Morgunblaðið - 10.04.2008, Page 44
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 101. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Eldur laus við Smáratorg
Allt tiltækt lið Slökkviliðs höf-
uðborgarsvæðisins var kallað út í
gær vegna elds við turninn á Smára-
torgi. » Forsíða
Skipulagt í miðbænum
Skipulagsráð hefur samþykkt að
setja í auglýsingu tvær deiliskipu-
lagsbreytingar í miðborginni, þ.e.
Pósthússtrætisreit og lóðir nr. 7 og 9
við Vegamótastíg. » 17
Sex slasaðir á spítala
Sex manns voru fluttir á slysa-
deild Landspítalans eftir harðan
árekstur tveggja bifreiða á Reykja-
nesbraut í gærmorgun. » 4
Öll börn fá pláss
Árið 2012 munu öll börn yfir 12
mánaða aldri í Reykjavík eiga kost á
annaðhvort leikskólaplássi eða vist-
un hjá dagforeldrum samkvæmt
4 ára aðgerðaáætlun borgaryf-
irvalda. » 8
SKOÐANIR»
Ljósvakinn: Einfalt að skrifa sem
snillingur
Staksteinar: Góðar fréttir!
Forystugreinar: Verðlagshækkanir
| Merkingar vegna framkvæmda
UMRÆÐAN»
Óheftur innflutningur á hráu kjöti
ógnar heilbrigði íslensks landbún-
aðar
Flugvöllur og fólk
Óvissan mikil
Allianz inn á íbúðalánamarkað
Er ríkisskattstjóri að brjóta gegn
EES-samningnum?
VIÐSKIPTI»
3
3 3 3%
3 3 3%%
4 !5 & . + !
6 %$ 1
3
3 3 3
3%
3
3 3 -7)1 &
3
3
3 3 3 3
3%
3%
89::;<=
&>?<:=@6&AB@8
7;@;8;89::;<=
8C@&7 7<D@;
@9<&7 7<D@;
&E@&7 7<D@;
&2=&&@$ F<;@7=
G;A;@&7> G?@
&8<
?2<;
6?@6=&2+&=>;:;
Heitast 0° C | Kaldast -5° C
Norðaustan 13-18
m/s á Vestfjörðum en
annars víða 5-13 m/s.
Él fyrir norðan en yf-
irleitt bjart syðra. » 10
Sígild íslensk dæg-
urlög kveða burt
snjóinn. Það er vor-
ilmur af plötunum
sem bæta sig á Tón-
listanum. » 40
TÓNLIST»
Með vor í
hjarta
FJÖLMIÐLAR»
Atli Fannar tekur við
tímaritinu Mónitor. » 41
Ármann Jakobsson
gefur út örsagna-
safn en í því eru ljóð-
rænar sögur sem
birst hafa á blogg-
síðu hans. » 39
BÓKMENNTIR»
Fullgott
fyrir bók
VEITINGASTAÐIR»
Pylsuvagninn í helstu
leiðsögubókum. » 36
LEIKHÚS»
Reynsluheimur kvenna í
Mammamamma. » 36
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Alvarlega slasaðir eftir bílslys
2. Reiður vegna Reykjanesbrautar
3. Andremma: Sökudólgur fundinn
4. Bílstjórar: „Við höldum áfram.“
Íslenska krónan veiktist um 0,73%
NÝJAR vélar
eru ástæða þess
að áferð mjólk-
urkexins frá
Fróni hefur
breyst að und-
anförnu, að sögn
Hjalta Nielsen
framkvæmda-
stjóra. Gömlu
vélarnar voru úr
sér gengnar og
varahlutir í þær
ófáanlegir svo fyrirtækinu var
nauðugur einn kostur að skipta
þeim út.
Um síðastliðna helgi birtist fjöld-
inn allur af athugasemdum lesenda
í Velvakanda Morgunblaðsins
vegna breytinganna sem orðið hafa
á mjólkurkexinu. Hjalti segir hins
vegar uppskriftina að kexinu þá
sömu og áður. „[Hún] hefur ekkert
breyst frá því 2001 þegar við tók-
um transfitusýrur úr allri okkar
framleiðslu. Það er eina hráefnið
sem hefur breyst frá upphafi en
trúlega er kexið búið að vera á
markaði frá því 1935-1940.“ | 20
Mjólkurkexi
breytt vegna
nýrra véla
Dýft í Mjólkurkex
er gott, ekki síst
með kaffinu.
„MÉR finnst nú vanta svona hús fyrir
ekki bara óperutónleika, við viljum
líka fá Rolling Stones,“ sagði Gunnar
I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi,
eftir að niðurstöður hönnunarsam-
keppni um óperuhús í Kópavogi voru
kynntar í gær.
Gunnar sagði að áætlanir um að
húsið yrði tilbúið árið 2010 stæðust
líklega ekki en það yrði þó vonandi
fljótlega í kjölfarið á opnun tónlistar-
hússins í Reykjavík sem opnað verður
árið 2009. „Í samkeppninni var talað
um 2010 en það verður nú líklega
ekki,“ sagði Gunnar.
Tillögur Arkþings ehf. og ALARK
Arkitekta verða unnar áfram. Áætlað
er að sú vinna taki átta vikur og enn
er eftir að „koma fjármögnuninni al-
veg í höfn“, sagði Gunnar á kynning-
arfundinum og að vonir stæðu til að
húsið yrði tilbúið 2010-2011.
Stefán Baldursson óperustjóri
kynnti niðurstöður hönnunarsam-
keppninnar og sagði m.a.: „… þessi
dagur er merkur áfangi inn í framtíð-
ina því gert er ráð fyrir því að þessi
bygging hýsi til frambúðar starfsemi
Íslensku óperunnar og bætir þar af
leiðandi alla hennar starfsaðstöðu og
rekstrarmöguleika.“
Nýja óperuhúsið í Kópavogi kemur
til með að hýsa alla starfsemi Ís-
lensku óperunnar.
Niðurstöður hönnunarsamkeppn-
innar verða til sýnis í Salnum í Kópa-
vogi í a.m.k. þrjár vikur og er sýn-
ingin öllum opin. Upplýsingar má
jafnframt nálgast á www.kopavogur-
.is og www.opera.is. | 6
Líka fyrir Rolling Stones
Niðurstöður hönnunarsamkeppni um óperuhús í Kópavogi
voru kynntar í gær Tvær tillögur verða unnar áfram
Morgunblaðið/Frikki
Áhugasamir óperusöngvarar Júlíus Vífill Ingvarsson og Gunnar Guð-
björnsson skoðuðu tillögurnar sem verða til sýnis í minnst þrjár vikur.
ÁHÖFN TBM2-risabors Impregilo
smokraði sér um hádegisbilið í
gær gegnum smágat í risavaxinni
borkrónunni og fagnaði vel og
innilega verklokum í heilborun að-
rennslisganga Kárahnjúkavirkj-
unar ásamt gestum.
Í hartnær fjögur ár hafa þrír
risaborar rutt sér leið daga og
nætur undir Fljótsdalsheiðinni og
nú síðast í Jökulsárgöngum. Þeir
skilja eftir sig 47 kílómetra af
göngum sem eru yfir sjö metrar í
þvermál. Síðasta gegnumslagið
var í Jökulsárgöngum austan Snæ-
fells og skeikaði aðeins tæpum 10
cm að risaborinn hitti kórrétt á
göng sem enda á miklum helli.
Borinn verður nú keyrður inn í
hellinn og tekinn í sundur. Vegna
þess hversu slétt og rennileg heil-
boruðu aðrennslisgöngin eru hefur
svokallað falltap á vatninu úr
Hálslóni til aflvéla virkjunarinnar
í Fljótsdalsstöð reynst talsvert
minna en í fyrstu var áætlað, eða
allt að 10%. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Glaðir og
reifir
bormenn
Eftir fjögur ár og 47 kílómetra í iðrum jarðar er heilborun ganga lokið