Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 23. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FYRIRTÆKIÐ Vistor er sam- starfsaðili fjölmargra alþjóðlegra lyfjafyrirtækja og veitir þeim m.a. þjónustu í sölu- og markaðsmálum. Lyfjafræðingur sem starfar hjá Vist- or, spyr hvort aðstoðarlandlæknir hafi tapað áttum. Ályktunina dregur starfsmaður fyrirtækisins af því að undirritaður reyndi á fundi um lyfjafalsanir að setja málin í víðara samhengi. Meðal annars var nefnt að sumir freistast til að kaupa sér óáreið- anleg lyf á netinu vegna þess hve verðlagið er hátt á lyfjum sem fást eftir löglegum leiðum. Það er hluti af vanda- málinu. Tilgreint var al- gengt lyf sem undirrit- aður keypti á tíföldu verði hér miðað við Sví- þjóð. Gagnrýni á starfs- aðferðir lyfjaiðnaðarins erlendis er ekki ættuð frá undirrituðum. Þar eru miklu merkilegri aðilar á ferð. Má þar nefna tvo fyrr- verandi ritstjóra þekktasta lækna- tímarits heimsins, New England Jo- urnal of Medicine. Annar ritstjóranna fyrrverandi, dr. Marcela Angell, kennir nú við Harvard-háskóla, en bók hennar ber nafnið „The Truth about Drug Companies, How They Deceive Us and What to Do About It. „Hinn ritstjórinn er dr. JP Kassirer og heitir bók hans „On the Take: How Medicine’s Complicity with Big Bus- iness Can Endanger Your Health“. Einnig má nefna bókina „Whistleblo- wer: Confessions of a Healthcare Hit- man“ eftir sænska lækninn Peter Rost, sem var aðstoðarforstjóri lyfja- fyrirtækisins Pfeizer. Í glænýju hefti af JAMA, sem er annað helsta lækna- tímarit Bandaríkjanna, má lesa hvernig lyfja- fyrirtækin nota svokall- aða „ghostwriters“ (draugahöfunda) og láta starfsmenn sína semja meintar vísindagreinar, en fá síðan óháða aðila til að standa sem höf- unda, þótt þeir hafi ekki átt aðild að rannsókn- unum. Í ritstjórn- argrein blaðsins segir að óeðlileg áhrif lyfja- iðnaðarins séu óvið- unandi og þau verði stöðva. Iðulega kemur fram að þeir sem ýja að því að ekki sé allt með felldu varðandi starfsemi sumra lyfjafyr- irtækja eru úthrópaðir af tals- mönnum fyrirtækjanna. Gjarnan er veist að persónu þeirra og þeir jafn- vel taldir hafa tapað áttum. Ekki get ég svarað spurningunni um hvort að- stoðarlandlæknir hafi tapað áttum. Hitt veit ég að hann er ekki alltaf smekklegur. Hafa ritstjórar helstu læknatímarita heims- ins tapað áttum? Matthías Halldórsson skrifar um lyfjafalsanir og lyfjaverð » Gagnrýni á starfs- aðferðir lyfjaiðn- aðarins erlendis er ekki ættuð frá undirrituðum. Þar eru miklu merki- legri aðilar á ferð. Matthías Halldórsson Höfundur er aðstoðarlandlæknir. Í GREIN Kjartans Magnússonar, sem birtist í Morgunblaðinu í gær, reynir hann að verja hringlandahátt sjálfstæðismanna í útrásarmálum REI, dótturfélags Orkuveitunnar. Í greininni heldur hann því fram, fullur vandlætingar, að hundrað daga meirihlutinn hafi samþykkt að láta REI taka þátt í einkavæðingarferli á Filippseyjum. Hið sanna er að í stjórnarformannstíð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar var hinn 7. mars 2007 samþykktur samstarfssamningur milli Geysir Green Energy ehf. (GGE) og Orkuveitunnar um jarð- hitaverkefni á Filippseyjum. Hinn 11. júlí 2007 var svo samþykkt í stjórn REI að taka þátt í kaupum ásamt GGE á þeim hlut sem í boði var eftir útboð í EDC (Energy Deve- lopment Corporation) á Filipps- eyjum. Á þeim tíma voru sjálfstæð- ismenn enn í forystu í stjórn Orkuveitunnar. Hlutur REI í þess- um kaupum nam 500 milljónum og voru þessi kaup formlegt upphaf að kaupum REI á Filippseyjum, en REI á þennan hlut enn í dag. Frekari kaup á hlutum í filippseyska fyr- irtækinu voru svo til vinnslu og um- ræðu á nær öllum stjórnarfundum REI í kjölfarið og enn undir forystu sjálfstæðismanna. Hundrað daga meirihlutinn tók því við því verkefninu frá sjálfstæð- ismönnum þegar það var í fullum gangi. Hið rétta er að í tíð hundrað daga meirihlutans var að endingu ákveðið að taka ekki þátt í frekari kaupum á Filippseyjum. Ástæða þess var að hugmyndir erlendra sam- starfsaðila REI og GGE voru aðrar er íslensku fyrirtækjanna um hvaða verð ætti að bjóða fyrir fyrirtækið á Filipps- eyjum. Kúrsinn réttur Rétt er að halda því til haga að ekkert hlutafé var lagt inn í REI í tíð hundrað daga meirihlut- ans, þannig hefur það milljarða hlutafé sem lagt hefur verið í REI verið sett inn í félagið undir forystu sjálfstæð- ismanna. Þegar hundrað daga meirihlutinn tók við hafði fyrsti meirihluti þessa kjörtímabils keyrt málið út í skurð. Þess vegna var í tíð hundrað daga meirihlutans lögð aðaláhersla á að fara yfir stöðu mála og finna sam- eiginlegan grunn til að starfa áfram að orkuút- rásinni. Sú sameiginlega nið- urstaða sem náðist í stýrihópsvinnunni var að REI yrði áfram að fullu í eigu OR og myndi áfram sinna útrásarverkefnum eitt og sér eða í samstarfi við aðra aðila. Þannig átti að tryggja að útrásin héldi áfram, án þess að fyrirtæki og þekk- ing þess yrði seld eða það sameinað öðrum fyrirtækjum. Þannig má segja að niðurstaða stýrihópsins hafi rétt kúrsinn á þá upphaflegu stefnu sem sett var þegar REI var stofnað, í mars 2007. Kúvending sjálfstæðismanna Allir stjórnarformenn Sjálfstæð- isflokksins sem verið hafa í OR og/eða REI hafa unnið í samræmi við þann tilgang fyrirtækisins sem fram kemur í sam- þykktum félagsins, það er „fjárfestingar í rann- sóknum, framleiðslu, flutningi, dreifingu og sölu rafmagns og rekstur á sviði vatns- og orkumála, eitt sér eða með þátttöku ann- arra í slíkum verk- efnum“. Samkvæmt þessari stefnu hefur Kjartan Magnússon stjórnarformaður OR og REI án efa verið að vinna, þegar hann í fé- lagi við Ástu Þorleifs- dóttur varaformann stjórnar OR og REI, ferðaðist um heiminn og skrifaði undir vilja- yfirlýsingar og samn- inga. Nýframkomin tillaga meirihlutans um að REI dragi sig út úr öll- um verkefnum sem ein- hver fjárhagsleg áhætta fylgir, er því kúvending frá þeim tilgangi sem sjálfstæðismenn undir forystu Guðlaugs Þórs Þórð- arsonar stofnuðu fyrirtækið til að starfrækja og kúvending á þeirri stefnu sem Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur unnið eftir. Það er orðið löngu tímabært að sjálfstæðismenn taki á sínum málum. Horfist í augu við ábyrgð sína í útrásarmálum Orkuveit- unnar og reyni að standa undir henni. Ef þeir treysta sér ekki til þess er rétt að þeir taki pokann sinn og gefi REI og Reykvíkingum frí frá ruglinu. Kjartan á villigötum Sigrún Elsa Smáradóttir svarar grein Kjartans Magnússonar »Hið rétta er að í tíð hundrað daga meirihlutans var ákveðið að taka ekki þátt í frekari kaupum á Filippseyjum Sigrún Elsa Smáradóttir Höfundur er borgarfulltrúi og á sæti í stjórnum OR og REI. NÚ STENDUR yfir vika bók- arinnar sem beinir athygli okk- ar að mikilvægi lesturs. Það skiptir sköpum fyrir náms- árangur að börn venjist bókum snemma og upplestur fyrir börn heldur áfram að vera mik- ilvægur, jafnvel þótt börnin séu orðin læs. Lestur góðra bóka með börnunum veitir auk þess mjög ánægjulegar sam- verustundir. Í þessu samhengi er vert að minnast á Þjóðargjöfina, verk- efni sem Félag íslenskra bóka- útgefenda og bóksalar standa saman að. Verkefnið, sem stendur yfir frá 22. apríl til 4. maí, felst í því að gefnar eru út ávísanir sem hægt er að nota sem inneign við bókakaup að því tilskildu að viðkomandi leggi fram fé á móti. Þannig er fjöl- skyldum gert auðveldara að kaupa bækur og auka við les- efnisforða heimilisins. Á morgun er sumardagurinn fyrsti, hátíðisdagur sem hefur sérstaka merkingu í huga lands- manna. Þá fögnum við sum- arkomu, þrátt fyrir að veð- urblíðan láti stundum á sér standa. Barnavinafélagið Sum- argjöf stóð lengi vel fyrir þeirri hefð að gefa íslenskum börnum sumargjöf á þessum degi, bók- ina Sólskin. Ég vil því hvetja til þess að fólk endurveki þennan gamla sið í ár, hugi að Þjóð- argjöfinni og gefi barni bók í sumargjöf. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Gefum bók í sumargjöf Höfundur er menntamála- ráðherra. MORGUNBLAÐIÐ er með í notkun móttökukerfi fyrir aðsendar greinar. Formið er að finna við opn- un forsíðu fréttavefjarins mbl.is vinstra megin á skjánum undir Morgunblaðshausnum þar sem stendur Senda inn efni, eða neð- arlega á forsíðu fréttavefjarins mbl.is undir liðnum Sendu inn efni. Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að skrá sig inn í kerf- ið með kennitölu, nafni og netfangi, sem fyllt er út í þar til gerða reiti. Næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá notandasvæðið virkt. Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur þeirri hámarks- lengd sem gefin er upp fyrir hvern efnisþátt. Þeir, sem hafa hug á að senda blaðinu greinar í umræðuna eða minningargreinar, eru vinsamlegast beðnir að nota þetta kerfi. Nánari upplýsingar gefur starfsfólk greina- deildar. Móttökukerfi aðsendra greina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.