Morgunblaðið - 10.04.2008, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
TVÆR plötur koma nýjar inn á
Tónlistann þessa vikuna. Skugga-
sveinar byrja nálægt botninum í
átjánda sæti, en Hjálmarnir Guð-
mundur Kristinn Jónsson og Sig-
urður Guðmundsson eiga örugg-
lega eftir að skjótast ofar með
plötuna sína þar sem karlmannleg-
ustu söngvarar landsins syngja lög
fenjarokkarans Tony Joe White.
Accelerate með R.E.M. stekkur
beint inn í sjöunda sætið enda hefur
sveitin safnað að sér tryggum aðdá-
endum á löngum ferli og þessi nýj-
asta afurð hennar hefur almennt
fengið fína dóma.
Sætaskipti hafa orðið á milli
þeirra tveggja platna sem seljast
best á Íslandi þessa dagana, en það
eru Laugardagslögin og Myndin af
þér, safnplata með helstu perlum
Vilhjálms Vilhjálmssonar. Tón- og
lagalistar síðustu vikna hafa litast
mjög af Evróvisjón-spenningi, en
sennilega á röð tónleika þar sem
lög Villa Vill hafa verið flutt fyrir
fullu húsi þátt í því að fleyta honum
í fyrsta sætið þessa vikuna.
Það er greinilegur vorilmur af
plötunni sem bætir sig mest í sölu
þessa viku, þeirri sjöundu í röðinni
Íslandslög. Ferðamennirnir eru
komnir að kveða burt snjóinn og
kaupa sígild íslensk dægurlög í
flutningi Björgvins Halldórssonar
og fleiri.
!
"
# $ $% %&
%'()
*+ , %
'#
%'-./)%()
! "
#$%$!$
&
'(
)
* +
,),)-
&
'(
.+") /
0 1/
2) "3( . 4(
5 )
%
67 4(
& ""6)
,8,-
5 )
!
"#$
%##&
' %#(
)(( #
**##
#
+ ' ,
- .
/
%&
+ ' ,
- .
012
3 '! ( 4
5
6#
7 !
2# ' )
8
2 6!'9
6$ :; < )
'
=' 2$
3 7
# '
>(
010
2%34
,* 5
(,6
7
*8
%%
6
91,
$%3.'(
',:;<'=> #$%$!$
%44
))44)
9 $&:;
2 ++
#(
<"=:)( #$
. (
(
9 ++8
% 04
/
' )2
9 " 8
++
++
>)#): 0
;
?
#")
/ = 74
';'
@"(")/ " /
??
2)8A ):B="
9
C 8!;94
%&#
%&#
#
(
>
##
61
#
7?
/''@
># $
1(
A
#
*
"'($ B 2<0; #
:
C( 6($#
"## '# 0( ;
0;# D #E D # %(
% (& %
#
F D;#
# G ## ( H#
8( I D'# # J&
G G 6 K#
H;$
5 # 1 $@
#L D##'#
1#
0; G ;# #
5
(,6
?
*
%
*+ "
5
(,6
@4
&,@
"
@) A
91, 94 "
Skuggasveinar
syngja fenjarokk
Reuters
Hringferð Benny Crespo’s Gang
spilar um allt land.
SVIPTINGARNAR eru miklar á
lagalistanum þessa vikuna þó að
ekkert lag nái nýtt inn á lista.
Breska ungstirnið Amy McDonald
pompar af toppi listans niður í 20.
sæti með lagið „This is the Life“ og
karlar á besta aldri hafa raðað sér í
efstu sætin í staðinn.
Þó að platan Accelerate með
R.E.M. sé fyrst nú að komast í efstu
sæti Tónlistans þá er lagið „Super-
natural Superserious“ að hefja sína
sjöundu viku á Lagalistanum.
Gamli grugghundurinn Eddie
Vedder er kominn í annað sætið
með lagið „Guaranteed“. Það er af
plötunni Into the Wild sem inni-
heldur lög úr samnefndri kvikmynd
og er jafnframt fyrsta sólóplata for-
sprakka Pearl Jam. Vedder hlaut
Golden Globes-verðlaun fyrr á
árinu fyrir „Guaranteed“ sem var
valið besta frumsamda lag fyrir
kvikmynd á síðasta ári.
Ef til vill er hringferð Benny
Crespo’s Gang með Dr. Spock og
Sign um landið ástæða þess að
„Next Weekend“ kemur aftur inn
úr kuldanum en það var dottið ofan
í 46. sæti í síðustu viku.
Ballöðukóngurinn James Blunt
situr sem fastast í níunda sætinu
enda eru margir aðdáendur hans
sjálfsagt farnir að koma sér í rétta
stuðið fyrir tónleika hans hérna á
Íslandi í sumar.
Karlar velta ung-
stirni úr toppsæti
„VAN the Man“ er slíkur risi í dægurtónlist-
inni að maður sperrir ósjálfrátt upp eyrun
þegar fréttist af nýrri afurð frá meist-
aranum. Að segja að þessi nýjasti ópus valdi
vonbrigðum er eiginlega ekki nógu sterkt.
Lögin eru galtómur bræðingur af blúsi,
rokki, sálartónlist, kántrí og djassi og skilja
þau nákvæmlega ekkert eftir sig. Svipuð aðferðafræði gekk frá-
bærlega upp á síðustu plötu Dylans en klúðrast gersamlega
hér. Platan ber öll merki þess að koma frá reynslubolta, þetta
er verk sem Van Morrison hefði getað gert sofandi en verst að
svefninn steypist sömuleiðis yfir hlustandann áður en langt um
líður, slík eru leiðindin.
Leiðindi
Van Morrison – Keep it Simple bnnnn
Arnar Eggert Thoroddsen
BEACH House hljómar eins og minning um
löngu liðið sumar, lögin eru draugar sólríkra
sumarkvölda, þetta er tónlistin við enda-
lausa nótt sem aldrei átti sér stað og lögin
eru fyrir vikið upplituð af söknuði og nost-
algíu. Tónsmíðarnar eru útsettar með ein-
faldasta móti, oft bara fyrir stofuorgel/
skemmtara, söng, og kannski smá kjöltugítar og ögn af slag-
verki. Platan minnir fyrir vikið svolítið á Yo La Tengo frá því
um aldamótin eða ameríska tónlist frá því á sjöunda áratugnum
sem hefur skolast til í tímans rás. Hljóðpalettan er heldur eins-
leit 11 lög í röð en hér er margt alveg frábært sem á eftir að
fylgja mér gegnum angurværar sumarnæturnar.
Endalausar nætur
Beach House - Devotion bbbmn
Atli Bollason
REAL Emotional Trash er fjórða plata
Stephen Malkmus and the Jicks en Malkmus
er hvað þekktastur fyrir störf sín með of-
anjarðar-neðanjarðarsveitinni Pavement.
Skemmtilegur hljómur Malkmus er einkenn-
andi fyrir þessa plötu – ískrandi gítarar og
stundum hávaðasöm tónlist sem er á sama
tíma falleg og yfirveguð þar sem rödd Stephen gegnir lykilhlut-
verki. Þetta er ekki það besta sem Malkmus hefur skilið eftir sig,
enda kannski ekki réttlátur samanburður. En Real Emotional
Trash er þrátt fyrir það gríðarlega skemmtileg plata sem batnar
við hverja hlustun og sannfærði í það minnsta undirritaðan að
Malkmus er einhver besti lagahöfundur okkar tíma.
Alvöru tónlist
Stephen Malkmus – Real Emotional … bbbbn
Ágúst Bogason