Morgunblaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 20
neytendur
20 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Við settum okkur það mark-mið að vera með samaverð og á Norðurlöndum íjanúar síðastliðnum þegar
við byrjuðum með Ellos-listann,“
segir Baldur Dagbjartsson, fram-
kvæmdastjóri Fólks ehf. sem hefur
rekið póstverslun í 15 ár. „Þetta var
löngu áður en allar þessar geng-
isbreytingar komu til og þá þótti
okkur þetta ansi gott markmið út af
fyrir sig.“
Hann segir stefnuna hafa kallað á
hagræðingu hjá fyrirtækinu auk
þess sem unnið var í því að ná nægi-
lega góðum samningum við erlendu
birgjana svo að þetta væri hægt.
„Um leið erum við með lægri álagn-
ingu en kannski tíðkast í bransanum
svo við tökum stóran hluta af flutn-
ingskostnaði og öðru á okkur sjálf.“
Vörulisti Ellos er gefin út í Sví-
þjóð, Noregi, Danmörku og Finn-
landi auk Íslands en það er norska
útgáfa hans sem notuð er hérlendis.
„Við margföldum verðið í listanum
með 13 sem er gengi norsku krón-
unnar eins og það var í kringum
mánaðarmótin janúar og febrúar.
Núna er gengið hins vegar í kring-
um 14,4 krónur. Engu að síður höld-
um við áfram að notast við marg-
feldið 13 og hækkum ekki um eina
krónu, þrátt fyrir þá lágu álagningu
sem var fyrir. Þetta þýðir að nú er í
raun hægt að kaupa þessar vörur á
lægra verði hjá okkur en í nágranna-
löndunum.“
Yfir þrjár milljónir við-
skiptavina á Norðurlöndum
Áður rak Fólk ehf. HM Rowells-
verslunina og póstlista með sama
nafni. „Nú erum við hins vegar með
tvo lista frá Ellos, aðallistann og svo
Josefssons sem er á vegum sama
fyrirtækis. Viðskiptin hafa verið
mjög góð hjá okkur enda er Ellos
langstærsta fyrirtækið í póstverslun
á Norðurlöndunum með yfir þrjár
milljónir viðskiptavina. Það hefur
sýnt sig að Íslendingar vilja helst
vörur frá Norðurlöndunum því tíska
og kröfur um gæði eru svipuð hér og
þar. Þess vegna henta þessir listar
vel fyrir íslenskan markað.“
Standist varan ekki væntingar eða
passar ekki þegar hún er komin í
höfn geta kaupendur hennar skilað
eða skipt henni að sögn Baldurs.
„Það hefur alltaf verið stefna okkar
að fólk geti skilað vörunni í 14 daga
eftir að það leysir hana út og fengið
hana endurgreidda eða sett hana
upp í annað. Það eina sem við und-
anskiljum er nærfatnaður. Hins veg-
ar er hlutfall skila og skipta mjög
lágt hjá okkur.“ Þess má geta að ým-
iskonar heimilisvara, s.s. handklæði,
sængurfatnaður og borðbúnaður er
einnig fáanleg í gegnum listana.
Beintengd við
pöntunarkerfið í Svíþjóð
Hann segir mikið til sömu við-
skiptavinina versla aftur og aftur í
gegnum listana. „Hins vegar eru
alltaf einhverjir að bætast við og við
höfum mjög gaman af því að það hef-
ur verið góð aukning í versluninni á
þessu ári, núna eftir að við byrjuðum
með nýju listana.“
Afhendingartíminn er tvær til
þrjár vikur að sögn Baldurs. „Þjón-
ustan við viðskiptavinina hefur auk-
ist mikið eftir að við urðum bein-
tengd við pöntunarkerfi Ellos í
aðalstöðvunum í Svíþjóð. Núna
vinnum við í sama kerfi og aðrir á
Norðurlöndum þannig að nú setjum
við pantanir viðskiptavina okkar
beint inn og þannig getum við tekið
strax frá vöru sé hún til. Þetta er
mikill munur frá því sem áður var og
flýtir mikið fyrir afgreiðslu.“ Hann
bætir því við að hægt sé að fá vör-
urnar sendar heim til sín með Ís-
landspósti en margir á Reykjavík-
ursvæðinu kjósi að sækja pakkana
sjálfir í aðsetur Ellos í Kringlunni.
ben@mbl.is
Bjóða ódýrari fatnað en á Norður-
löndunum þrátt fyrir gengisfall
Morgunblaðið/Golli
Póstverslun „Um leið erum við með lægri álagningu en kannski tíðkast í bransanum,“ segir Baldur Dagbjartsson,
framkvæmdastjóri Fólks ehf., sem fær dygga aðstoð við reksturinn frá Claudiu Ólafsson verslunarstjóra.
Póstverslunin Ellos
býður fatnað á sama
verði og á öðrum Norð-
urlöndum og er nú í
raun ódýrari því verðið
hefur ekki hækkað eftir
gengisfall íslensku
krónunnar. Bergþóra
Njála Guðmundsdóttir
heyrði í framkvæmda-
stjóranum.
„ÉG hef tekið eftir því að mjólkur-
kexið frá Frón hefur breyst og ég
hef reynt að hringja og fá svör við
því, en fæ engin. Mig langar að at-
huga hvort fleiri hafa tekið eftir
þessu og er ég afar forvitin að vita
hvers vegna því var breytt. Neyt-
andi.“ Þessi klausa í Velvakanda
Morgunblaðsins sl. föstudag hleypti
af stað hrinu svipaðra athuga-
semda um mjólkurkexið frá Frón
sem birtust hver á eftir annarri í
Velvakanda sunnudagsblaðsins.
Hjalti Nielsen, framkvæmda-
stjóri Fróns, kannast við að breyt-
ingar hafi orðið á kexinu. „Nýlega
endurnýjuðum við vélarnar sem
kexið er framleitt í og við það
breyttist aðeins áferðin á því þótt
bragðið sé það sama. Uppskriftin
hefur ekkert breyst frá því 2001
þegar við tókum transfitusýrur úr
allri okkar framleiðslu. Það er eina
hráefnið sem hefur breyst frá upp-
hafi en trúlega er kexið búið að
vera á markaði frá því 1935–1940.“
Engir varahlutir fáanlegir
Að sögn Hjalta fór breytingar-
ferlið í gang í febrúar á síðasta ári.
„Í raun var það fyrst í haust sem við
náðum kexinu eins líku því gamla
og við teljum okkur geta. Við erum
þó enn að reyna að bæta það með
aðstoð að utan frá okkar vélarfram-
leiðanda en gerum okkur grein fyr-
ir að það verður aldrei nákvæmlega
eins og áður. Hins vegar voru
gömlu vélarnar þannig að kexið gat
verið breytilegt frá degi til dags og
jafnvel innan framleiðslu dagsins.
Við glímdum við geysimiklar kvart-
anir út af því, t.d. af því að kexið
vildi klofna en nú erum við laus við
það.“
Ein athugasemdin í Velvakanda
laut að kremkexinu frá Frón en
Hjalti segir það koma sér á óvart.
„Kremkexið er framleitt í sömu vél-
um og áður og með sömu uppskrift.
Að vísu fluttum við kremkexvél-
arnar í sumar og á meðan fram-
leiddum við það í nýju vélunum en
gamla framleiðslulínan komst aftur
í gagnið í haust. Það gæti verið að
kexið sem viðkomandi talar um hafi
verið úr framleiðslunni þann tíma
sem hún var í nýju vélunum því það
er 12 mánaða stimpill á kexinu. Í
dag eigum við þó að vera með ná-
kvæmlega sömu vöru og áður.“
Hann segist skilja vel að ein-
hverjir séu miður sáttir við breyt-
ingarnar á mjólkurkexinu. „Okkur
var þó nauðugur einn kostur því
gömlu vélarnar voru á síðasta snún-
ingi og engir varahlutir til í þær. Ef
við hefðum beðið með að skipta
þeim út hefði endað með því að þær
hefðu stoppað og þá hefði þjóðin
ekki haft neitt mjólkurkex.“
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Kex í kaffið Ekki þykir öllum
gamla mjólkurkexið bragðast eins
eftir vélarskiptin
Nýjar vélar breyttu
mjólkurkexinu
Bónus
Gildir 10. – 13. apríl verð nú verð
áður
mælie. verð
Ks frosin lambasvið .................... 199 299 199 kr. kg
KS frosinn lambabógur ............... 489 699 489 kr. kg
KS frosnar lambasirlonsneiðar .... 998 1.298 998 kr. kg
Nautaat ferskt ísl. ungnautahakk . 798 998 798 kr. kg
Nautaat ungn.borgarar, 4 stk. ..... 489 599 122 kr. stk.
Ali ferskur svínabógur ................. 499 599 499 kr. kg
Ali ferskar svínakótelettur ........... 1.070 1.605 1.070 kr. kg
Emmess-ísblóm, 6 stk................ 259 299 43 kr. stk.
Bónus spelt pitsadeig, 400 g...... 198 259 495 kr. kg
Bónus nýbakaðir kleinuhr., 2 stk. 198 0 99 kr. stk.
Fjarðarkaup
Gildir 10. - 12. apríl verð nú verð
áður
mælie. verð
Nautahakk ................................ 998 1.173 998 kr. kg
Nautabuff úr kjötborði ................ 1.498 1.790 1.498 kr. kg
Nauta T-bein úr kjötborði ............ 2.398 2.998 2.398 kr. kg
Ali spareibs ............................... 994 1.325 994 kr. kg
Ali bjúgu ................................... 482 642 482 kr. kg
Móa læri/leggur ........................ 559 799 559 kr. kg
Móa kjúklinga strimlar................ 1.495 1.869 1.495 kr. kg
McCain pitsa, 840 g .................. 339 678 403 kr. kg
Hagkaup
Gildir 10. - 13. apríl verð nú verð
áður
mælie. verð
Íslandsgrís kryddl.svínalundir...... 1.609 2.299 1.609 kr. kg
Íslandslamb kryddl.lambalæri..... 1.399 1.998 1.399 kr. kg
Holta-læri m/legg bbq ............... 601 859 601 kr. kg
Holta HM kjúklingavængir........... 419 599 419 kr. kg
Eldfugl kjúklingastrimlar ............. 1.329 1.898 1.329 kr. kg
Eldfugl snitzel ............................ 1.279 1.599 1.279 kr. kg
Caj’P’s folaldavöðvar.................. 1.438 1.798 1.438 kr. kg
Bláberjalæri hálf úrb. m/legg...... 1.698 1.998 1.698 kr. kg
Krónan
Gildir 10. - 13. apríl verð nú verð
áður
mælie. verð
Ungnauta-piparsteik .................. 1.548 3.095 1.548 kr. kg
Nautahakk ................................ 779 1.298 779 kr. kg
Grísakótilettur lúxus, beinlausar .. 1.499 2.498 1.499 kr. kg
Lambafillet með fiturönd ............ 2.718 3.398 2.718 kr. kg
SS Caj́P lærissneiðar.................. 1.889 2.518 1.889 kr. kg
Móa kjúklingabringur ................. 1.769 2.949 1.769 kr. kg
Myllu samlokubrauð fín, 500 g ... 99 139 198 kr. kg
Sprite 2 ltr ................................ 119 157 60 kr. ltr
HD 100% safar, 3 teg., 2ltr......... 239 329 120 kr. ltr
Burtons Toffypops, 150 g ........... 99 135 99 kr. pk.
Nóatún
Gildir 10. - 13. apríl verð nú verð
áður
mælie. verð
Lambakótelettur ........................ 1.298 1.898 1.298 kr. kg
Laxasneiðar .............................. 599 1.169 599 kr. kg
Ýsa með hvítlauk/rjómaosti ........ 998 1.398 998 kr. kg
Keila með hvítlauksosti .............. 998 1.398 998 kr. kg
Ungnautahamborgari, 120 g ...... 129 199 129 kr. stk.
Móa kjúkl. ferskur, 1/1, 2. f/1 .... 449 899 449 kr. kg
Rose kjúklingabr. danskar, 900 g 1.198 1.498 1.331 kr. kg
Myllu heilhv.samlokubr., 770 g ... 179 325 232 kr. kg
Knorr súpa creamy thai, 570 ml.. 327 409 574 kr. ltr
GM Cheerios, 518 g................... 319 369 616 kr. kg
helgartilboðin
Kjúklingur, lamb, naut og
brauðmeti fyrir helgina