Morgunblaðið - 10.04.2008, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
LEÐURINNRÉTTING 170 HESTÖFL DREGUR 3.300 KG STÖÐUGLEIKASTÝRING SPÓLVÖRN ÞAKBOGAR
SUPER SELECT® 4X4 DRIFBÚNAÐUR SEX ÞREPA SJÁLFSKIPTING SJÖ SÆTA DÖKKAR RÚÐUR 100%
LÆSING AÐ AFTAN 18 TOMMU ÁLFELGUR XENON LJÓS 860W ROCKFORD HLJÓMKERFI MEÐ 4 GB
MINNI FYRIR TÓNLIST 7" LCD DVD SKJÁR MEÐ BAKKMYNDAVÉL OG FLEIRA
Pajero Instyle Dísil 6.990.000 krónurPajero kostar frá
5.890.000 kr.
BETRA VERÐ OG BÚNAÐUR
FYRIR LAND OG ÞJÓÐ
BÁTASMIÐJAN Trefjar í Hafn-
arfirði afgreiddi í lok mars nýjan
Cleopatra-bát til Kjøllefjord í
Finnmerkurfylki í Noregi.
Kaupendur bátsins eru útgerð-
arfyrirtækið Striptind AS, Frode
Lyngdal, Tor Petter Krogh og
Jonny Pedersen sem jafnframt
verða skipverjar á bátnum.
Báturinn hefur hlotið nafnið
Striptind. Báturinn mælist 15
brúttótonn. Striptind er af gerðinni
Cleopatra 36 sem er sérstök útgáfa
af Cleopatra 38.
Báturinn er annar báturinn sem
Trefjar afgreiða til útgerðarinnar
en systurskipið Vårliner fékk út-
gerðin afhent í desember síðast-
liðnum.
Aðalvél bátsins er af gerðinni
Volvo Penta D12, 715 hestöfl
tengd ZF V-gír. Báturinn er útbú-
inn fullkomnum siglingatækjum af
gerðinni Furuno og Simrad.
Báturinn er einnig útbúinn með
vökvadrifinni hliðarskrúfu sem
tengd er sjálfstýringu bátsins.
Báturinn er útbúinn til línuveiða
og mun auk þess stunda veiðar á
kóngakrabba hluta úr ári.
Búnaður til línuveiða er frá
Beiti ehf. Öryggisbúnaður bátsins
kemur frá Viking-björgunarbún-
aði.
Rými er fyrir 11 660 lítra ker í
lest. Í bátnum er upphituð stakka-
geymsla og sturtuklefi. Borðsalur
er í brúnni auk stóla fyrir skip-
stjóra og háseta. Svefnpláss er
fyrir fjóra í lúkar auk eldunar-
aðstöðu með eldavél, örbylgjuofn
og ísskáp. Reiknað er með að bát-
urinn hefji veiðar nú í apríl.
Ný Cleopatra 36
til Finnmerkur
ÚR VERINU
Í UTANRÍKISRÁÐUNEYTINU fer
nú fram athugun á kostum þess fyrir
Ísland að gerast aðili að Þróun-
arbanka Afríku.
Þetta kemur fram í greinargerð
Sigurbjargar Sigurgeirsdóttur
stjórnsýsluráðgjafa með tillögum til
utanríkisráðherra um skipulag þró-
unarsamvinnu Íslands. Eins og fram
hefur komið liggur fyrir Alþingi
frumvarp til laga um alþjóðlega þró-
unarsamvinnu Íslands en í lögunum
„verður að finna það stjórnskipulag
sem myndar rammann um stefnu-
mörkun, stefnumótun, framkvæmd
og eftirlit þróunarsamvinnu á vegum
utanríkisráðuneytisins“, eins og segir
í greinargerðinni.
Fram kemur að athugunin hafi haf-
ist í nóvember og nefnt að tvenn rök
geri aðild að bankanum áhugaverðan
kost. Í fyrsta lagi væri bankinn ein
helsta þróunarstofnun Afríku og þar
sem íslensk þróunarsamvinnuverk-
efni á vegum Þróunarsamvinnustofn-
unar Íslands væru að stærstum hluta
unnin í löndum Afríku gæti aðild að
bankanum veitt möguleika á sam-
starfi við hann um framkvæmd verk-
efna. Í öðru lagi gæti aðildin skapað
ný tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki í
Afríku en dæmi væru um að Þróun-
arbankinn hefði unnið að verkefnum
þar sem Íslendingar hefðu ekki getað
boðið fram þjónustu sína vegna þess
að Ísland væri ekki aðili að bank-
anum.
Öll Norðurlönd fyrir utan Ísland
eru aðilar að Þróunarbanka Afríku. Í
greinargerðinni segir að með aðild að
bankanum og þróunarsjóði hans (Af-
rican Development Fund) „mun ís-
lensk utanríkisstefna mótast af skipu-
lagðri umræðu um framkvæmd
þróunarmála í Afríku“.
Aðild Íslands að Þróunar-
banka Afríku í skoðun
Ljósmynd/Hjálparstarf kirkjunnar
Vatnsbrunnur í Mósambík Íslendingar hafa lagt sitt af mörkum í Afr-
íku, meðal annars við að grafa brunna sem kosta ekki mikið.