Morgunblaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 17
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Heilsuvika Hrafnistu
vikuna 7. til 11. apríl
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Indversk tortilla
með tómatsalsa,
avokatómauki
og icebergsalati
OPNUÐ hefur verið sýning í
Bókasafni Mosfellsbæjar á vinn-
ingstillögu úr samkeppni um úti-
listaverk sem Samorka og Mos-
fellsbær munu reisa á nýju torgi
við Þverholt. Tilefni samkeppn-
innar er 100 ára afmæli hitaveitu
á Íslandi, sem miðast við frum-
kvöðulsstarf Stefáns B. Jóns-
sonar á Suður-Reykjum í Mos-
fellssveit árið 1908, og 20 ára
afmæli Mosfellsbæjar árið 2007.
Vinningstillagan er verkið
Hundraðþúsundmiljón tonn af
sjóðheitu vatni, eftir Kristin E.
Hrafnsson myndlistarmann. Er
þar í titlinum vísað til orða Hall-
dórs Kiljan Laxness í bókinni
Innansveitarkróniku. „Í nið-
urstöðu dómnefndar um verkið
segir: Framsetning tillögunnar
er mjög góð. Mjög auðvelt er að
átta sig á hugmyndinni og öll út-
færsla tillögunnar er vel unnin.
Hugmyndafræðilegur bak-
grunnur nær á skemmtilegan
hátt að samtvinna sögu Mosfells-
bæjar og sögu hitaveitunnar.“
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Tillaga Þessi stúlka settist niður við
hlið vinningstillögunnar.
Tillaga að
útilista-
verki kynnt
AKUREYRI
AKUREYRARBÆR er það sveitar-
félag á Íslandi þar sem mest jafn-
rétti ríkir, samkvæmt niðurstöðum
Jafnréttisvogarinnar, Evrópuverk-
efnis sem stýrt var af Jafnréttis-
stofu. Þetta kom fram á málþingi
sem Jafnréttisstofa stóð fyrir á Ak-
ureyri í gær.
Kynntar voru íslenskar niðurstöð-
ur Jafnréttisvogarinnar, en þar var
staða jafnréttismála mæld hjá sveit-
arfélögum í fimm löndum. Á fund-
inum var meðal annars skýrt frá því
hvaða sveitarfélög standa sig best í
jafnréttismálum, miðað við mæli-
kvarða verkefnisins.
Efstu sætin eru svona skipuð: 1.
Akureyrarkaupstaður, 2. Húnaþing
vestra, 3. Stykkishólmsbær, 4. Sveit-
arfélagið Hornafjörður, 5. Ísafjarð-
arbær, 6. Aðaldælahreppur, 7.
Reykjavíkurborg, 8. Garðabær, 9.
Kópavogsbær og 10. Hafnarfjarðar-
kaupstaður.
Ástæður þess að Akureyrarbær
fékk hæstu einkunn eru meðal ann-
ars jafnt hlutfall kynjanna í bæjar-
stjórn, jafnt hlutfall kynjanna í
nefndum og ráðum og sú staðreynd
að bæjarstjórinn er kona. Auk þess
kemur bærinn vel út hvað varðar
dagvistun barna á aldrinum 1-5 ára
og ágætlega hvað varðar hlutfall
kynjanna í íbúafjölda, að sögn Svölu
Jónsdóttur, sviðsstjóra á Jafnréttis-
stofu.
Tæki til að mæla jafnrétti
Tilgangur verkefnisins var að
gera stöðu jafnréttismála sýnilega
og aðgengilega almenningi.
Spurningar sem varða hlutfall
kvenna og karla í stjórnunarstöðum,
atvinnuþátttöku kynjanna og þátt-
töku kynjanna í ákvarðanatöku voru
sendar til sveitarfélaga. Þátttakend-
ur í verkefninu voru, auk Íslands,
Búlgaría, Finnland, Grikkland og
Noregur. Auk samanburðar á milli
sveitarfélaga innanlands er því hægt
að bera saman niðurstöður á milli
landanna.
„Ég er auðvitað hæstánægð. Þetta
er alveg magnað. Framsetningin er
líka skemmtileg og auðveldar sam-
anburð á milli sveitarfélaga,“ sagði
Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjar-
stjóri á Akureyri, í samtali við Morg-
unblaðið eftir að niðurstaðan var
kynnt. „Þetta er virkilega góður vísir
fyrir okkur að vinna með í framtíð-
inni.“ Svala Jónsdóttir nefndi ein-
mitt að það besta við niðurstöðuna
væri líklega að forráðamenn sveitar-
félaga gætu séð hvað þyrfti að gera
betur. „Heildarniðurstaðan er mjög
ánægjuleg að því leyti að það eru
ekki bara stór sveitarfélög sem fá
góða einkunn. Þetta er góð blanda og
niðurstaðan sýnir að stærðin skiptir
ekki máli í þessu sambandi; lítil
sveitarfélög geta líka staðið sig vel í
jafnréttismálum og það er hvatning
fyrir lítil sveitarfélög sem eru neð-
arlega á listanum núna að sjá hvað
önnur eru að gera og læra af því,“
sagði Svala.
Verkefnið fór fram í fimm löndum;
Noregi, Finnlandi, Búlgaríu og
Grikklandi, auk Íslands. Svala segir
ekki raunhæft að bera allar niður-
stöðurnar saman, t.d. hefðu einungis
Norðurlöndin þrjú kannað öll sveit-
arfélög landsins – hin höfðu ekki
tækifæri til þess.“
Jafnrétti er mest hjá Akureyrarbæ
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Plús Sigrún Björk Jakobsdóttir settist í stól bæjarstjóra á Akureyri í stað
Kristjáns Þórs Júlíussonar í ársbyrjun 2007. Akureyri fær plús fyrir það.
Tilgangur verkefnisins að gera stöðu
jafnréttismála sýnilega og aðgengilega
TENGLAR
..............................................
http://www.jafnretti.is
http://www.tft.gender.is/default/tft
SKIPULAGSRÁÐ Reykjavíkur hefur samþykkt
að setja í auglýsingu tvær deiliskipulagsbreyt-
ingar í miðborginni. Annars vegar er um að
ræða svokallaðan Pósthússtrætisreit og hins
vegar lóðir nr. 7 og 9 við Vegamótastíg. Að
auki samþykkti skipulagsráð tillögu um af-
mörkun og skilmála sérstaks kjarnasvæðis mið-
borgar, þar sem gerðar verðar sérstakar kröf-
ur um metnað, gæði og sérstakt tillit tekið til
borgar- og byggðaverndar.
Í kjölfar Lækjargötubrunans á síðasta ári var
farið í hugmyndaleit vegna skipulags fyrir
svæðið sem hafa skilað sér í deiliskipulag-
stillögu sem tekur mið af verndun sögufrægra
bygginga og uppbyggingu til eflingar fyrir
Kvosina.
Á Pósthússtrætisreit er boðuð mikil breyting
í bakgörðum húsa þar en þeir eru skipulagðir
sem ein heild með gönguleið í gegnum miðjan
reitinn frá Austurstræti til Skólabrúar og teng-
ingum út í Lækjargötu og Pósthússtræti. Skjól-
góð almenningsrými verða til með torgi á bak
við Jómfrúna auk þess sem einn elsti garður
landsins, Landfógetagarðurinn, verður end-
urvakinn og gerður aðgengilegur fyrir almenn-
ing.
Skipulagsráð hefur einnig samþykkt að setja
í auglýsingu breytingartillögu fyrir Vegamóta-
stíg 7-9, sem felur í sér að byggt verði á lóð-
unum nokkurn veginn í samræmi við fyrra
deiliskipulag. Aftur á móti verður á þaki bygg-
ingarinnar endurreistur lítill steinbær, „Herdís-
arbær“, sem áður stóð á Vegamótastíg 7 og var
rifinn seint á sjöunda áratug síðustu aldar og
sömuleiðis verður gamla timburhúsið á Vega-
mótastíg 9 flutt upp á þak.
Skipulagsráð gerir kröfur um metnað í miðbænum
Deiliskipulag Skipulagstillagan nær m.a. til húsanna sem brunnu á horni Austurstrætis og Lækjargötu.
Tekið skal tillit til byggðaverndar