Morgunblaðið - 10.04.2008, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 39
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÉG kalla þetta ekki ljóðabók, þótt hún líti út eins og
ljóðabók. Ég kalla þetta örsögur, en kannski þarf ekk-
ert að skilgreina þetta.“
Ármann Jakobsson, kennari við Háskóla Íslands,
hefur orðið, en Nýhil hefur gefið út bók hans: Fréttir
úr mínu landi.
Hvað er það sem dregur þig út á þennan ritvöll?
„Ég hef verið með netsíðu í mörg ár, og orðið var
við lestur á henni. Fólk hefur meir að segja haft sam-
band og lýst ánægju með skrifin. Mig langaði að gefa
út bók fyrir þennan hóp fólks, sem ég vissi að ég höfð-
aði til, þótt hann sé kannski ekki mjög stór. Hann er
þó til. Mér finnst það varanlegra að gefa þetta út en
að hafa það aðeins á netinu. Það er miðill augnabliks-
ins. Það var þetta sem rak mig áfram og ég segi síðan
við sjálfan mig að þetta sé fullgott til að koma út á
bók.“
Í blogginu ertu að skrifa um hitt og þetta.
„Það er eins í bókinni. Ég valdi textana úr því sem
þar er, og að því leyti er þetta sambærilegt við það
þegar menn gefa út úrval verka sinna af einhverju
tagi. Ég valdi það sem mér þótti best. Ég er reyndar
ekkert einn um þetta, ég veit um fleiri sem hafa gefið
út bækur með netskrifum sínum.“
Eftir hverju fórstu við valið?
„Ég valdi það sem mér finnst hafa elst best. Það er
stundum þannig að sumt passar fyrir stað og stund,
en ekki fimm árum síðar. Það var aðeins minn eigin
smekkur sem réð að öðru leyti.“
En margt af því sem þú skrifar á bloggið þitt er
mjög ljóðrænt í stíl.
„Já, þakka þér fyrir það.“
Hvers vegna viltu ekki kalla það ljóð?
„Ég veit ekki hvar munurinn liggur. Ég er ekki að
hugsa um hrynjandi eða hljóm, en ég velti því samt
fyrir mér hvernig orða má hlutina. Að því leyti mætti
kalla þetta ljóð. Ég vildi samt ekki nota það orð í titli
bókarinnar. Kannski finnst manni að ljóð þurfi að
vera eitthvað meira og merkilegra.“
Er þetta vísbending um að þú ætlir að færa þig
meira í átt að skáldskapnum?
„Ég ætla að halda áfram í fræðistörfunum. En
kannski er ég orðinn óragari við að gefa út annað efni.
Þetta er ekki það seinasta sem ég skrifa sem ekki er
strangfræðilegs eðlis. Þetta er frekar upphaf en end-
ir.“
Þetta er fullgott efni
til að koma út á bók
Ármann Jakobsson gefur út
örsagnasafnið Fréttir úr mínu
landi með sögum úr bloggi sínu
Morgunblaðið/Ómar
Netskrif „Ég valdi það sem mér finnst hafa elst best,“
segir Ármann en textarnir birtust fyrst á netinu.
TEIKNIMYNDIRNAR um
Simpson-fjölskylduna sjást
ekki lengur á skjánum í
Venesúela. Innihald þátt-
anna þykir ekki lengur boð-
legt í morgunsjónvarpinu
eða skilaboðin sem send eru
áhorfendum um samskipti
foreldra og barna. Útvarps-
ráðið þar í landi stöðvaði því
sýningar þáttanna. Sagt er
að margir hafi mótmælt boð-
skapnum sem birtist í sög-
unum um Hómer og hans
fólk og var fjölskyldunni
gulu því úthýst. Í staðinn birtast rauð klæðlítil baðföt á skjánum, því þátta-
röðin Baywatch Hawaii er sýnd á sama tíma og Simpson-fjölskyldan áður.
Endursýningar á gömlum bandarískum og suðuramerískum sjónvarps-
seríum njóta hylli í Venesúela en vinsælasti sjónvarpsþátturinn er þó
spjallþáttur Hugos Chavez, forseta landsins.
Baywatch
í stað The Simpsons