Morgunblaðið - 10.04.2008, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 13
Ef þú hefur hraðan á geturðu tryggt þér glæsilega útgáfu af Mitsubishi Pajero á einstökum kjörum. Fullkomið fjórhjóladrif með 100%
læsingu að aftan og stöðugleikastýring eru sniðin að íslenskum vegum. Komdu og prófaðu! Þú finnur um leið hvernig 3.300 kg dráttar-
geta og þægindi fyrir allt að sjö manns, 860w Rockford hljómkerfi og 18" álfelgur ásamt bakkmyndavél fullkomna aksturinn.
ÖRFÁIR BETUR BÚNIR PAJERO TIL AFGREIÐSLU STRAX
Á Á
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
BIFREIÐAUMBOÐIN B&L og Ingvar
Helgason hafa lækkað verð á nýjum bílum
um allt að 8% en bílar hjá þeim hækkuðu
meira en það frá áramótum. Brimborg hefur
haldið að sér höndum varðandi hækkanir á
árinu og bíður með lækkanir þar til krónan
styrkist frekar.
Misjafnt eftir tegundum
Nýir bílar hjá B&L hafa lækkað um 5% að
meðaltali vegna styrkingar krónunnar.
Lækkunin er svipuð og nýjasta hækkun sem
var vegna veikingar krónunnar.
Andrés Jónsson, upplýsingafulltrúi B&L,
segir að þegar gengið hafi fallið mikið fyrir
skömmu, hafi hækkanir verið óumflýjanlegar
en nú voni menn að jafnvægi sé náð með
styrkingu krónunnar og því hafi verið ákveðið
að lækka verðið aftur og skila styrkingunni
til viðskiptavinanna.
Lækkunin er misjöfn eftir tegundum en
Andrés segir að hún sé frá um 100 þúsund
krónum upp í rúmlega milljón á bíl og með
frekari styrkingu krónunnar megi gera ráð
fyrir frekari lækkunum.
Karl Steinar Óskarsson, sölustjóri hjá
Ingvari Helgasyni, tekur í sama streng. Hann
segir að allir nýir bílar hafi lækkað í fyrradag
um allt að 8%. Hann bendir á að bílar hjá
umboðinu hafi hækkað samtals um 15% í
þremur áföngum frá áramótum en um leið og
krónan hafi styrkst, hafi verðið verið lækkað.
Hann segir að verði áframhald á styrkingu
krónunnar megi gera ráð fyrir frekari lækk-
unum.
Enn nokkuð í land
Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brim-
borgar, bendir á að frá áramótum til 28. mars
hafi krónan veikst um 30-35% gagnvart er-
lendum myntum en sé tekið mið af sveifl-
unum undanfarna daga sé veikingin um 25-
30%. Á sama tíma hafi verið 9-12% hækkun
hjá Brimborg. Í stað þess að elta toppinn hafi
verið ákveðið að hækka minna í þeirri von að
krónan styrktist aftur. Enn væri verið að
bíða eftir að hún næði 10-12% markinu svo
hægt væri að lækka á ný. Á þessari stundu
væri því ekki ástæða til lækkunar en það yrði
skoðað þegar evran yrði komin niður í 110-
111 krónur.
Lækka verð á nýjum
bílum um allt að 8%
Morgunblaðið/Ómar
Bílar Styrking krónunnar hefur haft áhrif á
verð nýrra bíla hjá B&L og IH.
SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA
hefur samþykkt tillögur stjórnar
AVS rannsóknasjóðs varðandi út-
hlutun aflaheimilda til áframeldis á
þorski fyrir yfirstandandi fiskveiði-
ár. Þetta er í sjöunda sinn sem út-
hlutað er. Níu fyrirtæki sóttu um
kvóta að þessu sinni, og sóttu þau um
tæp 700 tonn, en til ráðstöfunar eru
500 tonn, sem átta fyrirtæki fengu að
þessu sinni til þess að vinna með í
sínum verkefnum.
Vestfirðingar fá mest af þessum
heimildum, en þar fá fimm fyrirtæki
úthlutað alls 350 tonnum. Mest fá
fyrirtækin Álfsfell á Ísafirði og
Hraðfrystihúsið Gunnvör í Hnífsdal,
125 tonn hvort. Þóroddur á Tálkna-
firði fær 75 tonn,
Glaður í Bolung-
arvík 15 tonn og
Einherji á Pat-
reksfirði 10 tonn.
Önnur fyrirtæki,
sem fá úthlutað
eru Brim fiskeldi
á Akureyri 80
tonn, Þorskeldi á
Stöðvarfirði 50 tonn og Síldarvinnsl-
an í Neskaupstað 20 tonn.
Þorskurinn, sem um ræðir, er
veiddur seinni hluta vetrar og færð-
ur lifandi í sjókvíar þar sem hann er
alinn fram á haust. Þá hefur hann
aukið þyngd sína verulega og er
slátrað til sölu erlendis.
500 tonnum út-
hlutað í þorskeldi
MEÐALVERÐ á fiski seldum á fisk-
mörkuðunum í marz er það næst-
hæsta sem sést hefur í þeim mánuði,
168,65 krónur. Það hæsta var í marz
2007, 175,79 krónur. Þetta er 4%
lækkun milli ára.
Meðalverð þrjá fyrstu mánuðina
var kr. 171,31 sem er tæpu prósenti
lægra en á sama tímabili 2007.
Í marz sl. var þorskur dýrari en
áður í þeim mánuði, 243,45, en ýsa
var á 131,88 sem er það fjórða hæsta
sem sést hefur.
Ýmislegt hefur áhrif á þessa þró-
un. Meðal annars voru páskar í marz
í ár og dró það úr framboði á mörk-
uðunum auk þrálátrar brælu. Þá má
nefna að fiskverð á mörkuðum fylgir
gengi krónunnar nokkuð vel, enda er
fiskurinn, sem þar er keyptur seldur
utan.
Framboð nú í apríl hefur verið
mikið og sem dæmi um það má nefna
að síðastliðinn laugardag voru 400
tonn til sölu á mörkuðunum. Verð
hefur lækkað frá því í marz, meðal
annars vegna gengisbreytinga, en
einnig kemur nú minna af stórum
fiski á markaðina, þar sem bæði hef-
ur dregið úr netaveiðum og möskv-
inn verið minnkaður.
!"
#$
%$
&$
$$
$
#$
%$
&$
$
' ' ' '" '( ' ' '$ '$" '$( '$
) *)
Hátt verð á
mörkuðum