Morgunblaðið - 10.04.2008, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 31
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Týnd kisa!
Dalí er 10 mánaða svört og hvít læða,
hún hvarf af heimili sínu á Gunnars-
braut 26, 105 Reykjavík að morgni
mánudagsins 7. apríl. Hafið samb.
Sunna, sími 691-8524.
Hvolpar til sölu, Ungverskur
Vizsla. Vizsla er frábær veiði- og
fjölskylduhundur. Ættbók frá HRFÍ,
örmerktir og bólusettir. Verð 160.000
kr. Upplýsingar í s. 6920279/6915034
vizsla.blog.is
Heilsa
Léttist um 22 kg á aðeins 6
mánuðum. LR-kúrinn er ótrúlega
auðveldur. Dóra 869-2024,
www.dietkur.is
Húsnæði í boði
Íbúð til leigu í hjarta Hafnar-
fjarðar. Falleg 4 herb., 140fm,
m.sérgeymslu og þv.húsi. Leiga til
skemmri tíma í senn v/ sölu. Hiti,
rafm. og hússj. innif. Verð 150.000 á
mán. Trygging 300.000 kr s.899 9221.
3 herb. íbúð. Miðbær.
Guðrúnargata, 105 Reykjavík. 2
svefnh., stofa, eldhús, bað. Þvotta-
hús og geymsla á sömu hæð. Sér inn-
gangur. S: 897 0845.
Sumarhús
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Þjónusta
Vanur maður
tek að mér að rífa, berja og slá niður
eldhús, parket, veggi og hvað sem er,
tilboð á staðnum, snögg og góð
þjónusta, s. 846-0698 Gunnar.
Móðuhreinsun glerja!
Er komin móða eða raki milli glerja?
Móðuhreinsun Ó.Þ.
Sími 897 9809.
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket
o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
660 0230 og 561 1122.
Ýmislegt
standar
BANNER
580 7820
BÆKLINGA
prentun
580 7820
Tískuverslunin Smart,
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýkomið
Kvartbuxur, Litir, svart,
bleikt,drapp,hvítt, rautt.
Vesti, litir, svart, bleikt, blátt,
rautt. Köflóttar skyrtur.
Sími 588 8050.
Veiði
Veiðferðir til S-Grænlands
í sumar. Stangveiði, sauðnaut og
hreindýr. Leitið upplýsinga
Ferðaskrifstofa
Guðmundar Jónassonar ehf.
S.: 511 1515
www.gjtravel.is
Bátar
Niðurleggjari, hrognaskilja og
sigti. Til sölu góður 90cm Rapp
niðurleggjari árg. 2002 lítið notaður,
einnig hrognaskilja og sigti.
Uppl. 897-2427.
Bílar
Til sölu Mitsubishi Galant árg.´98
Til sölu Mitsubishi Galant árg.´98,
ekinn 93 þús. Verð 450 þús (áhvílandi
ca 180 þús.) upplýsingar í s.660 1604.
Lexus árg. '02 ek. 76 þús. km.
Til sölu Lexus IS 200. Vel með farinn.
Ný sumardekk, ný hjólastilltur. Set á
hann yfirtöku á láni 1.9 m. Afborganir
eru um 50 þús. á mán. Hafið sam-
band í síma 867 8271 eða á
askellfb@gmail.com
Hjólbarðar
Felgur Santa Fe
Vantar 4 stk. álfelgur undir Santa Fe.
Sími 893 7431.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza 2008, 4 wd. Aksturs-
mat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
bilaskoli.is
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza 2006, 4 wd. Öruggur
í vetraraksturinn. Akstursmat og
endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042.
Vélsleðar
Ásdís Skúladóttir nuddari og
therapisti. Hef hafið störf á nudd-
stofunni Fimir Fingur. Gamlir og nýir
viðskiptavinir velkomnir. s:697-6795.
Falleg dömustígvél úr vönduðu
leðri. Litir brúnt og svart.
Stærðir: 36 - 41. Verð: 14.500.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070.
Opið mán.-föst. 10-18,
og laugardaga 10-14
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Flottir og haldgóðir í CDE skál á kr.
2.950,- buxur í stíl á kr. 1.450,-
Mjög góðir í CDE skálum á kr.
2.950,- buxur í stíl á kr. 1.450,-
Mjúkur og þægilegur í CD skálum
á kr. 2.950,- buxur í stíl á kr. 1.450,--
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán-fös 10-18, lau 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is.
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Sunnudaginn 6. apríl var fyrsta
spilakvöldið í fjögurra kvölda keppni.
Spilað var á 11 borðum. Bestum ár-
angri náðu.
Norður/Suður
Sturlaugur Eyjólfss.- Birna Lárusdóttir 264
Sveinn Sveinss. - Gunnar Guðmundss. 244
Sólveig Jakobsd. - Ingibj. Guðmundsd. 240
Austur/Vestur
Kristín Óskarsd.- Hlynur Vigfússon 247
Björgvin Kjartans - Berglj. Aðalsteinsd. 244
Sigþór Haraldss. - Axel Rudólfsson 234
Spilað er í Breiðfirðingabúð, Faxa-
feni 14 á sunnudögum kl. 19.
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni haldin í Ás-
garði, Stangarhyl, mánud. 07. apríl.
Spilað var á 10 borðum. Meðalskor
216 stig.
Árangur N-S
Magnús Oddss. - Oliver Kristóferss. 311
Sæmundur Björnss. - Gísli Víglundss. 252
Jón Láruss. - Birgir Sigurðsson 244
Árangur A-V
Ragnar Björnss. - Guðjón Kristjánss. 275
Björn E. Péturss. - Ólafur Theodórs 260
Þröstur Sveinss. - Bjarni Ásmunds 232
Íslandsmót yngri spilara
Íslandsmót yngri spilara fór fram
helgina 5.-6.apríl.
Íslandsmeistarar yngri spilara
2008 í sveitakeppni eru Jóhann Sig-
urðarson, Ingólfur Sigurðarson, Guð-
jón Hauksson og Grímur Kristinsson.
Í öðru sæti var sveit Gabba og í 3. sæti
sveit MK.
10 pör tóku þátt í Íslandsmóti yngri
spilara í tvímenningi og urðu Óttar
Ingi Oddsson og Gabríel Gíslason Ís-
landsmeistarar. Í öðru sæti voru Dav-
íð Sigurðsson og Sigríður Arnardótt-
ir. Bronsið hlutu Jóhann Sigurðarson
og Ingólfur Sigurðarson. Í flokki 20
ára og yngri urðu efstir Davíð Arnar
Ólafsson og Gunnar Valur Sigurðsson
úr MK. Nánar um mótið á bridge.is.
Bridsdeild
Sjálfsbjargar Reykjavík
Úrslitin í N/S síðasta spilakvöld:
Karl Karlss. – Sigurður Steingrss. 249
Birna Lárusd. – Sturlaugur Eyjólfss. 236
Lilja Kristjánsd. – Haraldur Sverriss. 232
A/V
Jón Úlfljótss. – Þórarinn Bech 252
Ólöf Ólafsd. – Unnar A. Guðmss. 245
Halldór Aðalsteinss. – Sigmar Jónss. 244
Og eftir tvö kvöld er staða efstu
para þessi:
Birna Lárusd. – Sturlaugur Eyjólfss. 481
Kári Jónss. – Marteinn Marteinsson 477
3 bestu skorin (af 4) gilda til verð-
launa.
Gullsmárabrids
Spilað var á 13 borðum 7. apríl sl.
og úrslitin þessi í N/S:
Þorsteinn Laufdal – Tómas Sigurðss 329
Jón Jóhannss. – Haukur Guðbjartss. 312
Hrafnhildur Skúlad.– Þórður Jörundss. 304
Valdimar Hjartars. – Halldór Jónsson 299
A/V
Jón Stefánss. – Eysteinn Einarsson 325
Ernst Backman – Stefán Ólafss. 320
Björn Björnss. – Katarínus Jónsson 318
Bragi Bjarnas. – Páll Ólason 289
Meðalskor 264.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Þriðjudaginn 8. april var spilað á 17
borðum. Meðalskor var 312. Úrslit
urðu þessi.
Rafn Kristjánss. – Oliver Kristóferss 401
Ólafur Ingvarss. – Sigurberg Elentínuss. 396
Sæmundur Björnss. – Gísli Víglundss. 388
Sverrir Jónss. – Ármann Lárusson 365
A/V
Helgi Sigurðss. – Katarínus Jónss. 368
Sigfús Jóhannss. – Nanna Eiríksd. 353
Einar Sveinss. – Jón Sveinsson 349
Stefán Ólafss. – Óli Gíslason 347
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Hún Guðrún mín
Häsler er látin.
Það fækkar óðum í
hópnum sem lék sér
neðst í Aðalstrætinu á Ísafirði í
leikjum eins og„hverfu“ „fallin
spýta“ og „yfir“ yfir og í kringum
rakarstofuna hans Gríms rakara
sem stóð á móti æskuheimili Guð-
rúnar. Það var líflegur hópur sem
lék sér þar og niður með bólverk-
unum, eða í fjörunni niður í Mjó-
sundi. Þarna var fullt af púkum,
hornapúkar, neðstakaupstaðar-púk-
ar, Grímsarar og fleiri. Það voru
fjörug sumarkvöldin, þegar allar
skektur sem hægt var að fá lánaðar
voru sveimandi um spegilsléttan
Pollinn og söngurinn ómaði um
fjörðinn. Við Guðrún fórum yfirleitt
niður í dokku til Jóa í Amsterdam
til að biðja hann að lána okkur „Ra-
mónu“, en það hét skektan hans. Jói
lánaði ekki hverjum sem var skekt-
una sína en við Guðrún vorum á
sérsamningi hjáJóa. Það var tölu-
vert lagt á sig að róa fyrir Suð-
urtangann og inn á Poll og róa síð-
an aftur til baka að skila bátnum að
leik loknum. Þær eru margar æsku-
minningarnar frá þessum tíma, eins
og það að fara í spássitúr á stilltu
Guðrún Anna Häsler
✝ Guðrún AnnaHäsler fæddist í
Dresden í Þýska-
landi 12. janúar
1927. Hún lést á
Fjórðungssjúkra-
húsinu á Ísafirði 15.
febrúar síðastliðinn
og var jarðsungin
frá Ísafjarðarkirkju
23. febrúar.
sumarkvöldi alla leið
inn að Sjónarhæð og
aftur til baka. Í þá
daga var það löng leið
og mikið hægt að
skrafa saman á leið-
inni. Seinna eftir að
ég var flutt suður en
kom þó reglulega
heim, þá hittumst við
Guðrún oftast á heim-
ili hennar eða inni á
Dal. Þess á milli var
símasamband látið
duga með upplýsing-
um um börn og
barnabörn sem og önnur dagleg
mál. Síðustu árin stóð til að ég færi
í heimsókn til Guðrúnar og Bærings
yfir í Aðalvíkina næst þegar ég
kæmi. En tvisvar var ég óheppin
með veður svo ég sló því á frest og
síðastliðið sumar var Guðrún veik
og komst sjálf ekki norður. Ég
skaust til hennar í nýju íbúðina í
Fjarðarstrætinu en þar höfðu þau
Bæring og hún búið sér fallegt
heimili. Guðrún vildi ekki gera mik-
ið úr veikindunum. Hún leit vel út
og átti von á fólkinu sínu í kaffi. En
alla tíð hélt Guðrún vel utan um
fólkið sitt.
Seinast þegar ég talaði við hana
núna í vetur þá sagðist hún vera bú-
in að vera hálfslöpp en vildi ekki
gera neitt úr því frekar en venju-
lega. Andlát hennar kom mér því
mjög á óvart en er ég hugsa til baka
þá gerði Guðrún aldrei mikið úr sín-
um málum og hefur verið veikari en
ég gerði mér grein fyrir. Ég hugsa
alltaf og tala um að fara heim á Ísa-
fjörð þó ég sé löngu flutt þaðan. Til-
hugsunin um að kær leiksystir og
vinkona verður ekki til staðar næst
er ég kem heim fyllir mig söknuði.
Spássitúrarnir eru búnir og ekki
verður lengur hlegið og talað um
gamlar stundir.
Ég kveð mína kæru leiksystur og
þakka henni samfylgdina og vinátt-
una með ljóði um bæinn okkar.
Ísafjörður ægifagur
um þig leikur dýrðardagur.
Logn á polli, logn til fjalla
leikur sól um Gleiðahjalla.
Prestabugt með gullnar gárur
geymir sínar freyðibárur.
Spegilsléttur speglar flötur
sprottnar hlíðar, hús við götur
hamrabeltin himinháu
himingeiminn tign þá bláu
fjöllin innst í fjarðarbotni
fegurð skarta á mararbotni.
(Höf. ók.)
Mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur til Bærings, barna og fjölskyldna
þeirra.
Kveðja,
Kristín Bjarnadóttir (Dídí).
Nú þegar mág- og svilkona
okkar Guðrún Häsler er öll
koma margar minningar
fram eftir 60 ára kynni.
Glaðlegt viðmót, greið-
vikni og hvelli hláturinn ein-
kenndi hana alla tíð. Sam-
hent voru þau hjónin og
foreldrar 6 barna. Við kveðj-
um hana með virðingu og
þökk.
Kæri bróðir og mágur,
Bæring og fjölskylda, við
vottum ykkur dýpstu samúð.
Jóhannes Páll
og Sólveig.
HINSTA KVEÐJA