradag og þótti lítil innstæða fyrir þeim fögru fyrirheitum að mannrétt- indi, aukin þróunarsamvinna og frið- samlegar lausnir deilumála væru ný- ir hornsteinar íslenskrar utanríkisstefnu. Steingrímur var ósáttur við stuðn- ing Íslands við „bandaríska harð- línustefnu“ um stækkun Atlants- hafsbandalagsins (NATO) til austurs og gagnrýndi einnig harðlega aukin hernaðarútgjöld. „Eini efnislegi hluturinn sem ég hef nokkurn tíma heyrt menn benda á, sem gæti rétt- lætt einhver aukin umsvif Íslands að þessu leyti, eru siglingar olíuskipa. Það er það eina sem menn hafa getað komið með þegar þeir eru spurðir: Hver er óvinurinn, hver er hættan af þessu tagi?“ sagði Steingrímur og vildi fremur að fjármunum væri var- ið í að búa almennilega að lögregl- unni og björgunarsveitum, efla al- mannavarnir o.s.frv. Ísland leggi sitt af mörkum Kristinn H. Gunnarsson, þing- maður Frjálslynda flokksins, var hins vegar á þeirri skoðun að Ísland ætti að halda áfram að taka þátt í starfi NATO í Afganistan. „Ég tel það rétta ábendingu að þarna sé griðastaður fyrir uppvaxandi hryðjuverkamenn og hryðjuverka- samtök. Þær þjóðir sem þurfa öðrum fremur að varast slíkt eiga hiklaust að beita sér fyrir því að torvelda slík- um samtökum og aðilum störf sín, jafnvel þótt það sé í fjarlægum lönd- um,“ sagði Kristinn og lagði einnig í máli sínu áherslu á þátttöku Íslands í alþjóðastarfi en þó ávallt með sjálf- stæðið í huga þannig að ákvarðanir væru teknar út frá íslenskum hags- munum. Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, áréttaði að utanríkismál væru í reynd innanrík- ismál, enda snerti það sem ætti sér stað á alþjóðavettvangi daglegt líf og störf Íslendinga, og var á þeirri skoðun að Ísland ætti fullt erindi í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. „Við erum hluti af hinni stóru mynd og eigum ekki að sitja í skjóli sem eitthvert smáríki. Við eigum að taka virkan og fullan þátt,“ sagði Magnús og áréttaði einnig mikilvægi aðildar Íslands að NATO. Sigling olíuskipa eina ógnin?  Vinstri græn eru ósátt við þátttöku Íslands í friðargæslu NATO í Afganistan en Framsókn og Frjálslyndir eru jákvæðari  Griðastaður fyrir uppvaxandi hryðjuverkamenn, segir Kristinn H. Morgunblaðið/Frikki Olíuógn Steingrímur J. er ósáttur við aukin hernaðarútgjöld og segir að eina ógnin sem menn hafi getað bent á sé sigling olíuskipa við landið. EINU tækifærin sem boðuð upp- stokkun lögreglustjóraembætt- isins á Suðurnesjum felur í sér eru tækifæri til að eyðileggja gott verk og gott samstarf, sagði Kristinn H. Gunnarsson, þing- maður Frjálslynda flokksins, á Alþingi í gær. Honum þótti ekki mikið koma til orða Bjarkar Guðjónsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokks, um að boðaðar breytingar gætu skapað ný tækifæri til þess að efla löggæslu á svæðinu. „Ég er undrandi á því að það skuli heyr- ast það sjónarmið frá Sjálfstæð- isflokknum, og það frá þingmanni kjördæmisins, að þessi skemmd- arstarfsemi sé tækifæri,“ sagði Kristinn og spurði hvort þetta væru kannski tækifæri til að fá annan sýslumann með „betra flokksskírteini“. Flokksbróðir Kristins, Grétar Mar Jónsson, var einnig harð- orður og sagði Alþingi hafa verið lítilsvirt af dómsmálaráðherra með þessum boðuðu breytingum og Steingrími J. Sigfússyni, for- manni VG, þótti undarlegt að sundra ætti embættinu með sömu rökum og það var sameinað. Tækifæri til að eyðileggja gott samstarf ÁRMANN Kr. Ólafsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefur lagt fram fyrirspurn til samgönguráðherra um slit flutningabíla á vegum lands- ins. Hann vill vita hversu miklu meira hlutfallslega flutningabíll, með 80% hleðslu, slítur en með- alfólksbíll sem sé 1.800 kg. Mismunandi slit á vegum? ÍSLAND hefur ráðist í fullmörg ný verkefni í þróunarsamvinnu og fyr- ir vikið er tiltölulega lágum fjár- hæðum varið til verkefnanna. Þetta er mat Bjarna Benediktssonar, for- manns utanríkismálanefndar Al- þingis, en í umræðum um skýrslu um utanríkismál sagðist hann vilja láta skoða gaumgæfilega hvernig auknum fjármunum til þróunar- aðstoðar verði ráðstafað. Hugsanlega ætti að veita fjár- munum í færri verkefni og fram- lögin yrðu þá hærri á hverjum stað fyrir sig. Þá kallaði hann eftir því að Alþingi hefði virkara eftirlit með þróunarverkefnum. Of mörg þróun- arverkefni ÞAÐ ER lífsins ómögulegt fyrir sveitarfélögin að reka framhalds- skóla ef þau geta ekki leyst úr ein- földum álitaefnum varðandi rekst- ur tónlistarskóla, sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra á Alþingi í gær og vísaði til vandræðagangs með skólagjöld fyrir tónlistarnema sem sækja nám í öðrum sveitarfélögum. Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokks, sagði of mörg dæmi þess að nemendur þyrftu að greiða háar fjárhæðir fyrir tónlist- arnám ættu þeir ekki lögheimili í viðkomandi sveitarfélagi og spurði ráðherra hvenær „átthagafjötrum“ yrði létt af tónlistarnemendum landsins Þorgerður sagði aftur á móti að ákvörðunin væri ekki á hendi rík- isins heldur sveitarfélaganna enda væru tónlistarskólar á þeirra ábyrgð. „Það er hins vegar alveg ljóst að breytingar á núverandi fyr- irkomulagi verða ekki gerðar nema með breytingum á lögum um fjár- hagslegan stuðning við tónlist- arnema,“ sagði Þorgerður og árétt- aði skoðun sína að grunn- og miðstig listnáms ætti að vera á for- ræði sveitarfélaga en framhalds- stigið á forræði ríkisins. Tónlistarnemendur bundnir átthagafjötrum? Morgunblaðið/Golli Dýr sláttur Það getur verið misdýrt fyrir framhaldsskólanemendur að ganga tónlistarmenntaveginn eftir því hvar þeir eiga heima. Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is ÞAÐ ER nauðsynlegt fyrir sjálf- stæði þjóðarinnar að áfram verði tryggt að Íslendingar geti byggt upp sinn iðnað með umhverfisvænum orkugjöfum og þannig lagt sitt af mörkum til umhverfismála á heims- vísu. Þetta sagði Höskuldur Þór Þór- hallsson, þingmaður Framsóknar- flokksins, í utandagskrárumræðum um samningsmarkmið ríkisstjórnar- innar í loftslagsmálum á Alþingi í gær og vildi skýrar yfirlýsingar frá stjórnvöldum um hvort íslenska ákvæðið svonefnda yrði meðal mark- miða. Þórunn Sveinbjarnardóttir um- hverfisráðherra sagði engin ríki hafa formlega lagt fram tillögur með tölu- legum skuldbindingum við samn- ingaborðið enda væri samningaferlið rétt að hefjast. Það væri stefna Ís- lands að vera í hópi þeirra ríkja sem vilja að iðnríkin fari fram með góðu fordæmi á næsta skuldbindinga- tímabili, þ.e. fram til 2020. Alvirkjun Íslands Þórunn sagði að hér á landi ætti að draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda um 50-70% fyrir árið 2050. „Sú áætlun stendur,“ sagði hún og blés á rök sem fram komu í umræðunum um að Íslandi bæri hnattræn skylda til að virkja. Það væri ábyrgðarlaus málflutningur að halda því fram að „einhvers konar alvirkjun Íslands til álframleiðslu“ væri kostur. Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði það hljóta að vera stefnu ríkisstjórnarinnar að byggja á íslenska ákvæðinu, sem hann benti þó á að væri ekki sérstakt íslenskt ákvæði. Það næði til fleiri ríkja og byggði á kröfu um endurnýj- anlega orku og að notkun hennar leiddi til samdráttar í losun gróður- húsalofttegunda í heiminum. Kolbrún Halldórsdóttir, þingmað- ur Vinstri grænna, efaðist um að hugur fylgdi máli hjá ríkisstjórninni þegar kæmi að góðum markmiðum í loftslagsmálum enda væri ósam- ræmi milli yfirlýsinga Þórunnar og annarra ráðherra. Flest annað en að draga úr losun hér heima fyrir virtist talið mikilvægt, ef marka mætti orð ráðherranna. Deilt um hvort halda eigi í „íslenska ákvæðið“ Hlýtur að eiga að byggja á því, segir Illugi Gunnarsson ÞETTA HELST … Breytir engu um tolla Innleiðing Evrópu- sambandslög- gjafar um land- búnaðarmál er ekki sú grundvall- arstefnubreyting á landbúnaðar- stefnu Íslands sem ætla mætti af ræðu Einars K. Guðfinnssonar í Valhöll sl. helgi, sagði Valgerður Sverrisdóttir, Fram- sókn, á þingi í gær. „Með þessum breytingum mun frelsi til innflutnings búfjárafurða aukast. Breytingin hefur þó engin áhrif á það fyrirkomulag sem er við lýði á innflutningi búfjár- afurða að því er varðar tolla,“ áréttaði hún. Menga meira Helga Hjörvari, þingmanni Sam- fylkingar, þótti málflutningur Framsóknar- flokksins í um- ræðum um lofts- lagsmál á þingi í gær undarlegur. „Skilaboð hans til heimsins eru ein: Mættum við fá að menga meira?“ sagði Helgi og fannst talið ábyrgð- arlaust nú þegar alþjóðasamfélagið stæði frammi fyrir þeirri ógn sem loftslagsbreytingar væru. Lítil áhrif á EES Formleg staða sveitarfélaga til að fylgjast með rekstri EES-samningsins og taka þátt í umræðu um framvindu hans er ekki fyrir hendi. Þetta kemur fram í skýrslu utanríkisráðherra um skuldbindingar íslenskra sveitarfé- laga í EES-samningnum sem var unn- in að beiðni Árna Þórs Sigurðssonar, VG, og fleiri þingmanna. Í skýrslunni kemur fram að margar óformlegar leiðir séu til að hafa áhrif, m.a. í gegn- um skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga í Brussel. Öfugur endi Varnarmálafrumvarpið er nú komið til þriðju umræðu en atkvæðagreiðsla eftir aðra umræðu fór fram í gær. Frumvarpið verður því fljótlega að lög- um en vinstri græn vildu heldur senda það aftur til ríkisstjórnarinnar sem ætti að standa við gefin loforð um samráð. Byrjað hefði verið á öfug- um enda og engin þarfagreining eða hættumat farið fram. Dagskrá þingsins Þingfundur hefst kl. 10.30 í dag með óundirbúnum fyrirspurnum en einnig á að ræða frumvarp um Veðurstofu Íslands og lagabreytingar varðandi verðbréfaviðskipti. Valgerður Sverrisdóttir Helgi Hjörvar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.