Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „HANN spilaði um páskana í fyrra og það kvöld var alveg rosalegt,“ seg- ir Arnviður Snorrason, betur þekktur sem Addi Exos, sem stendur fyrir komu hollenska plötusnúðsins Fedde Le Grand til landsins, en kappinn sá heldur tónleika á Broadway í kvöld. „Síðan hann kom í fyrra hefur hann átt mörg vinsæl lög, hvern smellinn á fætur öðrum, til dæmis „Let Me Think About It“ sem hefur verið vin- sælt hér á landi að undanförnu,“ segir Addi. Fedde Le Grand hafnaði í 22. sæti yfir bestu plötusnúða heims árið 2007 á lista sem tímaritið DJ Mag birtir árlega, og mun vera marktækasti listi sinnar tegundar í heiminum. „Fedde skaust upp í 22. sætið á aðeins einu ári. Hann vakti náttúrlega fyrst veru- lega athygli með „Put Your Hands Up For Detroit“ árið 2006, og síðan þá hefur hann verið að spila út um all- an heim.“ Hollendingurinn spilar fyrst og fremst lög annarra þegar hann er að DJ-ast, en þó skýtur hann sínum eig- in lögum inn á milli, og því líklegt að menn fái að heyra lög á borð við „Put Your Hands Up For Detroit“, „The Creeps“ og „Mirror“ í kvöld. Engar áhyggjur af Carl Cox Aðspurður segir Addi Broadway góðan stað fyrir klúbbakvöld sem þetta, enda hafi slík kvöld verið hald- in þar áður. „Við leigjum auka ljósa- og hljóðkerfi og gerum allt sem við getum til að gera staðinn betri og flottari,“ segir Addi sem sér sjálfur um upphitun ásamt þeim Sindra BM og Plugg’d. Addi segir miðasölu hafa gengið mjög vel og því sé engin ástæða til að hafa áhyggjur af því að Carl Cox sé að spila á Nasa í kvöld, en sá kappi hafnaði í sjöunda sæti á áðurnefndum lista. „Carl Cox er í harðari kantinum á meðan Fedde Le Grand er töluvert léttari. Fedde er mjög vinsæll og það eru mjög margir sem vita ekki hver Carl Cox er. Fedde er hins vegar bú- inn að vera í mikilli útvarpsspilun að undanförnu,“ útskýrir Addi. Upp með hendur! Fjör Einhvern veginn svona verður stemningin á Broadway í kvöld. Plötusnúðurinn Fedde Le Grand gerir allt vitlaust á Broadway í kvöld Miðasala fer fram í Jack & Jones í Kringlunni og er miðaverð 2.500 kr. Miðasala fer einnig fram við hurð í kvöld. PETER Bretter er í öngum sínum, kærastan hans til fimm ára, sjón- varpsleikkonan Sarah Marshall (Bell), var að segja honum upp og játa að í ofanálag hefði hún haldið framhjá honum með Aldous Snow (Brand), enskum rokkara og kvennabósa. Bretter, sem er væru- kært og letilegt tónskáld, sem semur m.a. músíkina fyrir sjónvarpsþætt- ina, hefur ekki grænan grun um hvernig hann á að lifa áfallið af. Finnur þann leik skástan í stöðunni að bregða sér í frí í sólskinið og sjó- inn á Hawaii. Hvern skyldi hann hitta þar fyrir fyrst allra, aðrar en turtildúfurnar Snow og Marshall, en á hótelinu er einnig Rachel Jansen (Kunis), undurfögur stúlka sem vinnur í gestamóttökunni og kann ýmislegt fyrir sér til að gleðja skap gestanna. Svolítið öðruvísi rómantísk gam- anmynd, sem hefur tvo stóra kosti sem eru aðalkarlleikararnir, Brand og Segel. Segel er ferskur og fynd- inn og sérlega notalegur náungi sem vinnur mann auðveldlega á sitt band og er í talsverðri fjarlægð frá öllum Stillerunum, Sandlerunum og Ferr- elleunum sem hafa tröllriðið þessari kvikmyndagrein upp á síðkastið. Segel er frábær sem hrakfalla- bálkurinn sem maður vonar að spjari sig og hann svíkur ekki sitt fólk. Vitaskuld er hann skræfa og væluskjóða, en sannar að jafnvel þær geta rifið sig upp úr volæðinu ef þær hætta kveinstöfunum. Hann stendur sig ekki síður í Forgetting Sarah Marshall en Knocked Up. Ferskur „Segel er ferskur og fynd- inn og sérlega notalegur náungi sem vinnur mann auðveldlega á sitt band,“ segir m.a. í gagnrýni. Stattu þig, strákur! KVIKMYND Laugarásbíó, Smárabíó, Sam- bíóin, Borgarbíó Akureyri. Leikstjóri Nicholas Stoller. Aðalleikarar: Jason Segel, Kristen Bell, Mila Kunis. Russell Brand. 111 mín. Bandaríkin 2008. Forgetting Sarah Marshall bbbmn Sæbjörn Valdimarsson eeeee -S.M.E., Mannlíf eeee - S.S. , X-ið FM 9.77 SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI eee - S.V., MBL SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI - L.I.B. Topp5.is/FBL eeee SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND Í SMÁRABÍÓI - Empire eeee eeee - E.E, D.V. Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í HáskólabíóiSími 564 0000Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó 21 kl. 8 - 10:35 B.i. 12 ára Superhero Movie kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára Horton m/ísl. tali kl. 4 - 6 SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI Street Kings kl. 8 - 10 B.i. 16 ára Forgetting Sarah Marshall kl. 8 - 10 B.i. 12 ára Superhero Movie kl. 6 B.i. 7 ára Bubbi Byggir m/ísl. tali kl. 6 Street Kings kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára Street Kings kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS Forgetting Sarah M.. kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Bubbi Byggir ísl. tal kl. 4 Street Kings kl. 6 - 8:30 - 11 B.i. 16 ára Awake kl. 8 - 10 B.i. 16 ára 21 kl. 6 - 9 B.i. 12 ára Superhero movie kl. 6 B.i. 7 ára Doomsday kl. 10:20 B.i. 16 ára Brúðguminn kl. 6 - 8 B.i. 7 ára SÝND Í REGNBOGANUM TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI FRÁBÆR SPENNUTRYLLIR MEÐ JESSICU ALBA OG HAYDEN CHRISTENSEN Í AÐALHLUTVERKUM. Á HVERJU ÁRI VAKNAR EINN AF HVERJUM 700 Á MEÐAN Á SKURÐAÐGERÐ STENDUR. ÞEGAR ÞAU PLÖNUÐU AÐ DREPA EIGINMANN HENNAR ÞÁ GRUNAÐI ÞAU EKKI AÐ HANN YRÐI EINN AF ÞESSUM 700 SEM VÆRU MEÐ FULLA MEÐVITUND! OG BORGARBÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.