Morgunblaðið - 10.04.2008, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2008 43
- kemur þér við
Situr í þrjú ár í sænsku
fangelsi fyrir dópsmygl
Vilja banna nýbygg-
ingar á Þingvöllum
Nýbökuð móðir fær
engan fæðingarstyrk
Markaður og sveitar-
stjórnir ráða álverum
Fékk 120 þúsund kall
fyrir að stökkva hæst
Hvenær borgar sig að
gera við og hvenær er
best að skipta út?
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
TÓNLISTIN, hin mikla list tilfinn-
inganna, sameinar sundraða og sker í
gegnum hvers kyns höft og misfellur.
Hún spyr ekki um aldur, afrek eða
fyrri störf þeirra sem setjast við alt-
ari hennar til tilbeiðslu og er vænt-
anleg heimsókn tónlistarmannsins
Rufusar Wainwright hingað til lands
sönnun þar á. Wainwright heldur tón-
leika í Háskólabíó á sunnudaginn og
fékk Morgunblaðið nokkra þjóð-
þekkta gallharða aðdáendur til að
segja frá því hvaða takka Wainwright
væri eiginlega að ýta á.
Pálmi Gunnarsson
„Gulli Briem leyfði mér að heyra í
Rufusi fyrir nokkrum árum,“ segir
Pálmi Gunnarsson.
„Ég varð strax mjög hrifinn. Ég
var búinn að vera í einhverri tónlist-
arfýlu, fannst lítið merkilegt á seyði
og hann kom því eins og ferskur and-
vari inn í líf mitt ef svo mætti segja.
En það er ekki bara ég, öll fjöl-
skyldan, kona mín og börn eru for-
fallnir aðdáendur líka.“
Pálmi veit vart hvar á að byrja,
þegar hann er beðinn að lýsa kostum
Wainwrights.
„Frábær útsetjari, lagasmiður,
söngvari ... þó mig gruni að hann sé
ekki allra þar. Það er bara eitthvað
náttúrulegt, taumlaust við þetta.
Hann er auðheyranlega náttúbarn,
séní. Svo hef ég líka gaman af þessum
kabarett/sirkus-töktum hans. Þar
springur hann út.“
Gulli Briem
„Það var Anita dóttir mín sem
leyfði mér að heyra hann og systur
hans fyrst,“ rifjar Gunnlaugur Briem
trymbill upp. „Það var úti í London
og platan var Poses (2001). Ég kolféll,
þetta var eins og að ramba fram á fal-
inn fjársjóð.“
Gunnlaugur (eða Gulli) segir styrk
Wainwrights felast í lagasmíðunum
en „jafnframt er hann frábær söngv-
ari og píanóleikari. Hann hefur þenn-
an sjaldgæfa eiginleika að vera séni á
öllum tónlistarsviðum. Tónlistin er
dálítið bítlísk og stundum finnst mér
hann vera nokkurs konar nútíma El-
ton John. Þessi ótrúlega dramatísku
lög um leið og hann er með alveg of-
boðslegan sans fyrir melódíu.“
Eiríkur Guðmundsson
„Það var Bragi Ólafsson rithöf-
undur sem sýkti mig,“ segir Eiríkur
Guðmundsson, bókmenntafræðingur
og dagskrárgerðarmaður á Rás 1.
„Hann spilaði fyrir mig lag með Ru-
fusi í útvarpið fyrir nokkrum árum og
þar með var ég búinn að vera. Ég
hlustaði síðan á Rufus stanslaust í tvö
ár eða alveg þangað til ég fór í nokk-
urs konar meðferð við þessu en féll
síðan aftur fyrir um það bil hálfu ári
og er illa staddur nákvæmlega núna.“
Aðspurður um hvað sé svona
merkilegt við Wainwright segir Ei-
ríkur:
„Hann semur lög, en þeirri kúnst
eru margir tónlistarmenn búnir að
gleyma. Sennilega er hann einhver
fínasti lagasmiður í poppi á eftir Scott
Walker. Og textarnir eru þesslegir að
Rufus ætti að fá nóbelsverðlaun í
bókmenntum. Drengurinn er búinn
að gera fimm plötur og þær eru allar
framúrskarandi. Það er einhver guð-
dómsneisti í þessu öllu saman hjá
honum.“
Björgvin Halldórsson
„Ég sá hann í sjónvarpi fyrir
nokkrum árum og hreifst mikið af
honum,“ segir Björgvin Halldórsson.
„Ég kannaðist líka vel við pabba hans
Loudon. Við héldum mikið upp á
hann í gamla daga og gerum enn.
Hann kemur úr þjóðlagadeildinni og
við hljóðrituðum nokkur lög eftir
hann. Þá hef ég líka hlustað á systur
hans Rufus, hana Mörtu.“
Björgvin segir Rufus einn af þeim
mjög fáu lagahöfundum og söngv-
urum sem komið hafa fram á sjón-
arsviðið síðastliðin ár sem eitthvað sé
varið í.
„Hann kemur með alveg nýja að-
ferð í lagasmíðum og þráð í flóruna í
dag. Hann er alinn upp við gömlu
meistarana, Rodgers and Hammer-
stein, Cole Porter, Ellu Fitzgerald og
fleiri snillinga. Hann er mikill smekk-
maður og hefur fengið gæðatónlistina
með móðurmjólkinni.“
Björgvin er að spinna nýjustu
hljóðsversplötu Rufus, Release the
Stars, í græjunum um þessar mundir.
„Uppáhaldslagið er svo „Natasha“ af
Want One en svo er túlkun hans á
Lennonlaginu „Across the Universe“
framúrskarandi. Hann er frábær
söngvari drengurinn.“
Allir dá þeir Wainwright
Pálmi Gunnarsson Björgvin Halldórsson
Eiríkur Guðmundsson
Vinsæll Rufus McGarrigle Wainwright hefur greinilega breiða skírskotun.
Fáeinir miðar eru eftir á tónleika
Rufus Wainwright í Háskólabíó n.k.
sunnudag. Áhugasömum er bent á
www.midi.is
Gulli Briem