Morgunblaðið - 10.04.2008, Síða 27

Morgunblaðið - 10.04.2008, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 27 MINNINGAR ✝ Gunnar Guð-mundur Guð- mundsson frá Raf- nkelsstöðum fæddist í Reykjavík 13. apríl 1936. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 1. apríl síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Guðrún Krist- björg Jónasdóttir, f. 12.8. 1895, d. 3.5. 1975, og Guð- mundur Jónsson, út- gerðarmaður á Raf- nkelsstöðum í Garði, f. 18.7. 1892, d. 10.4. 1984. Systkini Gunnars voru 1) Jón Garðar, f. 2.4. 1918, d. 4.1. 1960, maki Ása Eyjólfsdóttir, f. 13.4. 1918, börn þeirra Dóra, f. 1942, Guðmundur, f. 1943, Geir, f. 1945, Guðrún, f. 1946, Eyjólfur, f. 1949, Hafdís, f. 1950, Jórunn, f. 1951, Garðar, f. 1953, og Sigurður, f. 1955. 2) Kristján Valgeir, f. 2.4. 1918, d. 26.5. 1963, maki Guðný Kjartansdóttir, f. 29.4. 1921, d. 29.5. 2001, börn þeirra Már, f. 1950, d. 1982, Hermann, f. 1951, fæddur Unni Sigurðardóttur, f. 20.4. 1965, gift Hreiðari Gíslasyni, íþrótta- kennara við Iðnskólann í Hafn- arfirði, f. 30.6. 1965, börn þeirra, Thelma María, f. 4.8. 1998, og Aron Ingi, f. 26.1. 2004. Gunnar og Unn- ur Gréta slitu samvistum 1989. Sambýliskona Gunnars til 13 ára var Sigrún Stefánsdóttir frá Land- brotum í Kolbeinsstaðahreppi í Hnappadalssýslu. Þau slitu sam- vistum. Gunnar ólst upp á Rafnkels- stöðum í Garði og þar voru mikil umsvif á þessu stóra heimili, þar sem bæði var rekinn búskapur og útgerð af miklum dugnaði. Hann klárari sína skylduskólagöngu í Barnaskólanum í Gerðahreppi. Hann tók þátt í uppbyggingu á stærstu útgerðarstöð á Suð- urnesjum á þeim tíma með for- eldrum sínum og systkinum sínum. Systkinin skiptu með sér verkum og kom það í hlut Gunnars og Kristjáns að sjá um útveganir fyrir bátana ásamt bílstjórahlutverkum. Í kringum 1963 tók hann að sér út- gerðarstjórn fyrirtækisins og í framhaldi varð hann fram- kvæmdastjóri útgerðarinnar. Hann leiddi einnig Fiskréttarverksmiðj- una Víði í Garði ásamt félaga sín- um. Útför Gunnars verður gerð frá Útskálakirkju í Garði í dag og hefst athöfnin klukkan 14. andvana drengur 1956, og Jörundur, f. 1957. 3) Jónas Frí- mann, f. 3.4. 1919, d. 25.12. 1998, maki Björg Árnadóttir, f. 24.10. 1916, börn þeirra Jórunn, f. 1942, Árni, f. 1947, og Guðmundur, f. 1951. 4) Jörundur, f. 16.10. 1920, d. 15.10. 1927. 5) Karolína Ásthildur, f. 22.9. 1921, d. 8.6. 1988, maki Sigurður Björnsson, f. 20.10. 1930, börn þeirra Guðmundur Kristberg, f. 1950, Sævar, f. 1956, Erla, f. 1956 og Rafnkell, f. 1957. 6) Ragnar Þráinn, f. 28.2. 1923. 7) Jör- undur, f. 2.10. 1930, d. 19.7. 1931. Gunnar trúlofaðist árið 1956 Unni Grétu Úlfsdóttur frá Brú- arlandi í Grímsnesi, f. 30.6. 1932. Foreldrar hennar voru Ulf Jónsson lögfræðingur, f. 12.7. 1906, d. 30.6. 1973 og Vilborg Kolbeinsdóttir kennari, f. 27.10. 1909, d. 16.2. 1992. Gunnar og Unnur Gréta tóku að sér fósturbarn, við fæðingu, „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (Terri Fernandez.) Elsku pabbi, ég er svo þakklát fyr- ir allt það sem þú hefur kennt mér, allar þær stundir sem við höfum átt saman, alla þá ást og þann vinskap sem þú gafst mér sem var ótakmark- aður. Ég þurfti oftast ekki að segja þér ef eitthvað hvíldi á mér, þú fannst það á þér og við ræddum það. Minningin um þig er sterk, mikil og falleg, alveg frá því að ég man eftir mér. Ég man það eins og það hafi gerst í gær … á sunnudagsmorgnum fórum við alltaf á rúntinn út í Garð og heimsóttum Köllu og Sigga (yndis- legar minningar á ég þaðan) síðan lá leiðin „suðrí Sandgerði“ eins og ávallt var sagt í þá daga. Þar tókum við rúnt á bryggjunni, heimsóttum Magga heitinn í BP sjoppunni og fengum okkur Polo-drykk frá Agli Skallagrímssyni (góður drykkur það) og fórum yfir bátaflotann sem var við bryggju, kíktum inn í frysti- hús og inn í mötuneyti. Komum heim á Heiðarbrúnina og þar beið mamma ávallt með læri eða hrygg … nammi namm. Þegar amma Guðrún féll frá 1975 fórum við að leiði hennar á að- fangadag það ár með fallega skreytta jólagrein, þá gat ég ekki ímyndað mér að ég ætti eftir að heimsækja það leiði og fleiri ættingja í þennan kirkjugarð á hverju ári eftir það. Sú varð raunin því ég fór alltaf með þér, það var okkar tími saman. Dagurinn í desember 1994, þegar þú dast og braust þig, var örlagaríkur og eftir- köstin áttu eftir að verða erfiðari en nokkurn grunaði. Við tók ótrúleg þrautaganga sem stóð til hinsta dags. Ég fylgdi þér ávallt í meðferðir á Reykjalundi og í Hveragerði, fór með þér í allt sem þurfti. Það sem stendur upp úr er að þú varst alltaf jákvæður, sterkur og kvartaðir aldr- ei yfir líðan þinni eða ástandi. Þú varst hetja og þú ert mín fyrirmynd. Eftir þetta slys áttir þú erfitt með að fylgja eftir heimsóknum okkar í kirkjugarðinn svo ég tók ekki annað í mál en að standa mína og okkar plikt og eiga góða stund með þeim sem þar liggja. Um næstu jól verður þú með mér. Þegar ég kom heim úr æfingabúð- um með FH frá Portúgal laugardag- inn 29. mars sl. fór ég strax til þín því þú hafðir fengið lungnabólgu degin- um áður. Við fengum okkur jarðar- berjanæringardrykk og þú hresstist aðeins við en á sunnudagsmorgun dró aðeins af þér aftur. Ég sat við hlið þér og hélt í þínar sterklegu hendur, strauk af þér svitann, svaf við hlið þér, gaf þér að borða, passaði þig. Þetta voru ómetanlegar stundir, við ræddum saman þrátt fyrir þessi miklu veikindi og þú varst alveg með á nótunum. Svo kom að því að þú lygndir aftur augunum og sofnaðir svo friðsæll og fallegur. Takk fyrir allt sem þú hefur kennt mér og takk fyrir allt annað. Pabbi, þú varst einstakur. Þín dóttir Unnur. Með fáeinum orðum langar mig að minnast tengdaföður míns, Gunnars G. Guðmundssonar, er lést á Heil- brigðisstofnun Suðurnesja hinn 1. apríl sl. Það var fyrir rúmum 13 árum er dóttir hans kynnti okkur. Ég minnist þess hve vel mér líkaði við hann frá fyrstu mínútu. Það var fyrst og fremst góðvildin og kærleikurinn sem ég fann fyrir hjá þessum há- vaxna, sterklega manni. Við urðum strax góðir vinir og spjölluðum mikið saman og Gunnar hafði svo sannar- lega frá mörgu að segja. Umræðu- efnið var oftast tengt bílum eða sjó- sókn. Ég hafði sérstaklega gaman af að hlusta á Gunnar segja sögur tengdar sjónum, útgerð og bátum enda var hann hafsjór af fróðleik um þau mál. Aldrei mun ég gleyma þeirri stund þegar við Unnur færðum Gunnari þær fréttir að von væri á fyrsta afa- barninu, hann ljómaði allur af gleði. Og stoltið leyndi sér ekki í bæði skiptin þegar hann hélt á þeim ný- fæddum. Gunnar sýndi börnum okk- ar einstaka góðvild og hlýju og þau minnast afa síns með miklu stolti og virðingu. Ég hugsa með hlýhug til þeirra stunda sem við áttum saman, þó sér- staklega vikuna fyrir andlátið, þar sem við töluðum saman tveir í ein- rúmi um allt milli himins og jarðar og það var unun að heyra hvað hann var enn stálminnugur. Ég minnist Gunnars með gleði og þakklæti, hann var góður maður sem ég bar mikla virðingu fyrir. Hreiðar Gíslason. Sofi augun mín vaki hjarta mitt, horfi ég til Guðs míns. Signdu mig sofandi varðveittu mig vakandi, lát mig í þínum friði sofa og í eilífu ljósi vaka. Amen. (Gamalt bænavers) Elsku besti afi. Við söknum þín svo mikið, þú gafst okkur mikla hlýju og mikinn kærleik. Við vitum að þér líður betur núna. Það var svo gott að koma til þín. Það var svo gaman hjá okkur og vinkonu okkar henni Salvöru Svanhvíti þegar við vorum í sundleik í stóra rúminu þínu, svo fengum við ís á eftir, svo settumst við öll saman og lituðum. Okkur þykir svo vænt um þig elsku afi. Takk fyrir allar góðu stundirnar. Hvíldu í friði, elsku besti afi. Þín Thelma María og Aron Ingi. Gunnar G. Guðmundsson ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN SIGURÐUR GUÐMUNDSSON, Drápuhlíð 45, Reykjavík, lést þriðjudaginn 8. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Ólafur Gísli Jónsson, Þórhalla Eggertsdóttir, Guðrún Vigdís Jónsdóttir, Gunnar Thors, Auðunn Örn Jónsson, Karen Guðmundsdóttir, Guðríður Kristín Jónsdóttir og barnabörn. ✝ Elskulegur faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRARINN JÓNSSON múrari, Austurbrún 19, Reykjavík, andaðist miðvikudaginn 2. apríl á Landspítala Landakoti. Útförin verður auglýst síðar. Sigríður Þórarinsdóttir, Ólafur Óskar Jakobsson, Þórarinn Jóhannes Ólafsson, Jakob Óskar Ólafsson, Hrafnhildur Heimisdóttir, Sigurður Anton Ólafsson, Hanna Lísa Ólafsdóttir, Pétur Jóhann Ólafsson, Aron Ísak Jakobsson. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, MARGRÉT FINNBOGADÓTTIR, Sævangi 26, Hafnarfirði, varð bráðkvödd á heimili sínu þriðjudaginn 8. apríl. Jarðarför verður auglýst síðar. Gylfi Jónasson, Finnbogi Gylfason, Svana Huld Linnet, Jónas Gylfason, Ingibjörg Valgeirsdóttir, Gylfi Örn Gylfason, Margrét Guðrúnardóttir, Kristján Flóki og Ylfa Finnbogabörn, Sölvi Þór og Hrafnhildur Kría Jónasbörn. ✝ Elskulegur eiginmaður, faðir, afi og langafi, HÖRÐUR BACHMANN LOFTSSON, Hrafnistu í Reykjavík, áður Borgarholtsbraut 67, Kópavogi, lést sunnudaginn 6. apríl. Útförin fer fram í Áskirkju þriðjudaginn 15. apríl kl. 13.30. Arnbjörg Davíðsdóttir, Örn Harðarson, Halla Mjöll Hallgrímsdóttir, Þórhalla Harðardóttir, Jóhanna Guðný Harðardóttir, Sigurður Ingólfsson, Ari Harðarson, Hjálmfríður Lilja Nikulásdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og systir, ELÍN RÓSA FINNBOGADÓTTIR, Rauðagerði 39, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 11. apríl kl. 13.00. Kristján Sigurgeir Guðmundsson, Finnbogi G. Kristjánsson, Gunnhild Ólafsdóttir, Guðrún Þ. Kristjánsdóttir, Birgir Óskarsson, Elín Rósa Finnbogadóttir, Steingrímur Waltersson, Kristján Guðmundur Birgisson, Kristbjörg Steingrímsdóttir, Finnbogi Steingrímsson, Ólafur Jón Einarsson. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGFÚS ÞORGRÍMSSON, Selnesi 42, Breiðdalsvík, verður jarðsunginn frá Heydalakirkju laugardaginn 12. apríl kl. 15.00. Sævar Björgvin Sigfússon, Hildur Wíum Kristinsdóttir, Þorgrímur Sigfússon, Reidun Thöger-Andresen, Þráinn Sigfússon, Ruth Achola, Bryndís Ósk Sigfúsdóttir, Jakob I. Magnússon, Óðinn Elfar Sigfússon, Chris Monge Carrion, barnabörn og barnabarnabarn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.