Morgunblaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 36
■ Í kvöld kl. 19.30 - Uppselt
Síðbúin meistaramessa
Heimsóknir heiðursstjórnanda hljómsveitarinnar, Vladimir
Ashkenazy, eru alltaf stórviðburður. Að þessu sinni stjórnar hann
flutningi á Missa Solemnis eftir Beethoven.
Stjórnandi: Vladimir Ashkenazy Einsöngvarar: Joan Rodgers,
Sesselja Kristjánsdóttir, Mark Tucker og Ólafur Kjartan
Sigurðarson. Íslenski óperukórinn, kórstjóri Garðar Cortes.
■ Fim. 17. apríl kl. 19.30
Söngfuglar hvíta tjaldsins
Söngleikjadívan Kim Criswell flettir söngbókum helstu lagahöfunda
Bandaríkjanna frá gullöld söngvamyndanna og fetar í fótspor
sönggyðja á borð við Judy Garland, Marilyn Monroe og Doris Day.
■ Lau. 19. apríl kl. 14.00
Bíófjör - Tónsprotatónleikar
Öll fjölskyldan skemmtir sér konunglega á þessum tónleikum þar
sem tónlist úr kvikmyndum á borð við Stjörnustríð, Harry Potter,
Mary Poppins og Simpsons hljómar. Trúðurinn Barbara kynnir
tónlistina á sinn einstaka hátt.Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
Í öllu falli er hið góð-
látlega grín, gæti ég
fengið meiri Bigga í móni-
tor" a.m.k. búið. … 41
»
reykjavíkreykjavík
„EINA með öllu, sinnepi undir og yfir og mikinn steikt-
an, takk.“ Þannig kann Íslendingur að panta sér pylsu en
ólíklegt að útlendingur kunni slíkan frasa, nema hann
lesi hann upp úr leiðsögubók. Bæjarins beztu pylsur í
Tryggvagötu er án efa þekktasti pylsuvagn bæjarins og
hróður hans hefur borist víða, hann m.a. nefndur annar
besti matsölu-turn Evrópu í dagblaðinu Guardian fyrir
tveimur árum. Nú er pylsuvagninn kominn í helstu
leiðsögubækur um Ísland, kannski það sé pylsuáti Bills
Clinton að þakka.
Frægu kokkarnir sem kokkað hafa á Food & Fun há-
tíðinni hafa einnig vanið komur sínar í vagninn. Í fyrra
gerði einn sér lítið fyrir og keypti 60 pylsur og færði
kokkum og gestum á Apóteki, að sögn eðalkokksins
Sigga Hall. Siggi segir enga furðu að pylsuvagninn sé
orðinn þekktur úti í hinum stóra heimi, hann sé eini úti-
veitingastaðurinn við höfnina og einn skemmtilegasti
veitingastaður borgarinnar. Eðalkokkar sem venji kom-
ur sínar til landsins vilji iðulega fá sér pylsu þar. Annars
er það að frétta af Sigga að stjórnandi bandaríska mat-
arþáttarins Bizarre Foods á Travelchannel, Andrew
Zimmern, sótti hann heim og lenti fyrir vikið í slát-
urgerð, hverabrauðsbakstri og gæddi sér á hrúts-
pungum og hákarli. Siggi segir Zimmern hafa þótt
hrútspungar og hákarl furðulegasta fæðan.
Stjörnukokkur keypti 60 pylsur
Morgunblaðið/ÞÖK
Bill Clinton Fékk sér eina með sinnepi á Bæjarins
beztu árið 2004 og líkaði að sögn mjög vel.
Hafin er tón-
leikaröð útskrift-
arnema Listahá-
skóla Íslands. Um
er að ræða 20 tón-
leika á um mán-
aðar tímabili og
segja má að skyldumæting sé á
þessa tónleika fyrir þá sem vilja
fylgjast með því nýjasta í samtíma-
tónlist á Íslandi.
Útskriftarhópurinn í ár er hins
vegar áhugaverður fyrir þær sakir
að innan hans er að finna tónlist-
armenn sem þegar hafa skipað sér í
fremstu röð popp- og rokktónlist-
armanna á Íslandi. Má þar nefna
Ragnhildi Gísladóttur fyrrverandi
Stuðmann, Ian Alexander MacNeil
söngvara og gítarleikara hljóm-
sveitarinnar Kimono og Óttar Sæ-
mundsson bassaleikara sem leikið
hefur meðal annars með Pétri Ben.
Popparar á útskrift-
artónleikum LHÍ
Stuttmyndin Skröltormar, í leik-
stjórn Hafsteins Gunnars Sigurðs-
sonar, eftir handriti Huldars Breið-
fjörð, hlaut sérstök verðlaun
dómnefndar á stuttmyndahátíðinni
í Aspen sem lauk um síðustu helgi.
Athygli vakti að af 53 myndum í al-
þjóðlegri keppni hátíðarinnar voru
þrjár íslenskar myndir valdar úr
hópi rúmlega 3.500 mynda sem
sóttu um. Auk Skröltorma voru það
myndirnar Bræðrabylta eftir Grím
Hákonarson og Hundur eftir Her-
mann Karlsson. Skröltormar hefur
auk þess verið valin, fyrst íslenskra
mynda, til keppni á Tribeca-
kvikmyndahátíðinni sem fer fram í
New York í lok mánaðarins.
Skröltormar sigursælir
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„ÞETTA eru mömmurnar að ganga
um í rými sem minnir á glímuvöll,
það er ákveðin glíma að fást við
móðurhlutverkið og samband móð-
ur og dóttur er oft ansi mikil glíma
líka,“ svarar María Ellingsen, leik-
kona og einn höfunda verksins
Mammamamma, spurð út í ljós-
myndina úr verkinu hér fyrir ofan.
„Við erum átta listakonur sem
vinnum þetta verkefni í hóp en við
Charlotte Böving erum upphafs-
manneskjur að þessu, búnar að
ganga með þetta í maganum síðan
við eignuðumst dætur okkar fyrir
níu árum,“ bætir María við.
Charlotte leikstýrir verkinu. Hún
segir upprunalegu hugmyndina
hafa verið þá að leiða fólk inn í
móðurkviðinn, heim móðurinnar,
og svo hafi ákveðin barátta móð-
urinnar bæst við. Verkið er unnið
upp úr samtölum sem hópurinn hef-
ur átt við mæður, ömmur og dætur,
snýst í grunninn um móðurhlut-
verkið og samband mæðgna.
„Það er svolítið gróteskur húmor
inn á milli,“ segir Charlotte, reynt
að snúa aðeins upp á hlutina. Leik-
hópurinn hefur sankað að sér sög-
um, m.a. með því að auglýsa eftir
þeim. „Við höfum unnið út frá
ákveðnum þemum,“ segir María og
Charlotte bætir við að hópurinn
hafi lagst í spunavinnu. „Við bætt-
um einni sögu við, sögu um að eign-
ast fatlað barn, barn sem er öðru-
vísi,“ segir Charlotte. María bætir
því við að fólki hafi, á prufusýn-
ingu, þótt vanta þennan hluta í sýn-
inguna, þ.e. að eignast fatlað barn.
Fléttað í kringum þema
Þær stöllur segja ekki unnið út
frá föstum söguþræði heldur marg-
ar sögur fléttaðar um ákveðið
þema. „En við förum frá fæðingu til
dauða,“ segir Charlotte, það sé
rammi verksins. Sögurnar séu mjög
áhrifamiklar og snerti fólk í hjarta-
stað. Við þetta bætist svo tónlist frá
nýbakaðri móður, Ólöfu Arnalds, til
að fullkomna mömmuþemað. Auk
Maríu leika í verkinu Þórey Sig-
þórsdóttir, Magnea Valdimars-
dóttir og Birgitta Birgisdóttir. Um
listræna umgjörð sýningarinnar sjá
Þórunn María Jónsdóttir og Ólöf
Nordal. Mammamamma verður
frumsýnt annað kvöld kl. 20 í Hafn-
arfjarðarleikhúsinu.
Inn í móðurkviðinn
Leikhópurinn Opið út kannar reynsluheim mæðra í sýningunni Mammamamma
Mæðraglíma Mæður togast á, vafðar í naflastreng í bleikum glímuhring, í verkinu Mammamamma.