Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 14
BRESK stjórnvöld leggja nú til að sveitarstjórnir njósni um viðskipta- vini stórmarkaða, í því skyni að að- stoða við öflun gagna um hvar inn- flytjendur frá Austur-Evrópu kjósa að setjast að í Bretlandi. Breska dagblaðið The Daily Telegraph gerði þetta að umtals- efni í gær, en þar sagði að hug- myndin yrði vís með að valda áhyggjum mannréttindahópa. Að sögn blaðsins hafa samtök sveitarstjórna (LGA) í Bretlandi áhuga á tillögunni og er verslana- keðjan Tesco sögð lykillinn að því að hægt sé að hrinda henni í fram- kvæmd, enda sé hún með verslun í sérhverju póstnúmeri í landinu. Haft er eftir Sir Simon Milton, formanni LGA, að kaupmenn standi mjög fag- mannlega að öfl- un gagna um fjölda viðskipta- vina og að ein til- lagan gangi út á samvinnu við þann hóp um þróun aðferða við gagnaöflunina. Hins vegar er tekið fram að per- sónuupplýsingar verði vinsaðar úr gögnunum sem samtökin láti stjórnvöldum í té. Fjöldi Austur- Evrópubúa hefur sest að í Bretlandi síðustu ár og er allt að fjórðungur íbúa einstakra bæja, samkvæmt nýjum gögnum. Njósni um innflytjendur í bresku stórmörkuðunum 14 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is BANDARÍSK yfirvöld hafa beðið Kínverja að afturkalla skip drekk- hlaðið vopnabúnaði sem beðið hefur affermingar við Afríkustrendur frá því á föstudag. Vopnasendingin er ætluð Simbabve-stjórn og skv. AFP- fréttastofunni sagði talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins að „miðað við ástandið í Simbabve væri ekki æskilegt að fjölga vopnum í landinu.“ Líklegt þykir að forseti landsins, Robert Mugabe, hyggist beita vopn- unum gegn stjórnarandstöðu lands- ins. Úrslit forsetakosninga sem haldnar voru þar í landi fyrir þremur vikum hafa ekki enn verið birt og hef- ur Mugabe verið ásakaður um að skipuleggja kosningasvik. Skipinu líklega snúið til baka Nágrannalönd Simbabve hafa leg- ið undir þrýstingi, m.a. frá banda- rískum yfirvöldum og mannréttinda- samtökum, um að afferma ekki kínverska skipið svo koma megi í veg fyrir afhendingu vopnanna. Kínversk yfirvöld hafa varið vopnasöluna til Simbabve og sagt hana löngu ákveðna. Hún sé ekki í nokkru samhengi við ólguna í landinu auk þess sem ekki sé vopnasölubann til Simbabve. Líklegt þykir þó að skipinu verði snúið aftur til Kína. Samkvæmt heimildum BBC hefur Morgan Tsvangirai, leiðtogi Lýðræð- ishreyfingarinnar, nú rætt við Ban- Ki Moon, framkvæmdastjóra Sam- einuðu þjóðanna, og beðið um aðstoð SÞ og Afríkusambandsins (AU) þar sem aðgerðir samtaka ríkja í sunn- anverðri Afríku (SADC) hafi haft lítið að segja. Frásagnir af auknu ofbeldi í kjöl- far kosninganna færast í aukana og hafa leiðtogar kirkna í Simbabve gefið frá sér yfirlýsingu þar sem far- ið er fram á alþjóðlega íhlutun vegna ástandsins. Þjóðarmorð í uppsiglingu Leiðtogar kirknanna segja mann- rán, pyntingar og morð viðgangast í baráttunni gegn stjórnarandstöð- unni og „ef ekki verður gripið inn í leiðir það til þjóðarmorðs eins og við höfum horft upp á í Kenía, Rúanda, Búrúndí og öðrum átakasvæðum í Afríku,“ sagði m.a. í yfirlýsingu þeirra skv. heimildum BBC. Talsmaður stjórnarandstöðunnar gagnrýndi vopnakaup yfirvalda í samtali við AP-fréttastofuna og sagði að í stað vopna væri réttara að flytja inn lyf, matvæli og aðrar nauðsynjar fyrir landsmenn: „Hér ríkir ekki opinbert stríð en það verð- ur að berjast gegn hungri, fátækt, spillingu og einræði.“ Kína hvatt til að kalla vopnaskipið heim Ofbeldi eykst í Simbabve og fjölgun vopna þykir óæskileg AP Vopn Líklegt þykir að kínverska skipinu verði snúið til baka. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ÞAÐ KANN að æra óstöðugan að vekja máls á því en til að núverandi olíuverð jafni verðtoppinn á dögum síðari olíukreppunnar þarf verðið á hráolíu að komast í 150 dali tunnan. Í fullyrðingar um að met hafi verið sett þegar tunnan fór í 118 dali á mörkuðum í New York á þriðjudag vantar samkvæmt þessu að taka með í reikninginn almenna verðþróun og aðra skylda þætti sem eru heppilegri mælikvarði en hin eiginlega doll- aratala. Þetta er niðurstaða Michael Lewis, yfirmanns greiningardeildar hráefn- isvara hjá Deutsche Bank, sem hefur reiknað út verðþróun á olíu út frá ólíkum leiðum, í því skyni að fá sem gleggstan samanburð á verðþróun- inni í gegnum tíðina. Kenningar Lewis eru gerðar að umtalsefni í síðasta tölublaði breska tímaritsins The Economist, en þar sagði að ef olíuverðið væri fram- reiknað með tilliti til verðbólgu og bandarísku framleiðsluvísitölunnar myndi verðið í upphafi níunda ára- tugarins jafngilda 94 dölum tunnan nú, verð sem núverandi kúrfa klifraði yfir fyrir nokkrum mánuðum. Sé verðið hins vegar reiknað út frá neysluverðsvísitölu þyrfti olían að fara í 118 dali tunnan til að slá metið sem þá var sett, þegar síðari olíu- kreppan var í algleymingi (olíuverðið hefur nú náð þessu marki). Tekjurnar hafa aukist mikið Sé það hins vegar tekið með í reikninginn að meðaltekjur neytenda á Vesturlöndum hafa aukist á þess- um aldarfjórðungi eða svo horfir dæmið öðruvísi við. Þannig segir í The Economist að árið 1981 hafi meðalárstekjur neytenda í G7- ríkjunum, sjö stærstu hagkerfa heims, aðeins hafa dugað til að kaupa 318 tunnur af olíu. Til að neytendur hefðu sama svigrúm í dag þyrfti olían að fara í 134 dali tunnan. Annar mælikvarði er að bandarísk stjórnvöld telja að hlutfallslega mest af ráðstöfunartekjum neytenda hafi runnið til orkukaupa á árinu 1980, þegar hlutfallið var 8% en 6,6% nú. Til að sama hlutfall neyslunnar rynni til orku nú þyrfti olíuverðið að fara í 145 dali tunnan. Og ekki nóg með það, olíukaup sem hlutfall af heimsframleiðslunni náðu einnig hámarki á árinu 1980, var þá 5,9% en 3,5% nú. Samkvæmt því þyrfti tunnan að komast í 150 dali. Olían hækkað um 450% Lewis gerði olíuþróunina að um- talsefni í breska dagblaðinu The Fin- ancial Times fyrr á árinu, þar sem hann benti á að hráolíuverðið hefði hækkað um 450% í verðsveiflunni nú, sem staðið hafi yfir í sex ár og sé því orðin lengsta hrina samfelldra verð- hækkana til þessa. Sem fyrr segir fór olíuverðið í 118 dali á mörkuðum á þriðjudag og að sögn The Financial Times átti til- kynning frá Alþjóðaorkustofnuninni (IEA) um óvenju mikinn samdrátt í birgðastöðu hráolíu og bensíns þátt í uppsveiflunni. Sagði þar einnig að afköst olíu- hreinsunarstöðva í Bandaríkjunum væru nú í sögulegu lágmarki frá því fellibyljirnir Katrína og Rita riðu yfir olíuinnviðina í Mexíkóflóa 2005. Þá ýti stöðug aukning í eftirspurn Kín- verja eftir dísilolíu undir þróunina. Verðið í 200 dali fyrir árslok? Í ársbyrjun töldu ýmsir sérfræð- ingar vestanhafs að tunnan af hráolíu myndi fara í 200 dali fyrir lok ársins. Greinendur Merrill Lynch og UBS- bankans töldu hins vegar kólnun í bandaríska hagkerfinu myndu leiða til mestu lækkananna á olíuverðinu frá 2001, spá sem fátt bendir til að rætist í því ljósi að lánsfjárkreppan hefur ekki slegið á verðið. Böndin hafa borist að OPEC, sam- tökum helstu olíuvinnsluríkja, vegna hækkananna að undanförnu. Talsmenn Alþjóðaorkustofnunar- innar (IEA) tóku á hinn bóginn undir með OPEC-ríkjunum, sem standa fyrir um 40% olíuvinnslunnar, á sam- eiginlegum fundi þeirra í vikunni, að lausnin væri ekki fólgin í aukinni vinnslu. Lausnin sé í höndum spá- kaupmanna, það séu þeir sem hafi mestu áhrifin á verðþróunina. Enn langt í olíumetið Hráolían þyrfti að fara í 150 dali fatið til að jafna metið frá 1980 sé verðið reiknað sem hlutfall af heimsframleiðslunni Reuters Sökudólgarnir? OPEC-ríkin segja ástæður mikilla verðhækkana á olíu liggja hjá spákaupmönnum. Lausnin sé því ekki að auka olíuvinnsluna. Í HNOTSKURN »Alþjóðaorkustofnunin (IEA)spáir 2,5% aukningu í olíu- eftirspurninni í heiminum í ár. »Samkvæmt sömu spá muneftirspurnin fara í 87,8 millj- ónir tunna á dag í ár, 2,1 milljón tunna meira en í fyrra, aukning sem nemur vinnslu Nígeríu. »Þá er reiknað með að eftir-spurn Kínverja aukist um 5,7% í um 8 milljón tunnur á dag. EF PENINGAR tryggja velgengni í stjórnmálum stendur Barack Obama vel að vígi gagnvart Hillary Clinton í keppninni um útnefningu forsetaefnis Demókrataflokksins. Obama hefur safnað tæpum 234 milljónum dollara eða um 17 millj- örðum íslenskra króna frá því að kosningaherferð hans hófst og hinn 1. apríl hafði hann úr rúmum þrem- ur milljörðum króna að spila til að fjármagna prófkjör sitt skv. upplýs- ingum bandaríska kosningaráðsins (FEC). Skuldir Obama undir lok mars námu um tæpum 50 millj- ónum króna. Clinton stendur hallari fæti fjár- hagslega því hún hefur frá upphafi safnað sem nemur 13 milljörðum ís- lenskra króna og er mun skuldsett- ari því hún skuldar um 745 millj- ónir króna. Í byrjun apríl hafði hún „aðeins“ úr rúmum 700 milljónum króna að spila. Keppinautarnir auglýstu grimmt fyrir forkosningarnar sem fram fóru í Pennsylvaníufylki í gær. Samkvæmt útreikningum vefsíðu Campaign Media Analysis Group (CMAG) eyddi Obama sem nemur rúmum 800 milljónum króna í aug- lýsingar í Pennsylvaníufylki frá 18. mars til 16. apríl en Clinton eyddi um 335 milljónum króna. AP Kosningasjóður Barack Obama er enn stútfullur Barist Obama og Clinton heyja harða baráttu um hylli demókrata. Reuters STÆRSTA pönduræktunarstöð í heimi rís senn í Kína og verður lokið við fyrsta hluta bygging- arinnar undir lok þessa árs. Pöndur eru í mikilli útrýming- arhættu og þykja þar að auki af- ar latar við að fjölga sér. Meg- inverkefni nýju stöðvarinnar verður því að örva dýrin við þá iðju. Stöðin er á aðalverndarsvæði dýranna, á Wolong náttúruvernd- arsvæðinu, og verður sú stærsta sinnar tegundar hvað rými og rannsóknir varðar. Leiksvæði pandnanna verður um 19.400 fm en auk þess verður gott rými fyrir dýrin svo þau geti étið og fjölgað sér. Pöndur eru í miklum metum í Kína en aðeins 239 lifa þar fangnar en 27 utan landsins. Tal- ið er að 1.590 pöndur lifi villtar í náttúrunni. Reuters Krútt Pönduungar eru kærkomnir því dýrin eru í útrýmingarhættu. Pöndur hvattar til æxlunar ÁRLEG úttekt EuroTAP (European Tunnel Assessment Programm) á stöðu öryggismála í jarðgöngum Evrópu leiddi í ljós að í þriðjungi skoðaðra jarðganga reyndist öryggisatriðum mjög ábótavant og reyndust þetta lökustu nið- urstöður í fimm ár. EuroTAP er styrkt af Al- þjóðlega bílasambandinu (FIA) og voru í ár skoð- uð 31 göng í ellefu löndum Evrópu. Noregur og Ítalía komu verst út úr úttektinni, en löndin hafa rekið lestina síðustu þrjú árin að því er segir í fréttatilkynningu EuroTAP. Ástand og fjöldi neyðarútganga, neyðarsímar og eldvarnarkerfi eru meðal þeirra atriða sem athuguð eru og setti Evrópuþingið leiðbeinandi reglur um ör- yggisatriði í jarðgöngum árið 2004 sem aðildarlönd skulu hafa tekið í fulla notkun árið 2014. FÍB gekk í samtökin á þessu ári og verða íslensk jarð- göng því með í úttektum komandi ára. Hættuleg jarðgöng í Evrópu STUTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.